Morgunblaðið - 20.11.2018, Síða 18

Morgunblaðið - 20.11.2018, Síða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. NÓVEMBER 2018 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Ár er liðiðsíðanEFTA- dómstóllinn komst að þeirri niðurstöðu að innflutnings- takmarkanir á ferskum matvælum til Ís- lands væru ólöglegar. Nið- urstaða þessi er með miklum ólíkindum og gætu afleiðing- arnar af því að fylgja þessum dómi verið grafalvarlegar, ekki aðeins fyrir sérhags- munahópa, heldur allan al- menning. Karl G. Kristinsson, pró- fessor í sýklafræði, dregur fram afgerandi mynd af því hvað er í húfi í þessu máli í grein, sem birtist í Morgun- blaðinu á mánudag undir fyr- irsögninni „Að fórna meiri hagsmunum fyrir minni“. Karl hefur um langt árabil barist fyrir því að sýklalyf séu ekki notuð meira en nauðsyn krefji til þess að draga úr hættunni á ónæmi baktería. Tilefni skrifa hans í í Morgunblaðið er grein, sem birtist í tímaritinu Lancet Infectious Diseases um skað- semi helstu sýklalyfjaónæmu bakteríanna í Evrópu. Eins og Karl rekur í grein sinni kemur þar fram að árið 2015 mátti kenna sýklalyfjaónæmi um 33.110 dauðsföll og 874.541 glötuð góð æviár í Evrópu. Á átta árum hefur fjöldinn rúmlega tvöfaldast. Eins og fram kemur á mynd sem fylgir greininni er ástandið verst á Ítalíu þar sem hátt í 11 þúsund manns létu lífið af völdum baktería, sem eru ónæmar fyrir sýkla- lyfjum, árið 2015. Ísland stendur best að vígi í þessum efnum. Sama ár lést einn hér á landi af þessum völdum. Karl vitnar í þekkta skýrslu, sem gerð var fyrir bresk stjórnvöld fyrir tveim- ur árum, þar sem fram kem- ur að verði ekkert aðhafst til að stöðva útbreiðslu sýkla- lyfjafjölónæmra bakterá myndu tíu milljónir manna deyja árlega í heiminum af völdum þeirra. Það eru fleiri en deyja nú af völdum krabbameins. Mikill viðbúnaður er í þessum efnum í íslensku heilbrigðiskerfi. Sjúklingar sem verið hafa erlendis eru skoðaðir sérstaklega og sama á við um heilbrigð- isstarfsfólk, sem unnið hefur á sjúkrastofnunum erlendis. Ein af ástæðunum fyrir fjölgun sýklalyfjaónæmra baktería er gríð- arleg notkun sýklalyfja í land- búnaði. Í Evrópu er langminnst notað af sýkla- lyfjum á Íslandi og í Noregi- .Ástandið hér gæti hins veg- ar breyst hratt ef allar gáttir verða opnaðar fyrir innflutn- ingi. Karl segir í greininni að breyti Alþingi íslenskri reglugerð til samræmis við dóm EFTA-dómstólsins og staðfestingu Hæstaréttar án frekari takmarkana muni það leiða til hraðari út- breiðslu fjölónæmra bakt- ería á Íslandi. Við það myndi dauðsföllum fjölga og fleiri góð æviár glatast vegna sýk- inga af völdum sýkla- lyfjaónæmra baktería. Við það myndi bætast aukinn kostnaður við heilbrigðis- og velferðarmál. „Ákveðnir aðilar berjast fyrir því að fá reglunum breytt sem fyrst, væntanlega vegna viðskiptahagsmuna,“ skrifar hann og bætir við: „Því miður hefur lýðheilsa og dýraheilsa iðulega vikið fyrir viðskiptahagsmunum. Vilj- um við að það verði í þessu máli?“ Karl vill ekki leggja árar í bát og leggur til að stjórn- völd sendi sendinefnd til Brussel til að fá frest á breytingunum í ljósi þess að fram séu komin gögn, sem ekki hafi verið til staðar þeg- ar dómurinn féll. Fullnægj- andi forsendur séu fyrir því að málið verði tekið upp að nýju. Ljóst sé að forsendur til að hnekkja þessu séu fyrir hendi því að í 13. grein laga um evrópska efnahags- svæðið segi að ákvæði 11. og 12. greinar um bann við magntakmörkunum á inn- flutningi komi „ekki í veg fyrir að leggja megi á inn- flutning, útflutning eða um- flutning vara bönn eða höft sem réttlætast af almennu siðferði, allsherjarreglu, al- mannaöryggi, vernd lífs og heilsu manna eða dýra“ með- al annarra þátta. Ekki verður betur séð en að þessi grein eigi einmitt við í þessu tilfelli og erfitt að sjá hvernig færa megi rök fyrir því að