Morgunblaðið - 22.12.2018, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. DESEMBER 2018
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Hlýtt hefur verið á landinu fyrstu
20 daga desembermánaðar, sam-
kvæmt yfirliti Trausta Jónssonar.
Er þetta framhald af hlýjum nóv-
ember.
Meðalhiti í Reykjavík er +2,8
stig, 2,5 stig ofan meðallags ár-
anna 1961-1990 og +2,4 stig ofan
meðallags sömu daga síðustu tíu
árin. Hitinn er nú í 5. hlýjasta
sæti sömu daga á öldinni. Hlýj-
astir voru þeir 2016 – meðalhiti
5,6 stig, en kaldastir 2011, með-
alhiti -2,8 stig. Á langa listanum
er hiti mánaðarins til þessa í 15.
hlýjasta sæti (af 143). Á þeim lista
er 2016 líka í efsta sæti, en 1886
er í því neðsta, þá var meðalhiti
-5,6 stig.
Frost hefur mælst 9 daga
mánaðarins til þessa í Reykjavík
(sá 21. talinn með). Árið 2016 var
fjöldi frostdaga á sama tíma að-
eins tveir, og árið 2002 mældist
ekkert frost í Reykjavík fyrstu
þrjár vikur desembermánaðar.
Nokkrum sinnum hefur frost verið
á hverjum degi þessar fyrstu þrjár
vikur desember, síðast árið 2014.
Á Akureyri er meðalhiti dag-
anna 20 0,0 stig, +1,2 ofan meðal-
lags 1961-1990, en 1,1 ofan meðal-
lags síðustu tíu ára. Hiti er ofan
meðallags síðustu tíu ára á öllum
veðurstöðvum landsins, mest á
Mörk á Landi þar sem vikið er
+3,5 stig, en langminnst er vikið á
Sauðárkróksflugvelli, +0,1 stig.
sisi@mbl.is
Desember hlýr á
landinu til þessa
Morgunblaðið/Hari
Desember Jólasveinarnir fara allra
sinna ferða á snjólausri jörðinni.
Meðalhiti í Reykjavík er +2,8 stig
Guðrún Erlingsdóttir
ge@mbl.is
„Við fylgjumst vel með en miðað við
hvernig flensan hefur hegðað sér á
undanförnum árum þá virðist hún
vera tveimur vikum fyrr á ferðinni í
ár og sækir í sig veðrið,“ segir Þór-
ólfur Guðnason sóttvarnalæknir og
bætir við að það hafi komið kúfur
fyrir nokkrum vikum og nú aftur í
síðustu viku, en þá leituðu 39 sjúk-
lingar með inflúensulík einkenni á
heilsugæslur og bráðamóttökur.
Þórólfur segir niðurgangspestir á
svipuðu róli og í fyrra.
„Það er fjöldi veirusýkinga í
gangi. RS-veirusýking kemur alltaf
upp um þetta leyti. Flensan og RS
berjast um yfirráðin. Þau toppa yfir-
leitt ekki á sama tíma því annað
þeirra nær oftast að troða sér fram
fyrir hitt,“ segir Þórólfur og bætir
við að með betri greiningum hafi
RS-vírusinn greinst oftar í eldra
fólki en RS geti lagst þungt á eldra
fólk sem og ung börn.
„Þeir vírusar og pestir sem eru í
gangi í dag berast á milli manna með
úða eða snertismiti og því skiptir
gamli góði handþvotturinn miklu
máli,“ segir Þórólfur.
Inflúensan
fyrr á
ferðinni
Barátta milli inflú-
ensu og RS-vírussins
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Eins og lög gera ráð fyrir eftir að
máli er vísað hingað mun ég boða
fund eins fljótt og verða má. Stefnan
er að koma því við milli jóla og nýárs,
nánar tiltekið 28. desember. Það
verður þá alla vega stöðufundur þar
sem hægt verður að kalla eftir gögn-
um,“ segir Bryndís Hlöðversdóttir
ríkissáttasemjari í samtali við Morg-
unblaðið.
Formenn VR, Eflingar og Verka-
lýðsfélags Akraness tilkynntu í gær
að þau hefðu ákveðið að vísa viðræð-
um félaga sinna við Samtök atvinnu-
lífsins til ríkissáttasemjara. „Við
undirrituð teljum að viðræður síð-
ustu vikna við Samtök atvinnulífsins
hafi verið árangurslausar og afstöðu
stjórnvalda skýra vísbendingu um að
þau hyggist ekkert gera til að liðka
fyrir viðræðum,“ sagði í yfirlýsingu
þeirra Ragnars Þórs Ingólfssonar,
Sólveigar Önnu Jónsdóttur og Vil-
hjálms Birgissonar.
