Morgunblaðið - 14.12.2018, Qupperneq 33
krabbameinslækningum við Háskóla-
sjúkrahúsið í Lundi 1978-82 og skrif-
aði á þeim tíma doktorsritgerð um
meðferð eggjastokkakrabbameins,
1982.
Eftir heimkomuna, 1982, hefur
Kristján verið yfirlæknir á Kvenna-
deild Landspítala og á Leitarstöð
Krabbameinsfélagsins auk þess sem
hann starfaði um tíma sem sviðsstjóri
lækninga á báðum stöðum. Hann
stundaði einnig nám við Norræna
lýðheilsuskólann, með hléum, á ár-
unum 1994-99 og skrifaði þar dokt-
orsritgerð um leghálskrabbameins-
leit, 1999. Hann hefur auk þess ritað
hátt í 200 fræði- og upplýsingagrein-
ar fyrir lækna, heilbrigðisstarfsfólk
og almenning auk þess að stjórna ís-
lenskum hluta stórrar alþjóðlegrar
rannsóknar á vægi bólusetninga gegn
HPV-veirusmiti á árunum 2000-2007.
Vegna fræðastarfa sinna var Krist-
jáni veitt persónulega prófess-
orsstaða við HÍ 2007. Nánari upplýs-
ingar um fræðastörf Kristjáns má
finna á vefslóðinni https://www.pub-
facts.com/author/Kristjan+Sig-
urdsson.
Eftir að Kristján komst á eftir-
launaaldur er hann hættur klínískri
vinnu en skerpir hugann með því að
fylgjast með skrifum um framþróun
læknisfræðinnar og þá einkum á sviði
krabbameinsforvarna, samfara því að
stunda útivist og ferðalög. Þá leita
þau hjónin gjarnan til Lomma í Suð-
ur-Svíþjóð þar sem þau eiga sér lítið
notalegt athvarf.
Fjölskylda
Kristján er kvæntur Sigrúnu Ósk
Ingadóttur, f. 28.5. 1945, viðskipta-
fræðingi. Foreldrar hennar: Ingi
Þórðarson, f. 17.8. 1921, d. 27.2. 2000,
frá Hrauk í Þykkvabæ, og Kristín
Óskarsdóttir, f. 9.5. 1923, frá Bervík á
Snæfellsnesi.
Dóttir Kristjáns og Sigrúnar er
Vilborg Ragnheiður, f. 1.6. 1973,
bókasafns- og upplýsingafræðingur,
gift Aðalsteini Gunnlaugssyni lækni
og eiga þau þrjár dætur, Emilíu, f.
1997, Sigrúnu Helenu, f. 2003, og
Rósu Birgittu, f. 2005. Þau búa í
Lomma í Svíþjóð.
Systkin Kristjáns eru Brynjólfur,
f. 8.2. 1950, sjómaður í Reykjavík;
Halldóra, f. 1.2. 1956, sjúkraliði í
Reykjavík, og Sigurður Þór, f.. 23.5.
1962, verslunarmaður í Reykjavík.
Foreldrar Kristjáns voru Sigurður
Sigurðsson, f. 3.6. 1922, d. 25.3. 2005,
verslunarmaður í Reykjavík, og k.h.,
Brynja Helga Kristjánsdóttir, f. 19.5.
1923, d. 9.12. 2012, húsfreyja.
Kristján
Sigurðsson
Kristján Jónasson
lögregluþjónn í Rvík
Brynja Helga Kristjánsdóttir
húsfr. í Rvík
Sigríður Jónsdóttir
húsfr. á Bakka
Jónas Jónsson
b. og sjóm. á Bakka í Garðahreppi
Vilborg Ragnheiður Kristjánsdóttir
húsfr. í Rvík og á Ísafirði
Helga Egilsdóttir
húsfr. á Hamri
Jón Sveinsson
verkam. á Hamri í Hafnarfirði
Einhildur Þóra Jónsdóttir
húsfr. í Rvík
Arinbjörn Sigurðsson togaraskipstj. í Rvík
Ingibjörg Sigurðardóttir
hjúkrunarfræðingur í Rvík
Sigurður Eyleifsson
skipstj. í Rvík
Kristjana Margrét Sigurðardóttir
húsfr. í Gesthúsum
Eyleifur Guðmundsson
b. og sjóm. í Gesthúsum
á Seltjarnarnesi
Úr frændgarði Kristjáns Sigurðssonar
Guðmundur Pétursson
hrl. og fv. landsliðsm. í
knattspyrnu
Kristjana Margrét
Sigurðardóttir
húsfr. í Rvík
Þóra Einhildur Sigurðardóttir húsfr. í Rvík
Helga Sigurðardóttir hárgreiðslum. í Rvík
Sigurður Sigurðsson
verslunarm. í Rvík
Oddur V.G. Ólafsson
yfirlæknir og alþm.
