Morgunblaðið - 14.12.2018, Síða 12

Morgunblaðið - 14.12.2018, Síða 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 2018 Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170 Verið velkomin 1988 - 2018 Til jóla fyrir dömur og herra Silkislæður, hanskar, töskur, skart, herratreflar og ilmir Eigum alltaf vinsæl bómullar- og velúrgallana í mörgum litum. Einnig stakar svartar velúrbuxur. Stærðir S-4XL u Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is K arlar hafa sýnilega verið að leggja meira á sig undanfarna áratugi í því að vanda sig í sam- skiptum við konur sín- ar og börn. Konur hafa gefið körlum mikið með því að fara út af heimilinu og á vinnumarkaðinn, því fyrir vikið hafa karlar notið sín í tilfinningalegu sambandi við maka og börn, sem þeir gátu síður hér áður fyrr þegar konur voru heimavinnandi og karlar sáu einir um fyrirvinnuna og voru meira fjarverandi. Þessi bók ætti að hjálpa körlum að sjá hvað þeir eru mikil- vægir og hversu framlag þeirra skipt- ir miklu máli,“ segir Ólafur Grétar Gunnarsson, fjölskyldu- og hjónaráð- gjafi, en hann gefur nú út bókina Það sem karlar vilja vita, sem geymir ým- is leyndarmál um samskipti kynj- anna. Höfundar hennar eru banda- rísku hjónin og sálfræðingarnir John Gottman og Julie Schwartz Gottman ásamt Douglas Abrams og Rachel Carlton Abrams lækni. „Ég heillaðist af John fyrir tutt- ugu árum þegar ég var í námi í Bret- landi og hann varð þekktur fyrir bækur sínar Raising An Emotionally Intelligent Child, The Heart of Par- enting og The Seven principles for making Marriage Work, en sú bók var bylting í hjónaráðgjöf. Gottman- hjónin komu til Íslands fyrir nokkr- um árum og voru þá með námskeið um hvernig byggja megi hús hins trausta sambands. Það sem gerir John sérstakan er hversu vel hann nær til karla, hann er öflugur í að halda námskeið þar sem karlar mæta til jafns við konur,“ segir Ólafur og bætir við að hann telji sannarlega þörf fyrir svona bók núna. „Það þarf að þjónusta karla betur og aðlaga fræðslu þeirra þörfum. Þeir þurfa að læra að bera meiri virðingu fyrir til- finningum kvenna og vanda sig, líka með börnin sín. Gæði sambands for- eldra hefur mikið að segja þegar kemur að tilfinningagreind barna.“ Að leysa flókin lífsverkefni Anna Valdimarsdóttir sálfræð- ingur segist fagna útkomu bókar- innar því það sé alltaf þörf á að leið- beina fólki í langtíma ástarsam- böndum, sem er jú eitt flóknasta verkefni sem við tökum okkur fyrir hendur á lífsleiðinni. „Þegar ég byrj- aði að starfa sem sálfræðingur fyrir meira en 30 árum töldu margir ekki þörf á því að fólk færi til sálfræðings, fólk ætti bara að leysa úr sínum mál- um sjálft. Viðhorfið var að þar sem við værum manneskjur þá hefðum við fengið það í vöggugjöf að geta leyst hin ýmsu flóknu lífsverkefni. En þannig er það ekki. Það búa til dæmis ekki allir við góðar fyrirmyndir um náin sambönd í uppvexti sínum, stundum eru samskipti í fjölskyldum óheilbrigð og lítið um tilfinningalega næringu. Það getur orðið til þess að fólki finnst að þannig eigi það að vera, en málin flækjast þegar viðkom- andi fer fullorð- inn í ástarsam- band og makinn hefur kannski alist upp í ein- hverju allt öðru og er með aðrar hugmyndir um hvernig hlutirnir eiga að vera. Þetta er ekki einföld staða, svo það veitir ekki af leiðbeiningum. Fólk er vissulega oft með tilfinningu fyrir hvað sé rétt og gott og gæti leitt til meiri hamingju og fullnægju í sam- bandi, en vantar staðfestingu á því frá fagmanneskjum sem hafa rann- sakað þessi efni árum saman. Gott- man-hjónin, höfundar bókarinnar, eru meðal virtustu fræðimanna í heiminum á þessu sviði, þau hafa hjálpað fjölda fólks í störfum sínum sem sálfræðingar.