Morgunblaðið - 14.12.2018, Síða 35
DÆGRADVÖL 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 2018
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Ræddu við aðra um leiðir til að
spara peninga. Þú ert trygg/ur eins og
tröll, það vita vinir þínir og því sækja þeir í
þig.
20. apríl - 20. maí
Naut Vinur segir eða gerir eitthvað sem
kemur þér verulega á óvart. Heillastjarna
skín á þig þessar vikurnar, þú færð vinning
sem kemur sér vel.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Undanfarið finnst þér að sam-
skipti þín og ástvinanna mættu vera betri.
Ef þig endilega langar að láta hlutina
flakka gerðu það þá undir fjögur augu.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Reyndu að fá að vera í einrúmi
part úr degi. Það er hollt að gera ekki
neitt stundum. Einhver siglir undir fölsku
flaggi.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Það eru litlir útúrdúrar sem gera
daginn skemmtilegan. Ekki hjakka alltaf í
sama farinu. Nýja árið mun fara vel með
þig.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú ert sérstaklega hrífandi og hátt-
vís sem vekur áhuga hjá öðrum. Reyndu
að vera umburðarlynd/ur og glettin/n
frekar en dómhörð/harður.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú býrð yfir munúð og dirfsku,
ástríðum og gáska. Byrjaðu á fyrsta verk-
efninu og leystu þau svo eitt af öðru. Þú
vefur einhverjum um fingur þér og ferð
létt með það.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Brettu upp ermarnar. Annars
nærðu engum árangi. Láttu hverjum degi
nægja sína þjáningu. Gamall vinur mun
ráða þér heilt í erfiðu deilumáli.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Segðu hug þinn og farðu eftir
eigin sannfæringu. Taktu daginn snemma,
þá geturðu mögulega átt góðan tíma fyrir
þig eina/n seinnipartinn.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þig hefur langað að kaupa viss-
an hlut í langan tíma. Hvers vegna ekki að
kaupa hann? Ástin spyr ekki um aldur.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Láttu gamminn geisa við vini og
félaga, nú er ekki rétti tíminn til þess að
draga sig í hlé. Næsta ár verður ár ferða-
laga hjá þér.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Skemmtilegar samræður og óvænt-
ir endurfundir munu setja svip sinn á dag-
inn. Þú ert á grænni grein fjárhagslega og
horfir björtum augum til framtíðarinnar.
Í síðasta föstudagspistli Víkverjakom fram hversu þakklátur hann
er í desember og taldi hann upp fimm
atriði því til staðfestingar. Þar sem
Víkverji er afskaplega þakklát per-
sóna langar hann eða hana, eftir því
hvernig á það er litið, að bæta við
fleiri þakklætisefnum.
x x x
Í desember opna landsmenn allajafna hjarta sitt upp á gátt og
margir hafa þann sið, þar á meðal
Víkverji, að gleðja einstaklinga á að-
ventunni; ýmist þá sem hann þekkir
en oftar einhverja sem hann veit lítil
deili á en veit að eru hjálparþurfi.
x x x
Þegar líður að jólum rennur upp sádagur þar sem sólargangur er
stystur og myrkrið svartast. Daginn
eftir rennur upp fyrsti dagurinn í átt
að bjartari tímum og myrkrið víkur
fyrir birtunni í rólegheitum. Alveg
eins og í lífinu; þótt syrti að birtir í
langflestum tilfellum til aftur, en bið-
in getur á köflum reynst erfið og
löng.
x x x
Víkverja finnst aðventan stundumljúfsár. Það er margs að minnast
og margs að sakna. Víkverji hugsar
oft á aðventu og jólum til baka þegar
börnin sem nú eru fullorðin voru mið-
punkturinn í undirbúningi jólanna.