á Reykjalundi
Þengill Oddsson læknir
Ólafur Hergils Oddsson
læknir
Ólafur Ketilsson b.,
útgerðarm. og hreppstjóri
á Kalmanstjörn
Vilhjálmur Kristinn
Ketilsson b. og kennari á
Kirkjuvogi og síðar í Rvík
Margrét Birna
Andrésdóttir læknir
Vilhjálmur Kristinn
Andrésson læknir
Margrét Helga Vilhjálmsdóttir
húsfr. og cand.phil. í Rvík
Vigdís Ketilsdóttir
húsfr. í Rvík
Ásbjörn Ólafsson stórkaupm. í Rvík
Unnur Ólafsdóttir veflistakona
Gunnar Björnsson
fv. sóknarprestur
á Selfossi
Ingibjörg
Gunnarsdóttir
hárgreiðslum.
í Rvík
Ólafur Gunnarsson rithöfundur
Gunnar Ólafsson
trésmiður og
bifreiðastj. í Rvík
Jón Thorarensen pr. í Rvík Ketill Ketilsson útvegsb. í Kotvogi
uðrún Eiríksdóttir
húsfr. í Rvík
GEiríkur Ketilsson
tórkaupm. í Rvíks
Ásgeir Hannes
Eiríksson alþm.
Eiríkur Ketilsson
hreppstj. á Járn-
gerðarstöðum í
Grindavík
Helga Ketilsdóttir
húsfr. á Stað, frá Kotvogi, af Waage-ætt
Brynjólfur Gunnarsson
pr. á Stað í Grindavík
Halldóra Brynjólfsdóttir
húsfr. í Rvík
ÍSLENDINGAR 33
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 2018
Ármúla 26 | 108 Reykjavík | Sími 578 4400 | heimilioghugmyndir.is
Ragnar Ásgeirsson fæddist áSólbakka á Flateyri við Ön-undarfjörð hinn 14.12. 1911.
Foreldrar hans voru Ásgeir Torfa-
son, skipstjóri og verksmiðjustjóri á
Sólbakka, og k.h., Ragnheiður Ei-
ríksdóttir húsfreyja.
Ásgeir var bróðir Guðrúnar, ömmu
Einars Odds Kristjánssonar, alþing-
ismanns og forstjóra á Flateyri. Ás-
geir var einnig bróðir Sigríðar, móð-
ur Esra Péturssonar geðlæknis og
Maríu Pétursdóttur sem var formað-
ur Hjúkrunarkvennafélags Íslands.
Ásgeir var sonur Torfa Halldórs-
sonar, skipstjóra, útgerðarmanns og
skólastjóra fyrsta stýrimannaskólans
á Íslandi, sem oft hefur verið nefndur
faðir Flateyrar, og Maríu Össurar-
dóttur, en Ragnheiður var dóttir Ei-
ríks Sigmundssonar, bónda á Hrauni
á Ingjaldssandi, og Sigríðar Jóns-
dóttur húsfreyju.
Bróðir Ragnars læknis var Önund-
ur Ásgeirsson, forstjóri Olíu-
verslunar Íslands, faðir Páls Torfa
Önundarsonar yfirlæknis en sonur
hans er Ragnar læknir, og faðir
Ragnars, fv. bankastjóra. Annar
bróðir Ragnars læknis var Haraldur
Ásgeirsson, forstjóri Rannsókn-
arstofnunar byggingariðnaðarins.
Eiginkona Ragnars læknis var
Laufey Maríasdóttir en börn þeirra
Ragnheiður Ása, húsfreyja í Texas;
María, sjúkraliði í Reykjavík; Eiríkur
Guðjón félagsráðgjafi og Þórir Sturla
læknir.
Ragnar lauk stúdentsprófi frá MA
1933, embættisprófi í læknisfræði frá
HÍ 1940 og fékk almennt lækn-
ingaleyfi 1942.
Ragnar var héraðslæknir í Reykj-
arfjarðarhéraði til 1943, í Flateyr-
arhéraði 1943-50, á Ísafirði 1950-66, í
Hafnarfirði skamma hríð en.var aftur
héraðslæknir á Ísafirði 1966-76. Þá
þjónaði hann ýmsum öðrum lækn-
ishéruðum í afleysingum.
Ragnar sat í hreppsnefnd Flateyr-
arhrepps 1946-50, var oddviti á Flat-
eyri á sama tíma og sat í stjórn Kaup-
félags Ísfirðinga.
