Morgunblaðið - 19.12.2018, Qupperneq 27
krakkarnir hófu sína skólagöngu öll
sama daginn, þriggja, fjögurra og sex
ára.“
Síðar tók Þóranna doktorspróf í
viðskiptafræði frá Cranfield Univers-
ity í Bretlandi.
Þóranna hefur lengi verið viðloð-
andi Háskólann í Reykjavík, hóf þar
fyrst störf við viðskiptadeild árið
1999. Hún tók hlé frá HR árið 2005
og réð sig sem framkvæmdastjóra
hjá Vistor, en svo skemmtilega vill til
að hún er nú nýsest í stjórn Veritas
sem er móðurfélag Vistor. Hún var
einn af stofnendum fjármálafyr-
irtækisins Auður Capital, sem inn-
leiddi kvenlæg gildi í fjármálaþjón-
ustu: „Ég hef aðeins verið viðloðandi
fjármálageirann síðan í gegnum
stjórnarsetu, m.a. hjá Landsbréfum
og Íslandsbanka.“
Árið 2011 fór hún aftur til starfa
við HR, fyrst sem framkvæmdastjóri
stjórnunar og síðar sem forseti við-
skiptadeildar. Frá ársbyrjun 2017
hefur hún rekið eigið ráðgjafarfyr-
irtæki, Delta-ráðgjöf. Þar vinnur hún
að breytingastjórnun, stefnumótun
og eflingu stjórnendahæfni hjá fyr-
irækjum og stofnunum, auk þess að
halda stjórnendanámskeið á vegum
HR.
„Ég hef ekki mikinn tíma fyrir
áhugamál, en hef talsverðan áhuga á
fólki. Ég reyni að átta mig á mark-
miðum þess, þankagangi, afstöðu og
atferli. Skilningur og áhugi á fólki er
grundvallar forsenda árangursríkra
breytinga, stjórnendur þurfa að átta
sig á því hvað hvetur starfsfólk til
dáða.“
Í frítímanum vill Þóranna helst
vera úti við og ferðast talsvert um
landið með eiginmanni sínum. Uppá-
haldsstaðurinn er þó fjaran við
Stokkseyri þar sem þau eiga 130 ára
gamalt hús við fjörukambinn. „Það er
það besta sem ég hef nokkru sinni
keypt fyrir peninga“ – segir hún.
Skíðaferðir eru líka fastur liður: „Ég
er eiginlega alveg skíthrædd og frek-
ar léleg á skíðum, en þetta er fín úti-
vera svo ég læt mig hafa það.“
Afmælisbarnið hefur verið að
halda upp á afmælið allt árið og ætlar
að halda því áfram langt fram á
næsta ár: „Afmælisárið hófst á fjöl-
skylduferð á skíði, því næst tók við
ferð með menntaskólavinkonunum í
sólina, en framundan er svo fjöl-
skylduferð til Kambódíu.“
Fjölskylda
Eiginmaður Þórönnu er Júlíus
Guðmundsson, f. 25.1. 1968, verk-
efnastjóri í krabbameinsrannsóknum
hjá Íslenskri erfðagreiningu. For-
eldrar hans: Guðleif Pétursdóttir, f.
7.5. 1927, d. 14.5. 1995, matráðskona,
og Guðmundur Júlíusson, f. 22.3.
1927, d. 7.8. 2002, trésmiður.
Börn Þórönnu og Júlíusar eru 1)
Tindur Hrafn Júlíusson, f. 11.8. 1990,
tölvunarfræðingur; 2) Skorri Júl-
íusson, f. 14.5. 1992, tölvunarfræð-
ingur, unnusta hans er Lára Kristín
Þorvaldsdóttir verkfræðingur, og 3)
Viðja Karen Júlíusdóttir f. 19.9. 1993,
verkfræðingur, unnusti hennar er
Rúnar Arnórsson, BSc. í sálfræði og
landsliðsmaður í golfi.
Albróðir Þórönnu: Ingvar Mar, f.
12.8. 1973, flugstjóri hjá Icelandair
og oddviti framsóknarmanna í
Reykjavík.
Hálfsystur Þórönnu, samfeðra, eru
Erna Heiðrún, f. 18.6. 1984, lögfræð-
ingur við regluvörslu hjá Kviku
banka, og Arna Margrét, f. 31.7.1990,
tónlistarmaður og nemi við King’s
College í London.
Móðir þeirra er: Jóna Guðrún
Oddsdóttir, f. 1951.
Foreldrar Þórönnu: Sigríður Ingv-
arsdóttir, f. 18.7. 1949, lögfræðingur,
og fv. héraðsdómari í Reykjavík, bú-
sett í Reykjavík, og Jón Mar Þór-
arinsson, f. 3.6. 1950, d. 29.6. 2018,
lengst af kennari við Fellaskóla, var
búsettur í Garðabæ.
