Morgunblaðið - 20.11.2018, Page 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. NÓVEMBER 2018
Borgarráð hefur samþykkt að
auglýsa tillögu um breytingu á að-
alskipulagi Reykjavíkur 2010-2030
vegna stækkunar á hafnarsvæði í
Sundahöfn. Breytingin mun nú
fara í hefðbundið auglýsingarferli.
Við afgreiðsluna bókuðu borgar-
ráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins
eftirfarandi: Hugmynd um yl-
strönd lítur vel út en gæti lyktað
illa ef ekki er gætt að nálægð við
fráveitu eins og bent er á í um-
sögn Veitna og Heilbrigðiseftirlits-
ins.
Faxaflóahafnir áforma að
stækka hafnarsvæðið í Sundahöfn
með tveimur landfyllingum. Önnur
landfyllingin verður við Kletta-
garða, vestan við vitann á Skarfa-
bakka. Hún verður 2,5-3 hektarar
og þar er ætlunin að starfsstöðvar
Faxaflóahafna verði í framtíðinni,
m.a. skrifstofur, skipaþjónusta og
möguleg viðlega dráttarbáta. Hug-
myndin er að nota jarðefni sem til
falla á lóð Landspítalans vegna
Nýs Landspítala í landfyllinguna.
Einnig eru hugmyndir uppi um
gerð ylstrandar á svæðinu, í ná-
grenni við útivistarsvæðið í Laug-
arnesi.
Áhyggjur sjálfstæðismanna lúta-
að því að á lóð, sem liggur að
svæðinu, er skólphreinistöð
Veitna. Þetta er stærsta skólp-
hreinsistöð landsins og tekur við
skólpi frá nær helmingi höfuð-
borgarsvæðisins. Þrjár lagnir eru
frá stöðinni, tvær yfirfallslagnir og
ein meginútrás, sem liggur í sjó
fram, fimm kílómetra frá landi.
Faxaflóahafnir hafa bent á að
staðsetning ylstrandar í nálægð
við skólphreinistöðina þarfnist sér-
stakrar skoðunar. Þá þurfi til
framtíðar litið að skoða mögulega
stækkun lóðar hreinsistöðv-
arinnar. sisi@mbl.is
Segja að ný ylströnd gæti lyktað illa
Borgarráð hefur samþykkt að aug-
lýsa nýtt aðalskipulag fyrir Sundahöfn
Morgunblaðið/RAX
Skarfaklettur Landfyllingin er áformuð vestan við klettinn. Ylströndin verður þar vestan við, nær Laugarnesinu.
Framkvæmdum lokið í fjallinu
Kubba á Ísafirði. Þetta kemur fram í
frétt á heimasíðu Framkvæmda-
sýslu ríkisins.
Verkið fól í sér að setja upp stoð-
virki úr stáli til snjóflóðavarna á upp-
takasvæðum snjóflóða í Bröttuhlíð í
Kubba ofan Holtahverfis á Ísafirði.
Öll hús í hverfinu eiga nú að vera
komin í öruggt skjól.
Unnið hefur verið að uppsetningu
um 1.900 metrum af stoðvirkjum síð-
ustu tvö sumur. ÍAV – Íslenskir aðal-
verktakar hf. sáu um uppsetninguna.
Hæð stálgrindanna mælt þvert á
halla fjallshlíðar er 3,0, 3,5 og 4,0
metrar.
Lokaúttekt með fulltrúum upp-
setningarverktaka, ÍAV, og verk-
efnastjóra Framkvæmdasýslunnar
fór fram 8. nóvember síðastliðinn
með minni háttar athugasemdum.
Unnið var út þeim, lokafrágangi og
brottflutningi á tækjum og búnaði.
Síðasti vinnudagur verktaka var 14.
nóvember.
Framkvæmdasýslan hefur haft
umsjón og eftirlit með verkinu fyrir
hönd Ísafjarðarbæjar. Tækniþjón-
usta Vestfjarða aðstoðaði við eftirlit.
„Framkvæmdir gengu vel og tókst
að ljúka þeim fyrir lok umsamins
framkvæmdatíma. Verktaki hefur
staðið að fullu við skuldbindingar
sínar samkvæmt útboðsgögnum. Að-
staða verktaka hefur verið fjarlægð
og vinnusvæðið hreinsað að fullu,“
segir í fréttinni.
Kostnaður við verkið var um 800
milljónir króna. Þar af greiðir Ofan-
flóðasjóður 90% en Ísafjarðarbær
greiðir 10%. sisi@mbl.is
Framkvæmdum
er lokið í Kubba
Húsin í Holtahverfi komin í skjól
Ljósmynd/Ágúst J. Ólafsson
Framkvæmdir Þyrla flytur stál-
grindurnar upp í hlíðar Kubba.
Tvílit slá
Verð 9.880 kr.
Misty
Laugavegi 178 | 105 Reykjavík | sími 551 3366 | Opið virka daga kl. 10-18, laugardaga kl. 10-14
Hreinar hendur
með nýjum Voltaren Gel
nuddhaus
3. BERA Á1. RJÚFA 2. TOGA
NÝTT
Voltaren 11,6 mg/g hlaup. Inniheldur díklófenaktvíetýlamín. Staðbundnir bólgukvillar. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og
fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir.
Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is.