Morgunblaðið - 20.11.2018, Side 31
MENNING 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. NÓVEMBER 2018
Það má fyrirgefa Guðjóni Sam-úelssyni húsameistara ým-islegt fyrir það eitt að hafaskapað þetta dulmagnaða
tónleikahús á hæðinni sem piltar í
Hólavallaskóla notuðu undir brennur
og kölluðu Vulcan. Húsið er vissulega
kirkja undir katólskan ritúal en um leið
líklega best innréttaða rýmið undir
innblásna a cappella kórtónlist á Ís-
landi hvað viðvíkur nánd og hugg-
unarríkan ómblæ.
Requiem, sálumessa eftir spænska
tónskáldið og prestinn Tomás Luis de
Victoria, er rómað fyrir dáleiðandi feg-
urð og sérlega djúpa túlkun á texta
sálumessunnar líkt og stóð í verk-
efnaskrá kvöldsins. Sexradda verkið
(með tvöfaldan sópran og tenór) var
samið fyrir útför spænsku keisaraynj-
unnar Maríu við lát hennar 1603. Sálu-
messan var jafnframt svanasöngur
tónskáldsins og markar sem slíkt
glæstan lokahnykk spænsku gullald-
arinnar í fjölröddun. Í flutningi Bar-
börukórsins vantaði aðeins lokakafl-
ann, kyrie.
Victoria birti safn verka sinna í sam-
tals 11 ritum en Requiem – Officium
Defunctorum var eina verkið sem birt-
ist sjálfstætt. Auk hefðbundinna liða
sálumessunnar (sem umbótaþingið í
Trentó straumlínulagaði) bætti tón-
skáldið við upphafskafla, árdegisritúal
– Taedet animam meam úr Jobsbók
(10:1-7); Mér býður við lífi mínu, ég
ætla að gefa kveinstöfum mínum laus-
an tauminn, tala af bitrum huga) sem
er stundum fellt niður á tónleikum en
Barbörukórinn flutti nú. Þá bætti tón-
skáldið við útfararmótettu Versa est in
luctum og lokakafla Libera me, Dom-
ine.
Það lá nokkur eftirvænting í loftinu
að fá að hlýða á þungaviktar efni frá
þessum mæta kammerkór frá Hafn-
arfirði. Hinn geðþekki kantor Hafn-
arfjarðarkirkju hefur gert virðing-
arverða hluti af góðum gæðum síðustu
ár í samvinnu við Smára Ólason með
sjaldheyrðum lögum úr íslenska tón-
listararfinum. Á tónleikunum sl. mið-
vikudagskvöld bar þó fljótlega á
ákveðnum veikleikum og máttleysi,
jafnvel kjarkleysi og óöryggi, t.a.m. í
innkomum og lengri frösum. Hljómur
rýmisins var ekki nýttur til fullnustu
undir þá dýnamík sem verkið býður
upp á en kórinn hefði hæglega mátt
ganga mun lengra. Það mátti vissulega
vel greina hugsun í dýnamískum
strúktúr á hátindum textans en það
var oft forserað, en allra helst vantaði
stærri frávik og afbrigði í neðri styrk-
leikamörk, messó-píanó og neðar, en til
þess verður mannskapurinn að treysta
húsinu því hljóðin berast í Landakots-
kirkju.
Þriðji kafli Graduale var afleitur,
sunginn af ákefð án yfirvegunar.
Fjórði kafli Offertorium var skelfilegur
áheyrnar en þar kastar kórinn sín á
milli kraftmiklum og afdrifaríkum frös-
um sem voru kreistir fram af þvílíkri
áreynslu að mann langaði helst að
halda fyrir eyrun. Best tókst kórnum
upp í Communio. Flutningurinn leið í
annan stað fyrir greinilegan getumun á
milli söngvara; 1 sópran og 1. tenór eru
greinilega yfirvegað gæðahandverks-
fólk á meðan 2. sópran og 2. tenór gat
hljómað klemmdur, spenntur, hávær
og jafnvel rembingslegur. Þessi getu-
munur kom einnig fram í ósamstilltum
innkomum. Innan hópsins eru greini-
lega nokkrar lítt-mótaðar raddir sem
skera sig rækilega frá þeim mótuðu.
Altraddir sluppu að öllu heilar frá
kvöldinu.
