Morgunblaðið - 19.12.2018, Side 29
DÆGRADVÖL 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 2018
ÁN TÓBAKS
MEÐ NIKÓTÍNI
Zonnic Mint munnholsduft í posa og Zonnic Pepparmint munnholsúði innihalda nicotin. Lyfin eru ætluð til
meðferðar við tóbaksfíkn. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til
læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um
lyfið á www.serlyfjaskra.is.
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Leggðu hönd á plóg þar sem þess
er þörf, hvort sem það er beinlínis í þínum
verkahring eða ekki. Vinur sem þú ræðir við
mun leggja ýmislegt til málanna og veita
þér holl ráð.
20. apríl - 20. maí
Naut Viljirðu komast hjá óþægindum skaltu
ekki blanda saman starfi og leik. Taktu
flóknum aðstæðum með þolinmæði og láttu
aðra um að mála skrattann á vegginn.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Láttu ekki værðina ná svo sterk-
um tökum á þér að þú hafir ekki dug í þér
til að vinna þau verk sem þarf að vinna.
Það getur soðið upp úr í vinnunni, sittu á
þér.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú þarft að hafa sérstakar gætur á
fjármálunum og skalt varast fjárfestingar,
sem minnsta áhætta er samfara. Virkjaðu
bjartsýni þína og settu þér háleit markmið.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þótt þú hafir kannski ekki mikið fé
handbært þessa stundina, má alltaf gera
sér glaðan dag með litlum tilkostnaði.
Margt er hreinlega ókeypis.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Það hefur verið mikið álag á þér að
undanförnu svo þú hefðir gott af því að
komast í stutt ferðalag um helgina. Dæmdu
þig mildilega.
23. sept. - 22. okt.
Vog Taktu vel á móti góðum gestum.
Breyttu einhverju einu og bara einu og það
opnar leiðina að einhverju nýju. Þú dustar
rykið af gömlum vinskap.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Haltu þínu striki og láttu úr-
tölur sem vind um eyru þjóta. Þú hefur
stundum bognað en ekki brotnað. Þú ert
ekki fyrir að láta mikið fyrir þér fara.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Gakktu í það að koma öllum
málum á hreint svo þú getir snúið þér að
framtíðinni. Þú stendur meðan stætt er,
það þarf enginn að efast um það.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Það er engin ástæða til þess að
láta hugfallast þótt allt gangi ekki sam-
kvæmt áætlun. Líf þitt tekur stakkaskiptum
fljótlega.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Lokaðu þig ekki af frá umheim-
inum þótt þú sért ekki upp á þitt besta.
Fólk misskilur þig oftar en ekki. Talaðu
skýrar.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú veltir fyrir þér hvort þú getir
treyst vissri manneskju. Þér hættir til að sjá
ekki skóginn fyrir trjánum. Treystu á þína
innri rödd.
Theodóra Thoroddsen skrifarskemmtilega grein í Eimreið-
ina árið 1916 um draumljóð. Þar
segir frá konu undir Jökli sem
dreymdi skömmu eftir drukknun
unnusta síns að lagst var ofan að
glugga er var yfir rúmi hennar og
kveðið:
Líttu í skjáinn skykkjugná
og skaltu fá að sanna
að vofum hjá í votri lá
vakir þrá til manna.
Stúlkan vaknaði og þóttist
þekkja málróm unnusta síns en
brast hug til að líta upp í gluggann
enda virtist sem einhver renndi sér
niður baðstofuþekjuna.
Mann norður á Ströndum, Tómas
að nafni, dreymdi að maður kæmi
að sér um nótt og kvæði vísu þessa:
Best er að leggja brekin af
og bera vel raunir harðar
nú er meira en hálfsótt haf
heim til sælu-jarðar.
Tómas nam vísuna og sagði frá
henni er hann vaknaði en varð
bráðkvaddur næsta dag.
Þorvaldur prestur Björnsson á
Mel í Hrútafirði drukknaði laust
eftir síðustu aldamót með þeim
hætti, að hann féll niður um ís að
nóttu til. Þá hina sömu nótt
dreymdi bónda þar nyrðra að
prestur legðist á glugga hjá sér og
kvæði:
Er á ferðum engin töf,
ekki er gott að skilja.
