Morgunblaðið - 20.11.2018, Page 26

Morgunblaðið - 20.11.2018, Page 26
26 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. NÓVEMBER 2018 Ég er fædd oguppalin íHafnarfirði og öll mín ætt hefur verið búsett hér, langafi minn var Jó- hannes Reykdal sem var brautryðjandi hér í Hafnarfirði svo ég hef mikla ástríðu fyrir Hafnarfirði,“ segir Kristín María Thoroddsen, bæj- arfulltrúi í Hafn- arfirði, en hún á 50 ára afmæli í dag. Kristín er formað- ur fræðsluráðs og hafnarstjórnar í Hafnarfirði og er einnig varaþingmað- ur Sjálfstæðisflokks- ins í Suðvestur- kjördæmi. „Það eru mjög spennandi tímar framundan hérna í Hafnarfirði en fyrirhuguð er uppbygging á aðalhafnarsvæðinu þar sem fyrirhuguð er íbúðabyggð, þjónusta og verslanir í bland við þá hafnarstarfsemi sem er fyrir í dag, en höfnin er eitt af kennileitum bæjarins, mikilvæg sem höfn og því mikilvæg í hugum Hafnfirðinga. Við erum að fara af stað með þessa vinnu þar sem byrjað verður á samtali við íbúa og hagsmunaaðila. Svo eru fræðslumálin afar spennandi og skemmtilegur málaflokkur þar sem fjölmargt er á döfinni, og má þar til að mynda nefna endur- skoðun á menntastefnu Hafnarfjarðar, stórt verkefni en mjög mikil- vægt og verður gaman að vinna með þeim flotta hóp fólks sem starfar að þessum málum í bæjarfélaginu.“ Það er því nóg að gera hjá Kristínu og sem dæmi er hún fullbókuð á fundum í allan dag, en ætlar að njóta kvöldsins með fjölskyldunni. Kristín er ferðamálafræðingur að mennt og hefur unnið mestanpart sem flugfreyja en tók sér hlé frá því. „Ég ákvað að fjárfesta í sjálfri mér og er á seinna ári í MBA-námi við Háskóla Íslands og sé ekki eftir því. í frístundum mínum nýt ég þess að vera úti í náttúrunni með mín- um nánustu hvort sem er hér heima eða erlendis.“ Eiginmaður Kristínar er Steinarr Bragason, flugstjóri hjá Ice- landair, og saman eiga þau Inga Þór, f. 1992, Arngrím Braga, f. 1996, Daníel Frey, f. 2005 og Ásgeir Stein, f. 2008. Foreldrar Kristínar eru Þórunn Christiansen og Björn Thoroddsen. Bæjarfulltrúinn Kristín Thoroddsen. Hreinræktaður Hafnfirðingur Kristín Thoroddsen er fimmtug í dag E ysteinn Pétur Lárus- son fæddist í Reykja- vík 20.11. 1978 en ólst upp á Blönduósi. Hann stundaði nám í Grunnskólanum á Blönduósi en þaðan lá leiðin í Framhaldsskólann á Laugum í Þingeyjarsýslu í tvö ár. Eysteinn fór síðan í Fjölbrauta- skóla Norðurlands vestra og lauk þaðan stúdentsprófi 1999. Eysteinn stundaði nám við Kenn- araháskóla Íslands og lauk B.ED.- gráðu árið 2003. Undanfarin tvö ár hefur hann stundað meistaranám í forystu og stjórnun frá Háskól- anum á Bifröst og mun ljúka námi sínu nú í desemberbyrjun. „Ég hóf ungur að æfa og keppa í knattspyrnu, fyrst með Hvöt á Blönduósi, síðan með Tindastóli á Sauðárkróki og síðast Þrótti í Reykjavík. Þar lék ég yfir 200 leiki með liðinu í efstu og næstefstu deild og var m.a. fyrirliði um tíma. Auk þess hóf ég ungur að þjálfa knattspyrnu og hef komið að þjálf- un yngri flokka þessara þriggja fé- laga og starfaði sem þjálfari, sam- hliða vinnu og námi, samfellt á árunum 1992-2013. Ég lauk A- gráðu KSÍ í þjálfun frá KSÍ árið 2011.“ Eysteinn Pétur Lárusson, framkvæmdastjóri Breiðabliks – 40 ára Fjölskyldan Hér eru Eysteinn Pétur og Brynhildur með sonunum þremur, Rúnari Inga, Haraldi og Lárusi Orra. Hress íþróttafjölskylda Hjónin Hugljúf mynd af Brynhildi grunnskólakennara og afmælisbarninu. Grindavík Pétur Mar- ino Magnusson fæddist í Reykjavík 14. janúar 2018 kl. 13.40. Hann vó 3.880 g og var 51 cm að lengd. Foreldrar hans eru Ólöf Daðey Pétursdóttir og Magn- us Oppenheimer. Nýr borgari Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. R GUNA GÓÐAR I Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.