Morgunblaðið - 20.11.2018, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. NÓVEMBER 2018
Styrmir Gunnarsson fjallar ípistli um ályktun miðstjórnar
Framsóknarflokksins um helgina
vegna þriðja orku-
pakkans: „Sam-
hljóða höfnun mið-
stjórnarfundar
Framsóknarflokks-
ins um helgina á
innleiðingu orku-
pakka 3 frá ESB
felur í sér pólitísk
stórtíðindi. Hún
þýðir að það er
kominn upp alvar-
legur ágreiningur innan stjórn-
arflokkanna um málið, sem hefur
verið að þróast undanfarnar vik-
ur.
Innan þingflokks Sjálfstæðis-flokksins er hörð andstaða við
málið en þar er líka að finna
ákafa talsmenn þess að sam-
þykkja. Staðan innan VG er óljós-
ari og misvísandi fréttir, sem það-
an berast.“
Þá segir Styrmir að uppreisnvegna orkupakkans sé að
breiðast út innan Sjálfstæðis-
flokksins og lýkur pistlinum á
þessum orðum: „Reyni forystusveit
ríkisstjórnarinnar að knýja sam-
þykkt málsins fram á Alþingi með
stuðningi Samfylkingar og Við-
reisnar er ljóst að samstarfi
stjórnarflokkanna í ríkisstjórn
væri lokið.
Með samþykkt miðstjórnar-fundarins hefur Framsókn-
arflokkurinn náð frumkvæði í and-
stöðunni við orkupakkann í sínar
hendur og þar með ýtt Mið-
flokknum til hliðar sem var á
góðri leið með að ná pólitískri for-
ystu í málinu til sín.
Nú hefur Framsókn gert hreintfyrir sínum dyrum. Sjálf-
stæðisflokkur og VG verða að
gera það sama.“
Styrmir
Gunnarsson
Pólitísk stórtíðindi
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
„Við erum ekki byrjuð að taka á
móti umsóknum en fyrirspurnir eru
þegar farnar að berast. Opnað verð-
ur fyrir umsóknir í byrjun desem-
ber og úthlutun fer fram 18. og 19.
desember,“ segir Sædís Arnar-
dóttir, félagsráðgjafi í innanlands-
starfi Hjálparstarfs kirkjunnar. Sæ-
dís segist hafa tilfinningu fyrir því
að færri muni þurfa aðstoð en í
fyrra en þá fengu 1.304 aðstoð. Hún
segir jólaaðstoðina felast í
inneignarkortum í matvöruversl-
unum, jólafatnaði og jólagjöfum.
Allir velkomnir í jólamat
Sædís segir jólaaðstoðina fjár-
magnaða með styrkjum fyrirtækja
og sjóðum héðan og þaðan auk þess
sem almenningur sé hliðhollur
hjálparstarfinu og gefi í jólaaðstoð-
ina.
„Kaffistofa Samhjálpar er opin
365 daga á ári og öll jólin er boðið
upp á hátíðarmat á Kaffistofunni,“
segir Rósa Gunnlaugsdóttir hjá
Samhjálp.
Hún segir að jólahaldið sé fjár-
magnað með styrktarlínum og aug-
lýsingum í jólablaði Samhjálpar og
öðrum styrkjum frá fyrirtækjum.
Rósa segir alla velkomna í Kaffi-
stofu Samhjálpar. Eigi það jafnt við
um einstaklinga sem þurfi á matar-
gjöf að halda, þá sem rjúfa þurfi fé-
lagslega einangrun eða af öðrum or-
sökum. ge@mbl.is
Almenningur hliðhollur hjálparstarfi
Allir velkomnir í jólamat á Kaffi-
stofu Samhjálpar 1.304 fengu aðstoð
Morgunblaðið/Hari
Jólapakkar Allir ættu að fá jólagjöf.
Ef ætlunin er að fjölga í landsels-
stofninum þá er ekki önnur leið en að
friða stór svæði fyrir grásleppunet-
um og koma í veg fyrir tilefnislaust
dráp sela við ósa laxveiðiáa, segir
meðal annars í frétt frá aðalfundi
Samtaka selabænda. Í fréttinni segir
að bændur eigi lítinn sem engan þátt
í þeirri fækkun sela við landið, sem
hafi orðið til þess að Náttúrufræði-
stofnun hafi lagt til að landselur
verði settur á válista.
Fækkunin eigi sér þær ástæður að
16. ágúst 1979 setti sjávarútvegsráð-
herra, að frumkvæði fisksölufyrir-
tækja á fót svokallaða hringorma-
nefnd. „Þessari nefnd var sett það
hlutverk að útrýma sel vegna þess að
hann er millihýsill á hringormi. Var í
þessu skyni greitt fyrir hvern drep-
inn sel og það mönnum þó þeir ættu
hvergi rétt til veiða né hefðu leyfi til
slíks. Fóru þá til veiða allmargir
veiðiþjófar, óspart hvattir til óhæf-
unnar. Enda greiddi hringorma-
nefnd fyrir og skeytti hvorki um
skömm né heiður og lítt um hvar
veitt var. Að lokum tókst að mestu að
stöðva óhæfuna en þá var stærri bát-
um veitt leyfi til grásleppuveiða.
Við þá breytingu fóru þessir
stærri bátar að sækja lengra og nær
selalátrunum. Það hafði í för með sér
að fullorðinn selur fórst í grásleppu-
netum unnvörpum og selastofninn
hrundi nær alveg á stórum svæðum
við Húnaflóa, á Breiðafirði og fyrir
Mýrum. Bændur eru fyrir allmörg-
um árum hættir að veiða sel, nema
örfáir fá sér kóp til að sæta sér í
munni,“ segir í frétt af fundi sela-
bænda. aij@mbl.is
Friða þyrfti stór
svæði fyrir netum
Bændur eiga lítinn þátt í fækkun sela
Hlunnindi bænda
» Fundur selabænda ályktar
einnig um „ótrúlegan yfirgang
Fiskistofu, að ætla að taka yfir
hlunnindi bænda, sem eru kló-
þangsöflun sem er á þurrlendi
sjávarjarða“. Mótmælt er
álagningu auðlindagjalds og
þeirri aðför að hlunnindum.
» Einnig er því mótmælt að
Hafrannsókn gefi leyfi til öfl-
unar þörunga á grunnsævi án
þess að landeigendur fái þar
nokkru um ráðið.
» „Slíkt er yfirgangur sem á
skylt við aðfarir hringorma-
nefndar á sínum tíma,“ segir í
ályktun selabænda.