Morgunblaðið - 19.12.2018, Síða 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 2018
Smáralind – Sími 517 0317 – www.plusminus.is
PLUSMINUS | OPTIC
Langar þig í ný gleraugu
Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170
Verið velkomin
Til jóla fyrir dömur og herra
Gjafakassar | Ilmir | Treflar | Silkislæður | Töskur
Hanskar | Skart | Peysur | Buxur | Velúrgallar
1988 - 2018
Tryggvagötu 18 - 552 0160
Gjöfin
sem vermir
Söfnum í neyðarmatar-
sjóð fyrir jólin til matarkaupa
hjá Fjölskylduhjálp Íslands
fyrir þá fjölmörgu sem lægstu
framfærsluna hafa.
Þeim sem geta lagt okkur lið
er bent á bankareikning
0546-26-6609,
kt. 660903-2590.
Fjölskylduhjálp Íslands, Iðufelli 14 Breiðholti
og Baldursgötu 14 í Reykjanesbæ.
Neyðarsöfnun í matarsjóðinn
fyrir jólin
Guð blessi ykkur öll
Stefnt er að því að framkvæmdir við
nýtt meðferðarheimili fyrir unglinga
hefjist á næsta ári í Garðabæ. Vilja-
yfirlýsing velferðarráðuneytis,
Barnaverndarstofu og Garðabæjar
um lóð fyrir heimilið var til umfjöll-
unar á fundi bæjarráðs Garðabæjar í
gær og var samþykkt að leggja til
við bæjarstjórn að samþykkja vilja-
yfirlýsinguna. Um er að ræða tíu
þúsund fermetra lóð á Vífilsstaða-
hálsi, gegnt Kjóavöllum, þar sem
reisa á þúsund fermetra húsnæði.
15-17 ára unglingar
Velferðarráðuneytið mun tryggja
Barnaverndarstofu fjármagn til
framkvæmda við byggingu meðferð-
arheimilis. Garðabær mun nú þegar
hefja vinnu við skipulag svæðisins
sem felst í að staðsetja lóðina ná-
kvæmlega.
Í viljayfirlýsingu kemur fram að
Barnaverndarstofa mun annast
starfsemi og rekstur meðferð-
arheimilisins. Gert er ráð fyrir að
þar muni verða vistaðir á vegum
barnaverndarnefnda unglingar á
aldrinum 15-17 ára sem glíma við
hegðunar- og vímuefnavanda. Jafn-
framt er gert ráð fyrir vistun ung-
linga á meðferðarheimilinu sem úr-
skurðaðir hafa verið í
gæsluvarðhald.
Fram kom í frétt í Morgunblaðinu
í sumar að fyrirætlanir um að reisa
nýtt meðferðarheimili fyrir börn á
höfuðborgarsvæðinu hafa verið í far-
vegi frá árinu 2011 . aij@mbl.is
Nýtt meðferðarheimili
verði á Vífilsstaðahálsi
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Fyrra skipið af tveimur, sem eru í
smíðum fyrir Eimskipafélagið í
Kína, var sjósett föstudaginn 14.
desember síðastliðinn. Vinna við
skipið heldur áfram og má búast við
því að það komi til Íslands eftir mitt
ár 2019, samkvæmt upplýsingum
Ólafs William Hand, upplýsingafull-
trúa Eimskips.
Skipin tvö eru stærstu vöruflutn-
ingaskip sem smíðuð hafa verið fyr-
ir Íslendinga. Nýju skipin verða
26.500 brúttótonn. Til samanburðar
eru stærstu skip Eimskips nú,
Dettifoss og Goðafoss, 14.664
brúttótonn. Þau skip voru smíðuð
árin 1995 og 1996.
Hvort um sig verða nýju skipin
2.150 gámaeiningar, 180 metrar á
lengd og 31 metri á breidd. Gang-
hraði verður 20,5 sjómílur á klukku-
stund.
Skipin verða búin aðalvélum frá
MAN. Þau verða með (TIER III)
vél sem er sérstaklega útbúin til að
draga úr útblæstri köfnunarefnis
(NOx) út í andrúmsloftið.
„Skipin munu auka afkastagetu
og áreiðanleika þjónustunnar þar
sem þau eru stærri en núverandi
skip og vel búin til siglinga á
Norður-Atlantshafi. Þau verða spar-
neytnari á hverja gámaeiningu sam-
anborið við eldri skip og verða um-
hverfisvænni vegna innbyggðs
olíuhreinsibúnaðar sem lágmarkar
brennisteinsútblástur (SOx) út í
andrúmsloftið,“ segir Ólafur Hand.
Samningsverð hvors skips nemur
um 32 milljónum dollara. Heildar-
fjárfestingin var því 7,4 milljarðar
króna miðað við gengið þegar skrif-
að var undir samningana við kín-
versku skipasmíðastöðvarnar í jan-
úar árið 2017. Miðað við gengi
dollars í dag er upphæðin tæpir 8
milljarðar. 40% af samningsverði er
greitt á smíðatíma skipanna og 60%
við afhendingu. Eimskip samdi við
þýska bankann KfW IPEX-Bank
um 80% lán vegna smíði skipanna.
Lánið er í evrum og er til 15 ára
Eimskip var stofnað árið 1914.
Félagið rekur 63 starfsstöðvar í 20
löndum í fjórum heimsálfum, er með
21 skip í rekstri og hefur á að skipa
um 1.850 starfsmönnum, samkvæmt
upplýsingum á heimasíðu fyrirtæk-
isins.
Nýtt skip Eim-
skips tilbúið
næsta sumar
Tölvumynd/Eimskip
Framtíðin Nýja skipið verður 180 metra langt og tekur 2.150 gámaeiningar.
Verður stærsta íslenska kaupskipið
Allt um
sjávarútveg