Morgunblaðið - 20.11.2018, Qupperneq 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. NÓVEMBER 2018
Askalind 4 | Kópavogi | Sími 564 1864 | vetrarsol.is
Einstök gæði frá
40 ár
á Íslandi
Sterkir og
notendavænir
sláttutraktorar
Veður víða um heim 19.11., kl. 18.00
Reykjavík 9 skýjað
Hólar í Dýrafirði 8 skýjað
Akureyri 5 heiðskírt
Egilsstaðir -1 heiðskírt
Vatnsskarðshólar 8 skýjað
Nuuk 3 skýjað
Þórshöfn 7 heiðskírt
Ósló 1 skýjað
Kaupmannahöfn 4 léttskýjað
Stokkhólmur 0 léttskýjað
Helsinki 3 heiðskírt
Lúxemborg 2 skýjað
Brussel 4 léttskýjað
Dublin 8 skýjað
Glasgow 8 alskýjað
London 6 skúrir
París 5 alskýjað
Amsterdam 5 léttskýjað
Hamborg 5 léttskýjað
Berlín 4 léttskýjað
Vín 0 alskýjað
Moskva 0 skýjað
Algarve 15 rigning
Madríd 12 súld
Barcelona 13 skýjað
Mallorca 15 skýjað
Róm 8 rigning
Aþena 18 heiðskírt
Winnipeg -15 snjókoma
Montreal -2 snjókoma
New York 7 þoka
Chicago -1 þoka
20. nóvember Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 10:13 16:15
ÍSAFJÖRÐUR 10:40 15:57
SIGLUFJÖRÐUR 10:24 15:39
DJÚPIVOGUR 9:48 15:39
VEÐUR KL. 12 Í DAG
Á miðvikudag Norðvestan 5-10 m/s við vestur-
ströndina og dálitlir skúrir eða slydduél. Hægari
vindur í öðrum landshlutum og bjartviðri. Hiti 1 til 6
stig, en vægt frost norðaustantil á landinu.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðaustan 5-10 m/s, en 10-15 með suður- og vesturströndinni til síðdegis.
Léttskýjað nyrðra og eystra, en skýjað að mestu syðra og vestra og sums staðar dálítil væta.
Mennta- og menningarmálaráðherra mætti á fjölsóttan fund kennara í gær
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
„Það var húsfyllir og mjög góður
fundur, málefnalegur og greinandi á
stöðunni. Mennta- og menningar-
málaráðherra mætti og ég kann
henni bestu þakkir fyrir það,“ sagði
Guðríður Arnardóttir, formaður Fé-
lags framhaldsskólakennara (FF).
Stjórn FF boðaði til almenns fé-
lagsfundar í Fjölbrautaskólanum við
Ármúla síðdegis í gær. Fundarefnið
var hugmynd mennta- og menning-
armálaráðherra um sameinað leyfis-
bréf fyrir kennara á öllum skólastig-
um. Lilja Dögg Alfreðsdóttir
mennta- og menningarmálaráðherra
ávarpaði fundinn, Guðríður var með
framsögu ásamt Ægi Karli Ægis-
syni, formanni
Félags stjórn-
enda í framhalds-
skólum.
Guðríður sagði
að ráðherrann
hefði sagt að sam-
ráðsferli væri að
hefjast og bauð
framhaldsskóla-
kennurum sæti
við borðið. „Við
höfum þá tækifæri til að koma okkar
sjónarmiðum á framfæri og ég er
þakklát fyrir það. Við munum nýta
það tækifæri,“ sagði Guðríður. Hún
sagði að framhaldsskólakennurum
litist ekki á hugmyndir um eitt leyf-
isbréf fyrir kennara á öllum skóla-
stigum. Um það hefði verið algjör
samstaða á fundinum. Fundurinn
samþykkti ályktun þar sem lögð er
áhersla á að núgildandi lög um
menntun og ráðningu kennara og
skólastjórnenda við leikskóla,
grunnskóla og framhaldsskóla (87/
2008) verði virt við útgáfu leyfisbréfa
til kennslu. Lögin gerðu skýrar
menntunarkröfur til þeirra sem
fengju leyfi til kennslu í leik-, grunn-
og framhaldsskóla, en jafnframt
væri gert ráð fyrir sveigjanleika á
milli skólastiga að uppfylltum lág-
marksmenntunarskilyrðum og sér-
hæfingu á hverju skólastigi.
