Morgunblaðið - 19.12.2018, Side 20

Morgunblaðið - 19.12.2018, Side 20
20 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 2018 SMÁRALIND www.skornirthinir.is Jólaskór Verð 8.995 Dömustærðir 36-41 Hveragerði er vin- sæll bær til búsetu enda njóta íbúar ná- lægðar við höf- uðborgarsvæðið en einnig lífsgæða landsbyggðarinnar. Íbúum í Hveragerði hefur fjölgað um 857 frá því árið 2000 eða um 48,8%. Íbúafjölg- un í Hveragerði er stöðug og eru íbúar þar nú 2.627. Álagningarpró- sentur lækka Bæjarstjórn Hveragerðisbæjar hefur tekið ákvörðun um að mæta hækk- uðu fasteignamati og lækka álagning- arprósentur fast- eignagjalda á íbúðar- og atvinnuhúsnæði (A og C flokk). Álagningarprósenta fasteignaskatts á húsnæði í A- flokki lækkar úr 0,40% í 0,36% og lóðarleiga úr 0,9% í 0,75%. Álagn- ingarprósenta fasteignaskatts á atvinnuhúsnæði lækkar úr 1,6% í 1,5% og lóðarleiga úr 1,7% í 1,5%. Umtalsverð lækkun á álagning- arprósentu mun einnig verða vegna vatnsgjalds og holræsa- gjalds. Ríflega 150 íbúðir í byggingu Framboð húsnæðis mun stór- aukast strax á næsta ári en fram- kvæmdir eru hafnar eða við það að hefjast við 156 íbúðir í bæj- arfélaginu. Á árinu 2019 munu þær íbúðir byrja að koma inn á markaðinn þannig að ljóst er að íbúafjölgun verður veruleg á næstu misserum. Stærsta einstaka fjárfesting ársins 2019 er viðbygging við Grunnskólann í Hveragerði en bæjarfélagið státar af einstaklega góðu skólastarfi bæði í leik- og grunnskóla. Glæsilegur sex deilda leikskóli er nýtekinn til starfa og býðst börnum í bæjarfélag- inu leikskólapláss frá 12 mánaða aldri. Á komandi ári verð- ur ráðist í mikla gatnagerð vegna nýrra hverfa en fram- kvæmdir munu hefjast á vormánuðum við fyrsta áfanga í svo- kölluðu Kambalandi. Þar verður þá fljót- lega hægt að úthluta fjölda lóða fyrir ein- býlis-, rað- og fjöl- býlishús. Nýtt iðnaðarhverfi með mikla mögu- leika Unnið er að upp- byggingu nýs iðn- aðarhverfis neðan Suðurlandsvegar og þar munu á næsta ári rísa mörg iðnaðarhús þar sem skapast munu fjölbreytt atvinnutækifæri. Á næsta ári munu enn fleiri lóðir standa þar áhugasömum til boða. Bæjarstjórn stendur einhuga að gerð fjárhagsáætlunar eins og undanfarin ár en ljóst er að breyt- ingar munu verða á bæjarfélaginu þegar fjöldi nýrra íbúa mun bæt- ast í hóp Hvergerðinga á næstu misserum. Áskoranir sem fylgja fjölgun íbúa eru ánægjulegar. Hvergerð- ingar hafa ítrekað skipað bæjar- félaginu í hóp bestu bæjarfélaga landsins þegar spurt hefur verið um ánægju íbúa. Ánægðir íbúar eru besti vitnisburður þess að vel hafi tekist til við rekstur bæj- arfélagsins. Í þannig sveitarfélagi er gott að búa. Íbúum fjölgar fyrir austan fjall Eftir Aldísi Hafsteinsdóttur Aldís Hafsteinsdóttir » Fram- kvæmdir eru hafnar eða við það að hefj- ast við 156 íbúð- ir í Hveragerði. Búast má því við verulegri íbúa- fjölgun á næstu misserum. Höfundur er bæjarstjóri Hveragerðisbæjar. aldis@hveragerdi.is Það eru tveir guð- spjallamenn sem geyma heimildirnar um fæð- ingu hans í Betlehem, þeir Matteus og Lúkas. En hvað vitum við í raun og veru um sagn- fræðilegt gildi þessara frásagna? Um það er deilt um hver jól? Samkvæmt Biblíunni fæddist Jesús á meðan Heródes mikli var lepp- konungur Rómverja í Ísrael. Nú er það svo að Heródes dó árið fjögur fyrir Krist. Matteus segir svo frá að Heródes hafi sent hermenn til Betle- hem til að myrða öll sveinbörn tveggja ára og yngri, eftir að hann hafði fengið fréttina af fæðingu meistarans. Þess vegna hlýtur Jesús að hafa fæðst að minnsta kosti 