Leiðari annars sóprans syngur can-
tus firmus línur gregorsöngsins í upp-
hafi hvers kafla áður en fjölröddun tek-
ur við. Það var langt í frá sannfærandi
stíll á gregórsöng Þórunnar Völu sem
var frómt sagt bæði óinnblásinn og
flatur. Þá var söngkonan slegin slíkri
sönggleði að rödd hennar skar sig með
afgerandi hætti úr kórhljómnum tón-
leikana á enda. Ábyrgðin situr á herð-
um stjórnandans sem verður að gæta
að jafnvægi milli radda, hvort heldur
innan radda eða milli raddhópa; hann
er eyrað. Þá er sjálfsagt mál að kór-
stjóri eða leiðandi söngvari leiti upp-
hafstóns milli kafla, en verkfærið til
þess arna er tónkvísl, ekki munnharpa
eða ýla. Guðmundur hefði allt eins get-
að notast við Casio-skemmtara. Það
var fleira sem truflaði stemninguna að
ósekju; það hefði vel mátt tempra ljós-
magnið undir þessari hátimbruðu tón-
list. Þá vantaði nafn sjálfs kórstjórans í
tónleikaskrá. Í raun vantaði ótal margt
upp á alla framsetningu eða presenta-
sjon á þessum tónleikum, en því miður
telst vart lengur nóg að komast bara í
gegnum verkin stórslysalaust.
Ljósmynd/Gassi
Barbörukórinn Á tónleikunum bar „fljótlega á ákveðnum veikleikum og
máttleysi, jafnvel kjarkleysi og óöryggi, t.a.m. í innkomum og lengri frös-
um. Hljómur rýmisins var ekki nýttur til fullnustu undir þá dýnamík sem
verkið býður upp á en kórinn hefði hæglega mátt ganga mun lengra.“
Úr voðanum í skaðann
Kristskirkja í Landakoti
Kórtónleikarbbnnn
Barbörukórinn flutti Requiem – Offici-
um defunctorum eftir Tomás Luis de
Victoria (1548-1611)
Lectio II ad matutinum
* Taedet animam meam
Missa Pro Defunctis
* Introitus
* Kyrie
* Graduale
* Offertorium
* Sanctus
* Agnus Dei
* Communio
Motectum
* Versa est in luctum
Absolutio – Responsorium
* Libera me, Domine
Gregorsöngur: Þórunn Vala
Valdimarsdóttir
Kórstjóri: Guðmundur Sigurðsson
Kristkirkja í Landakoti, 14. nóvember
INGVAR
BATES
TÓNLIST
20 milljónum króna var úthlutað
úr Hönnunarsjóði við lokaúthlutun
ársins. 108 umsóknir bárust sjóðn-
um um ríflega 174 milljónir. Sjóð-
urinn úthlutaði alls 50 milljónum
króna á árinu og nú var varið 19
milljónum til jafn margra verkefna
og einni milljón kr. í ferðastyrki.
Hæsta styrkinn hlaut Helga
Lára Halldórsdóttir fyrir „Objec-
tive“, 2,5 milljónir kr. Hafsteinn
Júlíusson og Karítas Sveinsdóttir –
Hafstudio hlutu tvær milljónir fyr-
ir „Skólastóll – Næsta kynslóð“ og
Magnea Guðmundsdóttir og Bryn-
hildur Pálsdóttir eina og hálfa
milljón kr. fyrir verkefnið „Inni í
yfirborðinu“.
Styrki á bilinu 500 þúsund til
einnnar milljónar króna hlutu:
Arkitektar Hjördís & Dennis ehf.
fyrir „Áhrif frá Bretlandseyjum,
mannvirki á Íslandi“; Kristín Sig-
fríður Garðarsdóttir fyrir „Duft-
ker“; Magnús Albert Jensson fyrir
„Hönnun bíllauss hverfis fyrir
BFS“; Signý Þórhallsdóttir fyrir
„Morra Sveigur“; Ýr Jóhannsdóttir
fyrir „Þættir“; Hörður Lárusson
fyrir „Fáni fyrir nýja þjóð“; Þórey
Björk Halldórsdóttir og Baldur
Björnsson fyrir verkefnið „+Eilífð
– &AM þróar upplifunar vörulínu“;
Arnar Már Jónsson fyrir „Arnar
Már Jónsson Fatalína“; Birna Geir-
finnsdóttir og Bryndís Björgvins-
dóttir fyrir „Ferill og störf Krist-
ínar Þorkelsdóttur“ Elísabet V.
