Morgunblaðið - 22.12.2018, Page 41
DÆGRADVÖL 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. DESEMBER 2018
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Það þarf ýmislegt að leggja á sig til
þess að halda sambandi við annað fólk gang-
andi. Því væri upplagt að gera sér glaðan dag í
góðra vina hópi.
20. apríl - 20. maí
Naut Ekki bíða eftir því að hlutirnir gerist,
taktu málin í þínar hendur. Þú kannt að gera
mikið úr litlu. Ýmislegt óvænt á eftir að koma
upp úr kafinu næstu vikur.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Haltu fast um pyngjuna núna fyrir
jólin. Þú hefur of lengi bitið á jaxlinn, drífðu þig
til læknis og bættu ástandið. Einhver nær að
plata þig.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú gætir fundið fyrir tilfinningum í
garð einhverrar manneskju sem er mjög ólík
þér. Einhver ágreiningur gæti komið upp varð-
andi heimilisþrifin og þá er að komast að sam-
komulagi.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú þarft að finna leið til þess að vinna
hugmyndum þínum brautargengi. Ræktaðu
garðinn þinn, þá verða allir í kringum þig glað-
ari.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Framtíðin er björt og mikið verður um
ferðalög á komandi ári. Vertu opin/n fyrir hug-
myndum frá yngstu kynslóðinni. Einhver þér
nákominn gengur í hjónaband fljótlega.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú stendur á tímamótum og þarft að gera
upp hug þinn til nýrra verkefna. Það kemur
upp ósætti í vinahópnum sem þó leysist fljótt.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Eitthvað sem tengist fjármálum
og eignum veldur þér áhyggjum í dag. Vertu
viss um að þú eigir fyrir því sem þú kaupir. Nýr
fjölskyldumeðlimur kemur til sögunnar fljót-
lega.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú nýtur þess að undirbúa jólin og
barnsleg gleði þín hefur áhrif á alla sem um-
gangast þig. Vertu opin/n fyrir hugmyndum
annarra og láttu alla fá hlutverk sem það vilja.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þig langar til að kaupa eitthvað og
það strax. Einhver gengur á eftir þér með gras-
ið í skónum. Fall er fararheill.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú hefur alla möguleika á því að fá
fólk til liðs við þig ef þú gætir þess að flytja mál
þitt með öfgalausum hætti. Ef einhver vill létta
undir með þér skaltu þiggja það.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Það er ekki létt verk að vera vinur
margra í einu. Sópaðu áhyggjunum undir tepp-
ið í nokkra daga, þær breyta hvort sem er
engu.
Gátan er sem endranær eftirGuðmund Arnfinnsson:
Þór og Elli þreyttu forðum.
Þau má finna á veisluborðum.
Leynist hérna lítil sáta.
Líka faðmur hlýr úr máta.
Þessi er lausn Hörpu á Hjarðar-
felli:
Þreyttu fangbrögð Þór og Elli.
Þarna eru veisluföng.
Forðum saxað fang í hvelli.
Fangi vafði börnin svöng.
Helgi Seljan svarar:
Fangbrögð áður þreyttu Þór og Elli.
Þarna ég sé nú veizluföng á borði.
Föngin saxa réð á flottum velli.
Í fang’ans stúlkan hneig með kær-
leiksorði.
Þessi er lausn Guðrúnar Bjarna-
dóttur:
Fangbrögð þreytti Þór við Ella,
þurfti síðan veisluföng.
Á túni falleg föng. Þar gella
í fang tók Þór. Samt líka svöng.
Helgi R. Einarsson leysir gátuna
þannig:
Að lausn oft virðist löng
leið og frekar ströng,
rétt, nú eða röng.
Hér rímar allt við föng.
Þessi er skýring Guðmundar:
Fangbrögð þreyttu Þór og Elli.
Þekja matföng veisluborð.
Fang er sáta flutt af velli.
Fang er hlýtt á baugaskorð.
Þá er limra:
Kvað Manga við svanga Manga:
Með þér út á langa tanga
mig langar að ganga
að leita fanga,
ég nenni ekki heima að hanga.
Og síðan ný gáta eftir Guðmund:
Sólin skín í gegnum gler,
geislum baðar land og ver,
gatan bein og greiðfær er,
gátu sendi nú frá mér:
Frem ég það, ef flýti mér.
Fæðu hún að munni ber.
Þetta mannsins ævi er.
Í þau rýtingurinn fer.
Um aldamótin flutti Páll úr Loð-
mundarfirði norður á Sléttu og
dvaldi hjá mági sínum sr. Halldóri á
Presthólum. Hér víkur Páll að
þrætugirni hans:
Hér er rifist hvíldarlaust,
svo hófi engu nemur,
vetur, sumar, vor og haust
– og verst ef einhver kemur.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Fangs er von að frekum úlfi
Í klípu
„Þessi sjálfsagi er
aÐdáunarverÐur.”
