Morgunblaðið - 19.12.2018, Side 36

Morgunblaðið - 19.12.2018, Side 36
ÍS LE N SK A/ SI A. IS AI C 89 54 5 11 /1 8 Jólagjafabréf Kauptu núna! Veldu upphæð, prentaðu út og jólagjöfin er klár. airicelandconnect.is/gjafabref Gefðu ævintýri Camerarctica heldur sína árlegu kertaljósatónleika fyrir jólin. Þeir fyrstu verða í Hafnarfjarðarkirkju í kvöld, annað kvöld í Kópavogs- kirkju, á föstudag í Garðakirkju og laugardag í Dómkirkjunni í Reykja- vík kl. 21 alla daga. Á dagskránni eru kammerperlur eftir Mozart. Flytjendur eru Hallfríður Ólafs- dóttir á flautu, Ármann Helgason á klarinett, Hildigunnur Halldórs- dóttir og Bryndís Pálsdóttir á fiðlu, Svava Bernharðsdóttir á víólu og Sigurgeir Agnarsson á selló. Mozart við kertaljós MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 353. DAGUR ÁRSINS 2018 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 641 kr. Áskrift 6.960 kr. Helgaráskrift 4.346 kr. PDF á mbl.is 6.173 kr. iPad-áskrift 6.173 kr. Um áramótin verður Helgi Kol- viðsson fjórði íslenski knatt- spyrnuþjálfarinn sem tekur við er- lendu landsliði. Hann var í gær kynntur til leiks sem nýr þjálfari karlalandsliðs Liechtenstein frá 1. janúar, og til næstu tveggja ára. Hann fetar þar með í fótspor Páls Guðlaugssonar, Teits Þórðarsonar og Sigurðar Ragnars Eyjólfssonar. »2 Fjórði landsliðsþjálf- arinn erlendis ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM „Engu er líkara en Gróttuliðið sé eins og stjórnlaust rekald. Frammi- staða þess í leiknum og í und- anförnum leikjum hefur bent til þess. Hún er óboðleg fyrir lið í efstu deild, ekki síst á sama tíma og menn keppast við að hæla leikjum deild- arkeppninnar og hlaða leikmenn og þjálfara liðanna lofi,“ skrifar Ívar Benediktsson m.a. í pistli um þrettándu um- ferð Olísdeild- ar karla í handknattleik en úrvalslið Morgun- blaðsins úr umferðinni er birt í blaðinu í dag. »2-3 Frammistaðan óboðleg fyrir lið í efstu deild Aron Þórður Albertsson aronthordur@mbl.is „Það má segja að draumur minn hafi orðið að veruleika þegar ég fékk bókina fyrst í hendurnar. Auðvitað kemur það mörgum á óvart að ég sé svona ungur að gefa út bók en ég hef stefnt að þessu lengi,“ segir Ólíver Þorsteinsson, 22 ára gamall rithöf- undur, sem nú á dögunum gaf út sína fyrstu bók, Leitin að Jólakett- inum. Bókin er fyrir börn á leik- skólaaldri en sjálfur starfar Ólíver á leikskóla og hefur gert undanfarin tvö ár. „Það má segja að hugmyndin að þessari bók hafi kviknað á leik- skólanum og ég nýtti mér aðstoð krakkanna sem ég hef verið að starfa með. Þeir gáfu mér hug- myndir að persónum og nöfnum sem ég notaði í bókinni sem var virkilega skemmtilegt,“ segir Ólíver og bætir við að frá því að skrif hófust séu nú liðin tæplega tvö ár. Þrátt fyrir það sé bókin ekki sú fyrsta sem hann skrifar en Ólíver hefur frá unga aldri haft mikinn áhuga á því að skrifa bækur. „Ég hef haft gríðarlega ástríðu fyrir því að skrifa bækur og alltaf þótt það afar skemmtilegt. Maður hverfur inn í annan heim meðan á skrifum stendur og gleymir sér algjörlega. Ég hef eiginlega ver- ið að skrifa frá því að ég man eftir mér en það er fyrst núna sem bók frá mér hefur verið gefin út,“ segir Ólíver. Bók með fallegan boðskap Spurður um hvað bókin fjalli segir Ólíver að um hefðbundna jóla- barnabók sé að ræða. Þá sé und- irliggjandi boðskapur sögunnar að varast skuli að dæma fólk eftir útliti eða sögum. „Þetta fjallar um stelpu sem heyrir sögu frá ömmu sinni um jólakött sem borðar börn. Til að reyna að koma í veg fyrir það að jólakötturinn haldi áfram að borða börn fer stelpan ásamt tveimur vin- um sínum í leiðangur þar sem mark- miðið er að veiða köttinn. Þegar þau loks finna köttinn átta þau sig á því að hann er langt frá því að vera vondur og í raun afar hræddur við börn. Það má því segja að boðskapur sögunnar sé að dæma bókina ekki eftir kápunni,“ segir Ólíver. Fleiri bækur væntanlegar Næstu skref hjá rithöfundinum unga er útgáfa fleiri bóka eftir ára- mót. Að sögn Ólívers er hann með þrjár bækur í bígerð sem allar gætu komið út á næsta ári. „Ég er að vinna í ýmsum tegundum bóka, ekki bara barnabókum heldur einnig full- orðinsbókum sem vonandi verða í bókabúðum á næsta ári. Það eru þau verkefni sem ég er svona að vinna í núna,“ segir Ólíver. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Höfundur Ólíver gaf út sína fyrstu bók, Leitin að Jólakettinum, á dögunum. Næst á dagskrá er útgáfa fleiri bóka. Tekur þátt í jólabóka- flóðinu í fyrsta sinn  Ólíver gefur út sína fyrstu bók einungis 22 ára gamall

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.