Ragnar lést 16.5. 1981.
Merkir Íslendingar
Ragnar
Ásgeirsson
95 ára
Sigrún Haraldsdóttir
90 ára
Haraldur Guðnason
85 ára
Anton Sigurbjörnsson
Gunnar Pétur Ólason
Hrafn Benediktsson
75 ára
Edda Marianne Michelsen
Hafsteinn Guðjónsson
Konráð Óli Fjeldsted
Kristján Sigurðsson
70 ára
Elín Schicke
Guðjón Bjarnason
Guðlaug Sigmarsdóttir
Guðmundur Sigurðsson
Guðni Sigurðsson
Guðrún Sigríður
Kristjánsdóttir
Heiðar Jóhannsson
Helga Dóra Sigvaldadóttir
Helga M. Ögmundsdóttir
Jóna Svana Jónsdóttir
Sigríður Björg
Friðgeirsdóttir
Sigurjón Þorláksson
Steinunn Traustadóttir
60 ára
Arndís Árnadóttir
Árni Sigurður Jónsson
Ásta Kristrún Ólafsdóttir
Bæring Sigurbjörnsson
Guðmundur Kristján
Guðbjörnsson
Helga Bergsdóttir
Irena Breiviene
Jóhann Ólafsson
Líney Guðbjörg
Ragnarsdóttir
Matthildur Hjartardóttir
Ólafur Björnsson
Óli Jón Hertervig
Reynir Þorsteinsson
Rúnar Vilhjálmsson
Vigfús Örn Viggósson
Þuríður B. Halldórsdóttir
Þuríður Einarsdóttir
50 ára
Guðbjörg M.B. Thorsen
Gunnar Halldór Reynisson
Hrafnhildur Andrésdóttir
Ionel Dumitrache
Jón Guðmundur Birgisson
Markus Stephan Klinger
Sigfús Magnússon
Sveinn Ari Guðjónsson
Unnar Már Magnússon
40 ára
Aarifa Azfar
Albert Þór Jónsson
Anna Lísa Jóhannesdóttir
Björn Jónsson
Bryndís L. Bryngeirsdóttir
Damian E. Tatarowski
Guðleifur K. Stefánsson
Halla María Svansdóttir
Justyna Adrianna Klosinska
Sæmundur Aðalbjörnsson
Vignir Örn Sigþórsson
30 ára
Alexander V. Þórarinsson
Andri Geir Jónsson
Benedikt V. Þorsteinsson
Betlhem Abebe Teresa
Björn Ármann Júlíusson
Elísabet A. Sigurðardóttir
Ellen Hong Van Truong
Finnbogi Árnason
Guðni Valgeir Ólafsson
Gylfi Geir Albertsson
Ingibjörg Johnson
Júlíus Einar Júlíusson
Sólveig Guðmundsdóttir
Til hamingju með daginn
30 ára Sigursteinn ólst
upp á Akureyri, býr þar og
er sprengistjóri hjá Suð-
urverki ehf. á Akureyri.
Systkini: Anna Kristín, f.
1981; Hildur Ýr, f. 1984;
Þorvaldur Már, f. 1992, og
Þórlaug Ásta, f. 1993.
Foreldrar: Elísabet Wen-
del, f. 1963, bóndi í Sand-
hólum í Eyjafirði, og Sig-
ursteinn Vestmann
Magnússon, f. 1961, lag-
erstjóri hjá Rafporti, bú-
settur í Kópavogi.
Sigursteinn S.
Sigursteinsson
30 ára Karen ólst upp á
Selfossi, býr þar, lauk
stúdentsprófi frá MK og
er aðstoðarhótelstjóri á
Hótel Selfossi, nú í fæð-
ingarorlofi.
Maki: Valgeir Ólafur
Flosason, f. 1987, verk-
fræðingur.
Sonur: Flosi Óskar, f.
2018.
Foreldrar: Guðbjörg Ingi-
mundardóttir, f. 1963, og
Karl Óskar Svendsen, f.
1962.
Karen H. Karls-
dóttir Svendsen
30 ára Guðmundur ólst
upp á Akureyri, býr þar og
starfar hjá verktakafyrir-
tækinu G. Hjálmarsson á
Akureyri.
Maki: Eyrún Sif Kristjáns-
dóttir, f. 1985, starfs-
maður hjá Símanum.
Dóttir: Monika Anný, f.
2014.
Foreldrar: Guðmundur
Hjálmarsson, f. 1959, for-
stjóri, og María Bergþórs-
dóttir, f. 1960, ljósmóðir
og hjúkrunarfræðingur.
Guðmundur S.
Guðmundsson