Morgunblaðið - 21.12.2018, Blaðsíða 30
30 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. DESEMBER 2018
Árni Sigurjónsson, yfirlögfræðingur Marel, er 40 ára í dag. Um6.500 manns starfa hjá fyrirtækinu í meira en 30 löndum og því erum mjög víðtækt starf að ræða og í mörg horn að líta.
„Marel er einstakur vinnustaður og viðfangsefnin alltaf fjölbreytt,
krefjandi og skemmtileg. Við erum með lögfræðiteymi á flestum af okkar
stærstu starfsstöðvum; á Íslandi, í Hollandi, Bandaríkjunum og Brasilíu.
Ég starfa einnig náið með stjórninni okkar og framkvæmdastjórn og veiti
þeim ráðgjöf í ýmsum málum sem tengjast rekstri félagsins. Félagið vex
hratt og það hefur verið lærdómsríkt að taka þátt í uppbyggingunni þessi
tæpu 10 ár sem ég hef starfað hjá Marel.“
Árni er jafnframt varaformaður stjórnar Samtaka iðnaðarins og situr í
framkvæmdastjórn og stjórn Samtaka atvinnulífsins. „Það er hin hliðin á
mínu vinnumhverfi sem eru forréttindi að fá að taka þátt í. Nú í aðdrag-
anda kjarasamninga fer til að mynda töluverður tími í vinnumarkaðsmál í
störfum mínum innan SA.“ Árni segir þó að það sé allt að smella saman
hjá honum með jólainnkaupin.
„Frítíminn er einkum nýttur með fjölskyldunni og þrjú elstu börnin eru
í íþróttum og tómstundum og maður tekur þátt í því. Ég hef mikinn áhuga
á íþróttum, þótt ég sé ekki nógu duglegur að iðka þær sjálfur, en fylgist
vel með og er mikill Víkingur. Þá hef ég mjög gaman af laxveiði og reyni
að komast að minnsta kosti tvisvar til þrisvar í veiði yfir sumartímann.“
Eiginkona Árna er Guðrún Þóra Mogensen og vinnur hún á fjármála-
sviði Sjóvár. Börn þeirra eru Gunnar 13 ára, Sigurjón 11 ára, Ásta Mar-
grét átta ára og Hulda Vigdís þriggja ára.
„Skólarnir eru komnir í jólafrí og við Guðrún ætlum að taka okkur frí í
dag og njóta dagsins með börnunum, þannig að það má segja að við séum
komin snemma í jólafrí. Svo mun ég væntanlega fá heimsókn frá vinum
og ættingjum þegar líða tekur á daginn en það eru engin stór plön um
veislu að sinni. Við hjónin urðum bæði fertug á árinu þannig að það er
aldrei að vita hvað gerist í þeim efnum.“
Ljósmynd/Harpa Hrund
Fjölskyldan Árni Sigurjónsson og Guðrún Þóra Mogensen ásamt börn-
unum fjórum, Gunnari, Huldu Vigdísi, Sigurjóni og Ástu Margréti.
Snemma í jólafríið
Árni Sigurjónsson er fertugur í dag
E
línborg Sturludóttir
fæddist í Reykjavík
21.12. 1968. Hún ólst
upp í Stykkishólmi frá
sex ára aldri. Hún lauk
grunnskólaprófi frá Grunnskólanum í
Stykkishólmi og var mikið á Hjarðar-
felli í Miklaholtshreppi á æsku-
árunum, þar sem móðurforeldrar
hennar voru bændur.
Elínborg lauk stúdentsprófi frá MR
1988, lærði frönsku í Sorbonne vetur-
inn 1988-89, lauk BA-prófi í heimspeki
frá HÍ 1995 og cand.theol-prófi í guð-
fræði frá HÍ árið 2002. Auk þess var
hún Nordplusnemandi í Árósaháskóla
1996-97.
Elínborg vann ýmis sumarstörf í
Stykkishólmi á unglingsárum sínum,
s.s. í bæjarvinnunni, í fiskvinnslu, á
pósthúsinu, á St. Franciskussjúkra-
húsi og Hótel Stykkishólmi. Hún
starfaði í þjóðgarðinum á Þingvöllum
frá sumrinu 1993-2000, var sóknar-
prestur í Setbergsprestakalli í Grund-
arfirði 2003-2008, sóknarprestur í
Stafholtsprestakalli 2008-2018 og
hefur verið dómkirkjuprestur frá
síðastliðnu hausti.
Elínborg sat í bekkjarráði í MR, í
stjórn Soffíu, félags heimspekinema
1989-90, í stjórn Vöku 1990-92, í stúd-
entaráði HÍ 1991-93 og stjórn Stúd-
entaráðs HÍ 1991-92. Hún sat í stjórn
Prestafélags Íslands 2006-2015, fyrst
sem varamaður og síðar varafor-
maður, var þar kjarafulltrúi, í stjórn
foreldrafélags og foreldraráði GBF
2008-2014, í stjórn Hjálparstarfs kirkj-
unnar 2005-2012, í Umhverfisnefnd
þjóðkirkjunnar 2006-2008 og frá 2017,
er stofnfélagi áhugamannafélagsins
Pílagrímar, situr í stjórn þess frá 2012
og í stjórn siðfræðistofnunar HÍ frá
2016.
Helstu áhugamál Elínborgar eru
pílagrímagöngur, bókmenntir og
hannyrðir.
Elínborg hefur staðið fyrir og leitt
pílagrímagöngur bæði innanlands og
utan. Hún hefur í samstarfi við aðra
Elínborg Sturludóttir dómkirkjuprestur – 50 ára
Fjölskyldan Elínborg og Jón Ásgeir ásamt börnunum þremur, Kolbeini Högna, Sturlu og Hallgerði Kolbrúnu.
Vikulegar pílagríma-
göngur um Miðbæinn
Í afmælisstellingum Elínborg og
Jón Ásgeir eiga sama afmælisdag
og þau eru bæði þjónandi prestar.
Garðabær Yrsa Markúsdóttir
fæddist 13. apríl 2018 í
Reykjavík kl. 2.43. Hún vó
4.010 g og var 53 cm löng.
Foreldrar hennar eru Sólveig
Vilhjálmsdóttir og Markús
Andri Sigurðsson.
Nýr borgari
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is