Morgunblaðið - 20.11.2018, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 20.11.2018, Blaðsíða 15
FRÉTTIR 15Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. NÓVEMBER 2018 Rafport ehf • Auðbrekka 9-11 • 200 Kópavogur • Sími 580 1900 • rafport@rafport.is Með free@home hefur aldrei verið auðveldara og hagstæðara að stjórna heimilinu, sumarbústaðnum eða fyrirtækinu. Ertu að byggja, breyta eða bæta? Endilega kynntu þér málið. Snjalllausnir – nútíma raflögn Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Starfsmenn skíðasvæðisins í Blá- fjöllum hafa haft nóg að gera í haust þó svo að enginn snjór sé á svæðinu. Þar á bæ eru menn ýmsu vanir og segja að engir tveir vetur séu eins. Á þessum tíma í fyrra var búið að opna fyrir æfingar í brekkunum og gönguskíðabraut var í notkun. Ekki er lengra síðan en haustið 2016 að ástandið var svipað og núna, en þá var sól og sumar út desember, að sögn Magnúsar Árnasonar, fram- kvæmdastjóra skíðasvæðisins í Blá- fjöllum. Þá fór að snjóa og úr varð hinn ágætasti vetur fyrir skíða- og brettafólk. Magnús segir að stund- um hafi tekist að opna í nóvember þó svo að það sé ekki oft. Yfirleitt hafi eitthvað verið opnað í desember og alls ekki sé útilokað að svo verði í ár. Eftir að reisa möstur Að sögn Magnúsar hefur verið unnið við það síðustu vikur að setja upp nýja diskalyftu sem er einkum hugsuð til að þjónusta brettafólk og sömuleiðis að minnka álagið á Kóng- inn, stóru lyftuna í Kóngsgili. „Okkur brá aðeins þegar snjórinn kom í september-október, því þá vorum við í jarðvegsframkvæmdum. Hann stóð þó stutt við og núna er þeim framkvæmdum lokið og aðeins eftir að reisa möstrin,“ segir Magn- ús. Þrátt fyrir snjóleysið hafa árskort á skíðasvæðin verið auglýst að und- anförnu eins og venja er í nóvember. Magnús segir söluna ganga ágæt- lega og fjölskyldutilboðin séu sér- staklega hagstæð í ár. Venjan sé sú að salan taki kipp síðustu daga mán- aðarins. Útboðsgögn tilbúin Spurður um snjóframleiðslu á Bláfjallasvæðinu segir Magnús að hún verði vonandi að veruleika á næsta ári. Í febrúar á þessu ári hafi vinnuhópur sem m.a. mat hættu gagnvart vatnsvernd komist að þeirri niðurstöðu að snjóframleiðsla ógnaði henni ekki ef samhliða yrði farið í ákveðnar mótvægisaðgerðir. Búið væri að vinna breytingar á deiliskipulagi, en unnið væri að því að svara athugsasemdum sem hefðu borist. „Ef uppbyggingin þarf að fara í umhverfismat tefjast framkvæmdir. Komi ekki til þess þá erum við tilbú- in með útboðsgögn fyrir fyrsta áfanga snjóframleiðslu og undir- stöður fyrir fyrstu lyftuna. Þær framkvæmdir byggjast á tímamóta- samkomulagi borgarstjóra og bæj- arstjóra á höfuðborgarsvæðinu um 3,6 milljarða uppbyggingu á Blá- fjallasvæðinu á næstu sex árum,“ segir Magnús. Framkvæmdir í snjóleysinu  Yfirleitt hefur eitthvað verið opið í Bláfjöllum í desember  Vona að snjófram- leiðsla geti hafist í Bláfjöllum á næsta ári  Góð sala í árskortum á tilboðsverði Ljósmynd/Magnús Árnason Lélegt skíðafæri Þannig var umhorfs í Bláfjöllum um hádegi í gær, enginn snjór í brekkum og þoka efst í hlíðum. Félagið Lindarvatn ehf., sem er eigandi fasteigna á reitnum þar sem nýtt gistihús Icelandair hotels er að rísa á svonefndum Landssímareit, ítrekar í tilkynn- ingu, að engin byggingaráform séu fyrirhuguð í Víkurgarði, engar grafir verði lagðar undir hótel og engin bygging reist í Víkurgarði. Þetta geti hver sem er staðreynt með því að skoða deiliskipulags- uppdrætti, sem eru aðgengilegir á www.skipulag.is, sem og sam- þykkta aðaluppdrætti, sem eru að- gengilegir hjá þjónustuveri Reykja- víkurborgar. Tilkynningin er send vegna fund- ar, sem var haldinn í Víkurgarði á sunnudag þar sem því var mótmælt, að grafir 600 Reykvíkinga yrðu lagðar undir hótel á Landssíma- reitnum. Segja engin áform um byggingar í Víkurgarði Morgunblaðið/Hari Mótmælt Hópur fólks tók þátt í mót- mælum í Víkurgarði á sunnudag.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.