Morgunblaðið - 26.11.2018, Qupperneq 1
Um 200 manns mættu í Ljósagöngu UN Women í gær. Haldið var í göng-
una í tilefni alþjóðlegs baráttudags Sameinuðu þjóðanna gegn kynbundnu
ofbeldi. Kyndilberar göngunnar voru Sigrún Sif Jóelsdóttir, Olga Ólafs-
dóttir, Hjördís Svan og Hildur Björk Hörpudóttir.
Morgunblaðið/Eggert
Tvö hundruð gengu gegn kynbundnu ofbeldi
Ljósaganga UN Women var gengin um miðborg Reykjavíkur í gær
M Á N U D A G U R 2 6. N Ó V E M B E R 2 0 1 8
Stofnað 1913 278. tölublað 106. árgangur
ÚTRÁS VEST-
NORRÆNNAR
LISTAR
NÝR REIÐVEGUR
STEFÁN RAFN FÓR Á
KOSTUM MEÐ UNG-
VERSKA LIÐINU
NÝJAR SLÓÐIR OPNAST Í HEIÐMÖRK 12 ÍÞRÓTTIRHEIÐAR KÁRI Í KÖBEN 26
Sálfræðineminn Jón Ingi Hlynsson,
23 ára gamall ofvirkur strákur úr
Breiðholtinu, er síður en svo hinn
dæmigerði háskólanemi. Hann féll á
samræmdu prófunum í íslensku og
stærðfræði og gerði síðan nokkrar
atlögur að framhaldsskólanámi sem
allar féllu um sjálfar sig.
Eftir að hafa lokið einkaþjálfara-
námi áttaði hann sig á því að hann
gæti vel lært og í kjölfarið fór hann í
Menntastoðir Mímis, þar sem hann
segir að sér hafi í fyrsta skipti þótt
skemmtilegt að læra, en þar eru
kenndar kjarnagreinar sem sam-
svara fyrsta árs námi í framhalds-
skóla. Síðan fór hann í frumgreina-
deild Háskólans í Reykjavík og
komst þar á forsetalista skólans, þar
sem eru 2% nemenda með hæstu
einkunn í hverri deild.
Anney Þórunn Þorvaldsdóttir hjá
Mími segir að þar hafi margar slíkar
sögur orðið til, en undanfarin átta ár
hafa hátt í 700 manns farið í gegnum
Menntastoðir þar. »10
Úr falli á forsetalista
Fann sig ekki í skólakerfinu en stundar nú háskólanám
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Í háskóla Jón Ingi fetar mennta-
brautina þrátt fyrir erfiða byrjun.
Þorgrímur Kári Snævarr
thorgrimur@mbl.is
Þorsteinn Már Baldvinsson, for-
stjóri Samherja, efast um að Már
Guðmundsson seðlabankastjóri hafi
nokkurn tímann íhugað að fara með
mál Samherja í sáttaferli. Már lét
þau orð falla í þættinum Sprengi-
sandi á RÚV í gærmorgun að hann
hefði rætt um að setja mál Samherja
í sáttaferli áður en fyrirtækið var
ákært fyrir brot á gjaldeyrislögum í
fyrra skiptið en að hæstaréttar-
lögmaður hefði komist að þeirri nið-
urstöðu að hann mætti það ekki.
Honum bæri skylda til að leggja
fram kæru ef grunur léki á því að al-
varlegt brot hefði verið framið.
„Ég held að það hafi ekki hvarflað
að honum nokkurn tímann að fara í
sáttaferli,“ sagði Þorsteinn. „Ég bið
hann annars að leggja fram þau lög-
fræðirit um málið sem sanna það.“
Samherji undirbýr nú skaðabóta-
mál á hendur Seðlabankanum, sem
Þorsteinn telur hafa rekið málið
gegn Samherja af illum vilja. Þor-
steinn segir að yfirlýsing Más breyti
engu um áætlanir hans. Hæstiréttur
Íslands staðfesti 8. nóvember síðast-
liðinn dóm Héraðsdóms Reykjavík-
ur þar sem ákvörðun Seðlabankans
frá árinu 2016 um að Samherji
skyldi greiða 15 milljónir króna í
sekt til ríkissjóðs var felld úr gildi.
