Morgunblaðið - 26.11.2018, Side 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. NÓVEMBER 2018
Eitt mesta urval landsins af t<Ekjum til
lfkamsr<Ektar fyrir heimili, fyrirt<Eki, skip
og lfkamsr<Ektarstoovar
l>rekhj6I .&.
NordicTrack VR21 Recumbent
Vandao prekhj61 sem tengist snjallsfma
eoa spjaldtolvu meo Bluetooth.
Moguleiki a iFit tengingu.
Pulsm�lir handfongum..
Vero 179.990,-
Fjol�jalfi Proform 450 LE ►
Frab�r fjolpjalfi meo
mjukum hreyfingum
og miklum pyngdar
moguleikum.
Vero 139.990,-
◄ l>rekhj6I Proform 210CSX
Einfalt og vandao
prekhj61 sem hentar
vel til heimilisnota.
Vero 69.990,-
◄ Hlaupabraut
Proform 3001
Frab�r braut fyrir hlaup,
gongu og f heimanotkun,
samanbrj6tanleg.
Vero 149.990,-
!" #!$
% "&' $('$) #*( !" ! #!&"
!+ *&$$ +) "$,-$!.
R6cJravel NordicTrack RX800 ►
Stillanleg loftm6tstaoa
20 �fingakerfi
Auovelt ao f�ra, a hj61um
Vero 129.990,-
Vero 299.990,-
Meiri hreyfing fyrir
al/a fjolskylduna
STOFNAD 1925
Faxafeni 8, Sfmi 588 9890
Gerum tilboa - Eingongu toppmerki - Cybex - Matrix - Nordic Track - Proform
Opi8 virka daga Laugard. -Visa-og Eurora5g - Netgfr6 -www.orninn.is
Íslenska kokkalandsliðið hlaut
gullverðlaun á heimsmeistara-
móti í matreiðslu í Lúxemborg
um helgina. Liðið fékk 9,1 stig í
einkunn af 10 mögulegum,
frammistaða, sem tryggði því
gullmedalíu. Þau elduðu fyrir
dómnefnd og 110 manns í sitj-
andi borðhaldi.
Íslenska liðið var meðal fyrstu
liðanna til að stíga á svið. Keppn-
in heldur áfram næstu daga en
Ísland hefur hér með lagt sitt af
mörkum. „Við náðum þeim
markmiðum sem við settum okk-
ur,“ segir Björn Bragi Bragason
sem er forseti Klúbbs mat-
reiðslumeistara. Hann er stoltur
af liðinu.
Liðið er vel að þessu komið.
„Það hefur verið gríðarlegt álag
á okkur og að baki þessu liggja
mörg þúsund klukkustundir af
ötulli vinnu,“ segir Björn. Liðið
hittist tvisvar í mánuði til að æfa
og tekur hver æfing þrjá daga.
Þá er fundað reglulega.
Að ferðast á svona mót er mik-
il fyrirhöfn. Liðið tekur með sér
allt hráefni og öll matreiðslu-
tæki. „Þetta eru sjö vörubretti af
græjum, fyrir utan svo allt hrá-
efni. Þetta er hellings útgerð,“
segir Björn.
Heimsmeistaramótið er liður í
Expo Gast 2018 sem er alls-
herjar matargerðarsýning sem
er haldin ár hvert í Lúxemborg.
Á fjögurra ára fresti er keppt á
heimsmeistaramóti líku því sem
hér um ræðir.
snorrim@mbl.is
Kokkalandsliðið fékk 9,1 og
gull á heimsmeistaramóti
Ljósmynd/Kokkalandsliðið
Gullverðlaunahafar Liðið stillir sér upp eftir frækna frammistöðu. Með þeim: Eliza
Reid forsetafrú og verndari liðsins. Næst á dagskrá liðsins er Ólympíumótið 2020.
Allt tiltækt slökkvilið á höfuðborg-
arsvæðinu var kallað út skömmu
fyrir hádegi í gær vegna elds í
iðnaðarhúsnæði í Hafnarfirði.
Tilkynning barst Neyðarlínu frá
vegfaranda sem varð eldsins var
skömmu fyrir klukkan 11. Sam-
kvæmt upplýsingum frá varðstjóra
Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins
kom upp eldur í lyftara inni í hús-
næðinu. Greiðlega gekk að slökkva
eldinn og var strax að því loknu haf-
ist handa við að reykræsta húsið.
Engan sakaði í eldinum og að
sögn varðstjóra slökkviliðsins eru
eldsupptök ókunn.
Eldur í iðnaðarhús-
næði í Hafnarfirði
Morgunblaðið/Eggert
Verkefni lögreglunnar á höfuð-
borgarsvæðinu um helgina voru af
ýmsum toga. Mörg þeirra tengdust
ölvun eða fíkniefnaneyslu fólks og
nokkuð var um slys.
Þetta kemur fram í dagbók lög-
reglu. Til dæmis voru fjölmörg tilvik
þess að ökumenn væri teknir grun-
aðir um að aka undir áhrifum áfeng-
is eða fíkniefna. Tilkynnt var rúðu-
brot í húsi í miðbænum og erlendur
ferðamaður var handtekinn fyrir að
fara inn í bifreið í bílastæðahúsi í
miðbænum. Reyndist hann vera
ósjálfbjarga vegna ölvunar og gat
ekki sagt lögreglu hvar hann gisti.
Tilkynnt var um meðvitundar-
lausan karlmann á skemmtistað,
annar karlmaður datt á höfuðið og
rotaðist og sá þriðji datt á höfuðið á
götu í miðbænum og var hann flutt-
ur á slysadeild til aðhlynningar.
Á fjórða tímanum um aðfaranótt
sunnudags var ekið á bifreið í mið-
bænum og stakk tjónvaldur af frá
vettvangi. Skömmu síðar urðu lög-
reglumenn varir við bifreiðina sem
tjóninu olli, ökumaður hennar sinnti
hvorki ljós- né hljóðmerkjum lög-
reglu og endaði för hans með því að
hann velti bifreiðinni. Hann reyndi
að komast undan á hlaupum, en lög-
reglumenn hlupu hann uppi innan
skamms.
Þá þurfti lögregla að koma leigu-
bílstjóra til aðstoðar eftir að farþegi
neitaði að greiða honum uppsett far-
gjald og 16 ára unglingur var stöðv-
aður við akstur.
Fjölbreytt
verkefni
lögreglu
um helgina
Lögregla Verkefnin voru mörg.