Morgunblaðið - 20.11.2018, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 20.11.2018, Qupperneq 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. NÓVEMBER 2018 ✝ Vigdís Krist-jánsdóttir fæddist í Einiholti í Biskupstungum 18. nóvember 1932. Hún lést á heimili sínu í Ásakoti 28. október 2018. Foreldrar henn- ar voru Kristján Þorsteinsson, f. 24. júlí 1891, d. 20. október 1951, og Arnbjörg Jónsdóttir, f. 16. mars 1900, d. 20. ágúst 1978. Vigdís var fjórða í röð níu systkina. Þau eru: 1) Þóra, f. 1923, d. 2015. 2) Jón, f. 1924, d. 1935. 3) Ingi- björg, f. 1928, d. 2012. 4) Jón Eggert, f. 1935, d. 1935. 5) veig, f. 1959, maki hennar er Magnús Halldórsson og eiga þau þrjú börn og sjö barnabörn. 2) Kristján, f. 1960, maki hans er Jenný Lúðvíksdóttir. Börn þeirra eru fjögur og eitt barna- barn. 3) Hjalti, f. 1966, maki hans er Camilla Guðmunda Ólafsdóttir. Börn þeirra eru tvö. 4) Margrét, f. 1968, maki hennar er Arnar Sigurðarson. Börn hennar eru þrjú. 5) Jóhannes Arnar, f. 1975, maki hans er Helga Sigurðardóttir og eiga þau þrjú börn. Vigdís bjó allan sinn búskap í Ásakoti í Biskupstungum. Hún hafði yndi af garðrækt og hann- yrðum og voru þau hjón heiðruð af Búnaðarfélagi Biskupstungna fyrir handverk árið 2010. Vigdís var afar virk í starfi Kvenfélags Biskupstungna og var heiðruð fyrir störf sín þar. Útför Vigdísar fór fram 3. nóvember 2018 í kyrrþey að hennar ósk. Trausti, f. 1936, d. 2012. 6) Gunnar Héðinn, f. 1938. 7) Haraldur, f. 1939. 8) Kristín, f. 1942. Vigdís vann í fiski suður með sjó á ungdómsárum sín- um. Hún gekk í Húsmæðraskólann á Löngumýri og bjó um hríð í Reykja- vík, þar sem hún starfaði á prjónastofu og sem húshjálp. Þann 16. desember 1958 gift- ist hún eftirlifandi eiginmanni sínum, Ragnari Braga Jóhann- essyni, f. 30. september 1926. Börn þeirra urðu fimm: 1) Hall- Hvernig skilgreinir maður stórmenni? Mannkynssagan til- tekur mörg stórmennin sem telj- ast svo vegna sigra í stríðum, upp- götvana á vísindasviði, íþróttaafreka, einhverra gjörða sem engum öðrum hafði áður tek- ist, eða í það minnsta ekki eins vel. Þetta eru jafnan vörpulegir menn, eða konur – hnarreist á flestum myndum og skrifaðar hafa verið lærðar greinar og lof- ræður um afrek þeirra svo telur ófáa hillumetrana. Það sem mannkynssagan veit ekki, er að í Eystri-Tungu Biskupstungna hefur búið lágvaxin glaðlynd kona sem uppfyllir flestum betur skil- yrði fyrir nafnbótinni stórmenni. Mamma upplifði sinn skammt af erfiðleikum og raunum en tókst á við allar sínar hindranir af fá- dæma yfirvegun, jafnlyndi og auðmýkt. Alla sína tíð mettaði hún munna okkar fjölskyldunnar ásamt fjölmörgu kaupaliði og skyldfólki sem jafnan dvaldi heima á sumrum og stundum vetrum, eins og algengt var í sveitum áður fyrr. Oft man ég eft- ir henni í heyskapartíð, þegar mikið lá við og unnið var myrkr- anna á milli, þegar komið var inn í stutta kaffipásu. Þá var maður jafnan óþolinmóður að bíða eftir næstu pönnuköku af heitri pönn- unni. En mamma var kannski samhliða að baka 500 kleinur fyrir kvenfélagið og kom svo með okk- ur aftur út og jafnaði til í hlöð- unni. Aldrei settist