Morgunblaðið - 14.11.2018, Síða 31

Morgunblaðið - 14.11.2018, Síða 31
MENNING 31 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. NÓVEMBER 2018 Ljósmynd/Thies Rätzke Áskorun Sviðslistahópurinn Marmarabörn setur sig í stellingar til að takast á við hið ómögulega á Stóra sviðinu. Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is Íslenski sviðslistahópurinn Marm- arabörn sýnir Moving Mountains in Three Essays eða Að flytja fjöll í þremur atrennum á Stóra sviði Þjóðleikhússins í kvöld kl. 19.30. Sýningin er hluti af alþjóðlegu sviðslistahátíðinni í Reykjavík, Everybody’s Spectacular. Marm- arabörn skipa Katrín Gunn- arsdóttir, Kristinn Guðmundsson, Sigurður Arent Jónsson, Saga Sig- urðardóttir og Védís Kjartansdóttir. „Við frumsýndum verkið á aðal- sviði Kampnagel-leikhússins í Ham- borg í mars 2017 í samstarfi við K3- Zentrum für Choreografie – Tanz- plan Hamburg og höfum síðan sýnt það í Norðurlandahúsinu í Fær- eyjum. Stefna okkar var samt alltaf að sýna sýninguna hér heima. Við þurftum hins vegar að finna nógu stórt svið og tíma sem hentaði öllum hópnum, enda búa Kristinn og Sig- urður erlendis,“ segir Védís Kjart- ansdóttir og tekur fram að aðeins verði þessi eina sýning. Fyrir rúmu ári fjallaði Morgun- blaðið um það þegar Irmela Kästn- er, gagnrýnandi tímaritsins Tanz, útnefndi uppfærslu Marmarabarna í Hamborg sem sýningu ársins auk þess sem hópurinn var valinn ein af rísandi stjörnum sviðslista í Þýska- landi. „Tanz er mjög virt tímarit og því mikill heiður að fá þessa við- urkenningu, en við vorum líka til- nefnd til gagnrýnendaverðlauna Tanz.“ Að sögn Védísar hefur hópurinn starfað saman undir merkjum Marmarabarna eða Marble Crowd síðan 2013 og sett upp sýningar eft- ir Sögu. „Moving Mountains in Three Essays er hins vegar fyrsta sýningin sem við sköpum saman sem hópur.“ Líkt og nafnið gefur til kynna fjallar sýningin, að sögn Védísar, um það að flytja fjall. „Okkur lang- aði til að tækla hið ómögulega og tókum þetta konsept sem snýr að því hvernig flytja má fjall á sviði. Við erum aðeins fimm á sviðinu og öll sviðsmyndin er í pökkum sem við getum haldið á,“ segir Védís, en sviðsmynd og búninga uppfærsl- unnar hannaði Tinna Ottesen, lýs- ingu hannaði Lars Rubarth og tón- list og hljóðmyndina samdi Gunnar Karel Másson. „Í raun snýst þessi sýning um það hvernig við getum sigrað þetta stóra svið með leikgleði að leið- arljósi,“ segir Védís, en sýningin er um 90 mínútur í flutningi og leikin án hlés. Spurð hvort sýningin sé krefjandi í flutningi í ljósi umfjöllunarefnisins svarar Védís: „Já og nei. Við erum auðvitað að reyna að ná markmiði sem er ómögulegt, en á sama tíma er það mögulegt þar sem við trúum því og gerum það saman. Sam- staðan í ferlinu er mjög falleg og skín í gegn á sviðinu. Meðal þess sem við skoðum er hvað er fjall, hvort það sé til dæmis heilagur staður eða bara stórt steinasafn.“ Innt eftir því hvort hópurinn sé þegar farinn að leggja drög að næstu uppfærslu svarar Védís því játandi. „Við erum öll í hópnum mjög upptekin og því getur reynst erfitt að koma hópnum saman. Sem dæmi búa Kristinn og Sigurður er- lendis og við Katrín eignuðumst báðar börn fyrir þremur mánuðum. En við erum að byrja á nýju verki sem verður frumsýnt á næsta ári. Þar ætlum við að halda áfram með þá vinnuaðferð sem við erum búin að þróa í samstarfi og skoða út- ópíur, eyjur og eyjaklasa. Ætlunin er því aftur að skoða stórt hugtak, sambærilegt við það að flytja fjöll,“ segir Védís og bendir á að það sé mjög gjöfult að vinna með stór hug- tök. „Það er svo skemmtileg áskor- un að takast á við hið ómögulega. Það krefst opins hugar og skapandi nálgunar sem leiðir okkur inn á nýj- ar slóðir, sem er spennandi.