Ingvarsdóttir og Arndís S. Árna-
dóttir fyrir „Hönnun á Íslandi –
Ágrip af sögu“, Erna Bergamann
Björnsdóttir fyrir „Swimslow“;
Harpa Einarsdóttir fyrir „Myrka &
Lavastract“; Hlín Reykdal fyrir
„Crown by Hlín Reykdal“; Katrín
Ólína Pétursdóttir fyrir „Aska –
Rannsókn“; Kolbrún Sigurð-
ardóttir fyrir „Tölum um íslenskt
keramik“ og Sigríður Heimisdóttir
fyrir „Gler líffæri; líkaminn“.
Nítján verkefni hlutu jafn margar millj-
ónir króna í styrki úr Hönnunarsjóði
Styrkþegarnir Hönnuðirnir sem
hlutu styrki við lokaúthlutun ársins
úr Hönnunarsjóði saman komnir.
William Gold-
man, einn kunn-
asti handritshöf-
undur Banda-
ríkjanna, er
látinn 87 ára að
aldri. Hann
hreppti tvenn
Óskarsverðlaun,
fyrir handrit
kvikmyndanna
Butch Cassidy
and the Sundance Kid og All the
President’s Men. Meðal annarra
frægra handrita hans eru The Prin-
cess Bride, Misery og Marathon
Man.
Í andlátsfregn The New York
Times segir að nafn hans við hand-
rit hafi nánast tryggt djúpa, vel
hugsaða og góða skemmtun, þegar
kvikmyndin var tilbúin.
Í umfjöllun um Goldman í The
Guardian fyrir nokkrum árum var
han sagður „besti og frægasti kvik-
myndaleikstjórinn á lífi í dag“.
Goldam samdi margar skáldsög-
ur og nokkur þekktustu handritin
vann hann upp úr eigin sögum. Fer-
ill Goldmans spannaði á sjötta ára-
tug en hann sló í gegn með sínu
fyrsta handriti, Butch Cassidy, sem
var selt fyrir metfé á þeim tíma.
Meistari hand-
ritaskrifa látinn
William
Goldman
Ronja Ræningjadóttir (Stóra sviðið)
Lau 24/11 kl. 17:00 Auka Lau 29/12 kl. 16:00 Auka Sun 27/1 kl. 16:00 35.sýn
Sun 25/11 kl. 14:00 Auka Sun 30/12 kl. 13:00 26. s Sun 3/2 kl. 13:00 36.sýn
Sun 25/11 kl. 17:00 22. s Sun 30/12 kl. 16:00 27. s Sun 3/2 kl. 16:00 37.sýn
Lau 1/12 kl. 14:00 Auka Sun 6/1 kl. 13:00 28.sýn Sun 10/2 kl. 13:00 38.sýn
Lau 1/12 kl. 17:00 23. s Sun 6/1 kl. 16:00 29.sýn Sun 10/2 kl. 16:00 39.sýn
Sun 2/12 kl. 14:00 Auka Sun 13/1 kl. 13:00 30.sýn Sun 17/2 kl. 13:00 40.sýn
Sun 2/12 kl. 17:00 24. s Sun 13/1 kl. 16:00 31.sýn Sun 17/2 kl. 16:00 41.sýn
Sun 9/12 kl. 14:00 Auka Sun 20/1 kl. 13:00 32.sýn Sun 24/2 kl. 13:00 42.sýn
Sun 9/12 kl. 17:00 25. s Sun 20/1 kl. 16:00 33.sýn Sun 24/2 kl. 16:00 43.sýn
Lau 29/12 kl. 13:00 Auka Sun 27/1 kl. 13:00 34.sýn
Stórskemmtilegur og æsispennandi söngleikur fyrir alla fjölskylduna!
Samþykki (Stóra sviðið)
Fös 23/11 kl. 19:30 7. s Fös 30/11 kl. 19:30 9.s
Fim 29/11 kl. 19:30 8.s Fös 7/12 kl. 19:30 10.sýn
Kraftmikið, splunkunýtt verk sem sló í gegn í Breska þjóðleikhúsinu.
