Morgunblaðið - 20.11.2018, Page 29

Morgunblaðið - 20.11.2018, Page 29
DÆGRADVÖL 29 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. NÓVEMBER 2018 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Viltu láta koma þér á óvart? Ef já, hættu þá að lesa. Sumt er til fróðleiks en margt má fara inn um annað eyrað og út um hitt. 20. apríl - 20. maí  Naut Fjármál verða þér hugfólgin í dag og þú liggur ekki á skoðunum þínum í þeim efn- um. Helgin ætti því að verða góð hjá þér. Ekki er víst að allir skilji það en það skiptir engu máli. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Það er engin skoðun svo skotheld að hún geti ekki breyst vegna nýrrar vitn- eskju eða einhvers annars. Ekki missa stjórn á þér. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þú ert uppfullur af hugmyndum og fleiri streyma að þér úr öllum áttum. Reyndu að fá aðra til að sjá þína hlið á málinu. Brettu upp ermarnar og gakktu í það sjálfur. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Að vita hvenær maður hefur færst of mikið í fang er eitt, að viðurkenna það er annað. Farðu varlega, þú gætir þurft að leita í þessi gömlu gildi aftur. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Ekki leyfa rökhugsuninni að afneita fyrirbærum á borð við töfra og heppni. Ekki taka allt svona bókstaflega. 23. sept. - 22. okt.  Vog Misnotaðu ekki traust þeirra sem leita til þín með vandamál sín. Vinirnir hringja í þig til þess að heyra hvatningarorð og verða svo sannarlega ekki fyrir vonbrigðum. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þú munt hitta einhvern sem er á sömu bylgjulengd og þú sjálfur. Allt sem gert er hefur áhrif á heildarmyndina, alveg eins og hið ógerða. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þér fallast hendur gagnvart þeim verkefnum sem bíða þín. Næstu vikurnar er tilvalið að sækja um lán eða styrki. Ef þú átt enga hvetjandi vini er núna rétti tíminn til að eignast þá. 22. des. - 19. janúar Steingeit Það er kominn tími til þess að þú setjir sjálfan þig á oddinn og hættir að hlaupa til eftir óskum annarra. Hikaðu ekki við það. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Gættu þess að gleyma þér ekki í vangaveltum og dagdraumum. Ekki fá ut- anaðkomandi hjálp, byrjaðu á að hreinsa til innra með þér. 19. feb. - 20. mars Fiskar Það er ekkert hallærislegt við tilfinn- ingar, jafnvel þótt þér hafi verið kennt það. En mundu að fleiri koma við sögu og leyfðu þeim að njóta sigursins með þér. Í starfi sínu hefur Víkverji kynnstþví að ýmsar málvenjur og frasar frá ákveðnum starfsstéttum dúkka upp þegar mál þeim tengd eru til umfjöllunar. Þetta er til dæmis mjög algengt í lögreglufréttum, einkum og sér í lagi vegna þess að lög- reglufréttir í dag byggjast að stærstum hluta á tölvupóstum frá lögreglunni. Þannig hefur sögnin að haldleggja smám saman skotið rót- um í íslensku. Þetta byrjaði sem hálf hlægilegt löggutal en nú er flestum tamt að tala um lögreglan hafi hald- lagt ákveðið magn af fíkniefnum. Í stað þess að tala einfaldlega um að lagt hafi verið hald á. Sem er mun fallegri íslenska. x x x Þessi frasavæðing nær ekki baratil fréttaskrifa. Hún á ekki síður – og jafnvel enn frekar – við um aug- lýsingar. Of langt væri seilst að fara að þylja upp alla vitleysuna sem þar viðgengst en eitt dæmi getur Vík- verji ekki stillt sig um að nefna. Það snýr að ónefndu olíufélagi sem aug- lýsir mikið í útvarpi