„Viðbrögð Más við því eru í sam-
ræmi við annað sem frá honum hef-
ur komið,“ segir Þorsteinn.
„Ómerkilegheitin halda áfram.“
„Ómerkilegheitin halda áfram“
Forstjóri Samherja efast um að seðlabankastjóri hafi nokkurn tímann rætt um
sáttaferli Segir ummæli bankastjóra engu breyta um fyrirætlaða skaðabótakröfu
Leiðtogar Evrópusambandsins
samþykktu í gær samning Theresu
May, forsætisráðherra Bretlands,
um skilmála útgöngu Bretlands úr
ESB á næsta ári. Samningurinn
tryggir meðal annars borgara- og
vinnuréttindi Breta búsettra í Evr-
ópusambandinu og ESB-borgara í
Bretlandi. Samkvæmt samningnum
mun Norður-Írland áfram lúta
reglugerðum Evrópska efnahags-
svæðisins og Bretland verður
áfram í evrópska tollabandalaginu
um hríð á meðan samið er um nýja
verslunarsáttmála. Alls óvíst er þó
hvort þessi samningur mun taka
gildi því margir breskir þingmenn
eru andsnúnir honum og telja hann
ekki uppfylla þau fyrirheit sem
voru gefin um Brexit í þjóðar-
atkvæðagreiðslunni 2016. »15
ESB samþykkir
Brexit-samning
ESB-fundur Theresa May ræðir við
Donald Tusk, forseta Evrópuráðsins.
AFP
Ingibjörg
Snorradóttir
Hagalín, íbúi á
Ísafirði sem
glímir við MS-
sjúkdóminn, er í
óvissu um hvort
Ísafjarðarbær
gerir á ný samn-
ing við hana um
heimaþjónustu,
en úrskurðar-
nefnd velferðarmála felldi nýverið
úr gildi uppsögn sveitarfélagsins á
fyrri samningi samkvæmt nýjum
reglum sveitarfélagsins um heima-
þjónustu. Ingibjörg segir þjónust-
una hafa skipt sköpum fyrir sig í
daglegu lífi enda valdi sjúkdómur-
inn orku- og máttleysi. »4
Bíður niðurstöðu
um heimaþjónustu
Ísafjörður Nýjar
reglur gilda nú.
Verði af kaupum Loftleiða Icelandic
á 51% hlut í ríkisflugfélaginu Cabo
Verde Airlines (CVA) er ætlunin að
búa til tengimiðstöð sem myndi
flytja flugfarþega frá SV-Evrópu til
S-Ameríku og V-Afríku til N-Amer-
íku með millilendingu á eyjunni Sal á
Grænhöfðaeyjum.
Flugfélagið gæti m.a. bætt þjón-
ustu við íbúa í milljónaborgum í
norðurhluta Brasilíu og stytt ferða-
tímann á milli Bandaríkjanna og
áfangastaða í Afríku.
CVA er agnarsmátt flugfélag og
rekur í dag aðeins tvær farþegaþot-
ur. Verður búið að fjölga þotunum
upp í fimm næsta sumar.
Áhættugreining gefur tilefni til
bjartsýni enda pólitískur stöðugleiki
og lítil spilling á Grænhöfðaeyjum.
Þar viðrar líka vel allt árið um kring
og hvirfilbyljir sjaldgæfir. Heima-
menn eru vinveittir Íslendingum og
muna enn eftir togaranum Feng sem
sendur var til eyjanna vegna þróun-
araðstoðarverkefnis. »14
Nota íslenska módelið
á Grænhöfðaeyjum