Morgunblaðið - 21.12.2018, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 21.12.2018, Blaðsíða 40
40 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. DESEMBER 2018 Vættir eftir Alexander Daner samtímasaga sem geristí Reykjavík en borgin tek-ur miklum og ógnvekjandi breytingum; vægast sagt furðulegir hlutir gerast og Íslendingar fara að sjá vætti út um allt. Meira að segja á gamlárskvöld innan um ferðamenn- ina á Skólavörðuholti sem sjá ekki verurnar: „Hvert sem ég lít sé ég grænt gras, laufskrúðug tré, krökk af verum. Loftið ber með sér gróðurilm sem fylgir síðsumardögum. Á Hallgríms- kirkjuturni skríða gríðarstór form sem minna á út- sprungnar rósir. Ég fæ á tilfinn- inguna að vætt- irnar hafi alltaf verið þarna. Ég hef bara ekki viljað sjá þær fyrr en nú.“ (196) Sögumaðurinn sem er á þrítugs- aldri er þarna að viðurkenna fyrir sjálfum sér að heimurinn eins og hann þekkti hann sé kominn á hvolf og varla sé nokkur leið til baka. Og þarna styttist í sögulok. Þetta er framtakslítill maður sem segist helst vilja gera ekki neitt og hans helsti munaður er að sóa tíma. Alveg frá byrjun sögu fær ungi maðurinn skelfileg höfuðverkjaköst sem lítið er hægt að gera við en smám saman átt- ar lesandinn sig á því að köstin virð- ast tengjast vættunum. Þótt þeim sé lýst með kostulegum hætti og eru af- ar fjölbreytilegar, sumar eru á hæð við ljósastaura, aðrar eins og kóngu- lær nema með mannsandlit eða eins og könglar með hárlubba, þá eru þær ógnvekjandi og eftir að þær tóku að birtast Íslendingum hafa börn horfið og furðurnar ágerast eftir að sagan hefst. Eitt sinn rignir hnífum af himni og þeir drepa fólk og slasa, hrúðurkarlar taka að dreifast um borgina og risastór tré birtast á hringtorgum og götum; Hring- brautin breytist í skóg. „Við verðum að ná stjórn á ástand- inu áður en það verður óviðráðan- legt,“ segir nágranni sögumanns þar sem hann á í útistöðum við eina vætt- ina sem hefur komið sér fyrir í tré í garðinum, en ástandið lítur út fyrir að vera óviðráðanlegt – mennirnir eru bara leiksoppar, eins og staddir í martröð sem ekki tekur enda. Lesandinn kynnist móður sögu- manns, sem hefur gefist upp á lífinu og lokað að sér í húsi í Höfnum, og vinum hans, Svenna og Aldísi. Hún er ástríðufullur tölvuleikjahönnurður og það er freistandi að skoða söguheim- inn og furðurnar í myrkri og kaldri borginni sem íbúarnir feta sig ótta- slegnir um eins og borð í tölvuleik. Þá er í mikilvægu hlutverki óvenjuleg ástkona með þaraböggul í farteskinu sem slær á verki – og hún býður upp á flóttaleið. Fyrsta skáldsaga Alexanders Dan, Hrímland, hreif marga lesendur og það verðskuldað. Þar skapaði höf- undur líka fantasíuheim í kringum Reykjavík, heim fullan af ógn og furðum, með fínum söguþræði. Í Vættum skapar hann allt annarskon- ar fantasíu, einnig myrkan, vel mót- aðan og forvitnilegan heim. Og heimssmíðin er líka sterkasta hlið höfundarins, hvernig hann notar þekkjanlegt umhverfi en afbakar það og bjagar með hinum ótrúlegustu uppákomum og hinum frumlegu ver- um sem lesanda finnast oft hlægileg- ar en vekja þó ógn persónanna. Þeg- ar á líður söguna taka draumar að renna saman við veruleikann, og fantasían fær þá um skeið völdin, bæði draumar sögumanns og vina hans þegar lesandinn fær innsýn í huga þeirra. En veikleikar frásagn- arinnar ágerast líka er á líður; sjón- arhorn færist á milli persóna, án þess að skipti máli fyrir framvinduna, og undir lokin er valin nokkuð fljótleg leið að lokum þar sem mótspyrna íbú- anna, og sögumanns, fjarar út og sag- an þar með. Fantasía Alexander Dan er flinkur í að skapa ævintýralega heima. Hnífum rignir og vættir í trjám Skáldsaga Vættir bbbmn Eftir Alexander Dan. Benedikt bókaútgáfa, 2018. Innbundin, 207 bls. EINAR FALUR INGÓLFSSON BÆKUR How the Grinch Stole Christmas Metacritic 46/100 IMDb 6,1/10 Bíó Paradís 