Morgunblaðið - 14.12.2018, Side 32

Morgunblaðið - 14.12.2018, Side 32
32 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 2018 Ég ætla aðelda mérlæri og taka mér spila- kvöld með fjöl- skyldunni, spila jólatónlist og hafa það kósí,“ segir Anna Lísa Jóhannesdóttir sem á 40 ára af- mæli í dag. Hún er sérfræðingur í kökuskreyt- ingum og er stanslaust að baka kökur og finna hugmyndir að útliti og upp- skriftum á net- inu. Hún er með Facebook-síðu sem heitir Kök- urnar mínar, þar eru myndir og svo er Anna Lísa að fara að setja inn myndbönd. „Fólk var búið að spyrja um hvort ég ætlaði að setja svo- leiðis inn á síðuna svo ég ætla að verða við því. Svo finnst mér gaman að öllu sem ég get föndrað með og hef verið að búa til álfahús úr blómapottum og nota steina og set trjábörk á þökin.“ Jólin eru enginn sérstakur háannatími í kökuskreytingum hjá Önnu Lísu. „Þá er ég að baka hveitikökur og það sem okkur þykir gott að gera um jólin. En á þessum tíma eru útskriftirnar í gangi og núna er ég að gera stúdentaskreytingar á kökur. Oftast geri ég bara kökur fyrir ættingja og er ekki að gefa það út að ég geri kökur fyrir aðra. Svo er barnaafmæli hjá mér milli jóla og nýárs og óskin var að gera Friends-köku, en þeir sjónvarpsþættir eru klassískir. Þá bý ég til sóf- ann og merki kaffihússins og eina tilvitnun úr þættinum sem er vin- sælt að nota, en ég hef gert nokkrar Friends-kökur í ýmsum út- gáfum.“ Stoltust er Anna Lísa þó af köku sem hún gerði fyrir Disney-keppni en hún er af Mjallhvíti og dvergunum sjö. Flestar kökurnar eru borð- aðar en þessi er til sýnis í versluninni Allt í köku. Anna Lísa ólst upp á Flateyri og er Vestfirðingur í húð og hár en býr í Garði. „Það er fínt að búa hérna en það er agalegt að hafa engin fjöll.“ Eiginmaður hennar er Sigurjón Elíasson, tækjamaður hjá Ís- lenskum aðalverktökum, og synir þeirra eru Stefán Örn 14 ára, Arnór Friðberg 11 og Daði Freyr 9 ára en verður 10 ára milli jóla og nýárs. Afmælisbarnið Anna Lísa Jóhannesdóttir. Bakar Friends-köku milli jóla og nýárs Anna Lísa Jóhannesdóttir er fertug í dag K ristján Sigurðsson fæddist á Hverfisgötu 55 í Reykjavík 14.12. 1943 og ólst þar upp: „Það hús hefur að mestu verið í eigu ættmenna Helgu Ketilsdóttur, langömmu minnar, allt frá 1912 og fram til 2005. Helga festi kaup á þessu húsi er hún flutti, ung ekkja með tvö börn sín, til Reykjavík- ur. Hún stækkaði þá húsið á alla kanta. Mörg ættmenni hennar frá Kotvogi í Höfnum bjuggu þar í næsta nágrenni og mikill samgangur þar á milli. Foreldrar mínir og við systkinin bjuggum á efri hæðinni, en á neðri hæðinni bjó fjölskylda ömmubróður míns. Það verður ekki sagt um mínar bernskuslóðir að þær hafi verið af- skekktar: Laugavegurinn var þá helsta verslunargata landsins og í næsta nágrenni voru sex kvikmynda- hús, fimm helstu skemmtistaðirnir og stutt í höfuðstöðvar bankanna og alla skóla og menntastofnanir. Höfnin var skammt undan, heimur út af fyrir sig, með uppskipun fyrir skip Eimskips og Ríkisskipa, landanir fyrir togara og fiskibáta, Landhelgisgæsluna, Slippinn, Sænska frystihúsið þar sem nú er Seðlabankinn og allar vöru- skemmurnar. Ég stóð í biðröð eftir vinnu við höfnina, vann við uppskipun saltfiskafla úr togurum, var messa- gutti á skipum Eimskips en síðar við síldarvinnu á Siglufirði eftir að hafa verið mörg sumur í sveit á Barði í Fljótum.“ Kristján gekk í Miðbæjarskólann, lauk landsprófi frá Gagnfræðaskól- anum við Vonarstræti, stúdentsprófi frá MR og embættisprófi í læknis- fræði frá HÍ. Hann var kandídat á Akureyri og í Reykjavík áður en hann hélt til framhaldsnáms í kven- lækningum og fæðingarhjálp í Stokk- hólmi vorið 1973-78. Hann stundaði síðan framhaldsnám í kven- Kristján Sigurðsson, fv. yfirlæknir – 75 ára Á afmæli eiginkonunnar Kristján og Sigrún Ósk með dóttur og tengdasyni og dótturdætrunum, vinstra megin. Ólst upp í Skuggahverfi – í hringiðu þjóðlífsins Hjónin Kristján og Sigrún Ósk í Höfðaborg í Suður-Afríku árið 2016. Selfoss Flosi Óskar Val- geirsson fæddist 17. mars 2018 kl. 9.14. Hann vó 4.240 g og var 53 cm að lengd. For- eldrar hans eru Valgeir Flosason og Karen Svend- sen sem er þrítug í dag. Nýr borgari Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Hólshraun 3 · 220Hafnarfjörður · Símar: 555-1810, 565-1810 · Netfang: veislulist@veislulist.is · www.veislulist.is Nú gefst þér tækifæri til að gleðja starfsfélaga, fjölskyldu og vini með konunglegum kræsingum frá Veislulist Starfsfólk okkar leggur sig fram um að gera stundina fallega með úrvals veitingum og persónulegri og góðri þjónustu. Hlaðborð fyrir allar stærðir af hópum. Þrjár mismunandi steikur ásamt meðlæti. Hlaðborð fyrir allar stærðir af hópum. Konunglegar kræsingar. Hlaðborð fyrir allar stærðir af hópum. Hátíðlegir smáréttir. Jólasteikur Jólahlaðborð 1&2 Jólasmáréttir Jólahlaðborð Jólin 2018 Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.