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„ég skil ekkert í þessu,
gulrótagrösin virÐast vera aÐ
minnka!”
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að skilja að hún hefur
rétt fyrir sér – þú ert
ekki í góðu formi.
EXTRA-EXTRA-EXTRA-EXTRA-
EXTRA-EXTRA GRÍÐARSTÓRA
OFURLÚXUS PÍTSU
NÚ ÞEGAR JÓLIN
NÁLGAST …
ÞÚ SLEPPTIR
EINU „EXTRA”
SKALTU TRYGGJA AÐ
FÓLK VITI RÉTTAR
STÆRÐIR
ÉG VILDI ÓSKA ÞESS AÐ ÉG
GÆTI FENGIÐ AFTUR HVERN
EYRI SEM ÉG HEF
EYTT Í BJÓR!
JAHÁ! ÉG MYNDI KAUPA BRUGGHÚS!!ÞAÐ ER ALDEILIS! VIÐ
VÆRUM MOLDRÍK!
Játast verður að þegar þetta er rit-að, síðdegis föstudaginn 21. des-
ember, hefur Víkverji varla gert
nokkurn skapaðan hlut til að undir-
búa jólin. Hann heldur því inn í
jólafríið með sótsvarta samvisku og
langan tossalista af hlutum sem þarf
að gera. Efst á blaði er að kaupa
jólatré en ekki langt undan er kaup á
gjöf handa betri helmingnum. Þá
þarf að þrífa heimilið svo einhver
sómi sé að og í kjölfarið rifja upp
hvernig blessuðum jólamatnum var
tjaslað saman í fyrra. Þá á vitaskuld
eftir að kaupa inn allan matinn,
maltið og appelsínið og eina alvöru-
vínflösku. Ef ekki tvær. Þetta er
bara það sem kemur fyrst upp í hug-
ann því ekki hefur Víkverji enn gerst
svo forsjáll að útbúa téðan tossalista
sem hann þarf að komast yfir.
x x x
Óskandi er að Víkverja takist aðsýna af sér mikinn dugnað
framan af degi því síðdegis, nánar
tiltekið klukkan 17.30, á hann fund
við gamlan og traustan vin. Með
honum á Víkverji ófáar frábærar
minningar. Sú besta er frá miðviku-
deginum 26. maí 1999. Þann dag
voru Víkverji og þessi gamli félagi
reyndar í þrjú þúsund kílómetra
fjarlægð hvor frá öðrum. Hann var á
Camp Nou-vellinum í Barcelona en
Víkverji á kránni Rauða ljóninu á
Eiðistorgi en þrátt fyrir fjarlægðina
bundust þessir tveir einhverjum
órjúfanlegum böndum þennan dag.
Nú er Óli Gunnar Solskjær mættur
aftur til starfa hjá sigursælasta lið-
inu á Bretlandseyjum, sem gefur
Víkverja tilefni til að gleðjast. Enda
annað vart hægt eftir það sem á und-
an er gengið.
x x x
Líður nú að lokum árs og þá kepp-ast miðlar við að setja saman
árslista og upprifjanir ýmiss konar.
Víkverji tekur fullan þátt í þessu
enda er fátt skemmtilegra en listar.
Það er sjaldnast ástæða til að flækja
hlutina mikið og því hefur Víkverji
ákveðið að útnefna þrjá merkustu
einstaklinga sem féllu frá á árinu
2018. Þeir eru, raðað í mikilvægis-
röð: Kim Larsen, Burt Reynolds og
Anthony Bourdain. Yðar skál, herra-
menn. vikverji@mbl.is
Víkverji
Lofaður sé Drottinn, Guð Ísraels, því
að hann hefur vitjað lýðs síns og búið
honum lausn.
(Lúkasarguðspjall 1.68)
SVALALOKANIR
Svalalokanir frá Glerborg eru nýtískulegar
og falla vel að straumum og stefnum
nútímahönnunar.
Lokunin er auðveld í þrifum þar sem hún opnast inná við.
Hægt er að fá brautirnar í hvaða lit sem er.
Svalalokun verndar svalirnar fyrir regni, vindi og ryki og eykur
hljóðeinangrun og breytir notkun svala í heilsársnotkun.
Glerborg
Mörkinni 4
108 Reykjavík
565 0000
glerborg@glerborg.is
www.glerborg.is
2291árfregalgeps&nupílsrelg,raggulg,relG
FÁÐU TILBOÐ
ÞÉR AÐ
KOSTNAÐAR-LAUSU