Sigli ég yfir sollin höf,
svöl er næturkylja.
Djúpum ofar hættu hyl,
hlaðinn þungum vanda.
Samt ég horfi sjónum til
sólar-fegri landa.
Það er í munnmælum að prest, er
hafði í hyggju að að breyta um
brauð og býli, hafi dreymt vin sinn
látinn. Hyggst prestur fá hjá hon-
um vitneskju um framtíð sína og
þykist kveða:
Hvar á að byggja? Hvernig fer?
Hvar á að bera að landi?
Hvað á að tryggja hag minn hér?
Hvað á að liggja fyrir mér?
Þykir honum vinur sinn svara:
Þar um varðar þig ei grand,
þér á að nægja vonin.
Guð ákvarðar líf og land,
lán búgarða, auð og stand.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Af Theódóru og
draumvísum
Víkverji er í miklum ham þessadagana enda þarf að koma
mörgu í verk. Það þarf að þurrka
af, ryksuga, skúra og bóna hátt og
lágt, þvo föt og strauja, skreyta í
bak og fyrir og kaupa jólatré,
kaupa jólagjafir og pakka þeim inn,
skipuleggja veislur og matarboð,
baka smákökur í akkorði, lesa jóla-
bækur í gríð og erg, skrifa jólakort
og senda þannig að þau komist
örugglega til allra áður en jólin
ganga í garð og reyna í ofanálag að
finna tíma til að sinna vinnunni í
það minnsta þriðjung úr degi. Og er
þá fátt eitt talið af verkefnalist-
anum.
x x x
Allt þetta ræðst hann í með brosá vör því að hann veit að það
gengur ekkert betur þótt hann setji
upp skeifu.
x x x
Reyndar veit Víkverji að kannskiverður eitthvað út undan í til-
tektinni og spurning hvort hann nái
að strauja. Það er heldur ekki víst
að hann nái að baka allar þær sortir
af smákökum, sem hann helst vildi.
Þá gæti verið að hann kæmist ekki
yfir allar þær jólabækur, sem hann
nú sér fyrir sér að hann muni lesa í
makindum sínum, því að eins og
verða vill fer eitthvað minna fyrir
rólegheitum til að sitja og lesa en
verða átti. Þá getur vel verið að ein-
hverjir fái jólakortið ekki fyrr en
milli jóla og nýárs.
x x x
En hann mun líka sætta sig viðþað með bros á vör.
x x x
Hann veit nefnilega að þegar há-tíðin gengur í garð mun enginn
velta fyrir sér hvort hann hafi náð
glansmyndafullkomnun í undirbún-
ingi jólanna og í raun og veru skipt-
ir það ekki máli þegar upp er staðið
heldur inntak jólanna. Enda mun
Víkverji aldrei geta gert allt kusk
útlægt eða haft allt klárt í tíma og
víst að ef hann næði því – sem eng-
in ástæða til að óttast – yrði hann
kominn í þá óbærilegu stöðu að
geta ekki bætt sig. Aðeins hnignun
og afturför myndu blasa við og það
vill hann ekki. vikverji@mbl.is
Víkverji
Skapa í mér hreint hjarta, ó Guð, og
veit mér nýjan, stöðugan anda
(Sálmarnir 51.12)
ALLTAF GÓÐUR.
„Þegar ég sagÐI HONUM AÐ ÞAÐ GÆTI
VERIÐ GAMAN AÐ FÁ MORGUNMAT Í RÚMIÐ
SAGÐI HANN MÉR AÐ SOFA Í ELDHÚSINU.”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að halda í ferðalag
saman.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
ÉG VONA AÐ SVEINKI GEFI
MÉR EITTHVAÐ DÁSAMLEGT
EINS OG
HVAÐ?
NÝJA
KEÐJU!
ÉG SKAL SKILA
ÞVÍ TIL HANS
HRÓLFUR, ÞÚ OG ATLI HÚNAKONUNGUR ERUÐ FORNIR
FJENDUR! ER EKKI TÍMI TIL KOMINN AÐ GRAFA
STRÍÐSEXINA?
HELGA, ÉG GET EKKI HLUSTAÐ Á ÞETTA. ÞAÐ
GERIR ÞIG MEÐSEKA!
ÞÚ MÁTT EKKI GERA
SKÍTVERKIN HÉR.