Morgunblaðið - 22.12.2018, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 22.12.2018, Qupperneq 18
18 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. DESEMBER 2018 Morgunblaðið birtir hér síðustu tilkynningar um viðburði á þessari að- ventu og óskar lesendum sínum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Tveir dagar til jóla Jólamarkaður Skógræktarfélags Reykjavíkur í Heiðmörk verður opinn í dag, í síðasta sinn fyrir jól. Dagskráin er að vanda fjölbreytt, þar sem tónlist verður flutt og lesið upp úr jólabókunum. Úrval mat- vara og handverks er á boðstólum og hægt að fá sér kakó og kökur. Þau sem mæta í bæinn við Elliða- árvatn eru Bergur Ebbi, Bergrún Íris, sem verður með barnastund í Rjóðrinu, Maximús Músikus, Mar- teinn Sindri og Daníel Friðrik. Opið er í dag frá kl. 11-16. Síðasti jólamarkaðurinn í Heiðmörk Morgunblaðið/Hari Heiðmörk Jólasveinarnir hafa mætt á markaðinn og trallað með börnunum. Fyrirtækið Lota ákvað að láta gott af sér leiða þessi jólin og styrkti góð- gerðarfélagið Bumbuloní með veglegum styrk. Bumbuloní styrk- ir fjölskyldur alvar- legra langveikra barna fyrir jól ár hvert. Félagið var stofnað af Ásdísi Örnu Gott- skálksdóttur árið 2015 í þeim tilgangi að halda minningu sonar hennar á lofti, en hann lést aðeins sex ára gamall árið 2013 úr sjaldgæfum sjúkdómi. Sjá frekari upplýsingar á www.bumbuloni.is. Erlen Björk Helgadóttir mannauðsstjóri af- henti fyrir hönd starfsmanna Lotu styrkinn til þeirra Ásdísar Örnu Gottskálksdóttur og Árnínu Steinunnar Kristjánsdóttur, stjórnarmanna Bumbuloní góðgerðafélagsins. Lota styrkti Bumbuloní Jólin Fulltrúi Lotu afhendir tals- konum Bumbuloní styrkinn. Vinnustofa listamanna að Hólmaslóð 4 í Reykjavík verður opin í dag, laugar- dag, á 2. hæðinni. Þarna hafa um 30 lista- menn verið að störfum en í dag verða Ólöf Björg Björnsdóttir, Hulda Vil- hjálmsdóttir og Jón Magn- ússon í jólaskapi og taka á móti gestum og gangandi. Þau segjast í tilkynningu lofa huggulegri jólastemn- ingu. Heitt verður á könnunni og hægt að skoða margskonar list í ýmsum stærðum. Má þar nefna málverk á striga og papp- ír, plaköt, grafíkverk, teikningar og skúlptúra. Þannig hefur Ólöf Björg verið að innramma lítil blek- og vatnslitamálverk, sem hún segir tilvalin til jólagjafa. „Komið og njótið með okkur í dásamlegum jóla- og lista- anda á Grandanum, með hlýju og gleði,“ segir í tilkynningu listafólksins að Hólmaslóð 4. Listamenn Jón Magnússon, Ólöf Björg Björnsdóttir og Hulda Vilhjálmsdóttir. Jólavinnustofa á Hólmaslóð í dag ÚR BÆJARLÍFINU Andrés Skúlason Djúpavogi Margt og mikið hefur verið á dag- skrá á aðventunni á Djúpavogi með margháttuðum tónlistarviðburðum auk þess sem fullveldisafmælinu hafa verið gerð skil með áberandi hætti.    Í byrjun mánaðar, þegar íbúar á Djúpavogi héldu að nú væri jóla- snjórinn endanlega kominn eftir stutt norðanhret, snérust vindar fljótt til hlýrri átta þannig að stærst- ur hluti desembermánaðar hefur verið helgaður hlýindum með rign- ingarívafi.    Nýframkvæmd um Axarveg hefur um langt árabil verið lang- stærsta áherslumál sveitarstjórnar og íbúa á Djúpavogi. Nú má segja að hilli undir að stór hluti nýfram- kvæmdar um Axarveg verði settur inn á 5 ára samgönguáætlun. Um- ræða um veggjöld hefur verið mikil úti um land allt og verður ekki annað metið en svo að mikill meirihluti íbúa hér, eins og annars staðar, sé mjög áfram um hið nýja veggjald enda opni það á algjörlega breytta mynd varðandi samgöngubætur sem kallað hefur verið eftir. Skemmst er frá því að segja að þrátt fyrir að Axarvegur sé í dag ennþá fullkomlega óuppbyggður, sem stenst engin viðmið um veg- öryggi, er sumarfæri um veginn í dag yfir til Héraðs.    Atvinnuástand er með ágætum á Djúpavogi og sem áður heldur fiskvinnslu- og útgerðarfyrirtækið Búlandstindur ehf., sem hefur um 60 manns í vinnu, uppi stöðugri at- vinnu. Búlandstindur hefur verið að bæta verulega allan tækjakost og nú eru afkastamiklir róbótar einnig komnir til sögunnar sem og nýjar vélar sem hafa með kælingu á fiski að gera. Meginuppistaða vinnsl- unnar í dag er hefðbundinn bolfiskur og svo fer hlutur laxfiska sífellt stækkandi. Á Djúpavogi er laxi einn- ig slátrað frá fyrirtækinu Löxum sem hefur aðsetur sitt á Reyðarfirði.    Talsvert hefur verið um flækingsfugla eins og gjarnan vill verða þegar vindar sveiflast jafn mikið og raun hefur verið. Má þar nefna kærkomna flækinga á borð við hauksöngvara, grænfinku, silkitopp, fjallafinkur, skutulendur og fleiri al- genga flækinga sem heimsækja okk- ur oft á þessum tíma árs. Sendi bestu jólakveðjur með von um heillaríkt nýtt ár. Morgunblaðið/Andrés Skúlason Aðventan Búlandstindur skartar sínu fegursta á aðventunni en veðurblíðan hefur verið mikil í desember. Mikil hlýindi á aðventunni Verð frá 94.999 25% afsláttur af aukakönnum Vitamix blandararnir eiga sér engan jafningja. Mylja nánast hvað sem er. Búa til heita súpu og ís. Hraðastillir, prógrömm og pulse rofi sjá til þess að blandan verður ávallt fullkomin og fersk! Jólagjöfin í ár Rauðagerði 25 108 Rvk Sími 440-1800 www.kaelitaekni.is Ascent serían frá Vitamix

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.