Morgunblaðið - 20.11.2018, Síða 36
Kvartett píanóleikarans Söru Mjallar
Magnúsdóttur kemur fram á tón-
leikum á KEX hosteli við Skúlagötu í
kvöld og hefur leik kl. 21. Auk hennar
skipa kvartettinn þeir Óskar Guð-
jónsson á saxófón, Þorgrímur Jóns-
son á kontrabassa og Matthías
Hemstock á trommur. Þema tón-
leikanna verður skandinavískur
djass auk nokkurra laga eftir Söru.
Kvartett Söru Mjallar
djassar á KEX hosteli
ÞRIÐJUDAGUR 20. NÓVEMBER 324. DAGUR ÁRSINS 2018
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 641 kr.
Áskrift 6.960 kr. Helgaráskrift 4.346 kr.
PDF á mbl.is 6.173 kr. iPad-áskrift 6.173 kr.
Íslenska karlalandsliðið í knatt-
spyrnu gerði 2:2-jafntefli við Katar í
vináttulandsleik í Belgíu í gær. Ís-
land hefur þar með leikið 13 leiki í
röð án sigurs á HM-árinu 2018 en
fram undan er undankeppni EM
sem öll verður leikin á næsta ári og
hefst í lok mars. Kolbeinn Sigþórs-
son skoraði langþráð mark og nálg-
ast Eið Smára Guðjohnsen. »3
Í undankeppni EM eftir
13 leiki án sigurs
ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Nú þegar komið er fram í síðari
hluta nóvembermánaðar dettur inn
á degi hverjum eitthvað sem tengist
jólunum. Ljósaseríur, klementínur,
konfekt og blandan góða af malti og
appelsíni eru komin í búðirnar og nú
síðast laufabrauðið. Það var raunar í
september síðastliðnum sem byrjað
var á þeirri framleiðslu hjá Ömmu-
bakstri-Gæðabakstri sem einnig
rekur Kristjánsbakarí á Akureyri.
Þunnt fátækrabrauð
Fyrir norðan er laufabrauðshefð-
in býsna sterk og þar liggja rætur
hennar, þótt siðurinn sé löngu kom-
inn suður og eigi vinsældum að
fagna. Fyrir norðan voru laufa-
brauðskökurnar raunar gjarnan
kallaðar fátækrabrauð enda hafðar
þunnar til að spara hveitið.
„Þetta er mikil törn og snemma á
haustin tökum við inn viðbótar-
mannskap, 12-15 starfsmenn, sem
eru bara í laufabrauðinu. Allt er
þetta vara sem við framleiðum frá
grunni; hnoðum, fletjum, skerum og
steikjum. Annar hluti framleiðsl-
unnar er síðan laufabrauðsdeig sem
við frystum og seljum síðan í versl-
anir til fólks sem sjálft sker og
steikir,“ sagði Vilhjálmur Þorláks-
son, framkvæmdastjóri Gæðabakst-
urs, þegar Morgunblaðið leit inn í
bakarí hans á Lynghálsi í Reykjavík
í gærdag.
Fjölskyldustund
og skemmtileg hefð
Í mörgum stórfjölskyldum er sú
hefð að fólk kemur saman nærri
upphafi aðventu í laufabrauðsskurð
og á þar skemmtilega samveru-
stund. Fyrir marga markar það
upphaf jólaundirbúnings. Margir
vilja þegar að bakstrinum kemur
hafa deigið tilbúið til að spara sér
tíma og fyrirhöfn. Sportið og spenn-
an liggur líka alltaf helst í því að
skera út mynstrin í kökurnar og þar
fær listfengi fólks oft að njóta sín.
„Við höldum í hefðirnar og gömlu
uppskriftirnar eru alltaf eins, en það
er munur á þeim eftir því hvort var-
an er undir merkjum Ömmubakst-
urs eða Kristjánsbakarís. Það nýj-
asta í ár er laufabrauð sem er
vegan; í stað mjólkur eru settir hafr-
ar og vatn í deigið svo bragð og
áferð á kökunum verða aðeins öðru-
vísi en alvanalegt er. Raunar er al-
menn þróun sú að fólk vill að brauð
og kökur séu vegan og við lögum
okkur að því,“ segir Viktor Sig-
urjónsson markaðsstjóri sem ætlar
að fyrirtækið framleiði alls yfir
milljón laufabrauðskökur fyrir þessi
jól.
Með hangikjötinu
„Kannski rúmlega það. Þetta er
alltaf að aukast og eins að fólk beri
laufabrauð fram með fjölbreyttari
hætti en áður – setur jafnvel á það
síld, álegg og fleira – þótt vinsælast
sé að borða laufabrauðið með hangi-
kjötinu,“ segir Viktor Sigurjónsson
að síðustu.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Laufabrauðsfólk Viktor Sigurjónsson markaðsstjóri, Vilhjálmur Þorláksson framkvæmdastjóri, Paulina Olejnik,
starfsmaður í framleiðslu, og Pétur Sigurbjörn Pétursson, framleiðslustjóri Gæðabaksturs, með kökurnar góðu.
Baka milljón kökur
Vertíð í Gæðabakstri Laufabrauðið er sígilt Vegan
er nýjung þessa árs Uppskrift og hefðir af Norðurlandi
BORGHESE Model 2826
L 220 cm Leður ct. 15 Verð 489.000,-
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
ítölsk hönnun – ítölsk framleiðsla
JEREMY Model 2987
L 202 cm Áklæði ct. 86 Verð 430.000,-
L 202 cm Leður ct. 30 Verð 585.000,-
ETOILE Model 2623
L 230 cm Leður ct. 25 Verð 485.000,-
ESTRO Model 3042
L 164 cm Leður ct. 15 Verð 325.000,-
L 198 cm Leður ct. 15 Verð 355.000,-
MENTORE Model 3052
L 162 cm Áklæði ct. 83 Verð 315.000,-
L 201 cm Áklæði ct. 83 Verð 345.000,-
Valur situr í efsta sæti Olís-deildar
kvenna þegar hlé hefur verið gert á
keppninni fram í byrjun janúar.
Næsta hálfa mánuðinn á landsliðið
sviðið en það tekur m.a. þátt í und-
ankeppni heimsmeistaramótsins
sem fram fer í Skopje í Makedóníu
um mánaðamótin. Nýtt undirbún-
ingstímabil er fram undan hjá lið-
unum átta í deildinni. Keppni deild-
arinnar í 10. umferð er gerð upp í
dag, lið umferðarinnar birt og listi
yfir markahæstu leikmenn þar sem
Hrafn-
hildur
Hanna
Þrast-
ardóttir
trónir á
toppnum
sem fyrr. »2-3
Valur svífur vængjum
þöndum í vetrarfrí