Morgunblaðið - 14.12.2018, Side 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 2018
NOKIAN stígvélabúðin | Mjóddinni | Reykjavík I Sími 527 1519 | Nokian Stígvélabúðin
Opið virka daga kl. 10.00-18.00
Loðfóðraður skófatnaður
fyrir veturinn
Fimmtán verkefni á Borgarfirði
eystra hlutu brautargengi í verk-
efninu Betri Borgarfjörður, en sjö
milljónum króna var úthlutað til 15
samfélagseflandi verkefna. Þetta
var fyrsta úthlutunin en alls bárust
18 umsóknir.
Verkefnin sem hlutu styrki eru
fjölbreytt, en Búðin Borgarfirði
(Gusa ehf.), sem opnaði í lok júní sl.
hlaut hæsta styrkinn að þessu sinni,
samtals 1,8 m.kr. Á íbúaþingi síð-
asta vetur var efst á forgangslista
að opna verslun aftur, að því er
fram kemur á heimasíðu Byggða-
stofnunar. Af öðrum verkefnum
sem hlutu styrki má nefna styrki
vegna landvörslu á Víknaslóðum,
útsýnissiglinga, frisbígolfvallar og
Bátasafns Borgarfjarðar.
Áætlaður heildarkostnaður verk-
efna er um 41 milljón, en sótt var
um styrki fyrir 17 m.kr. Kynja-
hlutföll á milli þeirra sem hlutu
styrki eru 5 konur og 7 karlar.
Styrkirnir eru hluti af verkefni
Byggðastofnunar, Brothættar
byggðir. Það miðar að víðtæku
samráði og að því að virkja þekk-
ingu og getu íbúa byggðarlaga til
að móta framtíðarsýn, markmið og
lausnir. Enn fremur að virkja frum-
kvæði og samtakamátt íbúa og
auka vitund þeirra um eigin þátt í
þróun samfélagsins, segir á heima-
síðu Byggðastofnunar. aij@mbl.is
Styrkja upp-
byggingu
Búðarinnar
Uppbygging Lundinn á athvarf í
Hafnarhólma á Borgarfirði eystra.
Verkefni á Borg-
arfirði eystra styrkt
Guðmundur Magnússon
gudmundur@mbl.is
Þingsályktunartillaga Pírata um
notkun og ræktun lyfjahamps hefur
hlotið neikvæð viðbrögð allra þeirra
aðila sem sent hafa Alþingi efnislega
umsögn um hana. Tillagan var áður
borin fram á tveimur síðustu þingum
en náði ekki fram að ganga. Hún
hlaut þá einnig óblíðar viðtökur í heil-
brigðiskerfinu.
Lyfjahampur er heiti sem þing-
menn Pírata nota yfir kannabis eða
hampjurt sem notuð er í lækn-
isfræðilegum tilgangi. Í tillögu þeirra
er heilbrigðisráðherra falið að semja
lagafrumvarp sem heimili notkun og
framleiðslu lyfjahamps. Í greinargerð
með frumvarpinu er fullyrt að á síð-
astliðnum árum og áratugum hafi
verið gerðar fjölmargar rannsóknir á
læknisfræðilegum áhrifum lyfja-
hamps og ábata fyrir sjúklinga af
notkun hans. „Rannsóknir þessar
hafa sýnt fram á að lyfjahampur hef-
ur raunverulegt notagildi, m.a. í með-
ferð gegn krabbameini, taugasjúk-
dómum og öðrum alvarlegum
sjúkdómum,“ segir í greinargerðinni.
Umsagnaraðilar hafna þessari full-
yrðingu.
Rannsóknir sýna ekki ávinning
Í umsögn Félags íslenskra hjúkr-
unarfræðinga segir af af texta þings-
ályktunartillögunnar og greinagerð-
arinnar sem fylgir megi ráða að verið
sé að opna fyrir almenna notkun og
ræktun kannabis hér á landi. Þá sé
þar einnig talað um að lyfjahampur
hafi notagildi í meðferð gegn krabba-
meini, taugasjúkdómum og öðrum al-
varlegum sjúkdómum sem ekki sé
raunin. Skortur sé á vönduðum vís-
indarannsóknum þar sem gagnsemi
kannabis við ýmsum einkennum er
könnuð. Vandaðar rannsóknir hafi
ekki sýnt fram á mikinn ávinning fyr-
ir krabbameinssjúklinga. Þá geti lyfið
haft margvíslegar alvarlegar auka-
verkanir líkt og önnur lyf.