hún niður. Alltaf var hún þó glöð og gat alltaf gefið sér tíma fyrir alla aðra. Mamma var mikill húmoristi og hló aldrei eins dátt og að eigin „flumbrugangi“, eins og hún sjálf hefði orðað það. Margar slíkar sögur eru okkur fjölskyldunni kunnar og aldrei hló neinn eins dátt að þeim og mamma sjálf. Það má með sanni segja að mamma hafi ræktaði garðinn sinn í tvennum skilningi. Hún hafði yndi af garðrækt og garðurinn heima í Ásakoti bar þess alltaf glöggt vitni að hún hafði lagt alúð og natni í hvert handtak, eins og hún gerði í öllu sem hún tók sér fyrir hendur. Það sama átti við um fólkið hennar allt sem var hennar smávinir fagrir, foldar- skart. Ekkert gladdi hana meira en samvistir við sína nánustu og þó að störfin væru oftast ærin gaf hún sér alltaf tíma til að ræða málin, grípa í spil eða baka með yngstu fjölskyldumeðlimunum. Hún talaði alltaf við alla af virð- ingu og var óspör á hrós, hall- mælti aldrei neinum. Hinn 16. desember næstkom- andi hefðu mamma og pabbi átt 60 ára brúðkaupsafmæli. Sam- band þeirra var varðað einstakri vináttu og kærleika. Fram á síð- asta dag færði pabbi henni kaffi eða te og kökusneið í rúmið. Í ríf- lega 20.000 skipti settist pabbi á rúmstokkinn hjá mömmu og færði henni morgunhressingu. Sú staðreynd lýsir best þeim blóm- skrýdda vegi sem þau þrömmuðu saman í 60 ár. Þessi lágvaxna og lítilláta kona skilur eftir sig undravert stórt skarð í tilveru okkar, fólksins hennar. Skarð sem ekki verður á nokkurn hátt fyllt upp í, nema þó helst með góðum minningum, samstöðu okkar, glaðværð og notalegum samvistum. Það kenndi hún okkur og var hennar einasta ósk. Mörg stórmennin hafa velt fyr- ir sér tilgangi lífsins. Þeir hefðu betur spurt mömmu. Takk fyrir þig, mamma mín. Jóhannes Arnar. Laugardaginn 3. nóvember ný- liðinn var til moldar borin tengda- móðir mín Dísa í Ásakoti, sá bær er einn af nokkrum bæjum í svo- nefndu Tunguhverfi. En það er þétt bæjarhverfi í þeim hluta Biskupstungna, sem kallast Eystri-Tunga. Næsta vor verður liðin hálf öld síðan ég kom vinnumaður að Ása- koti og kynntist Dísu. Þar bjuggu félagsbúi á þeim tíma húsbóndi minn Jóhannes Jónsson og dóttir hans Eygló, á móti þeim ágætu hjónum og raunar seinna tengda- foreldrum mínum, Ragnari Braga Jóhannessyni og konu hans Vig- dísi Ásu Kristjánsdóttur frá Eini- holti í sömu sveit. Það væri örugglega ekki tengdamóður minni til þægðar að ausa því lofi á hana sem hún þó ætti skilið. Ég mun samt reyna í fáum orðum að minnast hennar á þann hátt sem hún kom mér fyrir sjónir, enda varð mér fljótt ljóst hvílík gæðakona Dísa var. Hún var, án þess að á aðra sé hallað, að mörgu leyti það lím sem hélt öll- um daglegum samskiptum í skorðum á bænum. Ætíð gerði hún gott úr öllu, lagði aldrei illt til nokkurs manns, hvað þá heldur nokkurrar skepnu. Dísa kom úr stórum systkina- hóp frá Einiholti og þurfti ung að árum, við fráfall föður síns að axla nokkra ábyrgð við bústörf og gæslu yngri systkina. Hún hafði fengið í arf svo einstaka geðprýði að leitun var að öðru betra, hún var að jafnaði glöð og hláturmild, gerði aldrei grín að öðru en sjálfri sér. Það var í