Ennfremur kom fram í yfirlýsingu
formannanna þriggja að SA hefði
svarað kröfum þeirra með gagn-
kröfu um uppstokkun á vinnutíma og
breytingum á grundvallarréttindum
launafólks, „réttindum sem náðust
með áralangri baráttu vinnandi
fólks“. Þremenningarnir segjast
gera kröfu um róttækar breytingar á
núverandi kerfi, sanngjarnar launa-
leiðréttingar og boðlegt líf en fátt sé
um svör. „Þeir sem vilja tryggja
sanngirni og réttlæti á vinnumarkaði
eru sakaðir um ábyrgðarleysi og
jafnvel öfgar. Eini kosturinn sem
býðst vinnandi fólki er kyrrstöðu-
samningar.“
Halldór Benjamín Þorbergsson,
framkvæmdastjóri SA, sagði síðdeg-
is í gær að þessi tíðindi hefðu legið í
loftinu og fínt væri að fá staðfestingu
á þeim.
„Það skiptir ekki sköpum í hvaða
hópa verkalýðshreyfingin skiptir sér
eða hverja hún kýs að kalla að borð-
inu. Takturinn í hagkerfinu hefur
ekkert breyst við þessi tíðindi. Stað-
an í atvinnulífinu hefur ekki breyst
og þeim krónum sem eru til skipt-
anna hefur ekkert fjölgað. Það er
það sem mestu máli skiptir,“ sagði
Halldór Benjamín við Morgunblaðið.
Fundað milli jóla og nýárs
VR, Efling og VLFA vísa til sáttasemjara Fyrsti fundur verður 28. desember
Vaðlaheiðargöng eru nú opin fyrir
bílaumferð og verður gjaldfrjálst
að aka þar í gegn til 2. janúar næst-
komandi. Samkvæmt upplýsingum
frá Vegagerðinni lauk öllum örygg-
isprófunum í gær og voru göngin í
kjölfarið opnuð klukkan 18.
Á Facebook-síðu Vaðlaheiðar-
ganga segir að það sé „afskaplega
gleðilegt að geta gefið Norðlend-
ingum og landsmönnum öllum þá
jólagjöf að geta nú loksins ekið í
gegnum göngin,“ en formleg opnun
verður 12. janúar.
Vaðlaheiðargöng nú
opin fyrir umferð
„Það er bara veðrið undanfarið sem veldur þessu. Það
snjóaði hressilega fyrir norðan og er óvenju snjómikið
uppi á Kili. En yfirleitt er kominn snjór víðar á þessum
árstíma,“ segir Inga Jónsdóttir, hjá Veðurstofu Íslands,
um snjóskilin milli Norðaustur- og Suðvesturlands um
þessar myndir. Snjóskilin sjást vel á gervihnattamynd
frá bandarísku geimferðastofnuninni NASA. Myndin er
mjög ljósnæm og sást vel hvernig tunglið skein á Ísland.
„Tunglið var nærri því fullt [í fyrrinótt], en þegar
þannig er þá er svo mikið tunglskin. Þetta er mjög ljós-
næm gervitunglamynd þannig að ljós sjást nánast frá
hverjum einasta bæ, en það í bland við tunglskinið veld-
ur því að snjóhulan sést ótrúlega vel. Það sést á Vatna-
jökli að það kemur skuggi af tunglskininu og svo sést að
Öskjuvatn er ekki enn frosið sem telst óvenjulegt. Yfir-
leitt frýs það í byrjun desember,“ segir hún.
Ljósmynd/NASA
Tunglið lýsti upp næturmyrkrið
Skötusala fór mun fyrr af stað í ár
en vanalega og hefur ekki selst eins
mikið af skötu og í ár svo áratugum
skiptir. Þetta segir Kristján Berg,
sem einnig er þekktur undir heitinu
Fiskikóngurinn.
„Fiskverslanir hafa ekki selt jafn
mikið af skötu svo að ég muni og ég
er búinn að vera 30 ár í þessum
bransa,“ segir Kristján, en hann sér
fram á hátt í 40 prósenta aukningu
hjá sér milli ára. Fisksalar eiga erfitt
með að skýra þetta óvænta skötu-
æði, en Kristján segir það ef til vill
hafa áhrif að Þorláksmessu ber upp
á sunnudag þetta árið og því margir
sem ætla að bjóða til skötuveislu í
heimahúsum.
„Það er búið að vera ótrúlega gott
veður í haust og það eru náttúrlega
kjöraðstæður fyrir kæsingu á skötu.
Skatan kæsist best þegar það er
fimm til átta gráðu hiti. Skatan er
eiginlega baneitruð, hún hefur aldr-
ei verið jafn kæst og í ár,“ segir
Kristján fiskikóngur.
Landsmenn ætla margir að bragða á skötu í ár og er sala á henni mjög góð
Jólaskatan
sögð ban-
eitruð í ár
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Skötuæði 2018 er ár skötunnar og anna fisksalar vart eftirspurn, þar á meðal Sigfús Sigurðsson sem hóf nýlega
eigin rekstur fiskverslunar. Kristján Berg fiskikóngur býst við að selja 40 prósentum meira af skötu en í fyrra.