Morgunblaðið - 21.12.2018, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 21.12.2018, Qupperneq 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. DESEMBER 2018 Halldór Guðmundsson, framkvæmdastjóri og stjórnarformaður Hvíta hússins auglýsinga- stofu, lést á heimili sínu 19. desember sl., 73 ára að aldri. Halldór fæddist á Hallkelsstöðum í Kjós 16. september 1945. Hann var yngsta barn hjónanna Guðmundur Þorkelssonar, bónda og verkamanns frá Valda- stöðum í Kjós, og Guð- rúnar Ágústu Halldórsdóttur, verk- stjóra hjá Fötum hf., úr Reykjavík. Halldór gekk í Melaskóla, Haga- skóla, lauk landsprófi frá Vonarstræti og stundaði nám í einn vetur í MR. Hann lauk sveinsprófi í trésmíði frá Iðnskólanum í Reykjavík og stundaði nám í einn vetur við Tækniskólann, til undirbúnings fram- haldsnáms í arkitektúr. Árið 1967 gerðist Halldór starfsmaður Alþýðubandalags- félagsins í Reykjavík og var framkvæmda- stjóri Alþýðubanda- lagsins frá stofnun þess árið 1968 til 1970. Hall- dór var vinstrisinnaður fram á miðjan aldur, er hann skipti yfir á hægri væng stjórnmálanna og fylgdi eftir það Sjálf- stæðisflokknum að málum. Árið 1970 hóf Halldór störf á Aug- lýsingastofunni hf. Hann varð fram- kvæmdastjóri stofunnar árið 1978 fram til ársins 2005, en nafni stof- unnar var síðar breytt í Hvíta húsið. Hann var starfandi stjórnarformaður Hvíta hússins frá 2005 til vors 2017. Halldór sat í stjórnum ýmissa fé- lagasamtaka og fyrirtækja. Hann var m.a. helsti hvatamaður að stofnun sjónvarpsstöðvarinnar Sýnar, sem síðar rann inn í Íslenska útvarps- félagið/Stöð 2. Hann var forgöngu- maður um stofnun SÍA, Samtaka ís- lenskra auglýsingastofa, árið 1978 og var þrívegis kjörinn formaður í sam- tökunum. Halldór var áhugsamur golfspilari og félagi í Nesklúbbnum til margra ára. Hann var snemma bókhneigður og skrifaði barna- og fullorðinsbókina Sagan af Mosa og hugprýði hans, sem kom út árið 2006. Eftirlifandi kona Halldórs er Anna Björnsdóttir, grafískur hönnuður. Halldór á tvo syni með fyrri konu sinni, Önnu Kristinsdóttur hár- greiðslumeistara, þá Kristin Ágúst leikmyndagerðarmann og Arnald, ljósmyndara. Barnabörnin eru þrjú. Andlát Halldór Guðmundsson Andri Steinn Hilmarsson ash@mbl.is Veðurhremmingar sumarsins virðast lifa góðu lífi í jólaskipulagi landans en von er á metfjölda til Tenerife þessi jólin. Ferðaskipuleggjandinn og Tenerifebúinn Sigvaldi Kaldalóns, Svali, segir að eitt prósent Íslendinga verði á eyjunni yfir jól og áramót, eða 3.500 til 3.600 manns. „Það eru níu eða tíu flug hingað fyrir jólin, á einni viku,“ segir Svali en von er á flestum Íslendingum til eyj- arinnar í dag og á morgun. „Íslend- ingar eru eini þjóðflokkurinn sem er í svona mikilli fjölgun, alveg öfugt við Evrópu enda var skítaveður hjá okk- ur en æðislegt um norðanverða Evr- ópu,“ segir Svali. Svali telur líklegt að margir Íslend- ingar ákveði einnig að halda jólin í sólarlandi til þess að komast aðeins úr stressinu sem fylgir jólunum, og skipta pakkaflóðinu út fyrir Tenerife- ferð. Sól og blíða í veðurkortunum Svali heldur úti göngu- og hjóla- ferðum á Tenerife og er einnig í af- leysingum hjá ferðaskrifstofunni VITA. „Ég er drekkhlaðinn