Morgunblaðið - 26.11.2018, Síða 8

Morgunblaðið - 26.11.2018, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. NÓVEMBER 2018 Í gær tilkynnti ÚtgerðarfélagReykjavíkur hf. um sölu á frysti- togara og sagði upp tugum sjó- manna. Í tilkynningunni kemur fram að í upphafi árs hafi fyrir- 0tækið gert út fjóra frystitogara en í upphafi næsta árs verði það með einn frystitogara í rekstri. Sjó- mönnum þess hefur þá fækkað um 136.    Í tilkynningunni segir einnig:„Ástæður þessarar óheillaþró- unar eru fjölmargar en þær helstu eru erfiðar rekstraraðstæður frysti- togara sem stjórnvöld á Íslandi bera verulega ábyrgð á með óhóflegri gjaldtöku stimpil- og veiðigjalda.“    Bent er á að veiðigjöld séu ekkilögð á í samræmi við afkomu af veiðum tegunda og nefnt dæmi þar um. Þá kemur fram að verkfall sjó- manna í fyrra og kjarasamningar í kjölfar þeirra hafi gert rekstur frystitogara erfiðan og eigi þátt í fækkun þeirra að undanförnu.    Þessi þróun er mikið áhyggjuefniog mætti verða til umhugsunar alþingismönnum sem nú ræða frum- varp um veiðigjöld. Í þeim um- ræðum ber meira á sjónarmiðum um að kreista þurfi meira fé út úr útgerðinni en skilningur á að veiði- gjöld séu allt of há.    Hvernig væri að þingmenn tækjutillit til stöðu greinarinnar og litu jafnvel til þess að engin önnur grein, þó að margar nýti náttúru- auðlindir, greiðir fyrir þær sérstak- lega. Ekki dugar að bíða með leið- réttingu þar til allt er um seinan. Guðmundur í Nesi RE. STAKSTEINAR Augljós ástæða óheillaþróunar Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Línuskipið Núpur BA-63 strandaði í fjörunni norðvestur af þorpinu á Patreksfirði um klukkan hálfníu í gærkvöldi, en skipið lagði frá höfn- inni á Patreksfirði klukkan átta í góðu veðri en strandaði um hálf- tíma síðar. Ekki lá fyrir í gærkvöldi hvers vegna skipið strandaði, en allir skipverjar eru heilir á húfi. Núpur er í eigu útgerðarinnar Odda hf. og seint í gærkvöldi stóð til að öflugra skip drægi Núp af strandstað. Gengi það ekki yrði reynt aftur á háflóði í morgunsárið. Lögreglan á Patreksfirði sinnti útkallinu og björgunarsveitin Blakkur var einnig kölluð út. Nokkur skip héldu á strandstað, þ.á m. Vörður II., björgunarskip Blakks. Núpur strandaði í Patreksfirði  Allir skipverjar sluppu ómeiddir  Hélt út í blíðskaparveðri í gærkvöldi Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Núpur BA-63 Skipið strandaði skömmu eftir að það lagði úr höfn í gær. Kolbrún Benediktsdóttir varahér- aðssaksóknari segir að lögregla sé sí- fellt að verða betri í yfirheyrslutækni og segir að leiðbeiningar um meðferð kynferðisbrotamála séu góðar, en séu komnar til ára sinna og þær þurfi að uppfæra. Þetta kom fram í viðtali Bjartar Ólafsdóttur í út- varpsþættinum Þingvöllum á K100 í gær. Kveikjan að viðtalinu voru skjáskot sem Agnes Bára Ara- dóttir birti í vikunni úr skýrslutöku yfir manni hjá lögreglu á Fésbókar- síðu sinni. Sagði hún umræddan mann hafa nauðgað sér en kæru á hendur honum hefði verið vísað frá. Á myndunum kemur fram að lögregla spurði manninn við yfirheyrslu: „En hún er ítrekað þarna búin að segja nei, ég vil ekki samneyti við þig?“ sem viðmælandinn kveður já við. Kolbrún kvaðst ekki geta tjáð sig um þetta einstaka mál. „Þau mál sem rata oft í fjölmiðla eru kannski málin sem fara illa. Málin sem fara alla leið og enda með sakfellingu, þau fá stundum minni athygli. Við sjáum aldrei alla heildarmyndina í fjölmiðl- um en auðvitað er það alveg rétt að það er stór hluti kynferðisafbrota- mála sem fer ekki áfram, annaðhvort er rannsókn hætt hjá lögreglu eða mál eru látin niður falla vegna þess að þau eru ekki talin líkleg til sakfell- ingar hjá ákæruvaldinu,“ sagði hún. Áhersla á gæði rannsókna Kolbrún sagði að hjá lögreglu og ákæruvaldi hefði verið lögð áhersla á að auka gæði rannsókna og benti á mikilvægi þess, m.a. vegna þess að í kynferðisafbrotamálum væru munn- legir framburðir oft aðal- og jafnvel eina sönnunargagnið. Kolbrún útskýrði einnig að nauðg- unarhugtakið hefði þróast á síðustu árum og að dómaframkvæmd bæri því vitni. Hún nefndi nýlegt mál þar sem fallist var á að það teldist tilraun til nauðgunar „að setja sig í samband við ungan dreng undir fölskum for- merkjum og fá hann til þess að taka þátt í kynferðislegu spjalli og senda mynd af kynfærum sínum og svo hóta því að birta það opinberlega ef hann ekki kæmi og hefði kynferðismök við geranda“. Mál sem endi illa rati í fjölmiðla  Nauðgunarhugtakið breyst síðustu ár Kolbrún Benediktsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.