5-6 ár- um fyrir tímatal okkar, 5-6 árum fyrir fæðingu sína! „Fæðing Jesú“ er hug- tak sem er notað í sambandi við tíma- tal. Við teljum frá fæðingu Jesú, „á því Herrans ári“ eins og sagt er. Þetta hugtak er ekki sagnfræðilegt heldur tilbúið, tímapunktur sem menn ákváðu í byrjun 6. aldar. Þá misreiknuðu menn sig um 5-6 ár. Dionysius Exiguus hét sá er var falið þetta reiknihlutverk. Hann bjó í Róm. Áður höfðu Rómverjar gefið ár- unum tölu og heiti miðað við upphaf Rómaborgar eða heiti rómversku keisaranna. Eftir árið 500 var miðað við fæðingu Jesú. En fæðingarár hans var fest við árið 754 frá upphafi Rómaborgar – sem er sem sagt nokkrum árum of seint. Guðspjallamaðurinn Lúkas segir að Jesús hafi fæðst árið sem Kýre- níus var landstjóri í Sýrlandi og kall- aði alla til skráningar fyrir hönd Ágústusar keisara. Eitthvað ruglar Lúkas þar saman árum því Kýreníus varð fyrst landstjóri í Sýrlandi árið 6 eftir Krist. Líklegast hefur Jesús þá verið orðinn 12 ára gamall. Svo aftur sé nú vikið að guðspjöll- unum tveimur eftir þá Matteus og Lúkas, þá ber frásögnum þeirra af fæðingu Jesú og uppruna hans á eng- an hátt saman. Það eina sem þeir virðast vera sammála um er að María hafi verið meyja, trúlofuð Jósef, sem var ekki líffræðilegur faðir barnsins – og að Jesús hafi fæðst í Betlehem. Matteus læt- ur til dæmis fjölskyldu Jesú koma frá Betle- hem. Hvergi minnist Matteus á fjárhús eða skráningu skatta- yfirvalda. Þegar stjörnuspekingarnir hans koma til Betlehem til að heiðra barnið, ganga þeir beint „inn í húsið“ (Matt. 2:11). Stjörnuspekingarnir (vitringarnir) og sér í lagi stjarnan sem þeir fylgdu, hafa reyndar verið tilefni mik- illa vangaveltna í gegnum aldirnar. Hvað var eiginlega þessi stjarna, jóla- stjarnan sem blikar yfir Betlehem? Það er ekki gott að segja, en hitt er staðreynd að halastjarna sást á himn- inum um tveggja mánaða skeið árið 5 fyrir Krist – eða með öðrum orðum um það leyti sem Matteus segir frá að Jesús hafi fæðst. Samkvæmt því sem kínverskir stjörnuspekingar segja var ferill hennar skráður að vori, í mars til apríl – en á þeim tíma hefur Jesús þá líklegast fæðst. Sögunum um fæðingu Jesú í guð- spjöllunum er þannig ekki ætlað að flytja sagnfræðilega annála, heldur leiða okkur í sannleikann um að Jesús sé Frelsarinn, Kristur og Drottinn. Líklegast fæddist Jesús í Nasaret. Pabbi hans hét kannski Jósef. Móðir Jesú hét María – eða Mirijam – lík- lega fæddist Jesús árið 6-4 fyrir Krist. Að vori. Alla vega örugglega ekki 25. desember. Annað vitum við ekki um fyrstu æviár Jesú, bernsku og æsku – í raun og veru – ekki fyrr en hann kemur til Jóhannesar skírara fullorðinn maður og lætur skírast í ánni Jórdan. En þar hefst einmitt Jó- hannesarguðspjall. En 25. desember er fæðingarhátíð Krists samkvæmt kirkjunni í hinu gamla Rómverska ríki. Sú kirkja varð seinna Rómversk-kaþólska kirkjan og lútersku kirkjurnar, þar með ís- lenska þjóðkirkjan, eru sprottnar frá henni. 25. desember hafði verið hátíð hinnar miklu sólar í hinni fornu Róm fyrir daga Jesú. Rök kirkjunnar fyrir að helga þann dag fæðingunni voru þau að Jesús hefði verið fullkominn maður og því hlyti hann að hafa verið getinn á fullkomnum degi. 25. mars var talinn fullkomnasti dagur ársins í Rómaveldi, því þá var álitið að heim- urinn hefði verið skapaður. Jesús hlaut því að hafa verið getinn þann dag. Sem þýddi að hann hlaut að hafa fæðst níu mánuðum síðar, 25. desem- ber. Auk þess er Jesús hin nýja sól heimsins og því vel við hæfi að fagna honum á hinum forna