Þóranna Jónsdóttir
Sigbjörn Björnsson
form. í Ekru
Þóranna Jónsdóttir
húsfr. í Ekru í
Vestmannaeyjum
Þórarinn Sigbjörnsson
fiskmatsm. í Grindavík
Jón Mar Þórarinsson
kennari í Garðabæ
Margrét Sveinsdóttir
fiskmatsm. í Grindavík
Sveinn Benediktsson
b. á Borgareyri
Steinunn Þorsteinsdóttir
húsfr. á Borgareyri í Mjóafirði
Valgerður Þórarinsdóttir
húsfr. í Kópavogi
Elín Sigurðardóttir kennari og fv. oddviti
í Lýtingsstaðahreppi í Skagafirði
Dóra Stefánsdóttir sérfræðingur hjá RANNÍS
Sveinn Þórarinsson b. í
Kolsholti í Villingaholtshreppi
Þórarinn Sveinsson
prófessor við HÍ
Sveinn Þórarinsson
hagfræðingur hjá
Landsbankanum
Helga Margrét
Sveinsdóttir
bókari
Anton Sveinn
McKee sundkappi
Sveinn
Þórarinsson
vélvirki á
Selfossi
Ólöf Þórarinsdóttir
kennari í Rvík
Jóhanna Harpa Árnadóttir
verkfræðingur og stundakennari
við HR
Ágúst Þór Árnason
aðjunkt við HA
Sigurður Ingvarsson
prófessor við HÍ og
orstöðum. á Keldumf
Lárus Sigurðsson
(Lalli Sig.) ljósmyndari
Ingvar Mar Jónsson
flugstj. og oddviti
framsóknarmanna í Rvík
Jórunn Ásmundsdóttir
húsfr. í Efstadal
Sigurður Sigurðsson
b. í Efstadal í
Laugardalshreppi
Ingvar Sigurðsson
sérleyfishafi í Rvík
Guðlaug Þórarinsdóttir
framkvstj. í Rvík
Þórarinn Auðunsson
b. í Fagurhlíð og Láguhlíð
Elín Sveinsdóttir
húsfr. í Fagurhlíð í Landbroti
og Láguhlíð í Mosfellssveit
Úr frændgarði Þórönnu Jónsdóttur
Sigríður Ingvarsdóttir
héraðsdómari í Rvík
ÍSLENDINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 2018
Alfreð Flóki fæddist í Reykja-vík 19.12. 1938, sonur Guð-rúnar Guðmundsdóttur og
Alfreðs Nielsen.
Alfreð Nielsen var danskur í föð-
urætt, sonur Niels Christians Niel-
sen sem vann hjá Sameinaða gufu-
skipafélaginu, DFDS, en móðir hans
hét Guðlaug Ólafsdóttir. Guðrún var
af hinni frægu listamannaætt sem
kennd er við Jötu í Ytrihreppi en
meðal afkomenda þaðan má nefna
listamennina Einar Jónsson mynd-
höggvara, Hörð Bjarnason húsa-
meistara, Nínu Tryggvadóttur, Gest
Þorgrímsson, Jón Óskar Haf-
steinsson, Eirík Smith og Sóleyju,
dóttur hans.
Alfreð giftist Anette Bauder Jen-
sen árið 1963 og eignuðust þau son-
inn Axel Darra Flókason, f. 1964,
eina barn Flóka. Flóki og Anette
Bauder skildu en unnusta hans síðari
árin var Ingibjörg Alfreðsdóttir.
Flóki var í Austurbæjarskólanum,
Miðbæjarskólanum og Gaggó Vest
þar sem Jóhann Briem var teikni-
kennari hans og hvatti hann mjög til
dáða á listabrautinni. Hann stundaði
nám við Handíða- og myndlistarskól-
ann í Reykjavík, við Kúnstakadem-
íuna í Kaupmannahöfn og lærði m.a.
hjá Hjorth Nielsen prófessor. Að
námi loknu hélt Flóki heim til Íslands
en var mikið í Danmörku næstu árin
og dvaldi tæpt ár í Bandaríkjunum.
Flóki var undrabarn í myndlist, án
efa fremsti teiknari þjóðarinnar og
þótt víðar væri leitað. Mörg verka
hans eru tilvísun í evrópskar hryll-
ingsbókmenntir, súrrealískar blek-
teikningar, hlaðnar táknhyggju, róm-
antík, sterkum kynórum og angist
undirvitundar. Í handbragði og stíl
sótti hann mjög í súrrealisma og í
symbólisma 19. aldar.
