Morgunblaðið - 26.11.2018, Síða 11

Morgunblaðið - 26.11.2018, Síða 11
Morgunblaðið/Sigurður Bogi Bókakonur Mæðgurnar Signý Steinþóra Magnúsdóttir og Lilja Dögg Al- freðsdóttir menntamálaráðherra kynntu sér fjölbreytt jólabókaflóðið. Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Fjölmenni sótti Bókamessu í bók- menntaborg sem haldin var í Hörpu um helgina. Þar kynntu forleggjarar bækurnar sem gefnar eru út fyrir þessi jól, en óvíða er jafn sterk hefð fyrir því að gefa bækur í jólagjöf en á Íslandi. Bókamessa, sem er samstarfsverk- efni Reykjavíkurborgar og Félags íslenskra bókaútgefenda, er nú einn af stóru viðburðunum í menn- ingarlífi borgarinnar. Að þessu sinni gátu gestir meðal annars kynnt sér heim hljóðbóka, bragðað smakk eftir uppskriftum úr mat- reiðslubókum og börn gátu reynt sig í föndri og spennandi leikjum. Kristín Helga Gunnarsdóttir, höf- undur bókanna um Fíusól, spjall- aði um réttindi barna með vísan til bóka sinna og höfundar lásu úr bókum sínum og má þar nefna Þórarin Eldjárn, Sigurbjörgu Þrastardóttur, Hauk Ingvarsson, Þorgrím Þráinsson, Ævar Þór Benediktsson og Evu Rún Þor- geirsdóttur svo nokkur séu nefnd. Meðal þeirra sem komu við á Bókamessunni að þessu sinni var Lilja Dögg Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra. Vel stemmd fyrir bókajólum „Ég sjálf hef gaman af sagn- fræði, ævisögum og spennubókum og er því mjög vel stemmd fyrir þessi bókajól og margt sem ég hlakka til að lesa. Fjölbreytnin er mikil og það er greinilegt að allir fá eitthvað við sitt hæfi; íslensk bókaútgáfa í dag er gróskumikil og metnaðarfull,“ sagði ráðherr- ann í samtali við Morgunblaðið. Eigi að síður telur hún þörf á stuðningi stjórnvalda við útgáfu- starf, samanber að lagt hefur ver- ið fram frumvarp sem gerir ráð fyrir að útgefendur bóka geti fengið allt að fjórðung af kostnaði við útgáfu hverrar bókar endur- greiddan. „Við sjáum að bókasala hefur dregist saman um 40% á síðast- liðnum tíu árum og við því þarf að bregðast. Hugsunin með stuðningi er sú að efla íslenska tungu og auka lestur og lesskilning; ekki síst meðal barna og unglinga.“ Stuðningur við útgáfu auki lestur  Gróskumikil íslensk bókaútgáfa Morgunblaðið/Eggert Bókamessa Sprengju Kata kynnti efnafræði og vísindi fyrir krökkum og öðrum áhugasömu sem sóttu messuna. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Ljósmyndaljóðabók Ómar Ragn- arsson með Hjarta landsins. FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. NÓVEMBER 2018 BL ehf Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík 525 8000 / www.bl.is Bílasalan Bílás Akranesi www.bilas.is 431 2622 Bílasala Akureyrar Akureyri www.bilak.is 461 2533 Bílaverkstæði Austurlands Egilsstöðum www.bva.is 470 5070 IB ehf. Selfossi www.ib.is 480 8080 BL söluumboð Vestmannaeyjum 481 1313 862 2516 Sparneytnari, hagkvæmari og hljóðlátari ISUZU D-MAX Isuzu D-Max BASIC dísil, beinskiptur. Verð: 5.350.000 kr. (Verð án vsk: 4.314.000 kr.) Isuzu D-Max PRO dísil, sjálfskiptur. Verð: 6.290.000 kr. (Verð án vsk: 5.072.000 kr.) 164 hestöfl – 3.500 kg dráttargeta. Eyðsla frá 7,0 l/100km* E N N E M M / S ÍA / N M 9 0 8 6 7 *M ið að vi ð up pg ef na rt öl ur fra m le ið an da um el ds ne yt is no tk un íb lö nd uð um ak st ri.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.