20.00 Anna and the Apocalypse Metacritic 72/100 IMDb 6,6/10 Bíó Paradís 22.30 Bird Box Metacritic 60/100 IMDb 6,7/10 Bíó Paradís 22.15 Suspiria Metacritic 64/100 IMDb 7,3/10 Bíó Paradís 18.00 Roma Morgunblaðið bbbbb Metacritic 95/100 IMDb 8,6/10 Bíó Paradís 21.00 Love is all IMDb 4,5/10 Bíó Paradís 17.50 Plagues of Breslau Bíó Paradís 20.30 Aquaman 12 Metacritic 53/100 IMDb 7,9/10 Sambíóin Álfabakka 16.20, 16.40, 19.20, 19.40, 20.30, 22.20, 22.40 Sambíóin Egilshöll 17.00, 19.00, 20.00, 22.00, 23.00 Sambíóin Kringlunni 16.20, 19.20, 22.20 Sambíóin Akureyri 16.40, 19.40, 22.40 Sambíóin Keflavík 19.30, 22.20 Smárabíó 16.10, 16.30, 19.10, 19.30, 22.10, 22.30 Second Act IMDb 5,8/10 Háskólabíó 21.00 Borgarbíó Akureyri 19.30 Bumblebee 12 Breyti-vélmennið Bumble- bee leitar skjóls í ruslahaug í litlum strandbæ í Kaliforníu. Charlie finnur hinn bar- áttulúna og bilaða Bumble- bee. Metacritic 35/100 IMDb 7,0/10 Laugarásbíó 20.00 Sambíóin Álfabakka 22.20 Sambíóin Kringlunni 20.00 Creed II 12 Metacritic 67/100 IMDb 8,0/10 Sambíóin Egilshöll 22.40 Sambíóin Kringlunni 22.15 Sambíóin Akureyri 22.40 The Old Man and the Gun 12 Metacritic 80/100 IMDb 7,3/10 Háskólabíó 18.20 The Sisters Brothers 16 Á sjötta áratug nítjándu ald- arinnar í Oregon er gulleit- armaður á flótta undan hin- um alræmdu leigumorðingjum, the Sis- ters Brothers. Metacritic 78/100 IMDb 7,2/10 Laugarásbíó 22.30 Bohemian Rhapsody 12 Morgunblaðið bbbbn Metacritic 49/100 IMDb 8,4/10 Laugarásbíó 19.50, 22.30 Smárabíó 16.50, 19.40, 22.40 Háskólabíó 17.40, 20.30 Borgarbíó Akureyri 21.30 A Star Is Born 12 Morgunblaðið bbbbm Metacritic 88/100 IMDb 8,3/10 Sambíóin Kringlunni 16.45, 19.30 Lof mér að falla 14 Morgunblaðið bbbbn IMDb 8,8/10 Háskólabíó 20.40 Venom 16 Morgunblaðið bbnnn Metacritic 35/100 IMDb 7,0/10 Smárabíó 22.40 Ralf rústar internetinu Sugar Ruch spilasalurinn er í rúst, og Ralph og Vanellope þurfa að bregða sér á inter- netið til að endurheimta hlut sem nauðsynlegur er til að bjarga leiknum. Metacritic 71/100 IMDb 7,6/10 Laugarásbíó 14.00, 17.00 Sambíóin Álfabakka 15.30, 17.30, 18.00, 20.00, 22.30 Sambíóin Egilshöll 17.30 Sambíóin Kringlunni 17.30 Sambíóin Akureyri 17.00 Sambíóin Keflavík 17.00 The Grinch Trölli lætur það fara í taug- arnar á sér þegar fyrrverandi nágrannar hans byrja að skreyta fyrir jólin, kaupa gjafir og gleðjast. Laugarásbíó 13.50, 15.50, 17.50 Sambíóin Keflavík 17.20 Smárabíó 15.10, 17.30 Háskólabíó 18.10 Borgarbíó Akureyri 17.30 The Nutcracker and the Four Realms Það eina sem Clara vill er lykill - einstakur lykill sem mun opna kassa með ómet- anlegri gjöf frá móður henn- ar heitinni. Metacritic 39/100 IMDb 5,6/10 Sambíóin Álfabakka 15.20 Eftir Sextíu mínútna stríðið lifir borgarbúar á eyðilegri jörðinni, með því að færa sig á mili staða á risastórum farartækjum, og ráðast á smærri þorp. Metacritic 48/100 IMDb 6,6/10 Laugarásbíó 14.00, 17.00, 19.50, 22.25 Sambíóin Álfabakka 17.00, 19.40, 22.20 Sambíóin Egilshöll 17.20, 20.00, 22.40 Sambíóin Keflavík 19.30, 22.10 Smárabíó 16.40, 19.40, 22.40 Háskólabíó 18.00, 20.50 Borgarbíó Akureyri 17.00, 19.30, 22.00 Mortal Engines 12 Fantastic Beasts: The Crimes of Grindelwald Bönnuð börnum yngri en 9 ára. Morgunblaðið bbbbn Metacritic 57/100 IMDb 7,7/10 Sambíóin Álfabakka 16.20, 19.40 Sambíóin Egilshöll 20.00 Sambíóin Kringlunni 22.30 Sambíóin Akureyri 19.40 Widows 16 Fjórar konur taka á sig skuldir sem orðið hafa til vegna glæpaverka eig- inmanna þeirra, taka síð- an málin í sínar hendur og byggja upp nýja framtíð. Morgunblaðið bbbnn Metacritic 84/100 IMDb 7,5/10 Smárabíó 19.50 Nánari upplýsingar um sýningar og sali má finna á heimasíðu kvikmyndahúsanna Kvikmyndir bíóhúsanna mbl.is/bio Raumgestalt bretti Verð frá 2.900 kr. laugavegi 47 www.kokka.is kokka@kokka.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.