rauninni alveg sama hvað bjátaði á, en eins og gengur við búskap þarf að taka áföllum, stórum eða smáum, aldrei man ég eftir því að Dísa haggaðist að ráði. Hún var stoðin á heimilinu að mörgu leyti og taldi fremur kjark í aðra, fremur en að draga úr, al- veg sama á hverju gekk, enda var bjartsýni henni í blóð borin. Dísa var virt og vinsæl af öllum sínum grönnum og raunar sveit- ungum öllum, hún var einstaklega hjálpleg þegar til hennar var leit- að sem oft var. Hún hafði lært nokkuð á saumaskap ung að árum og þess fengu grannkonur hennar í Tunguhverfinu margar að njóta, ekki var þá verið að verðleggja vinnu eða fyrirhöfn. Dísa var raunar einstök hannyrðakona allt sitt líf, enda fengu bæði mín börn sem og mörg önnur þess að njóta alveg fram að síðustu stundu, að auki auðvitað margir fleiri. Að ósk hinnar látnu og í hennar anda, fór útförin fram í kyrrþey sem kallað er, jarðsungið var í Bræðratungukirkju, enda rétt spölur milli bæja. Tungukirkja er ekki stór og færri komust að en vildu, það er víst. Þeir nánustu fylgdu Dísu hinsta spölinn í fal- legri og hlýlegri athöfn. Ekki var í kot vísað með yfirsöng, enda átti hún vísan drengjakór, uppi í sinni ermi, þar sem tveir synir hennar Kristján og Jóhannes eru þátt- takendur. Raunar er ég viss um að sjaldan eða aldrei hefur verið betur sungið í þeirri litlu kirkju og sönglögin voru valin að smekk Dísu, bæði sálmar og önnur lög. Lengi munu barnabörn Dísu og Bóa minnast ömmu sinnar, hún gaf þeim ómælt af sinni gæsku og tíma, raunar náðu nokkur langömmubörn að kynn- ast henni líka. Við, sem þekktum Dísu, þökkum henni samfylgdina, hún gaf ætíð meira en hún þáði. Magnús Halldórsson. Vigdís Kristjánsdóttir Þegar sorgar titra tárin tregamistur birgir sýn, Huggar, græðir hjarta- sárin Hlý og fögur minning þín. (Höf. ók.) Hermann Smári fæddist 29. júní um Jónsmessuleytið að sumri, sem er 24. júní, en eins og margir vita er sólarbirtan þá skærust, sem minnir á ljós fæð- ingarhátíðar frelsarans að vetri til. Ég fékk þá gjöf að verða guð- móðir Hermanns Smára frá föð- ur hans og móður, en þau heita Jónína Katrín og Jón Hermann. Fyrir mörgum árum, þá lítill drengur í búð á Húsavík, sá Hemmi, eins og hann var alltaf kallaður, skart sem honum þótti fallegt og vildi gefa mér. Þess vegna sagði hann við mig: „Ég Hermann Smári Jónsson ✝ HermannSmári Jónsson fæddist 29. júní 2000. Hann lést 25. október 2018. Útför hans fór fram 6. nóvember 2018. ætla að gefa þér þetta skraut en þú verður samt að borga það sjálf!“ Auðvitað var ekki hægt að neita þess- ari gjöf. Hemmi elskaði kettina mína þrátt fyrir ofnæmi fyrir þeim en þeir eltu hann á röndum. Hann var ákafur í íþróttum, þar á með- al íshokkíi, mótókrossi og bíla- sporti. Dauði hans var óvæntur, hann var aðeins átján ára gamall og skilur eftir margar spurningar hjá okkur sem eldri erum. Ástin er alltaf tengd sorginni því án hennar væri engin ást til. Við skiljum ekki hlutina og kannski er okkur aldrei ætlað að greina þá. Guð einn veit svarið og við sitjum eftir með sorgina auk þroskans sem okkur er gefinn eft- ir allt saman. Hví var þessi ungi, gáfaði, glaði