Morgunblaðið - 22.12.2018, Side 44

Morgunblaðið - 22.12.2018, Side 44
44 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. DESEMBER 2018 eignasala@eignasala.is Óskum landsmönnum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári Þrátt fyrir að vera ekki orð-inn þrítugur hefur AronEinar Gunnarsson, fyrirliðikarlalandsliðsins í fótbolta undanfarin sex ár, verið á hvers manns vörum í um sex ár og „þjóðar- eign“ eftir árangur liðsins á nýliðnu Evrópu- og heimsmeistaramóti. Því fer vel á því að hann staldri við á þessum tímamót- um, horfi yfir far- inn veg og segi frá upplifuninni frá eigin sjónar- horni. Aron Einar kemur til dyr- anna eins og hann er klæddur og er einlægur í frásögn sinni. Sem strákur segist hann ekki hafa átt sér þann draum að verða landsliðsmaður. Hann hafi verið mikill orkubolti, fylgst lítið sem ekk- ert með landsliðinu og nánast ekkert horft á fótbolta enda upptekinn í eigin leik. Spor sem margir geta sett sig í. Þetta er lýsandi dæmi um frásögn- ina. Aron er einn af okkur og hver sem er getur sett sig í hans spor. Þar til kemur að lífsviðurværinu. Þá fer hann fram úr flestum enda leggur hann sig allan fram í öllu sem hann tekur sér fyrir hendur. Atvinnumennska í íþróttum er harður skóli og ekkert sjálfgefið. Ar- on hefur gengið í gegnum marga prófraunina og það er með þetta starf eins og svo mörg önnur að hver er sinnar gæfu smiður. Eins og margoft kemur fram hefur Aron alla tíð þurft að fá útrás fyrir orkuna og snemma ákvað hann að nota hana til þess að vera betri en hinir. Ekkert flóknara en það. Hitt lykilatriðið og ekki síðra enda styður það hið fyrra er samheldin fjölskylda. Mömmu- strákurinn verður það alltaf og hann er líka hreykinn af Kristbjörgu, eiginkonu sinni. „Við erum heppnir gæjar“ (bls. 134). Mikið er spunnið í Aron sem knattspyrnumann. Hann er sannur fyrirliði og mikill leiðtogi. En hann er ekki aðeins þessi harði nagli úti á velli heldur ljúf fyrirmynd, góður leiðbeinandi og stoltur fjölskyldu- faðir. Í heimi atvinnumanna snýst allt um það að vera bestur og ná besta árangri. Ekkert pláss fyrir til- finningar. Enga viðkvæmni. Þessu er Aron ekki sammála og leynir því ekki að hann hafi gengið til sálfræð- ings. „Lífið er meira en fótbolti“ seg- ir hann eftir að hafa misst af fæðingu frumburðarins. „Þegar ég fékk drenginn í hendurnar áttaði ég mig á því hvað fótbolti er mikið prump mið- að við lífið sjálft“ (bls. 130). Saga Arons er skemmtileg og Ein- ar Lövdahl setur hana í búning við hæfi. Prófarkalestur Ingibjargar Valsdóttur er til fyrirmyndar og myndir prýða góðan texta. Þetta er ekki aðeins saga um sigra og töp heldur frásögn manns, sem hefur þurft að glíma við marga erfiðleika. Hann bendir á leiðir til úrbóta, er raunsær en um leið úrræðagóður og skapandi. Að ekki sé minnst á húm- orinn, sem er aldrei langt undan. Saga Arons á ekki aðeins erindi til unnenda knattspyrnu heldur allra sem láta sig lífið varða. Tilvalin kennslubók en umfram allt gott efni um góðan dreng sem hefur látið gott af sér leiða og ætlar að halda því áfram. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Fyrirliðinn „Saga Arons á ekki aðeins erindi til unnenda knattspyrnu heldur allra sem láta sig lífið varða,“ segir rýnir um sögu landsliðsfyrirliðans. Orka og inn- blástur frá fót- bolta og fjölskyldu Ævisaga Aron – Sagan mín bbbbn Einar Lövdahl skrásetti. Fullt tungl 2018. Innb., 302 bls. STEINÞÓR GUÐBJARTSSON BÆKUR Dvórák: Píanókvintett nr. 2 í A Op. 81.* – Schubert: Píanókvintett í A D667, „Silungakvintettinn“.