Spenningurinn, tilhlökkunin, litlu
hlutirnir og augnablikin þegar lítil
augu ljómuðu. Drukku í sig jólaljósin,
vöknuðu fyrir allar aldir til þess að
kíkja í skóinn úti í glugga. Lögðu
mikla natni í alls konar jólaföndur og
skreytingar með misgóðum árangri
en þeim mun meiri væntumþykju.
x x x
Víkverja þykir aldrei eins skemmti-legt að elda og á aðfangadag;
stússa í eldhúsinu og helst laga allt
frá grunni. Njóta þess að hafa tíma til
þess að nostra við matinn, leggja á
borð og skreyta það tímanlega.
x x x
Allra vænst þykir Víkverja um til-urð jólanna, sem skipta föstu-
dags-Víkverja miklu máli.
vikverji@mbl.is
Víkverji
Á því munuð allir þekkja að þér eruð
mínir lærisveinar ef þér berið elsku
hver til annars
(Jóhannesarguðspjall 13.35)
TWIN LIGHT RÚLLUGARDÍNA
Álnabær
Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta.
Síðumúla 32, Reykjavík. S. 588 5900 n Tjarnargötu 17, Keflavík. S. 421 2061 n Glerárgötu 32, Akureyri. S. 462 5900 n alnabaer.is
Við erum sérhæfð í gluggatjöldum
alnabaer.is
Fullkomin birtustjórnun
– frá myrkvun til útsýnis
Emil Als fv. læknir sendi mérlínu sem ég er þakklátur fyrir.
Þar segir, að „snemma á liðinni öld
bjó í Garðinum maður að nafni Þor-
steinn og hlaut viðurnefnið Niss.
Veit ekki hvort hann var smámælt-
ur eða þótti sérlundaður. Dag
nokkurn er hann á ferð innar á nes-
inu og sést þá til hans vera að kasta
af sér vatni upp við vinnuskúr í al-
faraleið. Skammt þar frá er hópur
manna og henda þeir gaman að
Þorsteini. Einn í hópnum er Eiríkur
frá Framnesi á Skeiðum. Eiríkur
gerði stundum vísur en hafði ekki
hátt um; hann segir nú:
Öll þótt flissi veröld byrst
aldrei hissa verðum.
Þú mátt pissa af þinni lyst,
Þorsteinn Niss frá Gerðum.“
Við getum tekið undir með Gunn-
ari J. Straumland þegar hann segir
á Boðnarmiði að „nú styttist í að
pakkið fari að ráfa um sveitir og
þorp. Læsið húsum og lokið glugg-
um, því
þjófnaðaralda um byggð og ból
berst með jólaköllunum
þegar hin aumu og örgu fól
ofan koma úr fjöllunum.
Gústi Mar veit sitthvað um jóla-
sveina og sér ástæðu til að spyrja á
Leir: „Ætli Stekkjastaur haldi
virkilega að ærnar mjólki í desem-
ber?“:
Vitlaus er hann Stekkjastaur
stirður mjög og heimskur gaur.
Sjúga ærnar enginn fer
allra síst í desember.
Davíð Hjálmar Haraldsson er
kunnugur karlinum:
Gamli Stekkjastaurinn fer
á stúfana í desember.
Fyrr í haust hann fann það út
að frábært er að sjúga hrút.
„Fyrsta rafbílavísan?“ spyr Arn-
þór Helgason vináttusendiherra
með þessari athugasemd: „Áðan
ætlaði ég að breyta gamalli jólavísu
og yrkja um kaupmenn, en Elín
Árnadóttir, eiginkona mín, botnaði
hana svo að úr varð væntanlega
fyrsta rafbílavísan“:
Bráðum koma kæru jólin,
kaupmenn þurfa að breyta um stíl.
Allir fá þá eitthvað fallegt,
í það minnsta rafmagnsbíl.
Hér gefur Sigmundur Benedikts-
son góð ráð:
Þau sem köldu myrkri mæðast
magnið hlýju og varnið grandi.
Eigið þegar öll að klæðast
ullarpeysu og föðurlandi.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Vísa Eiríks á Framnesi
og af jólasveinum
Í klípu
„ÞETTA HJÁLPAR. ÉG SAKNA HANS ENN –
EN EKKI JAFNMIKIÐ OG SÓFANS.”
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„EF ÞÚ VILT ALÞRIF SKALTU BARA SKILJA
GLUGGANA EFTIR OPNA.”
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... æskuást og að eilífu.
ÞAÐ ER GOTT AÐ ANNAR
OKKAR ER AÐ FYLGJAST
MEÐ DAGATALINU
ARG!
SMELL!
HVERSU LENGI DOTTAÐI ÉG?
NÓGU
LENGI!