Morgunblaðið - 19.12.2018, Page 32
32 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 2018
Bók Sigursteins Mássonar,Geðveikt á köflum er fal-leg bók. Hún lýsir á ein-lægan og að því er virðist
raunsæjan hátt hvernig það er fyrir
Sigursteinn að lifa með geðhvörf.
Það sem gefur bókinni vigt að mínu
mati er að Sigursteinn fer í gegnum
lífshlaup sitt frá því að hann missir
fótanna í fyrst sinn vegna geðhvarfa,
til dagsins í dag
með öllum þeim
sveiflum og af-
leiðingum sem
geðhvörf hafa
bæði á hann sjálf-
an og fólkið í
kringum hann.
Sigursteinn er
lipur penni og
flæðið í bókinni
gott. Geðveikt á köflum er ein af
þessum bókum sem ekki er hægt að
leggja frá sér jafnvel þó að komið sé
vel fram yfir miðnætti. Sigursteinn
er einlægur í frásögnum þegar hann
lýsir því hvernig sjúkdómurinn tek-
ur völdin án þess að hann geri sér
nokkra grein fyrir því sem gerist á
meðan á því stendur. Hann talar
hann yfirleitt vel um flesta þá sem
koma að hans málum og samband
Sigursteins við móður sína virðist
byggt á kærleika og trausti en
markað af áralangri sameiginlegri
baráttu þeirra við geðhvörf Sig-
ursteins. Líkt og í öðrum ævisögum
er frásögnin einhliða og alfarið í
höndum Sigursteins sem lýsir at-
burðum, raunverulegum og óraun-
verulegum frá sínu sjónarhorni.
Í Geðveikt á köflum fær lesandinn
ekki bara innsýn í heim þess sem
berst við geðhvarfasýki. Lesandinn
fær innsýn í líf blaðamannsins, dýra-
verndunarsinna, baráttumanns,
heim samkynhneigðra, þeirra sem
eru viðkvæmir, með geðsjúkdóma og
fatlanir. Bókin lýsir fordómum,
manngæsku, mannvonsku, gleði,
sorgum og varnarleysi.
Þegar Sigursteinn lýsir líðan
sinni, hugsunum og ranghug-
myndum í geðhvörfum verður sagan
reyfarakennd en samt svo vel skrif-
uð að einstaka sinnum var gagnrýn-
andi ekki alveg viss hvenær frásögn-
in fór yfir í það að vera
óraunveruleg. Lýsingar höfundar
eru oft ljóðrænar og ljúfar.
Það eru margir sigrar, ósigrar og
hetjur í Geðveikt með köflum.
Sigursteinn bindur boðskap bók-
arinnar saman í eina setningu í lok
bókarinnar „Þá hlýtur tilgangurinn
með lífinu líka að vera sá að komast
heilu og höldnu í næstu höfn og að
hafa stuðlað að því sama gagnvart
öðrum í skútuáhöfninni þótt maður
geti aldrei borið fulla ábyrgð á öðr-
um en sjálfum sér.“
Morgunblaðið/Hari
Höfundurinn „Það eru margir sigrar, ósigrar og hetjur í Geðveikt með köfl-
um,“ segir rýnir og lofar bók Sigursteins Mássonar en hún er vel skrifuð.
Falleg saga
um geðveiki
Ævisaga
Geðveikt með köflum bbbbn
Eftir Sigurstein Másson
Bjartur, 2018. Innb., 200 bls.
GUÐRÚN
ERLINGSDÓTTIR
BÆKUR
Stjórnvöld í Egyptalandi hafa
greint frá fundi einstaks grafhýsis
suður af Kaíróborg. Það er um
4.400 ára gamalt og eru gripir og
myndir í því sögð í afar góðu ásig-
komulagi en grafarræningjar hafi
ekki raskað gröfinni. Fornleifa-
fræðingar segja um að ræða gröf
háttsetts prests við hirð faraósins
Neferirkare Kakai.
Grafhýsið er um þriggja metra
breitt og tíu metra langt og hefur
verið unnið að hreinsun þess og
skráningu undanfarinn mánuð.
Veggirnir eru prýddir skrautlegu
myndletri og styttum af faraóum en
í sjálfri gröfinni eru eftirmyndir
prestsins sem þar er grafinn og
fjölskyldu hans. Alls eru 45 styttur
og mannamyndir í grafhýsinu en
enn fleiri kunna að vera í fimm
grafarrýmum sem liggja út frá
grafhýsinu og hafa enn ekki verið
opnuð.
AFP
Glæsilegt Gestir skoða nýfundið grafhýsið. Í því eru 45 styttur af egypsk-
um konungum á veggjum og fjölskyldu prests sem þar hvílir.
Einstakt grafhýsi fundið
Anna and the
Apocalypse
Metacritic 72/100
IMDb 6,6/10
Bíó Paradís 22.20
Love Is All
IMDb 4,5/10
Bíó Paradís 20.00
Bird Box
Metacritic 60/100
IMDb 6,7/10
Bíó Paradís 20.00
Suspiria
Metacritic 64/100
IMDb 7,3/10
Bíó Paradís 18.00
Roma
Morgunblaðið bbbbb
Metacritic 95/100
IMDb 8,6/10
Bíó Paradís 21.00
Mæri
Morgunblaðið bbbbn
Metacritic 78/100
IMDb 7,2/10
Bíó Paradís 22.30
Erfingjarnir
Metacritic 82/100
IMDb 7,3/10
Bíó Paradís 18.00
7 Emotions
IMDb 6,6/10
Bíó Paradís 17.40
Aquaman 12
Arthur Curry kemst að því
að hann er erfingi neð-
ansjávarríkisins Atlantis, og
þarf að stíga fram og verða
leiðtogi þjóðar sinnar.
