Morgunblaðið - 22.12.2018, Page 10

Morgunblaðið - 22.12.2018, Page 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. DESEMBER 2018 Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Eimskip hefur skráð gámaskip félagsins, Goðafoss, Detti- foss, Lagarfoss og Selfoss, í Þórshöfn í Færeyjum. Eign- arhald skipana hefur verið í Færeyjum og hagkvæmis sjónarmið ráða því að skipin eru nú skráð þar, samkvæmt upplýsingum Ólafs William Hand, upplýsingafulltrúa Eimskips. Skipin voru áður skráð í St. John á eyjunni Antigua. Eignarhald skipanna er nú hjá Faroeship, dótturfyrir- tæki Eimskips í Færeyjum. Íslenskar áhafnir eru á skip- unum fjórum. Aðspurður hvers vegna skipin eru ekki skráð á Íslandi segir Ólafur að löggjöfin á Íslandi sé ekki samkeppnishæf við löggjöfina í Færeyjum. „Við erum að vinna á alþjóðlegum markaði og því skrá menn skipin þar sem skipaskráning er hagkvæmari. Eins og í Færeyjum.“ segir Ólafur. Síðasta skipið hvarf af skipaskrá árið 2004 Á ágúst 2014 skipaði þáverandi fjármála- og efnahags- ráðherra starfshóp sem hafði það hlutverk að kanna hvort unnt væri að útfæra lagaumhverfi í kringum skáningu kaupskipa á Íslandi með þeim hætti að Ísland verði sam- keppnishæft á alþjóðvettvangi á sviði kaupskipaútgerðar. Í skýrslu starfshópsins kemur fram að umræða um stöðu íslenskrar kaupskipaútgerðar og íslenskra farmanna hafi farið reglulega fram allt frá níunda áratug síðustu aldar. Sú umræða hafi einkum komið til vegna mikillar fækk- unar kaupskipa á íslensku skipaskránni sem rekja megi til aukinnar alþjóðlegrar samkeppni. Árið 1987 voru 39 kaupskip á skrá á Íslandi en síðasta kaupskipið var svo tekið af skrá hér árið 2004. Árið 1999 tóku gildi lög þar sem veitt var undanþága frá gjöldum, þannig að kostnaður við skráningu á íslensku skipaskrána varð svipaður og kostnaður við skáningu á al- þjóðlegar skipaskrár. Vonast var til að með þessu yrði skipaskráin vænlegur kostur fyrir kaupskipaútgerðir en það gekk ekki eftir. Árið 2008 tóku ný lög gildi sem áttu að fela í sér skattlegt hagræði fyrir útgerðir. Ekki bar sú lagasetning árangur og voru lögin numin úr gildi 2011. Nefndin frá 2014 bendir á að ef hin íslenska alþjóðlega skipaskrá eigi að verða raunhæfur valkostur þurfi að tryggja að hér gildi samkeppnishæfar skattaívilnanir. Þá bendir nefndin á að verkalýðshreyfingin á Íslandi leggi þunga áherslu á að ekki verði heimilt að láta aðra kjara- samninga en íslenska gilda um áhafnir. Skip Eimskips sigla fram- vegis undir færeyskum fána  Rætt hefur verið í áratugi um alþjóðlega skipaskrá hér Ljósmynd/Eimskip Nýr fáni Bragi Björgvinsson, skipstjóri á Goðafossi, dró færeyska fánann að húni að lokinni skrásetningu. Hlýindin og rigningar að undan- förnu hafa komið sér vel fyrir Landsvirkjun. Úrkoma í lok nóv- ember og aftur í desember bætti stöðu miðlunarlóna og bætti upp frekar úrkomulítinn október, að því er Magnús Þór Gylfason upp- lýsti blaðið. Af vöktunarsíðu Landsvirkjunar má sjá að vatnshæð í Þórisvatni, sem miðlar vatni til virkjana á Þjórsársvæðinu, hefur aukist um 60 sentimetra. Í Hálslóni, sem miðlar vatni til Fljótsdalsvirkj- unar, hefur orðið örlítil hækkun, en venjulega lækkar í lóninu á þessum árstíma. En staðan er þrátt fyrir það ekki óvenjuleg á hálendi landsins. Staða miðlana Landsvirkjunar heilt yfir er nú svipuð og á sama tíma í fyrra., segir Magnús. sisi@mbl.is Morgunblaðið/Frikki Hækkað hefur í lónum Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Persónuafsláttur og skattleysismörk hækka um 4,7% á næsta ári. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fjár- málaráðuneytinu. Samkvæmt lögum frá árinu 2003, um tekjuskatt, skal í upphafi hvers árs hækka persónuafslátt hvers ein- staklings um sem nemur hækkun á vísitölu neysluverðs næstliðna tólf mánuði. Hækkun vísitölu neysluverðs ligg- ur nú fyrir og nemur hún 3,7% á tólf mánaða tímabili. Í lögunum er einnig að finna ný- samþykkt bráðabirgðaákvæði sem kveður á um að í upphafi árs 2019 skuli persónuafslátturinn hækka um eitt prósentustig umfram vísitölu neysluverðs. Á grundvelli þessa nemur hækkun persónuafsláttar 4,7% og verður persónuafsláttur einstaklinga 677.358 kr. fyrir árið 2019, eða 56.447 kr. á mánuði. Árlegur persónuaf- sláttur hækkar samkvæmt því um 30.619 kr. milli áranna 2018 og 2019, eða um 2.552 kr. á mánuði. Skattleysismörk tekjuskatts og útsvars verða samkvæmt því 159.174 kr. á mánuði að teknu tilliti til 4% lögbundinnar iðgjaldsgreiðslu laun- þega í lífeyrissjóð samanborið við 151.978 kr. á mánuði árið 2018. Hækkun skattleysismarka milli ára nemur 4,7%. Þegar tekjur ná skattleysismörk- um byrjar launþegi að greiða útsvar til sveitarfélags síns. Launþeginn byrjar hins vegar ekki að greiða tekjuskatt til ríkisins fyrr en tekjur ná 261.329 kr. á mánuði árið 2019, samanborið við 249.514 kr. á mánuði árið 2018. Skatthlutföll verða óbreytt Skatthlutföll tekjuskatts til ríkis- ins eru óbreytt frá fyrra ári, 22,50% í neðra þrepi og 31,8% í efra þrepi. Meðalútsvar verður samkvæmt fyrirliggjandi ákvörðunum sveitarfé- laga óbreytt milli ára, þ.e. 14,44%. Við staðgreiðslu ber launagreiðend- um að miða við meðalútsvarshlutfall. Staðgreiðsluhlutfall ársins 2019 í heild, þ.e. samanlagt hlutfall tekju- skatts og meðalútsvars, verður því áfram 36,94% á tekjur í neðra þrepi og 46,24% á tekjur í efra þrepi. Útsvar til sveitarfélaga er líkt og tekjuskattur innheimt í staðgreiðslu og er það mishátt eftir sveitarfélög- um. Þau geta samkvæmt lögum um tekjustofna sveitarfélaga ákveðið út- svar á bilinu 12,44% til 14,52%. Af 72 sveitarfélögum leggja 55 á hámarks- útsvar, þrjú leggja á lágmarksútsvar og tvö hækka útsvarsprósentuna. Persónuafslátt- ur hækkar um 4,7% næsta ár  Hækkun eitt prósent umfram vísitölu Hluthafafundur Haga hf. 18. janúar 2019 HluthafafundurHaga hf., kt. 670203-2120, verður haldinn föstudaginn 18. janúar 2019 og hefst hann kl.09:00 áHilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2 í Reykjavík. Dagskrá fundarins: 1. Kosning stjórnar félagsins 2. Önnur mál Endanleg dagskrá og tillögur verða birtar föstudaginn 11. janúar nk. Hluthöfum er bent á að óski Þeir eftir að fá mál sett á dagskrá eða leggja fram ályktunartillögur á fundinum Þarf að beina Því skriflega og í endanlegu formi til félagsstjórnar eigi síðar en 10 dögum fyrir fund (Þriðjudaginn 8. janúar nk.) á netfangið hluthafafundur@hagar.is, eins og kveðið er á um í 1. og 2. mgr. 86. gr. hlutafélagalaga, sbr. lög nr. 2/1995. þeim sem gefa vilja kost á sér til setu í stjórn Haga hf. er bent á að tilkynna Það skriflega til tilnefningarnefndar Haga eigi síðar en kl. 16:00 Þann 4. janúar 2019, á netfangið tilnefningarnefnd@hagar.is. Tillögur tilnefningarnefndar um frambjóðendur til stjórnar verða tilkynntar Þann 11.janúar nk. Ítarlegri upplýsingar er að finna á vefsíðu félagsins, http://www.hagar.is/fjarfestaupplysingar/hluthafafundir/ Stjórn félagsins vill árétta að forsvarsmenn hluthafa sem sækja fundinn, Þ.e. forsvarsmenn fyrirtækja, lífeyrissjóða, fjárfestingasjóða, einstaklinga eða annarra hluthafa, ber að skila umboði við skráningu inn á fundinn. Einnig verða einstaklingar beðnir um að framvísa persónuskilríkjum. Stjórn Haga hf.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.