Morgunblaðið - 21.12.2018, Blaðsíða 33
DÆGRADVÖL 33
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. DESEMBER 2018
Verið velkomin í verslun okkar
Opið virka daga kl. 8:30–17:00
Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is
fastus.is
YAXELL HNÍFAR
FYRIR KRÖFUHARÐA KOKKA
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Láttu óttann ekki hindra þig í að ná
takmarki þínu. Ekki eyða púðri í vonlaust ást-
arsamband. Þú getur ekki leyst vandamál
annarra.
20. apríl - 20. maí
Naut Samstarfsmenn eru algerlega óútreikn-
anlegir í dag. Vertu á varðbergi. Lundin léttist
nú þegar daginn fer að lengja aftur. Einhver
hælir þér á hvert reipi.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú hefur verið í miklum sam-
skiptum við annað fólk að undanförnu og
þarft því á svolítilli einveru að halda. Biddu
um hluti, enginn les hugsanir.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú munt hugsanlega þiggja góð ráð
frá vinnufélaga sem er þér eldri og reyndari.
Spurðu þig: hvað gleður mig og hvert stefni
ég í lífinu? Það er aldrei of seint að breyta til.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú þarft ekki að hafa áhyggjur ef þú
kemur til dyranna eins og þú ert klædd/ur.
Sannleikurinn gerir þig frjálsa/n. Ekki hlusta
á gagnrýnisraddir.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú hefur tileinkað þér hugarfar hins
sigursæla og jákvæða. Ekki gefast upp fyrr en
þú hefur fengið svör við þeim spurningum
sem brenna á þér.
23. sept. - 22. okt.
Vog Eitthvað úr fortíð þinni kemur sífellt upp
í hugann. Þarftu ekki að vinna í því að fá botn
í hlutina og halda áfram? Þú stendur á kross-
götum.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú átt auðvelt með að ræða við
annað fólk og hafa áhrif á það. Jákvæðni þín
er smitandi. Mundu að Róm var ekki byggð á
einum degi.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú hefur lengi velt fyrir þér
hvernig hægt sé að bæta andrúmsloftið á
vinnustaðnum. Þú færð snilldarhugmynd og
hrindir henni í framkvæmd.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Láttu það ekki hvarfla að þér að þú
getir borið allar heimsins byrðar. Hugsaðu
um hvernig þú vilt bæta samskipti þín við
fjölskylduna. Litlir hlutir skipta oft sköpum.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þetta er góður dagur til að koma
hugmyndum þínum á framfæri. Þú hefur allt
of mikið á þinni könnu, deildu verkefnum nið-
ur á aðra.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Betur sjá augu en auga svo þú skalt
koma á fundi til að leggja á ráðin. Hugsaðu
um það hvernig þú getur látið eitthvað gott af
þér leiða til þess að bæta heiminn.
Það er vandlifað í henni veröld. Ísumar lýsti Víkverji fyrir les-
endum flóknu ferli í snúðainnkaupum
með elskulegum maka í bakaríi
nokkru. Víkverji var rétt núbúinn að
jafna sig á þeirri erfiðu ferð sem ýtti
vel undir meðfæddan valkvíða Vík-
verja þegar hann lent í svipuðum að-
stæðum í jólainnkaupunum.
x x x
Víkverji er annálaður smekkmaður,já eða kona eftir því hvernig á
það er litið. Þegar Víkverji hafði af
kostgæfni fundið fallegar gjafir fyrir
frænkur sínar og ætlaði að greiða fyr-
ir þær, hófst spurningaflóðið.
x x x
Góðan dag, (kl. 21.00) fannstu alltsem þú þurftir?“ Já takk.
„Eru þetta gjafir eða persónulegir
hlutir?“ Bæði sagði Víkverji og skipti
á ógnarhraða fengnum í tvo parta.
jólagjafir og persónuleg kaup.
„Viltu gjafamiða á jólagjafirnar?“
spurði starfsmaðurinn kurteislega.
Já, það væri fínt sagði Víkverji
þakklátur fyrir hugulsemina.
„Viltu fá box utan um gjafirnar?“
Já, takk, fín þjónusta hjá ykkur
sagði Víkverji, enn glaðari.
„Er þetta ein jólagjöf eða tvær?"
