Morgunblaðið - 14.12.2018, Blaðsíða 44
WOWXMAS
TIL ALLRA ÁFANGASTAÐA MEÐ KÓÐANUM
FERÐATÍMABIL: 12.12.2018 – 31.3.2019
*Til að nýta afsláttinn þarf að bóka flug fram og tilbaka fyrir kl 23:59
sunnudaginn 16. desember, 2018. Skilmálar gilda: wowair.is/smattletur
Á lokatónleikum haustdagskrár
Múlans á Björtuloftum, 5. hæð
Hörpu, í kvöld kl. 21 koma fram
djasssöngkonurnar Stína Ágústs og
Marína Ósk ásamt hljómsveit. Efn-
isskráin inniheldur þekkt og minna
þekkt jólalög frá Norðurlöndunum,
bæði íslensk og erlend, í djass-
skotnum útsetningum. Með þeim
leika Mikael Máni Ásmundsson á
gítar, Leifur Gunnarsson á bassa og
Matthías Hemstock á trommur.
Djassaðir jólatónleikar
FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 348. DAGUR ÁRSINS 2018
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 641 kr.
Áskrift 6.960 kr. Helgaráskrift 4.346 kr.
PDF á mbl.is 6.173 kr. iPad-áskrift 6.173 kr.
Afturelding og Selfoss komust í
átta liða úrslitin í bikarkeppni karla
í handknattleik í gærkvöld eftir
gríðarlega spennu en bæði lið unnu
eins marks sigur á útivelli. Aftur-
elding náði að sigra Hauka í Hafnar-
firði og Selfyssingar lögðu Framara
að velli í Safamýri. ÍBV, FH, ÍR og
Fjölnir komust líka áfram. »2
Spennusigrar Aftur-
eldingar og Selfoss
ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM
Átta höfundar lesa upp úr nýút-
komnum bókum sínum í Hann-
esarholti í kvöld kl. 20. Þórunn
Jarla Valdimarsdóttir les úr bókinni
Skúli fógeti. Faðir Reykjavíkur;
Ragnar Helgi Ólafsson úr Bókasafn
föður míns; Eiríkur Guðmundsson
úr Ritgerð mín um sársaukann;
Hallgrímur Helgason úr Sextíu kíló
af sólskini; Auður Jónsdóttir úr
Þjáningarfrelsinu;
Haukur Ingvars-
son úr Vistar-
verum; Vala
Hafstað úr
Eldgos í að-
sigi og Hall-
dóra Thor-
oddsen úr
Katrínar-
sögu.
Höfundar lesa upp í
Hannesarholti í kvöld
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Jólatónleikar Kammerkórs Reykja-
víkur, „Kátt er um jólin“, verða í
Laugarneskirkju á sunnudag og
verður Anna Kristín Þórhallsdóttir,
sópran og sérfræðingur í heimilis-
lækningum, gestasöngvari.
„Í þessu starfi er nauðsynlegt að
hafa eitthvað til þess að næra lík-
ama og sál eftir amstur dagsins,“
segir Anna Kristín. ,,Sem læknir
vinn ég mikið með lífsstílssjúkdóma
þar sem hollt mataræði, reglubund-
in hreyfing, góður svefn og hugarró
eru aðalatriðin sem þarf að vinna
með. Nauðsynlegt er fyrir alla að
huga að vel að þessum þáttum.
Söngurinn er afar góður hvað þetta
varðar. Það er ákveðin hreyfing en
mikilvægust er þessi hugarró, nú-
vitund þar sem við erum bara hér
og nú, öndum djúpt og slökum. Auk
þess erum við líka félagsverur og
sönglífinu fylgir mjög góður fé-
lagsskapur.“
Tónlist hefur verið rauður þráður
í lífi Önnu Kristínar. Hún byrjaði í
píanó- og flautunámi og fylgdist
með Björgu, systur sinni og óperu-
söngkonu, á söngæfingum. Þórhall-
ur Höskuldsson, faðir þeirra, var
prestur, sem varð til þess að Anna
Kristín sótti kirkju reglulega og
söng í kórum. Fyrir bragðið fór hún
bæði á náttúrufræði- og tónlistar-
braut í Menntaskólanum á Akur-
eyri. „Ég var á báðum áttum um
hvað ég vildi leggja fyrir mig en
læknisfræðin varð fyrir valinu og þá
setti ég tónlistina til hliðar,“ rifjar
hún upp. „Á þessum árum fann ég
að ég vildi hafa tónlistina með og fór
á fullt í sönginn á ný.“ Hún lauk
framhaldsnámi í söng 2014 og
stundar nú söngnám á háskólastigi
hjá Signýju Sæmundsdóttur og
Bjarna Þór Jónatanssyni í Nýja
Tónlistarskólanum í Reykjavík.
Syngur alla tónlist
Öll tónlist höfðar til Önnu Krist-
ínar. Hún segir gaman að syngja ís-
lensku sönglögin, þýsk ljóð og krefj-
andi óperuaríur til þess að læra,
stækka röddina og fá meiri dýpt en
þessa dagana æfir hún verk m.a.
eftir Jón Ásgeirsson, Jórunni Viðar,
Britten, Händel, Strauss, Fauré,
Mozart og Puccini. „Það er líka
skemmtilegt að syngja á ýmsum
tungumálum eins og til dæmis
frönsku og ítölsku. Mér finnst eig-
inlega gaman að syngja hvað sem
er, að takast á við áskoranir.“
Anna Kristín hefur sungið í
mörgum kórum, meðal annars með
Kór Akureyrarkirkju, Hymnodiu,
Kammerkór Suðurlands og Kór Sel-
tjarnarneskirkju, en syngur nú með
Söngsveitinni Fílharmoníu. Hún
hefur auk þess haldið einsöngs-
tónleika í Reykjavík og á Norður-
landi. Hún segir að læknastarfið sé
mjög krefjandi og í slíku starfi sé
nauðsynlegt að komast í aðstæður,
þar sem viðkomandi sé hér og nú.
„Söngurinn er mín núvitund og
hugleiðsla,“ segir hún. „Ég fer oft
úr streitunni í söngtíma og kem al-
veg slök til baka.“
Kammerkór Reykjavíkur nýtur
krafta Önnu Kristínar í fyrsta sinn
á tónleikunum, sem hefjast klukkan
16 á sunnudag, en skólakór Há-
teigsskóla verður í hlutverki gesta-
kórs. „Sigurður Bragason, söng-
stjóri kóranna, bað mig um að
syngja með Kammerkórnum og er
ég honum þakklát fyrir það, því það
er gaman að fá tækifæri til að koma
fram.“
Morgunblaðið/Hari
Söngvarar Anna Kristín Þórhallsdóttir með Kammerkór Reykjavíkur og skólakór Háteigsskóla.
Syngjandi heimilislæknir
Kátt um jólin með Kammerkór Reykjavíkur og Önnu Kristínu