drengur tekinn frá allri fjölskyld- unni? Eftir sitja minningar sem best er að hafa í huga, þegar hann var glaður, brosandi, keyrandi um bæinn á sínum sportbíl, veif- andi mér og fleirum. Atorka hans var mikil, Hemmi lærði fljótt hlutina og bjargaði sér. Hann var mikið jólabarn. Sérstaklega eru minnisstæð áramótin og allt brasið í kringum flugeldana sem gerðu mig dauðhrædda um bræð- urna, þá Bjarna, Birki og hann, þótt ég vissi að allt væri í lagi úti við og þeirra vel gætt. Hemmi dundaði sér mikið ásamt föður sínum í bílskúrnum enda góðir vinir. Þeir fóru líka oft að veiða til sveita og áttu þar góð- ar stundir saman. Alltaf þurfti Hemmi að hafa eitthvað fyrir stafni enda með mörg áhugamál í farteskinu. Allir elskuðu hann. Því kveðjum við góðan dreng og vottum fjölskyldu hans, unnustu og vinum samúð. Ég sá þig koma svo oft. Með föður þínum og bræðrum, dreypa á kaffi og kökum. Brosin léku um varir og lundina, allir elskuðu stundina. Þín guðmóðir, María Hermannsdóttir og fjölskylda. Elsku Hemmi, smitandi hlátur þinn bergmálar enn í eyrum okk- ar. Við kynntumst þér fyrst á leikskólanum Iðavöllum og síðan þá hafið þið Óli verið óaðskiljan- legir. Það var enginn jafn bros- mildur og hjálpsamur og þú, allt- af til staðar og aldrei neitt mál að redda hinu og þessu. Eins og þegar þú varst smá- peyi að byggja trékofa í garðin- um okkar með Óla og þið voruð sífellt að finna fleiri spýtur og efnivið til að klára kofann. Þó svo að þið þyrftuð bókstaflega að taka þær úr pallinum okkar. Það var ekki hægt annað en dást að útsjónarsemi þinni. Það var svo ótrúlega margt sem þið Óli bröll- uðuð saman; jólabingó, sjopp- urekstur, hljóðmenn á árshátíð- um, tölvusmíði, kassabílasmíði, ótal snjógöng á hagkaupshólnum og svo rúntar um allt Norður- landið. Daginn áður en þú kvadd- ir okkur tókst þér að kalla fram hlátrasköll hjá okkur öllum með því að tengja stefnuljósið í bílnum hans Óla við loftflautu. Við erum svo ótrúlega þakklát fyrir hvað þú kallaðir oft fram bros hjá okk- ur öllum. Þetta er ekki spurning um hvort við lærum að lifa án þín, því þú verður alltaf hjá okkur, í hjörtum okkar og bænum. Við munum gera okkar besta til að endurspegla gleði þína og vænt- umþykju sem þú sýndir öllum alltaf, alveg sama hvort það var vinur eða ókunnugur; þú tókst öllum nákvæmlega eins og þeir voru. Takk fyrir allar minning- arnar og hamingjuna sem þú gafst okkur. Jóhanna, Jörgen, Alda Karen, Ólafur og Fía. Allt tekur enda og það á við fjörutíu ára samfylgd með tengdaföður mínum. Manni er efst í huga þakklæti fyr- ir að hafa fengið að kynnast þess- um mannkostamanni. Það er margs að minnast. Í byrjun þegar við Erla hófum búskap á Beru- stöðum stóð hann þétt við bakið á okkur og var hvetjandi. Hann sagði, þið byrjið á að byggja og koma ykkur upp bústofni. Það liggur ekkert á að þið kaupið jörð- ina, þið verðið að vera komin með rekstur til að standa undir því. Eftir því fórum við og þá sem oft- ar var hann ráðhollur og fram- sýnn. Það þarf stundum lag til að ráðleggja ungu og kappsömu fólki, en það var Trausta í blóð borið. Við keyptum svo jörðina þegar við höfðum búið í