“ Fjall flutt á sviði  Marmarabörn sýna Moving Mountains in Three Essays í Þjóðleikhúsinu í kvöld  Hluti af Everybody’s Spectacular Hin nýja hljómplata Víkings Heiðars Ólafssonar með píanóverkum eftir Johann Sebastian Bach, sem Deutsche Grammophon gefur út, er ein af klassískum plötum mánaðar- ins hjá hinu virta tímariti Gramo- phone. Rýnir Gramophone, Harriet Smith, fer í löngu máli afar lofsam- legum orðum um plötuna og túlkun Víkings Heiðars. Segist hún fyrst hafa heyrt til hans er hann lék Bach- efnisskrá á tónleikum og hrifist af, sú tilfinning hafi aðeins styrkst við að hlýða á þessar hrífandi upptökur. Rýnir byrjar að staðsetja Víking í hópi píanóleikara og segir að í leik hans blandist fantasía Mariu João Pires og Mörthu Argerich við „kontrapunktískan ákafa Piotrs Anderszewskis. En hann er engu að síður mjög mikið hann sjálfur“, seg- ir hún og skýrir hvernig Víkingur blandar upprunalegum verkum Bachs við endurritanir eftir ólík tón- skáld og hljóðfæraleikara, meðal annars Víking sjálfan – og er henni hrósað. Vitnað er til skrifa Víkings um það hvernig hann hafi fundið sína leið að Bach með því að hlýða á ólík- ar túlkanir en rýnir segir nálgun hans afar persónulega og aldrei til- gerðarlega. Þá tekur rýnirinn ýmis dæmi um það hvernig Víkingur nálgast ýmis verk og notar iðulega afar lofsamleg lýsingarorð um leik- inn og túlkunina, þar sem fegurð verkanna nái að skína í gegn. Hún notar til dæmis orðið „fullkomnun“ í umfjöllun um Prelúdíu og fúgu í c- moll úr Velstillta píanóinu; að í pre- lúdíunni mætist kraftur og snilld og fúgan sé „fyrirmynd hvað tær smá- atriði varðar“. Sagt er að það sé sem Víkingur bjóði með túlkun sinni upp á ólík sjónarhorn á brjóstmyndina af Bach sem hann hafi við hljóðfærið. Að lokum er tæknimönnum Deutsche Grammophon hrósað og sagt að hinn „einstaki“ Víkingur geti verið stoltur af verki þeirra – hún geti ekki beðið eftir að heyra hvað hann sendi næst frá sér. Bach-túlkun Víkings Heiðars lofuð Morgunblaðið/Einar Falur Píanóleikarinn Rýnir Gramophone getur ekki beðið eftir að heyra hvað Víkingur sendir næst frá sér. Ronja Ræningjadóttir (Stóra sviðið) Lau 17/11 kl. 14:00 Auka Sun 9/12 kl. 14:00 Auka Sun 20/1 kl. 16:00 33.sýn Lau 17/11 kl. 17:00 Auka Sun 9/12 kl. 17:00 25. s Sun 27/1 kl. 13:00 34.sýn Sun 18/11 kl. 13:00 20. s Lau 29/12 kl. 13:00 Auka Sun 27/1 kl. 16:00 35.sýn Sun 18/11 kl. 16:00 21. s Lau 29/12 kl. 16:00 Auka Sun 3/2 kl. 13:00 36.sýn Lau 24/11 kl. 17:00 Auka Sun 30/12 kl. 13:00 26. s Sun 3/2 kl. 16:00 37.sýn Sun 25/11 kl. 14:00 Auka Sun 30/12 kl. 16:00 27. s Sun 10/2 kl. 13:00 38.sýn Sun 25/11 kl. 17:00 22. s Sun 6/1 kl. 13:00 28.sýn Sun 10/2 kl. 16:00 39.sýn Lau 1/12 kl. 14:00 Auka Sun 6/1 kl. 16:00 29.sýn Sun 17/2 kl. 13:00 40.sýn Lau 1/12 kl. 17:00 23. s Sun 13/1 kl. 13:00 30.sýn Sun 17/2 kl. 16:00 41.sýn Sun 2/12 kl. 14:00 Auka Sun 13/1 kl. 16:00 31.sýn Sun 24/2 kl. 13:00 42.sýn Sun 2/12 kl. 17:00 24. s Sun 20/1 kl. 13:00 32.sýn Sun 24/2 kl. 16:00 43.sýn Stórskemmtilegur og æsispennandi söngleikur fyrir alla fjölskylduna! Samþykki (Stóra sviðið) Fim 15/11 kl. 19:30 5.s Fös 23/11 kl. 19:30 7. s Fös 30/11 kl. 19:30 9.s Fös 16/11 kl. 19:30 6.s Fim 29/11 kl. 19:30 8.s Fös 7/12 kl. 