Morgunblaðið - 19.12.2018, Page 16

Morgunblaðið - 19.12.2018, Page 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 2018 Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is KIA SPORTAGE EX nýskr. 03/2017, ekinn 58 Þ.km, diesel, sjálfskiptur. Flott eintak! TILBOÐSVERÐ 3.660.000 kr. Raðnúmer 258417 AUDI A3 E-TRONDESIGN nýskr. 06/2017, ekinn 23 Þ.km, bensín/rafmagn, sjálfskiptur. Talsvert af aukahlutum, glæsilegt eintak!Verð 4.190þkr. TILBOÐ 3.990.000 kr. Raðnr 258730 ÓSKUM EFTIR BÍLUMÁ SÖLUSKRÁ - LAUS STÆÐI HONDA CR-V EXCECUTIVE nýskr. 02/2008, ekinn 133 Þ.km, bensín, sjálfskiptur, leður, einn eigandi. Verð 1.390.000 kr. Raðnúmer 258884 TOYOTA LAND CRUISER 150 GX 35“ nýskr. 06/2014, ekinn 82 Þ.km, dísel, sjálfskiptur, nýlega 35“ breyttur. Verð 7.440.000 kr. Raðnúmer 258819 FORD F350 KING RANCH 4X4 nýskr. 01/2008, ekinn 174 Þ.km, dísel, sjálfskiptur, pallhús, 35“ dekk. Verð 3.490.000 kr. Raðnúmer 288297 Bílafjármögnun Landsbankans BAKSVIÐ Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is „Þessi fjárfesting gefur okkur tæki- færi til að halda áfram að þróa okkar vöru og taka næstu skref í markaðs- setningunni,“ segir Kristinn Aspel- und fram- kvæmdastjóri hugbúnaðarfyrir- tækisins Ankeris, í samtali við Morgunblaðið, en í gær var sagt frá því að Nýsköpun- arsjóður atvinnu- lífsins, NSA, hefði keypt 12% hlut í fyrirtækinu fyrir 60 milljónir króna. Aðrir hluthafar eru stærstir þeir Kristinn sjálfur og meðstofnandi hans Leifur A. Kristjánsson. „Við erum búnir að gefa út okkar fyrstu vöru og viðtökur hafa verið mjög góðar. Það er frábært að fá svona góðan samstarfsaðila fyrir næstu skref,“ bætir Kristinn við. Hann segir að fjárfesting NSA geri fyrirtækinu, sem er tveggja ára gamalt, nú kleift að fjölga starfs- mönnum, en næg verkefni eru fram- undan að sögn Kristins, og hug- myndirnar mýmargar. Þrír starfa í dag hjá félaginu. Auka rekstrarhagkvæmni Hugbúnaður Ankeris er eins kon- ar samskiptalausn, eins og Kristinn lýsir henni, sem gefur eigendum og leigjendum flutningaskipa færi á að miðla upplýsingum sín á milli, eink- um um rekstrarhagkvæmni skip- anna. „Lausnin okkar hjálpar til við að sýna fram á að aukið verðmæti liggi í hagkvæmari skipum,“ segir Kristinn. Til nánari útskýringar segir hann að varan nýti upplýsingar frá lausn- um sem fyrir eru í flutningaskipum og hjálpar skipaeigendum að miðla þeim til viðskiptavina sinna, eins og til dæmis hugbúnaðarlausn íslenska hugbúnaðarfyrirtækisins Marorku sem hönnuð er til að lækka rekstrar- kostnað skipa. Þeir Kristinn og Leif- ur eru báðir fyrrverandi starfsmenn Marorku. Ankeri er nú þegar farið að hafa tekjur af vörunni, en stór alþjóðleg- ur flutningarisi hóf notkun lausnar- innar nú í haust. „Það samstarf hef- ur gengið vonum framar. Við erum farnir að sjá hugmyndir okkar raun- gerast í því samstarfi.“ Aðspurður segir Kristinn að fyrir- tækið hafi enga íslenska viðskipta- vini. Minni útblástur flotans Í tilkynningu sem gefin var út í til- efni af kaupum Nýsköpunarsjóðs segir að Ankeri starfi á alþjóðlegum skipamarkaði, sem ábyrgur sé fyrir um 90% af öllum vöruflutningum heimsins. Einnig segir að markmið Ankeris sé að verða fyrsta fyrirtæk- ið á markaði til að tengja saman hagsmuni eigenda og leigjenda skipa með bættri upplýsingagjöf, betri orkunýtingu og minni út- blæstri skipaflotans. „Þannig verður búinn til vettvangur, sem viður- kenndur er á alþjóðavísu, þar sem upplýsingum um hagkvæmni skipa er safnað saman og þær tengdar við frammistöðuábyrgðir í þeim samn- ingum sem gilda milli eigenda og leigjenda skipa. Sú tækni sem An- keri er að þróa miðar að því að eig- endur skipa geti markaðssett þau út frá rekstrarhagkvæmni og að leigj- endur geti valið skip út frá viður- kenndum upplýsingum um getu, rekstur, umhverfisáhrif og fleiri þætti.