Morgunblaðið - 14.12.2018, Side 23
23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 2018
Sólarlag Fallegt sólsetur yfir Keili sést hér út um glerhjúp tónlistar- og ráðstefnuhússins Hörpu í Reykjavík, ásamt stjórnarráðshúsinu og fleiri miðborgarbyggingum sem gleðja alltaf augað.
Hari
Angela Merkel og
Theresa May eru á út-
leið úr stjórnmálum.
Ekki er lengur spurt
hvort heldur hvenær.
Emmanuel Macron
hefur stigið af hefðar-
tindinum í von um að
stilla til friðar í Frakk-
landi. Í þremur öflug-
ustu Evrópuríkjunum
er pólitískt uppnám á
æðstu stöðum. Sömu
sögu er að segja um Bandaríkin þar
sem þrengir að Donald Trump. Hér
verður litið til Þýskalands, Frakk-
lands og Bretlands.
Þýskaland
Annegret Kramp-Karrenbauer
var kjörin formaður Kristilega
demókrataflokksins (CDU) í Þýska-
landi föstudaginn 7. desember. Hún
tekur við formennskunni eftir 18 ára
setu Angelu Merkel. Hún er sama
sinnis og Merkel, vill halla sér inn að
miðjunni. Merkel kallaði hana frá
Saarlandi í febrúar 2018 og gerði að
framkvæmdastjóra CDU í Berlín.
Nú er Annegret Kramp-Karren-
bauer (AKK) orðin flokksformaður.
Merkel vill halda kanslaraembætt-
inu út kjörtímabilið, til 2021.
Ekki er ólíklegt að AKK vilji fá að
sanna sig sem kanslari fyrir kosn-
ingarnar 2021 eða fyrr til að kanna
traust kjósenda í sinn garð og CDU.
Hún hikaði ekki við að rjúfa þing og
boða til kosninga í Saarlandi til að
styrkja stöðu sína. Hún sat þar sem
forsætisráðherra frá 2011 til 2018.
Þegar litið er til Saarlands er ann-
að en stærð og mannfjöldi sem réð
því að Merkel fékk augastað á AKK
sem eftirmanni sínum.
Stjórnmálaskýrendur
segja að skjótan frama
nýs formanns CDU
megi rekja til úrslita
kosninga til lands-
þingsins í Saarlandi ár-
ið 2017. Þá óttaðist
Merkel vinsældir og at-
hyglina sem Martin
Schulz, kanslaraefni
jafnaðarmanna (SPD),
hlaut. Skoðanakann-
anir vorið 2017 sýndu
að hann mundi sigra
Merkel í sambands-
þingskosningunum í september
2017. Schulz naut 100% stuðnings
innan SPD og fór með himin-
skautum.
Vinsældir Schulz meðal eigin
flokksmanna sögðu ekki alla söguna.
Þær mældust meðal annars í þing-
kosningum einstakra sambands-
landa og þar var Saarland fyrst í
röðinni. Í þeim sigraði Annegret
Kramp-Karrenbauer með um 40%
atkvæða. Schulz missti fótanna á
sigurgöngu sinni og Merkel fékk
áhuga á að kynnast AKK nánar og
nýta krafta hennar í þágu CDU-
flokksins alls. Schulz er týndur og
tröllum gefinn.
Fyrsta formannsverk AKK var að
gera Paul Ziemiak að arftaka sínum
sem framkvæmdastjóra flokksins.
Hann var formaður ungliðahreyf-
ingar flokksins og harður gagnrýn-
andi útlendingastefnu Merkel sem
hefur verið CDU til vandræða síðan
2015.
Þótt Merkel og AKK séu í megin-
dráttum samstiga tryggir það ekki
snurðulaust samstarf þeirra. Innan
CDU þekkja menn sögu um það.
Helmut Kohl valdi Angelu Merkel
sem eftirmann sinn en lagði síðar
fæð á hana. Sannaðist þar að fyrir
sterka flokksforingja getur verið
pirrandi að sitja án allra þráða í
hendi sér.
Frakkland
Sömu vikur og Martin Schulz fór
sigurför í skoðanakönnunum í
Þýskalandi vorið 2017 beindist at-
hygli umheimsins að einstakri fram-
göngu Emmanuels Macrons í for-
setakosningunum í Frakklandi. Lítt
þekktum bankamanni tókst að
mynda um sig stjórnmálahreyfingu
og stemningu sem fleytti honum í
forsetaembættið og tryggði honum
nokkrum vikum síðar hreinan meiri-
hluta á franska þinginu.
