Morgunblaðið - 14.12.2018, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 2018
VÍKURVAGNAR EHF.
Víkurvagnar ehf. | Hyrjarhöfða 8 | 110 Reykjavík
Sími 577 1090 | vikurvagnar.is | sala@vikurvagnar.is
Úrval af lokuðum farangurskerrum
frá Ifor Williams
Sýningareintak á staðnum.
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Hjúkrunarfræðingum og ljósmæðr-
um, sem hafa sérstakt leyfi land-
læknis og starfa þar sem heilsu-
gæslu-, kvenlækninga- eða
fæðingarþjónusta er veitt, verður
heimilt að ávísa hormónatengdum
getnaðarvarnarlyfjum. Alþingi sam-
þykkti í gær stjórnarfrumvarp þar
að lútandi með 54 atkvæðum.
„Við fögnum þessu mjög og segj-
um að þetta hafi verið löngu tíma-
bært,“ sagði Áslaug Valsdóttir, for-
maður Ljósmæðrafélags Íslands.
„Við erum með lengstu menntun
allra ljósmæðra í heimi og lyfjafræði
er heilmikill kúrs í hjúkrunarnámi.
Mér finnst eðlilegt að við sem erum í
sambandi við allar þessar konur get-
um skrifað út getnaðarvarnir. Við
veitum þessa ráðgjöf en höfum ekki
getað gefið lyfseðil fyrr en nú.“ Ás-
laug segir að ljósmæður og hjúkr-
unarfræðingar hafi barist fyrir
þessu áratugum saman og það hafi
verið tímabært að þetta færi í gegn.
Í nefndaráliti velferðarnefndar er
því beint til velferðarráðuneytisins
„að fylgjast með framkvæmd
ákvæða frumvarpsins og huga að því
í framtíðinni hvort reynslan gefi
ástæðu til að veita hjúkrunarfræð-
ingum og ljósmæðrum heimildir til
ávísunar fleiri flokka lyfja, eða hvort
ástæða verði til að þrengja umrædd-
ar heimildir“.
Áslaug sagði að ýmsum fleiri at-
riðum þyrfti að breyta Hún nefndi
t.d. að enn þyrftu læknar að skrifa
upp á beiðnir um hjálpartæki eins og
t.d. nálar fyrir konur sem eru í syk-
ursýkiseftirliti á meðgöngu. Eins
vilji ljósmæður sem vinna við heima-
fæðingar gjarnan fá að skrifa sjálfar
út lyf sem þarf að nota við þær, en
þau eru einkum þrjú. „Við erum ekki
að tala um að fara í alla lyfjaflokka
heldur þau lyf sem við notum dags-
daglega.“
Áslaug segir að Alþjóðaheilbrigð-
ismálastofnunin (WHO) hvetji til
þess að fagþekking annarra heil-
brigðisstétta en lækna verði notuð til
hins ýtrasta. „Okkur finnst að okkar
þekking sé ekki nýtt alveg sem
skyldi. Þetta er kannski skref í þá átt
að nota krafta okkar og þekkingu
betur,“ sagði Áslaug.
Fá að ávísa getnaðarvarnarlyfjum
Morgunblaðið/Kristinn
Lyf Hjúkrunarfræðingar og ljósmæður mega ávísa getnaðarvarnarlyfjum.
Hjúkrunarfræðingar og ljósmæður fá nú að ávísa vissum lyfjum Formaður ljósmæðra segir þetta
skref löngu tímabært Hefur verið baráttumál hjúkrunarfræðinga og ljósmæðra áratugum saman
Samfylkingin á Seltjarnarnesi
leggst gegn því að Lækningaminja-
safnið verði selt til þriðja aðila.
„Húsið hefur alla burði til þess að
verða stolt og prýði bæjarins,“ seg-
ir í bókun um húsið, sem bærinn
auglýsti til sölu í síðustu viku.
Mikill styr hefur staðið um húsið.
Smíði þess fór langt fram úr fjár-
hagsáætlun. Heildarkostnaður þess
var talinn vera um 700 milljónir
króna í lok árs 2012. Húsið er fok-
helt en framkvæmdum var hætt
haustið 2008.
Samfylkingin leggur til að bær-
inn eigi húsið og leigi undir skil-
yrtan rekstur. „Þar mætti sameina
safn, veitingasölu, upplýsinga-
miðlun til ferðamanna og aðra
þjónustutengda starfsemi,“ segir
einnig í bókuninni. freyr@mbl.is
Bærinn eigi Lækn-
ingaminjasafnið
Flestir brunar á heimilum fólks
eiga sér stað í desember og fylgir
janúar fast á eftir. Algengustu elds-
voðar á þessum tíma eru vegna
kerta og eldavéla og eru nú þegar
farnar að berast tilkynningar um
bruna á heimilum fólks vegna
kertaskreytinga. Kemur þetta fram
í tölfræði tjóna hjá VÍS.
Sökum þessa er mikilvægt að
fólk fylgist grannt með kertum og
slökkvi á þeim að kvöldstund lok-
inni. Þá má ekki gleyma umgjörð
kerta, en varast skal að eldur nái að
læsa sig í hana eða skraut.
Mikilli kertanotkun
fylgir brunahætta
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Lyfjastofnun hefur lokið formlegri
athugun á læknabekkjum Lækna-
vaktarinnar í kjölfar slyss sem varð
þar í haust þegar tveggja ára gömul
stúlka klemmdist á milli rafknúinna
arma á bekk. Var stúlkan hætt kom-
in en bjargaðist að lokum. Reyndist
bekkurinn og annar búnaður í lagi.
