Morgunblaðið - 19.12.2018, Side 18

Morgunblaðið - 19.12.2018, Side 18
18 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 2018 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Keppnis-íþróttumgetur fylgt mikill þrýstingur og álag. Iðulega er eins og íþrótta- menn séu undir smásjá og fylgst sé með hverri einustu hreyfingu. Minnstu mistök magnast upp og það get- ur þurft sterk bein til að þola álagið, sama hvað hæfileikarnir eru miklir. Í sunnudagsblaði Morgun- blaðsins var fjallað um myrkrið í sparkheimum í framhaldi af því að Ingólfur Sigurðsson knattspyrnumaður ákvað að leggja skóna á hilluna aðeins 25 ára að aldri. Hann greindi frá því í viðtali við sunnudagsblað Morgunblaðsins árið 2014 að hann hefði glímt við kvíða- röskun frá barnsaldri. Nú segir hann að sér finnist fortíðin vinna gegn sér. Hann hefði lagt mikið á sig til að láta drauminn um að spila fótbolta í efstu deild á Íslandi rætast, en hvergi fengið tækifæri. Í blaðinu á sunnudag var í framhaldi spurt hvort knatt- yspyrnumenn, sem hefðu átt eða ættu við kvíðaröskun, þung- lyndi eða önnur andleg veikindi að stríða sætu almennt ekki við sama borð og aðrir leikmenn á Íslandi. Viðmælendur blaðsins segja að hér sé vissulega vandamál á ferð, en hins vegar hefur margt verið gert til að bregðast við og áfram er unnið að því að bæta úr. Viðar Halldórsson, dósent í félagsfræði við Háskóla Ís- lands, segir að það sé einfald- lega erfiðara að fá tækifæri hafi menn fengið einhvers konar stimpil. Það eigi ekki aðeins við um andleg veikindi. Þá sé hætt við að menn byrgi inni hluti þegar þeir sjái hvernig fari fyrir öðrum. „Fyrir liggur til dæmis að samkyn- hneigðir knatt- spyrnumenn koma ekki út úr skápnum fyrr en ferillinn er búinn og sama máli gengir um andleg veikindi; menn hafa forðast að ræða þau af ótta við að verða stimplaðir,“ segir hann. „Sumir líta á veik- indi af þessu tagi sem veik- leikamerki og hafi þau leitt til vandamála hjá fyrri félögum getur verið á brattann að sækja.“ Klara Bjartmarz, fram- kvæmdastjóri KSÍ, talar um vitundarvakningu hjá KSÍ um andleg veikindi íþróttamanna. Umfjöllun um andlega heilsu sé orðin hluti af fræðslustarfi og þjálfaranámskeiðum sambands- ins. Hún viðurkennir hins vegar að andleg veikindi hafi verið feimnismál í knattspyrnu rétt eins og samkynhneigð og spyr: „Kannski er það eitthvað að breytast núna?“ Hér á landi er mikið lagt upp úr íþróttaiðkun barna og mik- ilvægi hennar fyrir líkamlegan þroska og jafnvel andlegan. Vitaskuld er ekki hægt að taka keppnina út úr leiknum, en áherslan þarf hins vegar að vera á leikinn. Ósigur sé hluti af hon- um og það sama eigi við um mis- tök. Allir geri mistök og af þeim megi oft læra mest og það eigi að styðja þá sem erfitt eiga upp- dráttar, ekki útiloka. Það er á ábyrgð þeirra sem ala upp íþróttamenn að innræta þeim umburðarlyndi og þol- inmæði, að kenna þeim að sumir blómstri snemma aðrir seint og til þess að ná árangri þurfi að skapa umhverfi þar sem allir geti notið sín að verðleikum. Vitaskuld er ekki hægt að taka keppn- ina út úr leiknum, en áherslan þarf hins vegar að vera á leikinn} Spark í myrkri Horfið á Bret-land,“ segir Rutte, forsætisráð- herra Hollands. „Verið ekki með þetta ESB-andóf því þá endið þið í Brexitöngþveitinu,“ sem Rutte segir „að sé afleiðing af því að þjóðum mistakist að vinna sam- eiginlega öllum til heilla og gleymi öllu því sem áunnist hef- ur“. Forsætisráðherann skrifar opið bréf í blaðið Algemeen Dagblad. Það virðist helst hugs- að sem aðvörun til þeirra sem talað hafi fyrir því að hollenska þjóðin yfirgefi ESB og Rutte kallar í bréfi sínu „Nexit“. En hann horfir fram hjá því að leiðtogar ESB og hann þá ekki undanskilinn hafa gert allt sem þeir gátu til að ýta undir þetta „öng- þveiti“ sem hann nú hlakkar yfir. Leið- togar og