“ Í fararbroddi enn á ný Huld Magnúsdóttir, framkvæm- dastjóri NSA segir í tilkynningunni að með fjárfestingunni lýsi sjóðurinn yfir tiltrú á verkefninu og þeim sem að því standa. „Við höfum um árabil fylgst með þeim Leifi og Kristni í störfum sínum og vitum að þeir búa yfir mikilli þekkingu og reynslu af alþjóðlegum skipamarkaði. Með þeim tæknilausnum sem þeir eru nú að vinna að er það von okkar að enn á ný verði íslensk tæknifyrirtæki í farabroddi þegar kemur að alþjóð- legum úrlausnarefnum.“ Ankeri vex með fé NSA AFP Flutningar Hugbúnaður Ankeri er eins konar samskiptalausn fyrir skip.  Þróa samskiptalausn fyrir eigendur og leigjendur flutningaskipa  Munu fjölga starfsmönnum  Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins hefur fylgst lengi með Ankeri Sparnaður » Ankeri starfar á alþjóðlegum skipamarkaði, sem ábyrgur er fyrir um 90% af öllum vöru- flutningum heimsins. » Framkvæmdastjóri NSA segir fjárfestinguna lýsa tiltrú á verkefninu. Kristinn Aspelund Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á þær versni á næstu sex mánuðum. Skortur á starfsfólki er lítill, sam- kvæmt niðurstöðum könnunarinnar, eða svipaður og á árunum 2012- 2014, og áformuð er töluverð fækk- un starfsfólks. Verðbólguvæntingar stjórnenda fara vaxandi samkvæmt könnun- inni, en að jafnaði er búist við 4% verðbólgu á næstu 12 mánuðum í stað 3% í fyrri könnunum á þessu ári. tobj@mbl.is Niðurstöður nýrrar Gallupkönn- unar fyrir Samtök atvinnulífsins meðal stjórnenda 400 stærstu fyr- irtækja landsins gefa til kynna mun lakara mat á aðstæðum í atvinnulíf- inu en þessi reglubundna könnun hefur sýnt síðan árið 2014. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá SA. Þar segir einnig að einungis fjórð- ungur stjórnendanna telji aðstæður góðar og tveir þriðju hlutar telji að 400 stærstu áforma fækkun á fólki  Gallupkönnun sýnir að verðbólguvænt- ingar fara vaxandi meðal stjórnenda Morgunblaðið/Ómar Störf Bjartsýni síðustu ára virðist heyra sögunni til samkvæmt könnuninni. ● Bréf Marel lækkuðu um ríflega 2% í Kauphöll Íslands í gær. Viðskipti með bréf félagsins námu 873 milljónum króna. Miðað við heildarviðskipti með bréf félaga á aðallista Kauphallarinnar stóðu viðskipti með bréf Marel undir 30% af heildarveltunni sem nam 2,9 milljörðum króna. Næstmest voru viðskipti með bréf Reita sem hækkuðu um ríflega 1% í 631 milljónar króna viðskiptum. Þá var velta með bréf Festar 275 milljónir króna. Lækkuðu bréf félagsins um 0,8% í við- skiptunum. Bréf Icelandair Group hækkuðu um tæp 1,7% í 218 milljóna viðskiptum. Marel lækkaði um 2% í talsverðum viðskiptum ● Verslunarfyrirtækið Samkaup hefur kært ákvörðun Samkeppniseftirlitsins um að heimila samruna Haga hf., Olíu- verzlunar Íslands hf. og DGV ehf. Er ákvörðunin kærð til áfrýjunarnefndar samkeppnismála og krefst fyrirtækið þess að samruninn verði ógiltur og honum sett strangari skilyrði en þau sem fram koma í sátt Samkeppniseft- irlitsins við Haga hf. Áfrýjunarnefnd samkeppnismála mun taka málið til efnislegrar meðferðar. Í tilkynningu Haga til Kauphallar Íslands segir að ekki liggi fyrir hversu langan tíma af- greiðsla málsins muni taka hjá nefnd- inni. Samkeppniseftirlitið samþykkti 29. nóvember síðastliðinn samruna fyrir- tækjanna með ákveðnum skilyrðum. Tilkynnt var um það 26. apríl í fyrra að Hagar hefðu fest kaup á öllu hlutafé Ol- ís og DGV ehf. Samkaup hafa kært samruna Olís og Haga STUTT 19. desember 2018 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 122.66 123.24 122.95 Sterlingspund 154.64 155.4 155.02 Kanadadalur 91.63 92.17 91.9 Dönsk króna 18.618 18.726 18.672 Norsk króna 14.232 14.316 14.274 Sænsk króna 13.547 13.627 13.587 Svissn. franki 123.16 123.84 123.5 Japanskt jen 1.0818 1.0882 1.085 SDR 169.4 170.4 169.9 Evra 139.01 139.79 139.4 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 170.2533 Hrávöruverð Gull 1239.1 ($/únsa) Ál 1937.0 ($/tonn) LME Hráolía 60.25 ($/fatið) Brent

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.