Morgunblaðið - 14.12.2018, Síða 25
UMRÆÐAN 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 2018
Jólagjafir
Eirvík Suðurlandsbraut 20, Reykjavík, sími 588 0200, eirvik.is.
Opnunartími mánudaga - föstudaga 10-18, laugardaga 11-16
í sérflokki
Flóunar-
kanna
Kaffivélar Matvinnsluvélar
Verð 11.990 kr.
Verð frá 84.990 kr. Verð frá 34.990 kr.
Brauðristar
Brauðristar 50´s
Hraðsuðu-
katlar 50´s
Verð 30.990 kr.
Verð 19.990 kr.
Verð 21.990 kr.
Í starfi mínu sem fv.
leikskólastjóri upplifði
ég oft mikið álag á
starfsmenn.
Starfsmannavelta er
tiltölulega hröð miðað
við marga aðra vinnu-
staði. Leikskólastjóri
er því oft frekar í hlut-
verki starfsmanna-
stjóra en faglegs leið-
toga og deildastjórar
sífellt að taka á móti nýju fólki. Veik-
indi mælast einnig meiri í leikskólum
en á mörgum öðrum vinnustöðum.
Það eru því ríkar ástæður til að
reyna að finna leiðir til að auka starfs-
ánægju þeirra.
Hver var aðdragandinn
að innleiðingunni?
Ég bætti við mig námi í Heilbrigði
og heilsuuppeldi við Háskóla Íslands
og fékk tækifæri til að reyna að auka
ánægju starfsfólks. Á einu námskeið-
inu áttum við að innleiða hreyfingu
meðal starfsmanna á vinnutíma.
Hugmyndin fólst í að finna stund
þar sem starfsmaður fengi tíma til að
hreyfa sig þegar bestar aðstæður
væru í skólanum. Ekki er mikið um
lausa stund í okkar umhverfi og því
krafðist þetta mikillar útsjónarsemi.
Ég útfærði verkefnið og starfs-
mönnum fannst áhugavert að innleiða
heilsueflinguna í okkar skóla. Við
höfðum í langan tíma unnið út frá því
að efla heilsusamlegt mataræði og
betrumbæta vinnuumhverfið eins vel
og kringumstæður leyfðu. Innleitt var
eitt hádegishlé sem var 40 mínútur
fyrir þá sem unnu fulla vinnu og var
það til mikilla bóta.
Hvernig virkar
þetta ?
Við byrjuðum á að
skipuleggja 30-60 mín-
útna hreyfistund einu
sinni í viku hjá hverjum
starfsmanni. Hreyfingin
fólst t.d í göngu, hlaupi
eða hjólreiðum Það tók
okkur eitt ár að innleiða
hreyfingu einu sinni í
viku. Síðan sáum við
tækifæri til hreyfingar
tvisvar í viku.
Ég hef síðan þróað verkefnið. Sem
dæmi tók ég að mér að innleiða það
fyrir leikskólann Krakkakot í fyrra-
vetur. Hluti starfsfólks nýtti sér
tækifæri nokkrum sinnum í viku og
tók göngu eða hjólasprett í 15-20 mín-
útur af 40 mínútna hádegishléi. Al-
menn ánægja var með þessa ný-
breytni.
Geta fleiri en við
notast við þetta verkefni?
Ég hef lokið starfi mínu sem leik-
skólastjóri en vinn að því að innleiða
hreyfiverkefnið í leikskóla þar sem
þess er óskað. Ég gerði könnun þegar
verkefninu í Krakkakoti lauk og læt
hér fylgja nokkur svör sem sýna við-
horf starfsmanna til þess.
Ef ég fæ hreyfingu í vinnutíma hef-
ur það eftirfarandi áhrif á líðan mína:
Léttir í skapi að fá að komast út
og hreyfa sig.
Meira úthald – hressleiki. og
kem ferskari til baka í vinnuna.
Betri í skrokknum, hressari og
betri almenn heilsa.
Kem endurnærð eftir hreyf-
inguna. og finnst gott að geta
verið ein með sjálfri mér.
Finn fyrir betri heilsu.
Mér finnst ég ná að róa hugann
og fá auka orku.
Minnkar álag.
Mjög gott að hreyfa sig, betra
úthald og maður er bara allur
miklu léttari inn í sér.
Það er gott fyrir hugann að
komast aðeins út.
Frískari, skerpir hugann og
veitir vellíðan og meiri orku það
sem eftir er dags.