búrókrat- ar í Brussel hafa sýnt ómælda ósvífni við að flækja útgöngu Breta og ýta undir hræðslu- áróður um að þeirra bíði marg- víslegir og óyfirstíganlegir erf- iðleikar vegna þeirrar meinloku að vilja endurheimta fullveldi sitt og þar með yfirráðin yfir fiskveiðunum. Illspár við þjóðaratkvæði um Icesave fólu í sér fullyrðingar um þjóðarólán og öngþveiti líka og reyndust haldlausar. Vonandi munu Bretar halda höfði eins og ís- lenska þjóðin gerði. Rutte hlakkar yfir flækjunum sem ESB hefur leitt May forsætisráðherra í} Sá hlær best sem síðast hlær N ú líður að jólum en þau eru tími samveru með ástvinum og ættingjum. Einnig eru þau tími lesturs og bóka. Hátíð- irnar eru kærkomin tilbreyt- ing frá amstri hversdagsins og það er gleði- legt hversu margir njóta þess að lesa um jólin. Miðstöð íslenskra bókmennta lét ný- lega gera könnun á viðhorfi þjóðarinnar til bóklestrar en niðurstöðurnar gefa sterkar vísbendingar um að lestur sé enn í dag mik- ilvægur þáttur í lífi landsmanna og að við- horf fólks sé jákvætt í garð bókmennta, lestrar og opinbers stuðnings við bók- menntir. Þar kom fram að 72% svarenda hefðu les- ið eða hlustað á bækur síðastliðna 30 daga. Um 86% þeirra höfðu lesið hefðbundnar bækur á síðustu 12 mánuðum, 31% höfðu lesið rafbæk- ur og 35% hlustað á hljóðbækur. Niðurstöðurnar benda til þess að konur lesi meira en karlar, að með- altali lesa karlar tvær bækur á mánuði en konur 3,5 bækur. Þetta eru fróðlegar niðurstöður og þær er þarft að skoða í samhengi. Raunin er að bóksala á Íslandi hefur dregist verulega saman eða um tæp 40% á síðustu 10 árum. Ástæður þess má einna helst rekja til breyttrar samfélagsgerðar og örrar tækniþróunar því aukið framboð les- efnis og myndefnis á netinu hefur leitt til þess að lestur bóka á íslensku hefur minnk- að. Þessi þróun skapar ákveðna ógn við tungumálið en til þess að mæta því, og fleiri áskorunum sem að íslenskunni standa, verð- ur á nýju ári sett á laggirnar nýtt stuðn- ingskerfi sem heimilar 25% endurgreiðslu vegna beins kostnaðar við útgáfu bóka á ís- lensku. Markmiðið með því er að auka lest- ur og efla bókaútgáfu í landinu og er þetta fyrsta skrefið í heildstæðum aðgerðum stjórnvalda til stuðnings íslenskri tungu. Ég vona að sem flestir muni gefa sér tíma til þess að lesa um hátíðirnar. Fyrir marga er það einn hápunktur jólanna að sökkva sér ofan í góða bók á aðfangadagskvöld. Megi sem flestir lesendur, á öllum aldri, finna þá ánægju og gleði þessi jólin. Lilja D. Alfreðsdóttir Pistill Hvað ætlar þú að lesa um jólin? Höfundur er mennta- og menningarmálaráðherra STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen BAKSVIÐ Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Flest af fjölmennustu sveit-arfélögum landsinslækka álagningarhlutfallfasteignaskatta, ýmist af íbúðarhúsnæði eða atvinnu- húsnæði, eða báðum gerðum til að koma til móts við hækkun fast- eignamats. Reykjavíkurborg og Fjarðabyggð eru einu sveitar- félögin sem ekki lækka hlutfall fasteignaskatta. Reykjavíkurborg eykur tekjur sínar um 570 millj- ónir kr. með þessum hætti. Öll tólf fjölmennustu sveitar- félög landsins halda útsvari óbreyttu á næsta ári. Helmingur þeirra er með hámarksútsvar, 14,52%, þar á meðal það stærsta, Reykjavíkurborg, og fjögur til við- bótar eru með útsvar aðeins undir hámarki. Einungis tvö sveit- arfélög, Garðabær og Seltjarn- arnes, eru með mun lægra útsvar, 13,7%. Reykjanesbær lækkar mest Annar mikilvægur tekjustofn sveitarfélaga er fasteignaskattur. Fasteignamat á eignum lands- manna hækkar um 12,8% að með- altali um áramót. Hækkunin er þó mismunandi eftir staðsetningu eigna og gerð. Að óbreyttu hefði það í för með sér nokkuð yfir millj- arð í tekjuauka hjá sveitarfélög- unum. Mörg þeirra bregðast við með því að lækka prósentuna eitthvað, til að milda