Leitin að jólunum (Leikhúsloft)
Lau 24/11 kl. 11:00 315.s Lau 8/12 kl. 13:00 325.s Sun 16/12 kl. 13:00 335.s
Lau 24/11 kl. 13:00 316.s Lau 8/12 kl. 14:30 326.s Sun 16/12 kl. 14:30 336.s
Lau 24/11 kl. 14:30 317.s Sun 9/12 kl. 11:00 327.s Lau 22/12 kl. 11:00 337.s
Sun 25/11 kl. 11:00 318.s Sun 9/12 kl. 12:30 328.s Lau 22/12 kl. 13:00 338.s
Sun 25/11 kl. 12:30 319.s Fös 14/12 kl. 17:30 329.s Lau 22/12 kl. 14:30 339.s
Lau 1/12 kl. 11:00 320.s Fös 14/12 kl. 19:00 330.s Sun 23/12 kl. 11:00 340.s
Lau 1/12 kl. 12:30 321.s Lau 15/12 kl. 11:00 331.s Sun 23/12 kl. 13:00 341.s
Sun 2/12 kl. 11:00 322.s Lau 15/12 kl. 13:00 332.s Sun 23/12 kl. 14:30 342.s
Sun 2/12 kl. 12:30 323.s Lau 15/12 kl. 14:30 333.s
Lau 8/12 kl. 11:00 324.s Sun 16/12 kl. 11:00 334.s
Grímuverðlaunasýningin Leitin að jólunum.
Fly Me To The Moon (Kassinn)
Fim 22/11 kl. 19:30 19.sýn Lau 1/12 kl. 19:30 21.sýn
Fös 23/11 kl. 19:30 22.sýn Fös 7/12 kl. 19:30 20.sýn
Nýtt verk eftir höfund hins geysivinsæla leikrits Með fulla vasa af grjóti
Insomnia (Kassinn)
Lau 24/11 kl. 19:30 3.sýn Fim 29/11 kl. 19:30 5.sýn
Sun 25/11 kl. 19:30 4.sýn Fös 30/11 kl. 19:30 6.sýn
Brandarinn sem aldrei deyr
Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari)
Mið 21/11 kl. 20:00 Mið 5/12 kl. 20:00
Mið 28/11 kl. 20:00 Mið 12/12 kl. 20:00
Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins!
leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200
Elly (Stóra sviðið)
Fim 22/11 kl. 20:00 172. s Lau 1/12 kl. 20:00 176. s Sun 30/12 kl. 15:00 aukas.
Fös 23/11 kl. 20:00 173. s Sun 2/12 kl. 20:00 177. s Sun 30/12 kl. 20:00 aukas.
Sun 25/11 kl. 20:00 174. s Fim 6/12 kl. 20:00 178. s
Fim 29/11 kl. 20:00 175. s Fös 7/12 kl. 20:00 179. s
Stjarna er fædd.
Allt sem er frábært (Litla sviðið)
Fös 23/11 kl. 20:00 21. s Fös 7/12 kl. 20:00 23. s
Fös 30/11 kl. 20:00 22. s Fös 14/12 kl. 20:00 24. s
Gleðileikur um depurð.
Kvenfólk (Nýja sviðið)
Fim 22/11 kl. 20:00 1. s Lau 1/12 kl. 20:00 6. s Sun 16/12 kl. 20:00 11. s
Fös 23/11 kl. 20:00 2. s Fös 7/12 kl. 20:00 7. s Fim 20/12 kl. 20:00 aukas.
Lau 24/11 kl. 20:00 3. s Lau 8/12 kl. 20:00 8. s Fös 21/12 kl. 20:00 aukas.
Sun 25/11 kl. 20:00 4. s Fim 13/12 kl. 20:00 9. s Fös 28/12 kl. 20:00 12. s
Fös 30/11 kl. 20:00 5. s Fös 14/12 kl. 20:00 10. s Lau 29/12 kl. 20:00 13. s
Drepfyndin sagnfræði með söngvum.
Tvískinnungur (Litla sviðið)
Fim 22/11 kl. 20:00 4. s Sun 25/11 kl. 20:00 5. s Lau 1/12 kl. 20:00 6. s
Ást er einvígi.
Jólaflækja (Litla sviðið)
Lau 24/11 kl. 13:00 1. s Sun 2/12 kl. 13:00 4. s Lau 15/12 kl. 13:00 7. s
Sun 25/11 kl. 13:00 2. s Lau 8/12 kl. 13:00 5. s Sun 16/12 kl. 13:00 8. s
Lau 1/12 kl. 13:00 3. s Sun 9/12 kl. 13:00 6. s
Litrík jólasýning fyrir þau yngstu.
Rocky Horror (Stóra sviðið)
Lau 24/11 kl. 20:00 68. s Lau 8/12 kl. 20:00 70.s
Fös 30/11 kl. 20:00 69. s Fös 14/12 kl. 20:00 Lokas.
Allra síðustu sýningar!
BORGARLEIKHÚSIÐ
Kynntu þér nýjan tapas-matseðil Leikhúsbarsins
á borgarleikhus.is
Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is
Hvar er næsta
verkstæði?
FINNA.is