Líður betur andlega og lík-
amlega.
Getum við breytt og
bætt starfsumhverfið?
Mig langar að skoða fleiri atriði
sem geta hvatt fólk til að hreyfa sig
og gera betur bæði hvað varðar
skipulag og ekki síst í að fegra um-
hverfi sitt. Oft þarf ekki mikla fjár-
muni til að gera breytingar – frekar
breytt skipulag . Öllum liður betur
þar sem regla er á hlutum og um-
hverfið er notalegt. Einnig má skoða
matseðil skólanna. Í mínum skóla
lögðum við mikla áherslu á að allur
matur væri unninn á staðnum og við
jukum verulega magn ávaxta og
grænmetis. Okkur var metnaðarmál
að hafa matinn fallega fram borinn
og hann væri lítrikur og góður.
Og hvað svo
Í vor byrjaði ég að vinna að verk-
efninu með tveimur skólum í Garða-
bæ þ.e. leikskólanum Bæjarbóli sem
er fjögurra deilda og svo Kirkjubóli
sem er þriggja deilda. Báðir þessir
skólar hafa starfað lengi og við góðan
orðstír. Ég vinn innleiðinguna mest
með deildarstjórum sem síðan miðla
til annarra kennara og leiðbeinenda á
deildum. Verkefnið er í fullum gangi
og hefur gengið vel en ég tek fram að
þátttaka er valfrjáls.
Er ávinningur
af svona verkefni?
Ég tel svo vera og getur talist í eft-
irfarandi:
Hvetur starfsfólk til að hreyfa sig
reglulega og gerir það meðvitaðra
um hvað það borðar.
Fær starfsmenn til að huga betur
að heilsu sinni.
Starfsfólk finnur að það er mikil-
vægt fyrst ráðist er í svona verkefni.
Gott að geta sagt öðrum frá að ver-
ið sé að vinna að því sinna starfs-
mönnum til að auka á ánægju þeirra í
starfi.
Ef vel tekst til við að gera vinnuað-
stöðu betri og hlýlegri eru meiri líkur
á að betur gangi að ráða nýja starfs-
menn.
Margt fleira mætti nefna en ég læt
þetta nægja.
Við þurfum sjálf að finna
lausnir að bættu vinnuumhverfi
Þeir sem vinna í leikskólum eru
best til þess fallnir að bæta starfsum-
hverfi sitt. Mitt hlutverk er að hjálpa
til við að finna leiðir að bættu vinnu-
umhverfi leikskólanna.
Það gerist ekki í einu vetfangi, en
dropinn holar steininn og því horfi ég
björtum augum til þess að leikskólar
verði eftirsóknarverðir vinnustaðir.
Að auka ánægju í starfi
Eftir Helgu
Kristjánsdóttur »Höfundur segir frá
reynslu sinni af því
hvernig hefur tekist til
við að koma inn heilsuefl-
andi verkefni á leikskóla.
Helga Kristjánsdóttir
Höfundur er verkefnastjóri í innleið-
ingu heilsueflingar á leikskóla.
helga54@internet.is
Bílar
Móttaka
aðsendra
greina
Morgunblaðið er vettvangur lifandi
umræðu í landinu og birtir að-
sendar greinar alla útgáfudaga.
Þeir sem vilja senda Morg-
unblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi
blaðsins. Kerfið er auðvelt í notk-
un og tryggir öryggi í samskiptum
milli starfsfólks Morgunblaðsins
og höfunda. Morgunblaðið birtir
ekki greinar sem einnig eru sendar
á aðra miðla.
Kerfið er aðgengilegt undir
Morgunblaðslógóinu efst í hægra
horni forsíðu mbl.is. Þegar smellt
er á lógóið birtist felligluggi þar
sem liðurinn „Senda inn grein“ er
valinn.
Í fyrsta skipti sem inn-
sendikerfið er notað þarf notand-
inn að nýskrá sig inn í kerfið. Ít-
arlegar leiðbeiningar fylgja hverju
þrepi í skráningarferlinu. Eftir að
viðkomandi hefur skráð sig sem
notanda í kerfið er nóg að slá inn
kennitölu notanda og lykilorð til að
opna svæðið. Hægt er að senda
greinar allan sólarhringinn.
Nánari upplýsingar veitir starfs-
fólk Morgunblaðsins alla virka
daga í síma 569-1100 frá kl. 8-18.