„Stofnunin hefur einnig metið
hvort aðrir rafknúnir skoðunarbekk-
ir sem ekki hafa innbyggðan örygg-
isbúnað uppfylli núgildandi kröfur
um öryggi lækningatækja, þar með
talið að umbúnaður þeirra sé full-
nægjandi svo öryggi notenda sé
tryggt,“ segir í tilkynningu sem birt
er á heimasíðu Lyfjastofnunar.
Samkvæmt upplýsingum frá
stofnuninni þótti rétt að senda út al-
menn tilmæli til eigenda rafknúinna
skoðunarbekkja um að huga að við-
haldi þeirra svo atvik sem þetta komi
ekki aftur upp.
„Lyfjastofnun hvetur eigendur
rafknúinna skoðunarbekkja til að
taka til skoðunar með hvaða hætti
þeir tryggja fullnægjandi umbúnað
bekkjanna og verklag við notkun
þeirra, þannig að öryggi notenda sé
tryggt. … Loks er rétt að vekja at-
hygli á því að eigandi lækningatækis
ber ábyrgð á réttri notkun þess og
hæfni notenda. Eiganda ber einnig
að sjá til þess að frágangur og
geymsla sé fullnægjandi og að við-
halds- og viðgerðarþjónustu sé sinnt
af þar til bærum aðilum þannig að
öryggi notenda sé tryggt.“
Tækjaeigendur sagðir bera
ábyrgð á notkun tækjanna
Formlegri úttekt á læknabekkjum Læknavaktar lokið
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Læknavaktin Formlegri úttekt á
læknabekkjum þar er nú lokið.
Kristján H. Johannessen
Þorgerður A. Gunnarsdóttir
„Það eru vissulega greinar í siða-
reglum alþingismanna sem heim-
færa má með einum eða öðrum hætti
upp á þetta mál. En það sem ég velti
einna helst fyrir mér í þessu sam-
bandi er hvar finna megi mörkin og
þá hvenær siðareglurnar gilda um
þingmenn og hvenær ekki,“ segir
Þorsteinn Víglundsson, þingmaður
Viðreisnar, við Morgunblaðið.
Vísar hann í máli sínu til máls
Ágústs Ólafs Ágústssonar, þing-
manns Samfylkingar, sem nú er
farinn í tveggja mánaða launalaust
leyfi frá þingstörfum. Gerði hann
það eftir að hafa verið áminntur af
trúnaðarnefnd Samfylkingarinnar
eftir að upp komst um óviðeigandi
framkomu hans í garð konu.
Þorsteinn bendir á að í 2. grein
siðareglnanna sé kveðið á um gild-
issvið þeirra. Þar segir að reglurnar
gildi um þingmenn „við opinbera
framgöngu þeirra og snerta skyldur
þeirra sem þjóðkjörinna fulltrúa“.
Bæði málin sögð alvarleg
Þorsteinn er einn þeirra þing-
manna sem óskuðu eftir því að for-
sætisnefnd Alþingis tæki upp mál
þingmannanna sex sem kenndir eru
við knæpuna Klaustur. Hann segir
þessi tvö mál ólík, þingfundur var í
gangi þegar Klausturmál átti sér
stað en samskipti Ágústs Ólafs við
konuna áttu sér stað utan vinnutíma.
„Ef maður ber þessi tvö mál sam-
an, sem bæði eru alvarleg, þá eru
þau eðlisólík að þessu leyti og setja
má spurningarmerki við hvort hann
hafi þarna verið í einhverju hlutverki
sem alþingismaður eða bara sem ein-
staklingur,“ segir hann.
Jón Steindór Valdimarsson, þing-
maður Viðreisnar, tekur í svipaðan
streng, en hann óskaði einnig eftir
því að siðanefnd kæmi saman vegna
Klausturmálsins svonefnda. „Ég
held að siðareglur þingsins nái varla
yfir hans mál,“ sagði hann við mbl.is
og vísaði til máls Ágústs Ólafs.
„Mér finnst að bæði hann og þing-
menn úr Klausturmálinu verði fyrst
og fremst að eiga það við sína sam-
visku hvort þeir séu að gera sjálfum
sér gott, og hvað þá öðrum, með
áframhaldandi þingsetu. Þetta þurfa
menn að vega og meta og það eru
þeir einir sem geta gert það,“ sagði
hann, en Jón Steindór kveðst ekki
munu beita sér fyrir því að siðanefnd
komi saman vegna þessa máls.
Heiða Björg Hilmisdóttir, vara-
formaður Samfylkingar, sagðist
skömmu eftir yfirlýsingu Ágústs
Ólafs vona að hann hefði fengið sam-
þykki þolandans fyrir yfirlýsingunni.
Það reyndist þó ekki vera því þol-
andinn upplifði atvikið með öðrum
hætti en Ágúst Ólafur greindi frá.
Þrátt fyrir þetta ósamræmi sagði
Heiða Björg í samtali við mbl.is að
málið horfði ekki öðruvísi við sér.
Trúnaðarnefnd tjáir sig ekki
Guðrún Ögmundsdóttir er for-
maður trúnaðarnefndar Samfylking-
ar. Hún segist ekki vilja tjá sig um
mál Ágústs Ólafs né heldur hvort
nefndinni hafi borist fleiri kvartanir
vegna háttsemi annarra kjörinna
fulltrúa Samfylkingar. „Nei, við
tjáum okkur ekkert. En ef svo væri
þá kemur það bara í ljós síðar,“ segir
Guðrún.
Mál þingmanna sögð ólík
Tveir þingmenn Viðreisnar segja mál Ágústs Ólafs vart heyra undir siðareglur
alþingismanna Þó mætti heimfæra greinar upp á þetta mál, segir annar þeirra
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Þingfundur Mál Klausturþingmannanna sex er sagt annars eðlis en mál
Ágústs Ólafs, en hið fyrrnefnda átti sér stað á vinnutíma en hitt ekki.