níu ár. Það ár var verið að rífa gamla bæ- inn á Berustöðum sem var parhús sem þjónaði báðum Berustaða- bæjunum. Þá var ákveðið að nýj- asti partur af vesturbænum yrði ekki rifinn. Trausti hafði þá auga- stað á að koma sér þar upp afdrepi sem með tíð og tíma varð hinn ágætasta vistarvera og oft sagði Trausti mér að honum fyndist ekki komið sumar fyrr en hann færi að gista í gamla bænum, eins og hann hefur alltaf verið kallað- ur. Þá var hann kominn með hest- ana sína frá Hellu og gat notið þess að ríða út með barnabörn- Trausti Runólfsson ✝ Trausti Run-ólfsson fæddist 28. júní 1933. Hann lést 31. október 2018. Útför Trausta fór fram 9. nóvem- ber 2018. unum. Þeim var sagt til og áhuginn örvað- ur á hestamennsk- unni. Það kom mér á óvart að hann vildi ekki undanskilja gamla bæinn er ég keypti jörðina. Þar kom þessi framsýni hans í ljós. Það er útilokað að eigandi Berustaða ráði ekki yfir þessum húsum sem standa á vesturbæjarhlaðinu. Ég nýt gamla bæjarins með ef ég þarf og svo tekur eitthvað annað við, þú átt eftir að sjá það að hér ræð ég þér heilt, sagði Trausti. Hann var alltaf boðinn og búinn að hjálpa okkur Erlu í búskapn- um, en alveg nýr kafli hófst er hann lét formlega af störfum. Ófá handtökin átti hann þegar við reistum nýtt fjós árið 2006. Síðan sérhæfði hann sig í ákveðnum heyskaparverkum, sem var frá- gangur á plastendum og heima- kstur á rúllum. Stundum fannst mér hann sýna því lítinn skilning ef ég var ekki tilbúinn í hirð- inguna. Hann var alinn upp við það að heyskap væri ekki lokið fyrr en hirt var. Setti John Deere, sem var hans uppáhaldsvél, í gang og vagninn aftan í og hvað þarf ég svo að bíða lengi, var spurt. Ég fann það líka þegar hann gat ekki lengur unnið þessi verk hvað mað- ur hafði haft góða aðstoð. Það er alltaf svo að maður veit ekki hvað maður á, fyrr en misst hefur. Núna síðustu ár var hugurinn alltaf heima á Berustöðum, spurt var um búskapinn og allt sem hon- um tengdist. Þakka þér fyrir allt og allt, minn kæri vinur. Egill Sigurðsson. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐRÍÐUR LILLÝ GUÐBJÖRNSDÓTTIR, Strandvegi 2, Garðabæ, lést á Landspítalanum 14. nóvember. Útförin fer fram frá Digraneskirkju fimmtudaginn 22. nóvember klukkan 11. Gunnar Þór Þórhallsson Margrét Gunnarsdóttir Vilborg Gunnarsdóttir Þórhallur Gunnarsson Brynja Nordquist barnabörn og barnabarnabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HILDUR FRIÐJÓNSDÓTTIR, Sóltúni, lést 15. nóvember á hjúkrunarheimilinu Sóltúni. Útför hennar fer fram frá Bústaðakirkju föstudaginn 23. nóvember klukkan 13. Hjördís Högnadóttir Stefán Sigurbjörnsson Hrefna Sigrún Högnadóttir Kristinn Pétursson Högni Högnason Elsa Lúðvíksdóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma, SÓLVEIG ALDA KARLSDÓTTIR, Kleppsvegi 130, lést á líknardeild Landspítalans föstudaginn 9. nóvember. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Þórður Oddsson Inga Dís Þórðardóttir Ragnar Dagur Guðmundsson Sindri Þór Ragnarsson Sandra Sól Ragnarsdóttir Alda Nansý Ragnarsdóttir Kristján Smári Ragnarsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.