Flóki var hlédrægur en skemmti-
legur og elskulegur í viðmóti og snill-
ingur í tilsvörum við fjölmiðlafólk og
menningarvita. Um hann hafa komið
út hefti eftir Jóhann Hjálmarsson,
bók eftir Aðalstein Ingólfsson og
endurminningar eftir Nínu Björk
Árnadóttur.
Flóki lést 18.6. 1987.
Merkir Íslendingar
Alfreð
Flóki
90 ára
Aðalheiður Árnadóttir
Kristín Björg Jóhannesdóttir
Lilja Jónsdóttir
85 ára
Álfhildur Ingimarsdóttir
Guðni Guðmundsson
Guðrún Árnadóttir
Jónína Árnadóttir
Magni Guðmundsson
80 ára
Yngvi Örn Guðmundsson
75 ára
Ingibjörg Þórarinsdóttir
70 ára
Ásmundur Karlsson
Ellen Margrét
Þorvaldsdóttir
Guðmundur Stefánsson
Guðný Sigurðardóttir
Hjörleifur Gíslason
Sigurður Ásgeirsson
Smári Júlíusson
Örn Fossberg Kjartansson
60 ára
Anna Eygló Rafnsdóttir
Anny Deslijati Oesmansd.
Elín Elísabet Baldursdóttir
Erna Björg Baldursdóttir
Helga Hrönn Elíasdóttir
Hrefna Yngvadóttir
Ingólfur Kristjánsson
Jóna Margrét Kristinsdóttir
Jórunn Guðsteinsdóttir
Ólafur Þorri Gunnarsson
Rósa Hallgeirsdóttir
Sigurgeir S. Jóhannsson
Stefán Pétur E. Árnason
Þórunn Úrsúla
Steinarsdóttir
50 ára
Brjánn Fransson
Dagmar Lilja Marteinsdóttir
Hildur Hólmfríður Pálsdóttir
Jóhann Halldórsson
Jón Ólafur Ragnarsson
Kristján G. Jóhannsson
Sigríður B. Einvarðsdóttir
Svanhildur Bragadóttir
Yueping Zhou
Þóranna Jónsdóttir
40 ára
Andri Kristjánsson
Benjamín Sigurgeirsson
Bjarki Már Gunnarsson
Brynjar Már Valdimarsson
Karl Kvaran
Kristín Lillý Kjærnested
Rut Erla Magnúsdóttir
Sylwia Jolanta Roczkowska
Wassim Mansour
Þóra Matthildur Þórðardóttir
30 ára
Aldís Hauksdóttir
Anna S. Lampart Jurkowska
Arnar Snævar Eggertsson
Birna Kristmundsdóttir
Craig Fraser
Erika Jensen
Friðrik Rafn Friðriksson
Jenný Grettisdóttir
Jökull Másson
Kristján Jónsson
Pernille Ahlmann Jensen
Snædís Snorradóttir
Til hamingju með daginn
30 ára Snædís lauk prófi
frá Kvikmyndaskóla Ís-
lands og er í dagskrár-
gerð og framleiðandi hjá
Hringbraut.
Maki: Arne Kristinn Arne-
son, f. 1981, leikstjóri.
Dætur: Ísold Orka, f.
2009, og Sóldís Skjald-
mey, f. 2016.
Foreldrar: Snorri Guð-
mundsson, f. 1962, meist-
ari, og Bryndís Krist-
insdóttir, f. 1965,
drottning.
Snædís
Snorradóttir
30 ára Jenný býr á Ak-
ureyri, lauk BSc-prófi í
viðskiptafræði frá HA og
er verkefnastjóri hjá Net-
kerfi og tölvum ehf.
Maki: Georg Gunn-
laugsson, f. 1987, húsa-
smiður.
Börn: Grettir, f. 2012, og
Sandra, f. 2015.
Foreldrar: Grettir Örn Frí-
mannsson, f. 1952, kjöt-
iðnaðarmaður, og Mar-
grét Þórðardóttir, f. 1952,
d. 2014, bókari.
Jenný
Grettisdóttir
30 ára Erika ólst upp á
Akureyri, býr þar, lauk
stúdentsprófi frá VMA og
starfar hjá fyrirtækinu B.
Jensen.
Maki: Óli Hjálmar Ólason,
f. 1987, vélstjóri.
Synir: Óli Bjarni Ólason,
f. 2011, og Erik Ingi Óla-
son, f. 2016.
Foreldrar: Erik Jensen, f.
1961, framkvæmdastjóri,
og Ingibjörg Stella Bjarna-
dóttir, f. 1961, fram-
kvæmdastjóri.
Erika
Jensen
Hægt er að
sendamynd og texta
af nýjum borgara eða
brúðhjónum af slóðinni
mbl.is/islendingar
eða á netfangið
islendingar@mbl.is