Metacritic 53/100
IMDb 7,9/10
Sambíóin Álfabakka 16.20,
16.40, 19.20, 19.40, 20.30,
22.20, 22.40
Sambíóin Egilshöll 17.00,
19.00, 20.00, 22.00, 23.00
Sambíóin Kringlunni 16.20,
19.20, 21.20, 22.20
Sambíóin Akureyri 16.40,
19.40, 22.40
Sambíóin Keflavík 19.30,
22.20
Smárabíó 16.00, 16.20,
19.00, 19.30, 22.00, 22.25
Creed II 12
Metacritic 67/100
IMDb 8,0/10
Sambíóin Álfabakka 22.30
Sambíóin Egilshöll 22.40
Sambíóin Kringlunni 22.15
Sambíóin Akureyri 22.40
The Old Man and the
Gun 12
Metacritic 80/100
IMDb 7,3/10
Háskólabíó 18.20
Bohemian
Rhapsody 12
Morgunblaðið bbbbn
Metacritic 49/100
IMDb 8,4/10
Laugarásbíó 19.50, 22.30
Smárabíó 19.30, 22.30
Háskólabíó 20.30
La Traviata
Sambíóin Kringlunni 18.00
The Sisters
Brothers 16
Á sjötta áratug nítjándu ald-
arinnar í Oregon er gulleit-
armaður á flótta undan hin-
um alræmdu
leigumorðingjum, the Sis-
ters Brothers.
Metacritic 78/100
IMDb 7,2/10
Laugarásbíó 19.50, 22.30
Borgarbíó Akureyri 22.10
A Star Is Born 12
Kvikmyndastjarna hjálpar
ungri söngkonu og leikkonu
að slá í gegn, þó svo að ferill
hans sjálfs sé á hraðri niður-
leið vegna aldurs og áfengis-
neyslu.
Morgunblaðið bbbbm
Metacritic 88/100
IMDb 8,3/10
Sambíóin Kringlunni 19.30
Kona fer í stríð
Morgunblaðið bbbbb
Metacritic 81/100
IMDb 7,6/10
Háskólabíó 18.00
Lof mér að falla 14
Morgunblaðið bbbbn
IMDb 8,8/10
Háskólabíó 20.40
Ralf rústar
internetinu Sugar Ruch spilasalurinn er í
rúst, og Ralph og Vanellope
þurfa að bregða sér á inter-
netið til að endurheimta hlut
sem nauðsynlegur er til að
bjarga leiknum.
Metacritic 71/100
IMDb 7,6/10
Laugarásbíó 17.00
Sambíóin Álfabakka 15.30,
17.30, 18.00, 20.00
Sambíóin Egilshöll 17.30
Sambíóin Kringlunni 17.00
Sambíóin Akureyri 17.00
Smárabíó 15.30, 16.50
The Grinch Trölli lætur það fara í taug-
arnar á sér þegar fyrrverandi
nágrannar hans byrja að
skreyta fyrir jólin, kaupa
gjafir og gleðjast.
Laugarásbíó 17.50
Smárabíó 15.00, 17.20
Háskólabíó 18.15
Borgarbíó Akureyri 17.30
The Nutcracker and
the Four Realms
Það eina sem Clara vill er
lykill - einstakur lykill sem
mun opna kassa með ómet-
anlegri gjöf frá móður henn-
ar heitinni.
Metacritic 39/100
IMDb 5,6/10
Sambíóin Álfabakka 15.20
Eftir Sextíu mínútna stríðið lifir borgarbúar á
eyðilegri jörðinni, með því að færa sig á mili
staða á risastórum farartækjum, og ráðast á
smærri þorp.
Metacritic 48/100
IMDb 6,6/10
Laugarásbíó 17.00, 19.50, 22.30
Sambíóin Álfabakka 17.00, 19.40, 22.20
Sambíóin Egilshöll 17.20, 20.00, 22.40
Sambíóin Keflavík 19.30, 22.10
Smárabíó 19.40, 22.30
Háskólabíó 18.00, 20.50
Borgarbíó Akureyri 19.30, 22.00
Mortal Engines 12
Fantastic Beasts: The Crimes of
Grindelwald
Önnur myndin um ævintýri töfrafræðingsins Newt Scam-
ander. Bönnuð börnum
yngri en 9 ára.
Morgunblaðið
bbbbn
Metacritic 57/100
IMDb 7,7/10
Sambíóin Álfabakka
17.20
Sambíóin Egilshöll 20.00
Sambíóin Akureyri 19.40
Widows 16
Fjórar konur taka á sig skuld-
ir sem orðið hafa til vegna
glæpaverka eiginmanna
þeirra, taka síðan málin í sín-
ar hendur og byggja upp nýja
framtíð.
Morgunblaðið bbbnn
Metacritic 84/100
IMDb 7,5/10
Smárabíó 19.50, 22.40
Háskólabíó 20.20
Nánari upplýsingar um sýningar og sali má finna á heimasíðu kvikmyndahúsanna
Kvikmyndir
bíóhúsanna
mbl.is/bio