mannslíf séu létt- vægari en viðskiptahags- munir. Það er því vert að taka mark á þessum varn- aðarorðum og koma í veg fyrir að hinni öfundsverðu stöðu á Íslandi verði fórnað. Skipta líf og heilsa minna máli en óheftur innflutn- ingur ferskra kjöt- vara? } Sýklalyfjaónæmi L ýðskrum hefur verið hluti af pólitík frá upphafi. Það kemur frá hægri, vinstri eða miðju, en hefur sömu einkenni hvaðan sem það kemur. Aðferðirnar eru alltaf af sama meiði. Rennum yfir nokkrar þeirra til upprifj- unar: · Lýðskrumarinn finnur sér óvin · Lýðskrumarinn vekur ótta · Lýðskrumarinn skeytir ekki um sannleikann · Lýðskrumarinn sakar andstæðinginn um drottinsvik · Lýðskrumarinn kann ekki að skammast sín, hann biðst aldrei afsökunar, en ræðst á þá sem eru honum ósammála Sennilega hefur hættan af lýðskrumurum ekki verið meiri en núna allt frá lokum seinni heimsstyrjaldarinnar. Víða um lönd stinga þeir upp kollinum og vara við ímynduðum óvini. Oftast er hann útlendur, en minnihlutahópar innan landamæranna geta nýst í baráttunni. Óvinurinn getur líka verið stofnun eða samningur, helst eitthvað flókið sem almenningur þekkir ekki vel. Eða auðkýfingurinn George Soros sem samkvæmt samsæriskenningum hefur margt á samviskunni. Sannleikurinn er óvinur lýðskrumarans, en hann nýtir sér samt staðreyndir. Ekki þessar venjulegu staðreyndir sem byggjast á óyggjandi sönnunum, myndum, upptökum, prentuðum heimildum eða vísindalegum niðurstöðum fræðimanna. Þvert á móti býr hann sér til nýjar „stað- reyndir“, hliðstæðan sannleika, gervivísindi. Margir vilja trúa því að veröldin hljóti að vera öðruvísi en hún er, sér- staklega ef hliðstæði veruleikinn hentar betur. Lýðskrumarinn segist vera hugsjónamaður og fulltrúi æðri gilda. Hann kemur fram eins og hvítþeginn engill, en skeytir engu um reglurnar sem hann segist berjast fyrir. Hann fordæmir þá sem brjóta lög, þó að hann hiki ekki við að sveigja framhjá þeim sjálfur. Þegar hann er gripinn segir hann að sitt mál sé svo tæknilegt að heimskur fjölmiðlamaður geti alls ekki skilið það, hvað þá sauðsvartur almúginn. Fyrir lýðskrumarann skiptir miklu að hæðast að þeim sem eru ósammála honum. Hann kemst á flug þegar hann ber sér á brjóst fyrir sín einstæðu afrek, þó að þau séu hvergi til nema í hans eigin hugskoti. Blaðamenn eru óvinir sem ber að gera lítið úr, en mikilvægt að geta vísað í sinn miðil, oft heimasvæði sem hald- ið er úti af almannatengli. Skrumarinn sjálfur er aðalatriðið, hann safnar um sig jámönnum, málstaðurinn er sá sem best hentar hverju sinni. Þegar hann verður undir hefur augljóslega verið haft rangt við, en ef betur gengur er sigurinn sá glæsileg- asti í sögunni. Lýðskrumarinn telur engin gögn afsanna sína kenn- ingu og segir óhikað: „Þetta hef ég aldrei sagt“, jafnvel þó að til sé myndskeið og upptaka þar sem sést nákvæm- lega hvað hann sagði. Til þrautavara kveður hann um- mæli sín slitin úr samhengi og segir keikur: „Ég mótmæli öllu sem ég hef áður sagt og held hinu gagnstæða fram.“ Benedikt Jó- hannesson Pistill Ég hef aldrei verið sammála sjálfum mér Höfundur er stærðfræðingur og stofnandi Viðreisnar. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen SVIÐSLJÓS Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Vísindastarf í heilbrigðisvís-indum á bersýnilega mjögundir högg að sækja hér álandi og er sú þróun mest áberandi á Landspítala, háskóla- sjúkrahúsi. Engilbert Sigurðsson, prófessor og forseti læknadeildar Háskóla Íslands, vekur athygli á þessari alvarlegu stöðu í umsögn til velferðarnefndar við frumvarp heil- brigðisráðherra sem heimilar vís- indasiðanefnd gjaldtöku vegna um- sókna um vísindarannsóknir á heilbrigðissviði. Magnús Gott- freðsson, læknir við Landspítalann og prófessor við læknadeild HÍ, tek- ur í sama streng og Engilbert í ann- arri umsögn til þingsins vegna