Morgunblaðið - 20.11.2018, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. NÓVEMBER 2018
Loftkæling
Funahöfða 7, 110 Reykjavík, s. 577 6666
og varmadælur
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Íslensk hjón í Danmörku misstu all-
ar eigur sínar í eldsvoða á sunnudag-
inn var. Að sögn ættingja voru hjón-
in að heiman þegar eldurinn kom
upp og eiga þau nú bara fötin sem
þau voru í þegar eldurinn kviknaði.
Eiginkonan sér einna mest eftir ís-
lensku vetrarfötunum sem munu
ekki halda á henni hita í vetur.
Hjónin bjuggu í einbýlishúsi í Je-
bjerg norðan við Skive á Jótlandi, að
því er fram kom í frétt TV Midtvest
um eldsvoðann. Þjóðerni íbúa húss-
ins var ekki tilgreint í fréttinni en
fregnir af brunanum hafa m.a. verið
sagðar á Facebook og þar komið
fram að um Íslendinga sé að ræða.
Jan Nygaard Christensen í
slökkviliði Norðvestur-Jótlands í
Skive sagði að eldurinn hefði verið
mjög mikill. „Þegar ég kom var eldur
í öllu húsinu og innbúið og allar eigur
þeirra brunnar.“ Húsið gjöreyði-
lagðist í eldinum, að því er fram kom
í Skive Folkeblad.
Tilkynnt var um eldsvoðann um
hádegi á sunnudag og þar eð ekki
var vitað hvort húsið var mannlaust
kom sjúkrabíll á staðinn ásamt
slökkvibílum. Í ljós kom að enginn
var heima svo ekki var þörf á sjúkra-
bílnum. Slökkvistarfið stóð fram eft-
ir sunnudeginum.
Laust fyrir miðnætti að kvöldi
sunnudags var slökkviliðið aftur
kallað út. Þá hafði leynst glóð í rúst-
um þaksins, sem var hrunið, og í einu
herbergi og fuðraði eldurinn upp aft-
ur. Ekki var vitað um eldsupptök og
átti að rannsaka þau í þessari viku.
gudni@mbl.is
Íslensk hjón í Danmörku
misstu aleiguna í eldsvoða
Íbúðarhúsið brann til kaldra kola og allt innbúið með því
Skjáskot/TVMidtvest
Eldsvoðinn Húsið var alelda þegar
slökkviliðið kom á vettvang.
Erla María Markúsdóttir
Gunnlaugur Snær Ólafsson
„Ég hef ekki séð neitt annað en það
að þessar uppsagnir áttu sér stað af
ástæðu. Það er búið að fara yfir það
mjög ítarlega, þær eru dæmdar rétt-
mætar í þessari faglegu úttekt. Þann-
ig að ég sé ekkert annað en að það sé
bara mál sem er búið að ganga frá,“
sagði Helga Jónsdóttir, starfandi for-
stjóri Orkuveitu Reykjavíkur (OR),
spurð hvort málum vegna uppsagna
Áslaugar Thelmu Einarsdóttur, for-
stöðumanns hjá Orku náttúrunnar
(ON), og Bjarna Más Júlíussonar,
framkvæmdastjóra ON, væri nú lok-
ið.
Uppsögn Áslaugar Thelmu í haust
var réttmæt. Það á sömuleiðis við um
uppsögn Bjarna Más, samkvæmt nið-
urstöðu úttektar Innri endurskoðun-
ar Reykjavíkurborgar á starfs-
mannamálum OR sem kynnt var í
gær. Þar er að finna ábendingar um
framkvæmd uppsagnanna og hvatt
er til að skerpt verði á verkferlum.
Skýrslan er aðgengileg á heimasíðu
OR (or.is).
Áslaug Thelma fékk skýringar á
uppsögn sinni en í niðurstöðum út-
tektarinnar segir að frekari skýring-
um sem boðnar voru fram á fundi
með henni hafi verið hafnað. Í skýrsl-
unni segir jafnframt að Áslaug
Thelma hefði átt að fá skriflegar
skýringar þegar við uppsögn.
Ekki náðist í Áslaugu Thelmu, en
fram kom á RÚV í gærkvöldi að hún
vildi ekki tjá sig um skýrsluna fyrr en
hún hefði farið yfir efni hennar með
lögmanni sínum.
Bjarni tekur aftur við
Á fundinum var tilkynnt að Bjarni
Bjarnason, forstjóri OR, mundi snúa
aftur til starfa 28. nóvember, en hann
steig til hliðar á meðan málið var til
skoðunar og hefur Helga sinnt starf-
inu í hans fjarveru. Þá mun Þórður
Ásmundsson, sem átti að taka við
stöðu framkvæmdastjóra hjá ON,
einnig snúa aftur.
Í niðurstöðu úttektarinnar segir að
vinnustaðamenning hjá OR og dótt-
urfyrirtækjum sé betri en gengur og
gerist á íslenskum vinnumarkaði.