“ Ást ekki eftir formúlu „Við lestur þessarar bók- ar er gott að vera meðvitaður um að einn sannleikur gildir ekki fyrir alla, hver og ein manneskja er einstök og því ætti fólk að lesa þessa bók til að máta sig við það sem í henni stendur. Hvert og eitt ástarsam- band er einstakt og þetta er ekki spurning um að hafa öll ástarsam- bönd eftir formúlu. Til dæmis hentar sumum hjónum að gera flest saman á meðan öðrum hjónum hentar að gera ýmislegt hvort í sínu lagi og halda sínu sjálfstæði,“ segir Anna og bætir við að nú geri fólk miklu meiri kröfur til náins sambands en áður, þegar samband var kannski frekar prakt- ískt fyrirkomulag. „Núna þegar við höfum frelsi og svigrúm til að skilja og skipta um maka, þá eru meiri kröf- ur um að náið samband veiti ákveðna hamingju og dýpt á tilfinningasvið- inu. Við þurfum að þroska okkur sjálf sem einstaklinga til að vera hæf í náið samband með annarri mannesku, við þurfum að geta tjáð okkur, skilið aðra manneskju, þroskað sjálf okkur sem kynverur, vera tilbúin til að takast á við foreldrahlutverið þegar börn koma til sögunnar, eiga samskipti við fjölskyldur og vini hvort annars, leysa ágreiningsmál og koma okkur upp sameiginlegum gildum og eða læra að lifa með ólíku gildismati hvort annars. Þetta eru margir þræð- ir og það er kúnst að láta allt ganga upp. Ég fagna því þessari bók og legg til að pör lesi hana saman. Ég veit að höfundarnir eru færir á sínu sviði, ég sótti námskeið hjá þeim í Tyrklandi með Ólafi á sínum tíma og átti þátt í að fá þau hingað til lands,“ segir Anna sem sjálf skrifaði bók um náin sambönd sem heitir Leggðu rækt við ástina. Einn sannleikur gildir ekki fyrir alla Nú gerir fólk meiri kröfur en áður um að náið samband veiti ákveðna hamingju og dýpt á tilfinningasviðinu. Því getur verið gott að fræðast sem mest um málið. Í nýútkominni bók, Það sem karlar vilja vita, geta karlar og konur fræðst um leyndarmál um samskipti kynjanna, sem bandarísku höfundarnir hafa kynnst á áratuga langri reynslu sinni sem sálfræðingar. Anna Valdimarsdóttir Ólafur Grétar Gunnarsson Kúnst Það getur verið nokkur vandi að láta sambönd ganga vel. Ljósmynd/Thinkstockphotos. Líklega hefur það ekki fariðframhjá neinum að jólahá-tíðin nálgast óðfluga. Jóla-ljós, jólasmákökur og jóla- söngvar umlykja hvern kima samfélagsins. Og jólaauglýsingarnar. Allt fyrir jólin. En þurfum við raunar allt fyrir jólin? Það er ekki langt síðan undirrituð setti upp neysluhyggjugleraugun. Jólin eru farin að snúast um fátt ann- að en jólagjafir og það er ótrúlega augljós boðskapur kvikmyndarinnar How the Grinch Stole Christmas, sem ég hafði raunar ekki áttað mig almennilega á fyrr en nú. Hún Cindy Lou Who veit nefnilega sínu viti þrátt fyrir smæð og reynir ítrekað að sýna samborg- urum sínum að hátíðin snúist um samveru og kærleika frek- ar en gjafir, ljós og mat. Fyrst ég er farin að skrifa um mat þá get ég ekki annað en velt fyrir mér raunveru- legum boðskap jólanna, kærleiknum, í sam- bandi við það sem við látum ofan í okkur um hátíðirnar. Á meðan við njótum samveru með vin- um og fjölskyldu stuðlum við að að- skilnaði ferfættra og fjaðraðra fjöl- skyldna og þjáningu þeirra á disknum okkar. Svo ég vitni í Guðrúnu Sóleyju Gestsdóttur, koll- ega minn á Ríkisútvarpinu, úr viðtali á Vísi, svo ég komi öllum stærstu fjöl- miðlum landsins að, þá er mest við- eigandi að vera vegan á jólunum, há- tíð kærleika friðar og samhygðar. Þess vegna verður ekkert kjöt á mínum diski um jólin. Þess vegna bið ég ekki um neitt í jólagjöf sem ég þarf ekki raunverulega á að halda. Þess vegna gef ég engar jólagjafir nema þær nýtist þeim sem þær þiggur, nú eða þeim sem verst eru sett í heiminum. Og mig langar að biðja þig að hugleiða að gera það sama. Gleðileg jól! »Hún Cindy Lou Whoveit nefnilega sínu viti þrátt fyrir smæð og reynir ítrekað að sýna samborg- urum sínum að hátíðin snúist um samveru og kærleika frekar en gjafir, ljós og mat. Heimur Þorgerðar Önnu Þorgerður Anna Gunnarsdóttir thorgerdur@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.