frum- varpsins. Vísar hann m.a. í samanburð NordForsk stofnunar- innar sem ber saman stöðu vísinda- starfs í heilbrigðismálum á Norð- urlöndunum. Úttektir NordForsk sýna að vísindastarf á Landspítala hefur dregist stöðugt saman und- anfarin 12-15 ár, að sögn Magnúsar, og „skv þeim mælikvörðum sem þar eru lagðir á gæði vísindalegra birt- inga, hefur spítalinn fallið úr for- ystusæti á Norðurlöndum (um alda- mótin 2000) og niður í neðsta sæti norrænna háskólasjúkrahúsa 2014. Til að bæta gráu ofan á svart er spít- alinn kominn talsvert undir heims- meðaltal í þessu efni [...],“ segir í um- sögn hans. Báðir telja þeir misráðið að hefja innheimtu gjalds af umsóknum um leyfi til vísindarannsókna á heil- brigðissviði við þessar aðstæður. Var þetta mál rætt á deildarráðsfundi í Læknadeild hinn 14. nóvember sl. Fram kemur í fyrrnefndri út- tekt NordForsk að Landspítalinn er með lægsta tilvitnanastuðul allra há- skólasjúkrahúsa á Norðurlöndum og bendir Engilbert á að hann hefur verið fallandi frá 2004 og er núna kominn undir heimsmeðaltal. Færri umsóknir til Rannís „Einnig hefur umsóknum um styrki til klínískra rannsóknarverk- efna til Rannís fækkað verulega á síðustu 5 árum enda hlutfall þeirra sem hljóta styrki afar lágt eða 14- 18% sem er of lágt hlutfall og letur fólk, jafnvel reynda rannsakendur, til að sækja um,“ segir í umsögn hans. Landspítalinn hefur aðeins haft tök á að nýta 0,7-0,8% af veltu til vís- inda en sambærileg tala á norrænum háskólasjúkrahúsum hefur verið 5-6%. ,,Fyrir vikið hefur mikill meiri- hluti styrkja Vísindasjóðs Landspít- ala verið lágir styrkir, 400-700 þús- und,“ segir í umsögn Engilberts. Í greinargerð með frumvarpi heilbrigðisráðherra kemur fram að fjárhagssstaða vísindasiðanefndar hefur verið erfið og bregðast verði við til að tryggja að hún geti uppfyllt skyldur sínar. Ekki er nefnt hversu hátt þjónustugjaldið yrði sem lagt er til að verði tekið upp en bent er á að ef horft er til fjölda umsókna til vís- indasiðanefndar á seinasta ári megi gera ráð fyrir að á fyrsta ári gjald- töku verði tekjur nefndarinnar á bilinu 9–11 millj. kr. Reiknað er með að tekjur verði hærri í upphafi en lækki þegar frá líður þegar gjaldtakan hefur fest sig í sessi og verði á bilinu 3–6 milljónir kr. Þetta gæti þýtt að mati læknanna að fjárhæðin gæti orðið um 50 þús- und kr. á hverja umsókn miðað við 200 umsóknir, sem greiða þyrfti fyrir á ári. Engilbert bendir á að mikill meirihluti styrkja vísindasjóðs Land- spítala hafi verið lágur, eða 400-700 þúsund og þar myndi muna talsvert um að þurfa að greiða 50 þúsund kr. af slíkri upphæð til Vísindasiða- nefndar. Vísindastarfið á mjög undir högg að sækja Morgunblaðið/Ómar Landspítalinn Lágum upphæðum er varið til að styðja við vísinda- hlutverk spítalans eða sem nemur innan við 1% af veltu að sögn lækna. Staða Landspítalans sem vís- indastofnun virðist hafa veikst í alþjóðlegum samanburði á und- anförnum árum. Í inngangi að síðustu ársskýrslu vísindastarfs á Landspítalanum dregur Magn- ús Gottfreðsson yfirlæknir sam- an stöðuna og bendir m.a. á að undanfarin fimm ár hafa erlend- ir styrkir sem starfsmenn afla dregist saman jafnt og þétt. Nokkur aukning varð á íslensk- um styrkjum 2016 en á síðasta ári dróst upphæðin saman að nýju. Magnús segir hins vegar ánægjulegt að í ár hafi framlög vísindasjóðs spítalans hækkað frá fyrra ári og við bæst mynd- arlegt framlag frá Minning- argjafasjóði Landspítala Ís- lands. Fjöldi birtra greina í ritrýndum tímaritum er oft mælikvarði á rannsóknavirkni. Fram kemur að fjöldi birtra greina frá starfsmönnum Land- spítalans stóð í stað í fyrra frá árinu á undan. Greinum sem birtust í erlendum tímaritum fjölgaði örlítið en samsvarandi fækkun varð á birtingum innan- lands. Veikari staða LANDSPÍTALINN

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.