Morgunblaðið - 14.11.2018, Page 26
26 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. NÓVEMBER 2018
Sigurlína Valgerður Ingvarsdóttir, sem fagnar 40 ára afmælisínu í dag, hefur lengi verið viðloðandi tölvuleikjabransann oger í fremstu röð í heiminum í því fagi. Hún er iðnaðarverkfræð-
ingur frá Háskóla Íslands en hafði ekki dottið í hug að vinna við tölvu-
leiki í framtíðinni.
„Ég spilaði tölvuleiki
sem krakki en ég hafði
ekki hugmynd um að það
væri eitthvað sem ég gæti
unnið við og það gerðist
alveg óvart eftir að ég fór
á fyrirlestur hjá Hilmari í
CCP eftir að ég var búin
að vera að vinna sem verk-
efnastjóri í nokkur ár eftir
útskrift. EVE Online og
CCP heillaði mig alveg og
6 vikum síðar fór ég að
vinna þar.“
Sigurlína flutti til Sví-
þjóðar 2011 og var í ár hjá
Ubisoft Massive í Malmö
og fór svo til Stokkhólms
2012 þar sem hún var í
fjögur ár hjá DICE sem yf-
irframleiðandi á leiknum
Star Wars Battlefront þar
til í nóvember 2016.
„Þá flutti ég til Vancou-
ver í Kanada í ársbyrjun
2017 þar sem ég vann sem yfirframleiðandi á FIFA við að leiða fram-
tíðarstrategíu og svo þróun á FIFA ’19 sem er nýkominn út. Í þessum
nýjasta FIFA var til dæmis í fyrsta skipti hægt að spila allan söguhlut-
ann sem stelpa, Kim Hunter.“ Einnig bættist Meistaradeildin við leik-
inn að þessu sinni.
„Svo í þessari viku brugðum við fjölskyldan undir okkur betri fæt-
inum og ég hætti hjá EA sem á DICE og líka stúdíóið í Vancouver sem
býr til FIFA og vorum að flytja til Irvine rétt fyrir sunnan Los Angel-
es þar sem ég byrjaði í fyrradag að vinna hjá sprotafyrirtæki í leikja-
bransanum sem heitir Bonfire Studios. Mér finnst gaman að breyta
til, lífið er stutt, ég hef verið mjög heppin og fengið mörg tækifæri og
þegar þau hafa boðist hef ég verið dugleg að taka þau.“
Sigurlína er gift Marteini Friðrikssyni og börn þeirra eru Emma 10
ára og Matthildur 6 ára.
„Ég ætla að halda upp á fertugsafmælið um næstu helgi í Las Vegas
með eiginmanni og fríðu föruneyti fjölskyldumeðlima sem koma
hingað til að fagna með mér.“
Tölvuleikjaframleiðandinn Sigurlína.
Í fremstu röð í
tölvuleikjaheiminum
Sigurlína Ingvarsdóttir er fertug í dag
A
uður Bjarnadóttir
fæddist í Reykjavík
14.11. 1958 og ólst upp
í Vesturbænum: „En
líklega mætti segja að
Þjóðleikhúsið hafi verið annað
heimili mitt. Þar æfði ég ballett
frá unga aldri, dansaði á hverju
ári í barna- og leiksýningum og
var einn af stofnendum Íslenska
dansflokksins 1973. Ég dansaði
einnig í München, Basel og í
Stokkhólmi.“
Auður vann fyrstu verðlaun í
Norrænni danskeppni ungra dans-
ara í Finnlandi 1977: „Ég dansaði
auk þess í danskeppni í Bolshoi í
Moskvu og smyglaði þá í leiðinni
nokkrum Biblíum til Sovétríkj-
anna. Nokkrar fóru líka til Ung-
verjalands þegar ég bjó í
München.“
Eftir að Auður hætti að dansa
sjálf opinberlega starfaði hún um
árabil sem danshöfundur og leik-
stjóri.
Úr ballett í jóga
Auður hefur kennt jóga frá
árinu 2000. Hún rekur Jógasetrið í
Skipholti en þar býður hún upp á
Auður Bjarnadóttir framkvæmdastjóri – 60 ára
Afmælisbarnið Hvað er betra en að stunda jógaæfingar og hugleiðslu, umvafin íslenskri víðáttu og náttúrufegurð?
Ballett í Bolshoi og
Biblíusmygl til Sovét
Fjölskyldan Inga Huld, Hákon með Ólaf Bjarna, Auður og Hlynur Helgi.
Þær Anna Björg Steinþórsdóttir, Ásta Ninna Reynisdóttir, Inga Karen Björg-
vinsdóttir, Karlotta Klara Helgadóttir, Sól Björnsdóttir og Þórhildur Eva Helga-
dóttir héldu tombólu fyrir utan Krambúðina á Byggðavegi á Akureyri og söfnuðu
8.487 kr. Þær gáfu Eyjafjarðardeild Rauða krossins söfnunarféð. Við þökkum
stelpunum kærlega fyrir framlagið.
Hlutavelta
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Hágæða kristalglös frá Þýskalandi
Progastro | Ögurhvarfi 2, Kópavogi | Sími 540 3550
progastro.is | Opið alla virka daga kl. 9–17.
Allir velkomnir einstaklingar og fyrirtæki
Allt fyrir eldhúsið
30%
afslátturaf öllum Spiegelauglösum þessa
vikuna
afsláttarvika
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Allir þeir sem senda blaðinumynd af nýjum borgara eðamynd af brúðhjónum fá fría áskrift
að Morgunblaðinu í einnmánuð.
Hægt er að sendamynd og texta af slóðinnimbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
Börn og brúðhjón