Brynhildur Davíðsdóttir, formað-
ur stjórnar OR, var í heildina
ánægð með niðurstöðu könnun-
arinnar á vinnustaðamenningu
hjá OR og dótturfyrirtækjun-
um.
„Við tökum ábendingarnar í
skýrslunni alvarlega og mun-
um vinna skipulega úr
þeim. Áreitni og einelti
eiga ekki að líðast.“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Úttekt F.v.: Berglind Rán Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri ON, Helga Jónsdóttir, forstjóri OR, og Brynhildur Davíðs-
dóttir, stjórnarformaður OR, kynntu skýrsluna á blaðamannafundi í gær.
Uppsagnirnar hjá
ON taldar réttmætar
Úttekt Innri endurskoðunar á starfsmannamálum OR
„Það er mér léttir að skýrsla
Innri endurskoðunar Reykjavík-
urborgar liggur nú fyrir og stað-
festir að uppsögn starfsmanns
ON sem mestur styr hefur stað-
ið um var réttmæt og byggðist
á faglegu mati,“ sagði í yfirlýs-
ingu Bjarna Más Júlíussonar, fv.
framkvæmdastjóra ON. „Þá er
það ein af niðurstöðum skýrsl-
unnar að ásakanir um mis-
munun á grundvelli kynferðis
og um kynferðislegt áreiti í
samskiptum mínum við sam-
starfsfólk eiga ekki við
nein rök að styðjast. Fyr-
irvaralaus uppsögn mín
úr starfi framkvæmda-
stjóra ON var hins vegar
að mínu mati bæði
óverðskulduð og meið-
andi.“
Óverðskuld-
uð uppsögn
YFIRLÝSING BJARNA MÁS
Bjarni Már
Júlíusson
Stjórnir Origo og Diversis Capital
undirrituðu í gær skuldbindandi
kaupsamning um sölu á 55% hlut í
Tempo til Diversis. Heildarvirði
Tempo ehf. í samningum er fimm
milljónir Bandaríkjadala og mun Di-
versis eignast 55% í Tempo eftir
kaupin. Diversis greiðir Origo 34,5
milljónir Bandaríkjadala en félögin
munu sameiginlega leggja Tempo til
handbært fé, tvær milljónir Banda-
ríkjadala, sem greiðist í hlutfalli við
eignarhlut. Áætlaður söluhagnaður
Origo vegna viðskiptanna er um þrír
milljarðar króna. Auk þess er áætlað
að um tveir milljarðar króna færist
til tekna sem gangvirðisbreyting á
45% eignarhlut Origo í Tempo.
Gengið frá sölu á 55% hlut Origo í Tempo
Auka á vægi náttúruvísinda, stærð-
fræði og útináms; efla list- og verk-
nám; einfalda stoðþjónustu við
börn með sérstakar þarfir, bæta
aðstöðu, innleiða heildstætt staf-
ræna tækni í skóla- og frístunda-
starfi og stofna þróunarsjóð til að
fylgja eftir innleiðingu nýrrar
menntastefnu sem borgaryfirvöld í
Reykjavík kynntu í gær. 200 millj-
ónir króna verða settar í sjóðinn til
að hefja innleiðingu stefnunnar
strax á næsta ári.
Menntastefnan verður lögð fram
á fundi borgarstjórnar í dag til
formlegrar afgreiðslu.
Tilgangurinn er að ná víðtækri
samstöðu um framtíðaráherslur í
skóla- og frístundastarfi í Reykja-
vík og skerpa forgangsröðun mik-
ilvægustu umbótaverkefna.
Fram kemur í tilkynningu frá
borginni að stefnan sé afrakstur
samstarfs þúsunda borgarbúa með
aðkomu barna í leikskólum, grunn-
skólum og frístundastarfi, kennara,
stjórnenda, foreldra og kjörinna
fulltrúa ásamt innlendum og er-
lendum ráðgjöfum. Með stefnunni
er lagður grunnur að framsæknu
skóla- og frístundastarfi sem bygg-
ist á styrkleikum samfélagsins.
Stefnunni er skipt upp í fimm
grundvallarþætti; félagsfærni,
sjálfseflingu, læsi, sköpun og heil-
brigði. Í tilkynningunni segir að
meginmarkmið stefnunnar sé að öll
börn vaxi, dafni og uni sér saman í
samfélagi sem einkennist af mann-
réttindum og virðingu fyrir fjöl-
breytileika mannlífs. Unnið verður
að því að öll börn öðlist sterka
sjálfsmynd, trúi á eigin getu og nái
árangri. Þá er áhersla á að börn
lesi sér til gagns og gamans, afli
sér þekkingar og öðlist skilning á
samfélagi og náttúru. Lagt er upp
úr því að börn sýni frumkvæði og
tileinki sér skapandi og gagnrýna
hugsun og heilbrigðan lífsstíl.
Þróunarsjóður
fyrir nýja
menntastefnu
200 milljónir í sjóðinn Aukið vægi
náttúruvísinda og stærðfræði í kennslu
Morgunblaðið/Hari
Skólar Skúli Helgason og Líf Magneudóttir kynna nýju menntastefnuna.