Í umsögn Heilsugæslunnar segir
að nú fari um heiminn „bylgja áróð-
urs fyrir lögleiðingu kannabis sem
löglegs fíkniefnis sem borin er uppi af
hagsmunaaðilum sem hyggjast
græða á sölu þess og að einhverju
leyti af fólki sem haldið er tetrahýr-
dokannabínol-fíkn.“ Það sé gjarna
gert undir því yfirskyni að um gagn-
legt lyf sé að ræða. „Að leyfa ræktun
og notkun svokallaðs „lyfjahamps“ er
augljóslega fyrst og fremst sett fram
í þeim tilgangi að leyfa sölu ávana-
bindandi vímuefnis. Heilsugæslan
varar við afleiðingunum af því, versn-
andi lýðheilsu og miklum kostnaðar-
auka fyrir heilbrigðiskerfið.“
Tillaga Pírata var tekin til fyrri
umræðu á Alþingi 14. nóvember og
síðan vísað til velferðarnefndar. Þar
var ákveðið á fundi 19. nóvember að
senda málið til umsagnar með þriggja
vikna umsagnarfresti sem nú er lið-
inn. Óvíst er um afgreiðslu tillög-
unnar.
Mikil andstaða við að
lögleiða kannabis sem lyf
Stofnanir í heilbrigðiskerfinu leggjast eindregið gegn tillögu Pírata á Alþingi
Morgunblaðið/Kristinn
Eiturlyf Hér á landi er umtalsverð ólögleg framleiðsla á kannabis. Þessi mynd er úr verksmiðju í Þykkvabæ.
Þýskur karlmaður sem tók skútuna
Inook ófrjálsri hendi úr höfninni á
Ísafirði 14. október síðastliðinn var
í gær dæmdur í þriggja mánaða
skilorðsbundið fangelsi í Héraðs-
dómi Vestfjarða fyrir nytjastuld.
Einnig var hann dæmdur til
greiðslu sakarkostnaðar upp á
rúma milljón króna.
Maðurinn var ákærður fyrir brot
á 244. grein almennra hegning-
arlaga sem kveður á um þjófnað og
til vara fyrir brot á 259. grein sömu
laga sem kveður á um nytjastuld.
Hann neitaði í fyrstu sök, en gekkst
svo við því að hafa tekið skútuna
ófrjálsri hendi og siglt henni vestur
fyrir land þar til Landhelgisgæslan
stöðvaði för hans. Ýmis gögn máls-
ins, m.a. úr eftirlitsmyndavélum,
renndu stoðum undir sakargift-
irnar, að því er segir í dómnum.
„Telst því sannað svo óyggjandi sé
að ákærði hafi í heimildarleysi tekið
skútuna INOOK og siglt henni á
brott frá Ísafirði,“ segir þar orðrétt.
Ákærði neitaði staðfastlega að
hafa ætlað að slá eign sinni á skút-
una og gat ekki skýrt framferði sitt
með öðrum hætti en þeim að um
hefði verið að ræða skyndihugdettu
og ævintýramennsku. Engin gögn
þóttu koma fram sem sýndu fram á
að hann hefði ætlað að slá eign
sinni á skútuna og var það mat
dómsins að ákæruvaldinu hefði ekki
tekist að sanna nægilega að hann
hefði haft ásetning til þjófnaðar.
Inook Ósannað þótti að maðurinn hefði ætlað að slá eign sinni á skútuna.
Skilorð fyrir nytja-
stuld í skútumáli
Í umsögn Krabbameinsfélagsins um tillögu Pírata
kveðst það leggjast alfarið gegn því að nota
kannabis til reykinga í læknisfræðilegum tilgangi
þar sem ekkert í viðurkenndum ráðleggingum, til
dæmis frá National Cancer Institute mæli með
því.
Lyfjafræðingafélagið segir tillöguna ótímabæra.
Það gagnrýnir notkun orðsins „lyfjahampur“, en
segist því ekki andsnúið ef yfirvöld settu ein-
hvern ramma um notkun kannabisefna í lækn-
ingaskyni, en þá innan heilbrigðiskerfisins og í
samvinnu við heilbrigðisstarfsmenn, enda um
málefni sjúklinga að ræða.
Framkvæmdastjóri lækninga á Reykjalundi segir að sú tilraun með
kannabis á sjúklingum sem þegar sé farin af stað í Bandaríkjunum og
nú síðast í Kanada sé óskiljanleg, „en hún á eftir að leggja mikla byrði á
heilbrigðiskerfi þessara þjóða og skapa fleiri vandamál en hún leysir“.
„Óskiljanleg tilraun“
SEGJA EKKERT MÆLA MEÐ KANNABIS Í LÆKNINGASKYNI
Lyf Kannabis í lyfjaglasi.