Uh, þetta eru tvær svaraði Víkverji
sem fannst örskotstund eins og
starfsmaðurinn væri að væna sig um
skort á gjafmildi. En Víkverji hristi
slíkar hugsanir af sér. Að sjálfsögðu
var þetta einungis partur af jólagjöf-
unum. Víkverja langaði til þess að
halda örlítinn fyrirlestur um að það
væri hugurinn sem skipti máli ekki
magn eða verð. Með miklum vilja-
styrk hélt Víkverji aftur af sér.
„Viltu poka á 30 kr?“ Já takk, ekki
veitir nú af því í öllum þessum inn-
kaupum, svaraði Víkverji.
„Viltu styðja hjálparsamtök með
því að....?“ spurði starfmaðurinn og
þuldi upp í belg og biðu fjölmarga
möguleika á stuðningi. Nei ekki í
þetta sinn, svaraði Víkverji sem átti
erfitt með að henda reiður á hugs-
unum sínum.
„Borga með pening eða korti?“
Korti svaraði Víkverji ámátlega.
„Eigðu góðan dag,“ sagði starf-
maðurinn brosandi (kl. 21.15).
Föstudags-Víkverji óskar les-
endum gleðilegra jóla. vikverji@mbl.is
Víkverji
Þótt hold mitt og hjarta tærist er Guð
bjarg hjarta míns og hlutskipti mitt
um eilífð.
(Sálm: 73.26)
Helgi R. Einarsson yrkir um„Upphafið“:
Forðum Tóta tældi
Tuma og við hann gældi
á hælkrók lagði
ljómaði’ og sagði:
„Loksins ég í þig nældi.“
Og í réttu samhengi um „Þroska-
sögu“:
Stundum í fýlu fór
Fía’ út í Hannes Þór.
Þær barnslegu stælur
breyttust í gælur
er bæði voru’ orðin stór.
Hallmundur Guðmundsson segist
á Boðnarmiði hafa fundið skýringu
á því hvað Sigmundur Davíð vill
með prest í dómsalinn:
Hann aldrei hefur skynið skort
né skriplað út í bláinn
Nú hann þarf að kanna hvort,
sé kaþólskar’ en páfinn.
Helgi Ingólfsson er með á nót-
unum:
Góðmennskan svo gullin er,
og gildur Wintrishnokkinn,
að dag nokkurn í desember
Drottinn gekk í flokkinn.
Ekki verður við öllu séð. Svanur
H. Guðmundsson kveður:
Klaustursræðum kláms og tuðs
kröpp er sókn til varna
því alsjáandi augu guðs,
undan litu þarna.
Bjarni Gunnlaugur Bjarnason
þekkir líka vel til í efra:
Þó drottinn aldrei fari í frí
og flest sé honum gerlegt
undan leit hann út af því
hve orðbragðið var ferlegt
Magnús Halldórsson; segir „eng-
ar upptökur að sækja“ til dóm-
kirkjuprestsins:
Vitnisburð kannski hann verður að gefa,
sem vel gæti málinu breytt.
En dómkirkjuprestur þó dregur í efa,
að drottinn og hann viti neitt.
Sigtryggur Jónsson
Kaffidrykkjan söm við sig,
sælar verða hjartarætur.
Eins er ljóða langar mig,
langar dimmar vetrarnætur.
Sigurlín Hermannsdóttir orti á
Leir fyrir viku rúmri:
Myrkrið svart er mörgum þraut
mæðir regnið sálarhró.
Landið nú í lægðabraut
og lítil von um jólasnjó.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Af hælkrók og
barnslegum stælum
Í klípu
BIRGIR FÆR ANNAÐ ÁLIT.
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„Þú verÐur aÐ koma aftur seinna. Þeir
bíta ekki á.”
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... þegar hann eldar
með afleiðingum.
VEISTU, SVEINKI VEIT HVORT
ÞÚ HEFUR VERIÐ ÓÞEKKUR …
HANN ER MEÐ LISTA
ÞÁ ER BARA EINN
MÖGULEIKI Í STÖÐUNNI
EINHVER HEFUR HAKKAÐ SIG
INN Í SLÆMA LISTANN
HRÓLFUR! SKATTHEIMTUMAÐURINN ER KOMINN!
HANN GRUNAR AÐ ÞÚ HAFIR ÝKT FRÁDRÁTTINN
VEGNA HÚSAVIÐHALDS!
HVERNIG DATT HONUM
ÞAÐ Í HUG?
ÞÚ MUNT RÍSA ÚR REKKJU
Á ÖRSKOTSSTUNDU.
VOTTAÐU BARA AÐ ÞÚ
HAFNIR ENDURLÍFGUN.