19:30 10.sýn Kraftmikið, splunkunýtt verk sem sló í gegn í Breska þjóðleikhúsinu. Leitin að jólunum (Leikhúsloft) Lau 17/11 kl. 11:00 313.s Sun 2/12 kl. 12:30 323.s Lau 15/12 kl. 14:30 333.s Lau 17/11 kl. 12:30 314.s Lau 8/12 kl. 11:00 324.s Sun 16/12 kl. 11:00 334.s Lau 24/11 kl. 11:00 315.s Lau 8/12 kl. 13:00 325.s Sun 16/12 kl. 13:00 335.s Lau 24/11 kl. 13:00 316.s Lau 8/12 kl. 14:30 326.s Sun 16/12 kl. 14:30 336.s Lau 24/11 kl. 14:30 317.s Sun 9/12 kl. 11:00 327.s Lau 22/12 kl. 11:00 337.s Sun 25/11 kl. 11:00 318.s Sun 9/12 kl. 12:30 328.s Lau 22/12 kl. 13:00 338.s Sun 25/11 kl. 12:30 319.s Fös 14/12 kl. 17:30 329.s Lau 22/12 kl. 14:30 339.s Lau 1/12 kl. 11:00 320.s Fös 14/12 kl. 19:00 330.s Sun 23/12 kl. 11:00 340.s Lau 1/12 kl. 12:30 321.s Lau 15/12 kl. 11:00 331.s Sun 23/12 kl. 13:00 341.s Sun 2/12 kl. 11:00 322.s Lau 15/12 kl. 13:00 332.s Sun 23/12 kl. 14:30 342.s Grímuverðlaunasýningin Leitin að jólunum. Fly Me To The Moon (Kassinn) Fös 16/11 kl. 19:30 17.s Fim 22/11 kl. 19:30 19.sýn Lau 1/12 kl. 19:30 Lau 17/11 kl. 19:30 18.s Fös 23/11 kl. 19:30 20.sýn Sun 2/12 kl. 19:30 Nýtt verk eftir höfund hins geysivinsæla leikrits Með fulla vasa af grjóti Insomnia (Kassinn) Mið 14/11 kl. 19:30 Frums Sun 25/11 kl. 19:30 4.sýn Sun 9/12 kl. 19:30 7.sýn Fim 15/11 kl. 19:30 2.sýn Fim 29/11 kl. 19:30 5.sýn Lau 24/11 kl. 19:30 3.sýn Fös 30/11 kl. 19:30 6.sýn Brandarinn sem aldrei deyr Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari) Mið 14/11 kl. 20:00 Mið 28/11 kl. 20:00 Mið 12/12 kl. 20:00 Mið 21/11 kl. 20:00 Mið 5/12 kl. 20:00 Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins! Moving Mountains (Stóra Sviðið) Mið 14/11 kl. 19:30 leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200 Elly (Stóra sviðið) Fim 15/11 kl. 20:00 aukas. Fös 23/11 kl. 20:00 173. s Sun 2/12 kl. 20:00 177. s Lau 17/11 kl. 20:00 165. s Sun 25/11 kl. 20:00 174. s Fim 6/12 kl. 20:00 178. s Sun 18/11 kl. 20:00 171. s Fim 29/11 kl. 20:00 175. s Fös 7/12 kl. 20:00 179. s Fim 22/11 kl. 20:00 172. s Lau 1/12 kl. 20:00 176. s Stjarna er fædd. Allt sem er frábært (Litla sviðið) Lau 17/11 kl. 20:00 20. s Fös 30/11 kl. 20:00 22. s Fös 23/11 kl. 20:00 21. s Fös 7/12 kl. 20:00 23. s Gleðileikur um depurð. Kvenfólk (Nýja sviðið) Fim 22/11 kl. 20:00 1. s Lau 1/12 kl. 20:00 6. s Sun 16/12 kl. 20:00 11. s Fös 23/11 kl. 20:00 2. s Fös 7/12 kl. 20:00 7. s Fim 20/12 kl. 20:00 aukas. Lau 24/11 kl. 20:00 3. s Lau 8/12 kl. 20:00 8. s Fös 21/12 kl. 20:00 aukas. Sun 25/11 kl. 20:00 4. s Fim 13/12 kl. 20:00 9. s Fös 28/12 kl. 20:00 12. s Fös 30/11 kl. 20:00 5. s Fös 14/12 kl. 20:00 10. s Lau 29/12 kl. 20:00 13. s Drepfyndin sagnfræði með söngvum. Tvískinnungur (Litla sviðið) Fim 15/11 kl. 20:00 2. s Fim 22/11 kl. 20:00 4. s Lau 1/12 kl. 20:00 6. s Sun 18/11 kl. 20:00 3. s Sun 25/11 kl. 20:00 5. s Ást er einvígi. Jólaflækja (Litla sviðið) Lau 24/11 kl. 13:00 1. s Lau 1/12 kl. 13:00 3. s Lau 8/12 kl. 13:00 5. s Sun 25/11 kl. 13:00 2. s Sun 2/12 kl. 13:00 4. s Sun 9/12 kl. 13:00 6. s Litrík jólasýning fyrir þau yngstu. Rocky Horror (Stóra sviðið) Fös 16/11 kl. 20:00 67. s Fös 30/11 kl. 20:00 69. s Fös 14/12 kl. 20:00 Lokas. Lau 24/11 kl. 20:00 68. s Lau 8/12 kl. 20:00 70.s Allra síðustu sýningar! BORGARLEIKHÚSIÐ Kynntu þér nýjan tapas-matseðil Leikhúsbarsins á borgarleikhus.is Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is Hvar er næsta verkstæði? FINNA.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.