og örugglega víðar. Þegar Víkverji brunar um götur borgarinnar á sinni amerísku sjálfrennireið, þetta er nefnt til að augljóst sé að Víkverji er dyggur viðskiptavinur olíufélaga, þarf hann iðulega að sitja undir annars ómfag- urri rödd Sólmundar Hólm sem hvetur hann til viðskipta við hið ónefnda félag. Hvatningin felst í því að Hólm segir Víkverja að hann geti haft hag af því að „tanka“ á stöðvum félagsins. Tanka! Þvílíkt orðskrípi. x x x Víkverji hefur ýmsar ástæður tilað gleðjast þrátt fyrir ofan- greind áföll. Til að mynda þær að enn er hægt að nálgast í búðum ómótstæðilega haustjógúrt frá mjólkurvinnslunni Örnu í Bolung- arvík. Vörurnar frá Örnu væru ef- laust efni í heilan pistil, svo magn- aðar eru margar þeirra. Og svo er ísbúðin ekkert slor heldur. Leitun er að öðrum eins unaði og felst í rjóma- kenndu bláberjabragðinu sem fyrir- finnst í glerkrukkunum. Svo mjög að erfitt er að sjá fyrir sér lífið án þeirra þegar birgðirnar klárast. En þá fer reyndar að styttast til jóla. vikverji@mbl.is Víkverji Ég er góði hirðirinn. Góði hirðirinn leggur líf sitt í sölurnar fyrir sauðina (Jóh: 10.11.) Meira til skiptanna Þetta erindi úr kvæði séra Matt-híasar „Íslensk tunga, – ort til Vestur-Íslendinga“ hefur mér ávallt fundist dýrasti óðurinn sem til tungunnar hefur verið kveðinn: Tungan geymir í tímans straumi trú og vonir landsins sona dauðastunur og dýpstu raunir darraðarljóð frá elstu þjóðum. Heiftareim og ástarbríma örlagahljóm og refsidóma land og stund í lifandi myndum ljóði vígðum – geymir í sjóði. Þetta rifjaðist upp nú um helgina þegar ég las kveðskapinn, sem birt- ist á Boðnarmiði á föstudaginn, fæðingardegi listaskáldsins góða. Auðvitað hafði ég gaman af kett- inum Jósefínu Meulengracht Diet- rich þegar hún malaði: „Í dag er dagur íslenskrar kattartungu og ég fer út í samfélagið framan við hús og sleiki út um“: Kattartungu úr hvofti mér á kattartungudegi úti á stétt svo alþjóð sér upp í nefið teygi. Sigurlín Hermannsdóttir orti „heklaða vísu“: Löngum saman langar mann litlu stykki’ að hnuðla. Finn ég þráð og flétta hann í fastapinna og stuðla. Og Helgi Zimsen sagði: „Ætli sé ekki við hæfi að yrkja níðvísu um þá er sletta saman tungum í tranti sér – svona af því að það er dagur íslenskrar tungu“: Slettuþræla þekki hreim. Þoku- ælist -bræla er þeir mæla tungum tveim og tal með stælum þvæla. Og bætti við „En það er best að freista þess að láta kveða við bjart- sýnistón“: Tískubrjáluð brautin hál bólum þjálum kastar. Íslenskt mál sem stuðlastál stendur prjáli fastar. Dagbjartur Dagbjartsson kvað þetta að vísu vera gamalt góss en ætti að vera saklaust að rifja upp í tilefni dagsins: Ef ég fer á annað borð með andagift að bruðla treð ég hugsun inn í orð og orðunum í stuðla. Oft mig langar ljóðin smá að laga upp frá grunni en stundum vill það stranda á stuðlasetningunni. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Á degi íslenskrar tungu „ÞÚ GAFST HELDUR EKKI MARGAR ÁSTÆÐUR TIL TRYGGÐAR, VAR ÞAÐ?“ „ER KVIÐSLIT SMITANDI?“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... þegar tíminn líður löturhægt í fjarveru hennar. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann VÆÆÆL... HVAÐ ER MÁLIÐ? URRRR ÍKORNI AFVINAÐI HANN ÉG ÞARF SJÁLFBOÐALIÐA SEM ER SAMA ÞÓTT HANN BLOTNI! EN ÞAÐ ER EKKERT SÍKI HÉRNA! FYRST ÆTLUM VIÐ AÐ RÆNA ÓSKABRUNN KONUNGSINS!

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.