Litið var á Macron sem fulltrúa
nýrra tíma og nýrrar kynslóðar
Frakka sem ætlaði að losa um stöðn-
unarhlekki fransks þjóðlífs, rífa upp
efnahaginn og ekki láta undan þeim
sem þyldu engar breytingar, jafnvel
þótt beitt yrði hefðbundnum frönsk-
um aðferðum og efnt til mótmæla á
götum úti. Macron nýtur nú minni
stuðnings en nokkur forvera hans og
aðstoðarmenn eru sagðir óttast að
reynt verði að ræna hann völdum.
Í 13 mínútna sjónvarpsávarpi
mánudaginn 10. desember 2018 við-
urkenndi Macron að sér hefði ekki
tekist að virkja frönsku þjóðina til
samstarfs við sig. Þá höfðu staðið
stöðug mótmæli frá 17. nóvember.
Þau hófust vegna boðaðra hækkana
á eldsneytissköttum í byrjun árs
2019 en snerust síðan harkalega
gegn forsetanum og stjórn hans.
„Ég veit að ég hef sært sum ykkar
með ummælum mínum,“ sagði for-
setinn og taldi þjóðina á „sögulegum
tímamótum“. Macron sagði reiði
friðsamra mótmælenda „skiljan-
lega“ og hún kynni að „skapa tæki-
færi“. Deyfð hefði verið yfir þjóðlíf-
inu í 40 ár, þjóðin hefði látið sér það
lynda „vegna hugleysis“. Ekkert
réttlætti þó ofbeldisaðgerðir og
árásir á lögreglumenn eða opinberar
eignir.
Hann lofaði meðal annars 100
evru mánaðarlegri hækkun á lág-
markslaunum í rúmlega 1.400 evrur
(rúmlega 200.000 ísl. kr). Forsetinn
hafnaði kröfu mótmælenda um að
endurvekja auðlegðarskatt sem
hann afnam að hluta í fyrra. Sósíal-
istinn François Mitterrand innleiddi
skattinn í forsetatíð sinni fyrir 30 ár-
um.
Hvort Macron hafi í raun tekist að
snúa vörn í sókn með ávarpi sínu
sést nú um helgina. Þátttaka í mót-
mælum þá gefur vísbendingu um
það.
Hryðjuverkaárás í Strassborg að
kvöldi þriðjudags 11. desember
minnti Frakka á hve samfélags-
gerðin er brothætt og mikils virði að
standa vörð um hana. Gulvestungar
hljóta að taka mið af því eins og aðr-
ir.
Bretland
Theresa May varð forsætisráð-
herra Breta sumarið 2016 þegar
David Cameron hrökklaðist frá völd-
um eftir að þjóðaratkvæðagreiðslan
um afstöðu Breta til aðildar að ESB
fór á annan veg en hann vildi.
Til að sanna styrk sinn og fá
öruggt umboð til að semja um ESB-
úrsögn Breta rauf May þing og boð-
aði til kosninga tæpu ári eftir að hún
varð forsætisráðherra. Íhaldsflokk-
urinn hlaut hlutfallslega mikið fylgi
(42,4%) en tapaði 13 þingsætum. Í
stað þess að leiða stjórn með 17
þingmanna meirihluta sat May uppi
með minnihluta á þingi og varð að
semja við Lýðræðislega sambands-
flokkinn á Norður-Írlandi til að
tryggja stjórn sinni nægan þing-
stuðning.
Þótt May hafi ekki viljað Breta úr
ESB vinnur hún markvisst að úr-
sögninni en með svo hörmulegri nið-
urstöðu að meirihluti þingmanna er
andvígur henni. Hún féll frá að bera
tillögu sína undir atkvæði þingsins
11. desember og miðvikudaginn 12.
desember varð hún að verjast van-
trausti innan eigin þingflokks. Hún
hélt velli sem leiðtogi með 200 at-
kvæðum gegn 117 eftir að hafa boð-
að að hún mundi ekki leiða flokkinn
til kosninga árið 2022. May nýtur
trausts en allur vindur er úr seglum
hennar.
Brexit-áhugamenn beittu sér fyrir
vantraustinu og þeir eru jafnfúlir í
garð May nú og áður. Flokksreglur
banna þeim sambærilegt áhlaup á
hana næstu 12 mánuði. Hún kann að
nota skjólið til að semja við stjórn-
arandstöðuna um Brexit-niðurstöðu
sem nýtur meirihluta á þingi.
Ágreiningurinn snýst um var-
naglaákvæði varðandi Norður-
Írland. Deila um Gíbraltar milli
Breta og Spánverja var leyst með
bréfi og blessun framkvæmda-
stjórnar ESB. Svipuð lausn kann að
finnast vegna norðurírska varnagl-
ans.
Eftir Björn
Bjarnason » Í þremur öflugustu
Evrópuríkjunum er
pólitískt uppnám á
æðstu stöðum. Sömu
sögu er að segja um
Bandaríkin.
Björn
Bjarnason
Höfundur er fyrrv. ráðherra.
Uppnám á æðstu stöðum