Morgunblaðið - 20.11.2018, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. NÓVEMBER 2018
Aðeins 100 stk1 stk á mann!
50%Afsláttur
Reykjavík • Hallarmúla 2 • 563 6900 | Akureyri • Undirhlíð 2 • 430 6900
27”
IPS SKJÁ
R
Lúxus 27
” IPS skj
ár
með örþu
nnan
skjáramm
a!
TILBOÐ DAGSINS
Gildir aðeins þriðjudag
19.995
VERÐ ÁÐUR 39.990
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Við höfum ekki séð neinar tölur
ennþá en miðað við þá umræðu sem
verið hefur þá verðum við að lýsa yfir
ákveðnum von-
brigðum með nið-
urstöðuna,“ segir
Pétur Magnús-
son, formaður
stjórnar Samtaka
fyrirtækja í vel-
ferðarþjónustu.
Pétur vísar í
máli sínu til fjár-
lagafrumvarps
næsta árs og
framlaga til reksturs hjúkrunarheim-
ila. Rekstraraðilar hafa ítrekað farið
fram á hærra framlag frá ríkinu til
rekstursins en telja að ekki sé á þá
hlustað.
Vonast eftir leiðréttingu
„Í stjórnarsáttmálanum er talað
um að bæta rekstrargrunn hjúkrun-
arheimila en þetta eru önnur fjárlögin
sem núverandi ríkisstjórn leggur
fram og það lítur út fyrir skert fram-
lög í þeim báðum. Þetta veldur okkur
ákveðnum vonbrigðum,“ segir Pétur.
Hann tekur fram að fullur skilningur
hafi verið á því að hagræða hafi þurft
á árunum eftir hrun. „Nú teljum við
að það tímabil sé búið. Hjúkrunar-
heimili eiga skilið að reka sig á eðli-
legum forsendum eins og samið var
um árið 2016. Niðurskurður árið
2018 og 2019 og reyndar á
næstu árum miðað við fjár-
málaáætlun veldur okkur sár-
um vonbrigðum og vekur töluverða
undrun. Við erum að vísu bjartsýn að
eðlisfari og trúum því að þingmenn
sjái sóma sinn í því að leiðrétta þetta í
þriðju umræðu fjárlaganna.“
Auknar kröfur, sömu framlög
Um áramótin rennur rammasamn-
ingur Sjúkratrygginga Íslands fyrir
þjónustu hjúkrunarheimila út. Segir
Pétur að rekstraraðilum hafi verið
boðið að endurnýja núverandi samn-
ing. „Semsagt á lakari kjörum því
kröfurnar frá ríkinu hafa aukist, til að
mynda kröfur vegna persónuverndar.
Það er ekkert komið til móts við þann
kostnað. Við eigum auðvitað eftir að
sjá hvernig þessi fjárlög líta út en að
óbreyttu sjáum við ekki fram á annað
en að setjast niður með Sjúkratrygg-
ingum og ákveða hvaða þjónustu eigi
að skerða.
Þetta er komið á það stig að það
verður að skerða þjónustuna og það
verða gríðarleg vonbrigði ef það verð-
ur virkilega niðurstaðan.“
Stefnir í að skerða þurfi þjónustuna
Rekstraraðilar óánægðir með fram-
lög ríkisins til hjúkrunarheimilanna
Bygging nýs hjúkrunarheimilis á
Seltjarnarnesi er nú á lokametr-
unum og verður það tilbúið um
áramót. Þar verða 40 íbúðir. Ekki
liggur fyrir samningur um rekstr-
arfyrirkomulag heimilisins og vel-
ferðarráðuneytið og bæjarfélagið
vísa hvort á annað um það hvar
ábyrgðin liggur.
„Samkvæmt samn-
ingi ráðuneytisins og
Seltjarnarnesbæjar
um uppbyggingu
hjúkrunarheimilis í
sveitarfélaginu frá
18. júní 2014
verður
ábyrgð á
rekstri heimilisins á hendi sveitar-
félagsins. Sveitarfélaginu er aftur
á móti heimilt að fela þriðja aðila
að annast reksturinn í umboði
sveitarfélagsins,“ segir í svari vel-
ferðarráðuneytisins við fyrirspurn
Morgunblaðins.
Ásgerður Halldórsdóttir, bæjar-
stjóri á Seltjarnarnesi, segir að
unnið sé að lausn með ráðuneytinu
en reksturinn sé á ábyrgð ríkisins.