** Rögn- valdur Sigurjónsson píanó*, Rut Ing- ólfsdóttir fiðla, Helga Hauksdóttir fiðla*, Graham Tagg víóla, Pétur Þor- valdsson selló, Einar B. Waage kontrabassi**. Upptökur: RÚV 1974* og 1976**. Útg.: Smekkleysa SMG 8, 2018 bbbmn ,Kjarni kjarnans í list listanna‘ (svo vitnað sé í munntama skilgrein- ingu á klassískri kammermúsík, er annars mætti kalla á mörkum hins mögulega á hérlendum dvergmark- aði, jafnvel þótt framlag landans sé furðubeysið miðað við beztu erlendu aðstæður) birtist nýverið í formi útgáfu hugsjóna- sprottna plötufyrirtæk- isins Smekkleysu á kannski tveim kunnustu píanókvintettum (?: fyrir píanó og strengjakvartett) fornra stórmeistara í meðförum sumra fremstu íslenzkra hljómlistarmanna frá 8. áratug síðustu aldar; s.s. frá þeim tíma er hérlent tónlistarlíf tók fjörkipp í kjölfar nýstofnaðrar Listahátíðar. Að virðist aðallega fyr- ir tilstilli Rutar Ingólfsdóttur í til- efni af aldarafmæli Rögnvalds Sig- urjónssonar píanóleikara (1918-2004) er margir minnast einn- ig fyrir einstæða útvarpsþætti hans um „Túlkun í tónlist“ á 9. áratug. Það liggur því kannski í hlutarins eðli að forvitnilegasta hlið þessarar útgáfu felst einkum í nærtækri upp- rifjun á tónmenningarsögu lands- manna. Og þar kemur sumt á óvart. Eflaust hafa síðar meir birzt merkari hljóðritanir á ofangetnum snilldarverkum, jafnt tækni- sem túlkunarlegra séð. Hitt stendur þó eftir, að enn hefur fjarska fátt verið gefið út af klassísku tónlistar- framlagi forvera okkar. Væri því ærið athugunarefni hvað fleira mætti draga fram úr bústnum fór- um útvarps allra landsmanna sem verðskuldar endurvakningu – hvað þá á tímum þegar síaukin einkavæð- ing hneigist æ meir að stundar- tengdari viðfangsefnum hérs og nús. Vonandi hvetur þetta þarfa fram- tak til frekari slíkra aðgerða, enda stendur þessi vel undir sínu. Jórunn Viðar: Söngvar. Erla Dóra Vogler MS og Eva Þyri Hilmarsdóttir píanó. Upptaka: Hannesarholti Reykjavík, 28.-29.5. 2018. Útg.: JV2018. bbbnn Jórunn Viðar (1918-2017) var fyrst íslenzkra kvenna til að nema tónsmíðar á fag- skólastigi og markaði sér einna eftir- minnilegast orð- spor í grein sönglaga. Ekki aðeins fyrir víða auðheyrð þjóð- leg áhrif, heldur einnig fyrir að mínu viti hrífandi fersk persónuleg tilþrif í ýmist hefðbundnum, ný- klassískum eða jafnvel framsæknum módernískum anda. Situr þar marg- ur eyrnayrmill eftir með manni, jafnvel þótt einungis sé getið ,hins íslenzka Álfakóngs‘ Kall sat undir kletti, Vísna Fiðlu-Bjarnar eða hins dáspræka dadaíska impressjónisma Unglingsins í skóginum við ljóð Kilj- ans. Þessi nýi hljómdiskur (,JV2018‘) með 14 frumsömdum lögum Jór- unnar og 12 útsetningum hennar á íslenzkum þjóðlögum myndar auð- fúsa viðbót við fyrri útgáfur á söngvaseiði Jórunnar, ekki sízt fyrir pottþéttan píanóleik Evu Þyriar. Að vísu var ég ekki alltaf jafn- sáttur við einsönginn; fannst hann stundum mega tjalda meiri fjöl- breytni í textatúlkun og skýrleika í framburði miðað við suma fyrri (oft- ast karlkyns) söngvara, auk þess sem frekar mjóslegið raddfæri Erlu Dóru vantaði á köflum meiri dýpt og fyllingu. En ef marka má frekar ungan aldur er þó aldrei að vita nema úr eigi eftir að rætast. Íslenzki álfakóngurinn Hlýtt á tvo nýútgefna og ólíka íslenzka hljómdiska. Ríkarður Örn Pálsson vindsvelgur@gmail.com Tónskáldið Á öðrum hljómdiskinum flytja söngkonan Erla Dóra Vogler og Eva Þyri Hilmarsdóttir píanóleikari sönglög eftir tónskáldið Jórunni Viðar. Morgunblaðið/Brynjar Gauti Ný sinfónísk passía byggð á hlutverki Solveigar í hinu fræga leikverki norska leikskáldsins Ibsens verður frum- sýnd á Festspillene-listahátíðinni í Bergen í maí. Passían er flutt við hina kunnu tónlist Edvards Griegs við Pétur Gaut og við nýtt handrit og eftir hugmynd Calixtos Bietos. Textinn, samkvæmt Bergens Tidende, er eftir hinn kunna rithöfund Karl Ove Knausgård. Með aðalhlutverkið fer sópransöngkonan Mari Eriksmoen, Fílharmóníuhljóm- sveit Bergen og Edvard Grieg-kórinn flytja en mynd- listarkonan Sarah Derendinger hannar vídeóvörpun á sviðinu. Uppsetningin er samstarfsverkefni nokkurra evrópskra menning- arstofnana og verður verkið einnig sett upp í Reykjavík af Sinfóníuhljóm- sveit Íslands, í Kaupmannahöfn, Gautaborg, Vilníus og Bilbao. Passía um Solveigu flutt í Reykjavík Karl Ove Knausgaard

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.