af verk- efnum, göngu- og hjólaferðum. Fólk kemur til að skoða sundlaugarbakk- ann, en líka fleiri staði á eyjunni,“ seg- ir hann léttur í bragði en spáð er 24 til 27 stiga hita á eyjunni fram til ára- móta. „Það gæti verið hálfskýjað hinn 29. desember en annars er bara sól,“ segir Svali og leiðist greinilega ekki spurning blaðamanns um veðurspá næstu daga. „Flestir sem hafa samband við mig eru að spá hvert þeir eigi að fara út að borða,“ segir Svali en hann og fjöl- skyldan ætla sjálf út að borða á að- fangadag ásamt nokkrum íslenskum fjölskyldum sem búa á eyjunni, og opna pakkana á jóladag. „Allt hérna er venjulegt á aðfanga- dag en lokað á jóladag, nýársdag og 6. janúar. Þá eru pakkajólin hjá kaþó- likkunum. Hátíðin er aðeins öðru vísi hérna.“ Að vanda verður skötuveisla á Ís- lendingabarnum Nostalgíu á Þorláks- messu. „Það eru rosalega margir Ís- lendingar sem fara þangað í skötuna. En ég ætla alls ekki að vera þar,“ seg- ir Svali og hlær. „Ég er ekki skötu- kall,“ heldur hann áfram og bætir við að hann væri þó til í að líta inn til þess að mynda svipbrigði nærstaddra út- lendinga sem eflaust klóri sér í koll- inum yfir þessari undarlegu hefð Ís- lendingsins. Svali og fjölskylda fluttu út til Ten- erife 30. desember í fyrra og eru þetta því fyrstu jól fjölskyldunnar úti. Hann segir það auðvitað mjög frábrugðið að vera ekki innan um íslenska jólabjór- inn á aðventunni og matvæli sem hann hafi leyft sér að maula um jól og í aðdraganda jóla. „Þetta er öðru vísi núna, þeir eru snillingar í hráskinku hérna og með góða osta. En það er eitthvað furðulegt við jólastemn- inguna. Þú kveikir ekki á kertum, það er bara opið út og heitt,“ segir Svali og nefnir að það hafi verið súrrealískt að kaupa jólatré í stuttbuxum og á skyrtunni og hengja á það jólakúlur. Undanfarið hefur borið á ránum á Tenerife. Svali segir að á eyjunni búi 990 þúsund manns þótt hún sé ekki nema á við einn fjórða af Vatnajökli á stærð. „Þegar það er mikil ferða- mannatíð þá kemur hingað mikið af glæpagengjum í hollum með það að markmiði að ræna fólk. Þeir koma ekki frá neinu einu landi og sjaldnast eru þetta innfæddir,“ segir Svali. Við erum búin að fá tvö, þrjú leiðinleg mál sem tengjast því að fólk hafi verið með reiðufé. Það hafa ekki verið al- varleg slys á fólki en þó aðeins,“ segir Svali og biður fólk að hafa varann á á Tenerife líkt og annars staðar á ferða- lagi. AFP Jól á Spáni Það er býsna jólalegt um að litast í Santa Cruz, höfuðborg eyjarinnar. Myndin var tekin á miðvikudag. Aðsókn í sól um jólin  Ferðaskipuleggjandi áætlar að eitt prósent Íslendinga verði á Tenerife um jólin  Fólk varist ránsfaraldur Fjölskyldan Svali ásamt stórum hluta fjölskyldunnar í göngu við Santiago del Teide á Tenerife. Fjölskyldan flutti út rétt fyrir áramót á síðasta ári. Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Við erum alveg að verða geðbiluð hérna. Þetta er miklu verra en við gerðum ráð fyrir,“ segir Guðríður Arnardóttir, formaður Félags fram- haldsskólakennara. Guðríður starfar í húsi Kennara- sambands Íslands við Laufásveg. Framkvæmdir við nýjan Landspít- ala hafa ekki farið fram hjá starfs- fólki í húsinu en sprengivinna hefur staðið yfir síðan um miðjan október. Leyfilegt er að sprengja þrisvar sinnum á dag; klukkan 11, klukkan 14.30 og klukkan 17.30. „Það kemur píp á undan spreng- ingunum og maður er með skilyrtan kvíðahnút í maganum. Svo kemur sprengingin, þær eru stundum stór- ar og stundum litlar. Það hafa dottið myndir af veggjunum hérna og brotnað. Starfsskilyrðin hérna eru algerlega óbærileg því svo er verið að fleyga inni á milli,“ segir Guð- ríður. Húsið var reist árið 1908 og er því friðað. Að sögn Guðríðar er einfalt gler í gluggum og húsið hentar ekki vel fyrir starfsemi félagsins. Þar er til að mynda ekkert aðgengi fyrir fatlað fólk. „Við erum á útkikkinu að leita að öðru húsnæði og hefðum reyndar átt að vera búin að því fyrir löngu. Þetta hús myndi nýtast vel sem safn. Ef einhver veit um 800 fermetra húsnæði á skikkanlegu verði má hann hafa samband við okkur.“ Hún segir að þrátt fyrir þetta sé hugur starfsfólks í Kennarahúsinu með börnum og sjúklingum á Land- spítalanum sem eigi eflaust erfiðara með að þola samvistir við umræddar framkvæmdir. Að sögn Ragnars Bjarnasonar, yfirlæknis barnalækninga á Barna- spítala Hringsins og prófessors í barnalækningum við HÍ, hafa um- ræddar framkvæmdir vissulega truflað starfsemi spítalans. „Það var svo sem við búið eins og alltaf þegar um stórframkvæmdir við hliðina á manni er að ræða,“ segir hann. Að undanförnu hefur verið unnið að því að grafa fyrir frárennsli fyrir allan spítalann og á það að liggja við hlið Barnaspítalans. Auk þess hefur að- alinngangi spítalans verið lokað og bílastæði færð. „Af því þetta frárennsli liggur við hlið hússins hafa þeir verið að sprengja alveg ofan í okkur. Sprengjumottan var til dæmis þrjá metra frá skrifstofunni minni um tíma. Þá var maður svolítið slæmur á taugum. En nú eru þeir farnir fjær og kannski farnir að trufla aðra.“ Ragnar kveðst vilja taka fram að gripið hafi verið til ýmissa ráðstaf- ana til að gera návígið við spreng- ingarnar þolanlegra. Til að mynda hafi verið settur höggdeyfir á borinn sem borgar fyrir dínamítinu og hljóðmottur hafi verið settar í kring. „Það var nokkrum sinnum fullmikið sprengt í einu. Höggið var óþarflega mikið. Við létum vita af því og því var breytt. Það hefur verið ofboðs- lega vel að þessu staðið. En það verður samt enginn söknuður þegar þeir fara lengra frá.“ Hann segir jafnframt að krökk- unum á Barnaspítalanum finnist mörgum framkvæmdirnar spenn- andi. Vinnuvélar og menn í gulum vestum veki athygli. „Ég held að þetta sé aðallega við gamla fólkið sem kvartar. Það er heldur ekkert við framkvæmdirnar sem truflar svefn og við höfum reynt að hafa þá sem dveljast lengi hinum megin í húsinu.“ Íhuga flutninga vegna sprenginga  Kennarar með kvíðahnút í maganum vegna sprenginga fyrir nýjum spítala Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Framkvæmdir Sprengingar trufla í Kennarahúsinu og á Barnaspítalanum. Jólaskeiðin 2018 Guðlaugur A. Magnússon S. 562 5222, Skólavörðustíg 10 www.GAM.is Verð 18.900 kr. / 17.900 kr. stgr. Skeiðin er úr 925 silfri Hönnuður: Hanna S. Magnúsdóttir Kærleikurinn – skírnargjöf – brúðargjöf – öll tilefni

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.