„Sjónarmið kennara eru mögulega
mismunandi eftir skólastigum og
tryggja verður að þau komi örugg-
lega sem skýrast fram þegar grund-
vallarákvarðanir eru teknar. Fund-
urinn skorar því á mennta- og
menningarmálaráðherra að bjóða
fulltrúum félaga leik-, grunn- og
framhaldsskólakennara beina aðild
að starfshópi um inntak kennara-
menntunar,“ segir í ályktuninni.
Þar segir og að reglugerð um inn-
tak kennaramenntunar hafi verið
mótuð í kjölfar samráðs við kennara-
félögin. Hún endurspegli þann mun
sem er á starfi og ábyrgð kennara á
mismunandi skólastigum þar sem
vægi kennslufræði og fagþekkingar
sé mismunandi á hverju skólastigi.
Að setja kennslu á öllum skólastig-
um undir sama hatt með einu leyfis-
bréfi rýri gildi kennaramenntunar á
öllum skólastigum og geri lítið úr
þeirri sérþekkingu sem felst í starfi
kennara.
Guðríður
Arnardóttir
Morgunblaðið/Eggert
Framhaldsskólakennarar Húsfyllir var á fundinum, mikill hugur í fólki og eining gegn hugmynd um sameinað leyfisbréf kennara á öllum skólastigum.
Framhaldsskólakennarar á
móti sameinuðu leyfisbréfi
Áttundu skák þeirra Magnúsar
Carlsen og Fabianos Caruana í
heimsmeistaraeinvíginu í London
lauk með jafntefli í gær. Þeir eru
hvor um sig með fjóra vinninga.
Caruana byrjaði með hvítt í
gær. Helgi Ólafsson stórmeistari
sagði að Caruana hefði átt góða
möguleika um tíma en verið full-
varkár. Hann fengi ekki betri
möguleika en hann fékk í byrj-
uninni í gær.
Carlsen byrjaði með hvítt á
föstudag og sunnudag en komst
ekkert áfram í hvorugri skákinni
og var heppinn að sleppa með
jafntefli á föstudag, að mati
Helga. Staða hans hefði verið
mjög erfið. Verði staðan 6:6 verð-
ur farið í bráðabana og tefldar
fjórar atskákir eins og gert var í
einvígi þeirra í New York 2016.
Enn og aftur
jafntefli
Rannsókn lög-
reglu á neðri hæð
hússins á Hval-
eyrarbraut 39,
sem brann um
helgina, er nú
lokið og hefur
hún verið afhent
tryggingafélagi
eigenda. Þetta
segir Skúli Jóns-
son, stöðvarstjóri
á lögreglustöðinni á höfuðborgar-
svæðinu.
Rannsóknardeild lögreglunnar í
Hafnarfirði og tæknideild lögreglu
voru að störfum á brunastaðnum frá
því fyrir hádegi í gær og mun vinna
lögreglu á efri hæðinni halda áfram í
dag. Lögregluvakt var í alla fyrri-
nótt á Hvaleyrarbrautinni, en lög-
regla fékk brunavettvanginn afhent-
an um kvöldmatarleytið í fyrradag
eftir að slökkviliðinu á höfuðborgar-
svæðinu tókst að ráða niðurlögum
eldsins tæpum tveimur sólar-
hringum eftir að tilkynning um hann
barst. Eldurinn kviknaði á ellefta
tímanum á föstudagskvöld á efri
hæð Hvaleyrarbrautar 39 þar sem
harðviðarverkstæði var til húsa.
Lögregla biðlar nú til þeirra sem
kunna að hafa undir höndum mynd-
efni af fyrstu stigum brunans að
hafa samband, en myndir sem sýna
hvar eldurinn kom fyrst upp geta að-
stoðað við rannsókn á upptökum
brunans.
Bruninn
áfram í
rannsókn
Bruni Lögregla
vaktar staðinn.
Leitað að mynd-
efni af eldsupptökum