hátíðisdegi sól- arinnar. Aðfangadagur, 24. desember, verð- ur dagur fæðingarhátíðarinnar hjá okkur því það er eini dagur ársins þar sem miðað er við hið forna dagatal Gyðinga. Að sögn Gyðinga byrjar nýr dagur klukkan 18 að kveldi. Þannig hefst 25. desember klukkan 18 hinn 24. desember, – en einmitt þá hringj- um við jólin inn á Íslandi! Gleðileg jól! Hvenær fæddist Jesús? Eftir Þórhall Heimisson » Þannig hefst 25. desember klukkan 18 hinn 24. desember – en einmitt þá hringjum við jólin inn á Íslandi! Gleðileg jól! Þórhallur Heimisson Höfundur er prestur og starfar í Svíþjóð. Að undanförnu hef- ur talsvert verið rætt og ritað um verndun íslenskrar tungu. Flestir sem látið hafa til sín heyra hafa haft skilning á því að tungumálið er það sem raunverulega skil- greinir okkur og sam- einar sem þjóð. Án tungumálsins myndum við einfaldlega hverfa í þjóðahafið. Einn af mörgum þáttum sem heyra til þessarar umræðu eru nafn- giftir. Það hefur varla farið fram hjá neinum að nöfn á verslunum og fyr- irtækjum hérlendis eru í vaxandi mæli erlend en ekki íslensk. Ágæt ís- lensk nöfn hafa verið látin víkja fyrir erlendum. Til dæmis er heitið Víf- ilfell horfið úr símaskrá en í staðinn er kominn langhundurinn „Coca- Cola European Partners Ísland ehf.“ Er þó ekki vitað til þess að íslenska nafnið hafi reynst hindrun í vegi hins víðfræga drykkjar. Annað dæmi og síst betra er Icelandair (sem ég rita gjarna Æslander). Stjórnendur þess fyrirtækis áttu í förum sínum tvö ágæt nöfn, Flugleiðir og Loftleiðir, en höfnuðu báðum. Nafnið Loftleiðir hafði áunnið sér viðurkenningu er- lendis og var þekkt meðal þeirra sem flogið höfðu yfir Atlantshaf með við- komu á Íslandi. Það hefur fengið að halda sér á leiguflugvélum dóttur- félags Icelandair og lengi vel mátti sjá það á hóteli við Reykjavíkur- flugvöll. Á endanum varð þó hótel- nafnið að víkja fyrir öðrum lang- hundinum: „Icelandair Hótel Reykjavik Natura“. Til sam- anburðar má benda á, að Þjóðverjar hafa ekki séð ástæðu til að breyta nafni flugfélagsins Lufthansa og færa það í enskt eða latneskt form. Það sem áður hét því ágæta nafni Hótel Esja heitir nú „Hilton Reykjavik Nor- dica“. Þegar mikill hót- elturn var reistur við Sigtún fékk hann nafnið Grand Hótel Reykjavík og var merktur GRAND stórum stöf- um. Orðið „grand“ hef- ur vissulega merkingu í íslensku máli. Orðabók segir að merkingin sé háski, mein, dauði eða tjón. Vonandi er það ekki slæmur fyrirboði líkt og nafnið „Wow Air“, sem í fram- burði varð „Vá er“ og boðaði greini- lega ekkert gott. Í fréttum dagblaða er oft erfitt að ráða í það hvort verið er að fjalla um íslensk fyrirtæki eða erlend. Nýlega sá ég viðskiptafrétt þar sem fjögur fyrirtæki voru nefnd til sögunnar en ekkert þeirra með íslensku nafni. Eitt þessara fyrirtækja var „Origo“, sem áður hét því ágæta nafni „Ný- herji“. Origo er latína og því óneit- anlega talsvert fínna heiti en enska orðið „origin“, sem hefði þó haft þann kost að margir hefðu skilið merkinguna og jafnvel fundið þar tengingu við gamla íslenska nafnið. Vonandi kemur sá tími að eig- endur fyrirtækja sjái metnað sinn í því að velja íslensk nöfn í stað hinna erlendu. Fyrsta skrefið gæti verið það að sýna íslenskt nafn samhliða hinu erlenda þar sem því verður við komið. Eftir Þorstein Sæmundsson Þorsteinn Sæmundsson » Vonandi kemur sá tími að eigendur fyrirtækja velji þeim íslensk nöfn í stað erlendra. Höfundur er stjörnufræðingur. halo@hi.is Nokkur orð um nafngiftir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.