„Ríkið sér um að útvega rekstr-
araðila. Ég veit ekki hvað ríkið þarf
langan tíma en þetta ferli hlýtur að
fara af stað á næstunni. Ég veit til
þess að nokkrir aðilar hafa lýst
áhuga á rekstrinum, til að mynda
Sóltún, Hrafnista og Grund.“
Deila um fyrirkomulag rekstrar
NÝTT HJÚKRUNARHEIMILI NÆR TILBÚIÐ Á SELTJARNARNESI
Ásgerður Halldórsdóttir
„Við erum að undirbúa okkur fyrir
þessa lotu. Við höfum ekki hitt full-
trúa Samtaka atvinnulífsins enn sem
komið er til að leggja fram kröfugerð
en erum að máta okkur aðeins inn í
hugmyndir um breytingar á skatt-
kerfinu og fleiri slíkar áherslur,“
segir Kristján Þórður Snæbjarnar-
son, formaður Rafiðnaðarsambands
Íslands, um stöðu viðræðna vegna
endurnýjunar kjarasamninga á al-
menna vinnumarkaðinum.
Nú eru aðeins sex vikur til stefnu
þar til allir gildandi kjarasamningar
á almenna markaðinum renna út í
lok árs. ,,Það er farið að styttast
verulega. Við stefnum að því að
[semja fyrir áramót] en það veltur
líka á viðsemjendum okkar,“ segir
Kristján.
Spurður segir Kristján að skatta-
málin gætu haft jákvæð áhrif á nið-
urstöður kjaraviðræðnanna og ekki
síður stytting vinnutímans ef við-
semjendur ná lendingu í því máli.
,,Við höfum tekið þátt í um-
ræðunni hjá ASÍ um hvernig við
náum að auka jöfnuð í samfélaginu
og við sjáum skýr sóknarfæri í ýms-
um skattamálum og skattaívilnunum
en við erum ekkert komin lengra
með það.“
Iðnaðarmenn ganga sameinaðir til
samninga. Kristján segir að kröfu-
gerðir iðnaðarmanna séu tilbúnar í
megindráttum. ,,Iðnaðarmannahóp-
urinn er að samstilla sig í heild sinni
og við munum fara samstiga í þetta
verkefni.“ Fram hefur komið að iðn-
aðarmenn muni ekki setja fram tölur
heldur m.a. leggja áherslu á kaup-
máttaraukningu og að menntun
verði metin til launa. Kristján tekur
undir það og segir að menn muni
ekki flýta sér við að fara í launalið
væntanlegra samninga. ,,Það eru
mörg önnur mál sem þarf að vinna úr
en síðan helst þetta allt í hendur.“
omfr@mbl.is
„Sjáum skýr sóknarfæri“
Iðnaðarmenn og SA hafa ekki fundað 6 vikur til stefnu
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Við störf Samningar ASÍ-félaga eru
að renna sitt skeið á enda í árslok.
Egill Þór Jónsson, borgarfulltrúi
Sjálfstæðisflokksins, hyggst leggja
fram tillögu á fundi borgarstjórnar í
dag um að auka fjárframlög um 140
milljónir króna til SÁÁ vegna skorts
á stuðningi og úrræðum.
Í tillögunni segir Egill Þór vanta
búsetu- og meðferðarúrræði fyrir tíu
konur með alvarlega fíknisjúkdóma.
Einnig vanti stuðning og sálfræði-
þjónustu við börn á aldrinum 8-18
ára, aðstandendur fólks með fíkni-
sjúkdóm auk sérhæfðs stuðnings
með áherslu á foreldrafærni í þeirri
viðleitni að styðja foreldra til bata.
Þá telur Egill Þór vanta þjónustu
við einstaklinga 25 ára og yngri sem
eiga við áfengis- og fíknivanda að
stríða. Loks telur hann sérhæfða
eftirfylgni og stuðningsþjónustu
vanta við einstaklinga á aldrinum
50-75 ára með langvarandi fíkni-
vanda.
Með tillögunni er lögð fram kostn-
aðaráætlun, með heildarkostnaði
uppá 140 milljónir króna fyrsta árið
en síðan um 130 milljónir á öðru
starfsári.
Þjónustusamningur yrði endur-
skoðaður árlega frá gildistöku, og
fjármagnaður með niðurskurði í
miðlægri stjórnsýslu Reykjavíkur-
borgar um 2,4%. »20
Framlög til
SÁÁ verði
stóraukin
Tillaga lögð fram
í borgarstjórn í dag
Verslunarmiðstöðin Glerártorg á Akureyri efndi
um helgina til árlegs jólaballs þar sem rauð-
klæddir sveinkar mættu, tendruðu ljós á jólatré
og dönsuðu síðan kringum það með börnum og
fullorðnum. Einnig gáfu þeir krökkunum ýmis-
legt góðgæti, m.a. mandarínur. Þegar mest lét
er talið að um 3.000 manns hafi verið í húsinu.
Hægt var að taka af sér mynd með jólasvein-
unum og kirkjukór Glerárkirkju tók lagið.
Jólasveinar gáfu börnunum góðgæti
Ljósmynd/Þorgeir Baldursson
Fjölsótt jólaball í verslunarmiðstöðinni Glerártorgi á Akureyri
Pétur Magnússon