þessa hækkun. Önnur ekki. Reykjavíkurborg og Fjarða- byggð lækka hvorki álagning- arprósentu fasteignaskatta á íbúð- arhúsnæði né atvinnuhúsnæði. Seltjarnarnesbær er með lægstu álagninguna, bæði á íbúa og fyr- irtæki. Níu af þessum tólf sveitar- félögum lækka álagningarprósentu fasteignaskatta af íbúðarhúsnæði, sum reyndar óskaplega lítið, eins og sjá má á meðfylgjandi töflu. Mesta breytingin er hjá Reykjanesbæ sem lækkar prósent- una hraustlega. Þótt Reykjavík- urborg sé með óbreytta prósentu er borgin í hópi þeirra sveitarfé- laga sem leggja lægstu fast- eignaskattana á íbúðarhúsnæði. Fjarðabyggð er með langhæstu álögurnar á íbúana en nýtir sér þó ekki heimild til álags á skattinn. Sveitarfélögin hafa verið gagnrýnd undanfarin ár fyrir að sýna fyrirtækjunum ekki sama skilning og íbúunum með því að lækka ekki álagningarprósentu fasteignaskatta á atvinnuhúsnæði með sama hætti og á íbúðar- húsnæði. Flest hafa þau haft álagninguna í lögleyfðu hámarki, 1,65%, þar til nú að mörg sýna við- leitni til að lækka enda hækkar fasteignamat á atvinnuhúsnæði um 15% um áramót. Sum lækka þó það lítið að það hlýtur að teljast til málamynda, eins og á Akureyri og í Garðabæ. Akranesbær lækkar prósentuna mest og Hafnarfjörður og Kópavogur koma þar á eftir. Borgin fær meðgjöf Eins og sést á meðfylgjandi töflu er Reykjavík í hópi þeirra sveitarfélaga sem leggja hæsta fasteignaskattinn á atvinnu- húsnæði. Borgin heldur álagning- unni óbreyttri og fær verulega fjármuni aukalega í sjóðinn með því. Hins vegar hefur sú stefna verið mörkuð að álagningarhlut- fallið verði lækkað í 1,63% á árinu 2021 og í 1,6% á árinu 2022. Sjálf- stæðismenn lögðu til við afgreiðslu fjárhagsáætlunar að álagning- arhlutfallið yrði lækkað strax í 1,6%. Eyþór Arnalds segir ekki eðli- legt að borgin haldi hlutfallinu óbreyttu þegar fasteignamatið hækkar jafn mikið og raun ber vitni. „Það gleymist oft að Reykja- víkurborg fær meðgjöf vegna þess að hér eru margar fasteignir ríkis- ins og fær borgin milljarða í tekjur frá ríkinu vegna fasteignaskatta,“ segir Eyþór. Borgin tekur til sín 570 millj. til viðbótar Útsvar og fasteignaskattar tólf sveitarfélaga *Prósentustig Fasteignagj. íbúðarhúsnæði Fasteignagj. atvinnuhúsnæði Útsvar % 2019 % Lækkun* ’18-’19 2019 % Lækkun* ’18-’19 Reykjavík 14,52% 0,18% nei 1,65% nei Kópavogur 14,48% 0,22% 0,01% 1,5% 0,1% Hafnarfjörður 14,48% 0,26% 0,02% 1,4% 0,17% Garðabær 13,7% 0,19% 0,01% 1,63% 0,02% Mosfellsbær 14,48% 0,209% 0,016% 1,6% 0,05% Seltjarnarnes 13,7% 0,175% nei 1,1875% 0,0005% Akureyri 14,52% 0,33% 0,02% 1,63% 0,02% Reykjanesbær 14,52% 0,36% 0,12% 1,65% nei Árborg 14,52% 0,275% 0,05% 1,65% nei Akranes 14,52% 0,2865% 0,0235% 1,32% 0,3% Fjarðabyggð 14,52% 0,5% nei 1,65% nei Vestmannaeyjar 14,46% 0,33% 0,02% 1,65% nei Árið 2019 „Það er alltaf ákvörðun hvers sveitarfélags hversu háir fasteignaskattar og útsvar á að vera, innan hins lögbundna ramma,“ segir Aldís Hafsteins- dóttir, bæjarstjóri og formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga. Hún segir að fasteignaskatturinn geti verið snú- inn tekjustofn sem sveitarfélögin ráði engu um. Skattstofninn grundvallist á fasteignamati sem byggist á flóknum reiknireglum um þinglýsta sölu- samninga og um mögulegar leigutekjur. Þá segir hún erfitt að bera saman álagningarprósentuna því misjafnt sé hverju skatturinn skili. „Misjafnt er hvað sveitarstjórn- irnar ákveða að gera, hvort þær treysta sér til að hækka skattana jafn mikið og fasteignamatið eða ekki,“ segir Aldís og leggur áherslu á að sveitarfélögin þurfi tekjur til að standa undir kröfum íbúanna um aukna þjónustu og þeim kostnaði sem ný lög og ýmsar reglugerðir skapa. Alltaf pólitísk ákvörðun FORMAÐUR SAMBANDS ÍSLENSKRA SVEITARFÉLAGA Aldís Hafsteinsdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.