Morgunblaðið - 22.12.2018, Síða 42

Morgunblaðið - 22.12.2018, Síða 42
42 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. DESEMBER 2018 Söfn • Setur • Sýningar LISTASAFN ÍSLANDS Þjóð verður til – Menning og samfélag í 1200 ár grunnsýning Þjóðminjasafnsins Heiðnar grafir í nýju ljósi – sýning um fornleifarannsókn á Dysnesi við Eyjafjörð Kirkjur Íslands: Skrúði og áhöld. Straumar og stefnur í Bogasal Kirkjur Íslands: Með augum biskups og safnmanna í Myndasal Heiða Helgadóttir – NÆRandi á Vegg Leitin að klaustrunum í Horni Safnbúð fjölbreytt úrval gjafavöru Kaffitár ljúfar veitingar í fallegu umhverfi Sjónarhorn - Ferðalag um íslenskan myndheim fyrr og nú grunnsýning Safnahússins Jónsbók, kirkjulist, skjöl, samtímalist, alþýðulist, plötuumslög, ljósmyndir, landakort, vaxmynd og margt fleira Bókverk og Kveisustrengur úr Landsbókasafni Íslands - Háskólabókasafni Fræðslurými og skemmtilegt fræðsluefni fyrir alla fjölskylduna Safnbúð Bækur og gjafavörur í úrvali Júlía & Julia ljúfar veitingar í fallegu umhverfi Safnahúsið er hluti af Þjóðminjasafni Íslands Hverfisgata 15, 101 Reykjavík, s. 530 2210 www.safnahusid.is - https://www.facebook.com/safnahusid/ Opið þriðjud.-sunnud. kl. 10-17 SAFNAHÚSIÐ VIÐ HVERFISGÖTU ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS Suðurgata 41, 101 Reykjavík, s. 530 2200, www.thjodminjasafn.is • www.facebook.com/thjodminjasafn Opið þriðjud.-sunnud. kl. 10-17 VÉFRÉTTIR – KARL EINARSSON DUNGANON LÍFSBLÓMIÐ - FULLVELDI ÍSLANDS Í 100 ÁR FJÁRSJÓÐUR ÞJÓÐAR Valin verk úr safneign BÓKFELL eftir Steinu í Vasulka-stofu SAFNBÚÐ – Listrænar gjafavörur Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600, www.listasafn.is. Listasafn Íslands er opið alla daga nema mánudaga frá kl. 10-17 LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR TENGINGAR – SIGURJÓN ÓLAFSSON OG NOKKRIR SAMFERÐAMENN HANS Opið allar helgar frá kl. 13-17. Laugarnestanga 70, sími 553 2906, www.lso.is Kaffistofa – heimabakað meðlæti SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR - HEIMILI LISTAMANNS OG SÝNINGAR KORRIRÓ OG DILLIDÓ - ÞJÓÐSAGNAMYNDIR ÁSGRÍMS JÓNSSONAR Opið alla daga nema mánudaga frá kl. 13-17. Bergstaðastræti 74, sími 515 9625, www.listasafn.is Veronika Steinunn Magnúsdóttir veronika@mbl.is Guðrún Eva Mínervudóttir hefur gefið út sitt fyrsta smásagnasafn, Ástin Texas, en hún hefur gert garðinn frægan með skáldverkum sínum og sló seinast í gegn með bókinni Skegg Raspútíns, sem kom út fyrir ári. Nú einbeitir hún sér hins vegar að smásagnaform- inu, þar sem unnt er að skapa stemningu og kafa strax djúpt inn í söguheim persónanna. „Það sem er svo stórkostlegt við smásöguna, að öllum öðrum form- um ólöstuðum, er að þú getur far- ið beint inn í stemningu og beint á dýptina í staðinn fyrir að þurfa alltaf að vera að plotta,“ segir hún. „Þetta er meira opið í báða enda og maður á að geta dottið inn í söguna algjörlega fyrirstöðu- laust. Í smásögunum er líka þessi hvíld frá stóra plottinu sem er svo áberandi í kringum okkur, í skáld- sögunum og í glæpasögum sem við fáum líka stóran skammt af í sjón- varpsþáttum og kvikmyndum.“ Sögurnar fjalla allar um ástina á ólíkan hátt og tengjast lauslega. Mormónatrúboðinn Austin Texas kemur fram í tveimur af fimm sögum bókarinnar en hann er byggður á samnefndum trúboða sem Guðrún hitti og varð kveikjan að persónunni. „Oft þegar ég hitti nýtt fólk og það segir eitthvað eftirminnilegt við mig fæ ég smá eldingu í haus- inn. Þá fer eitthvað í gang og ég byrja að skrifa. Í þetta skipti var það mormónatrúboði sem heitir Austin og er frá Texas,“ segir Guðrún og bætir við að bókin sé nefnd í höfuðið á Austin. Sýnin og tónninn tengir sögurnar Guðrún byrjaði óvænt á bókinni og fyrr en varði var hún farin að fá mormóna í heimsókn til sín einu sinni í viku um nokkurt skeið við vinnslu bókarinnar, undir þeim formerkjum að hún væri að vinna með mormónapersónur. Í bókinni koma fram beinar tilvitnanir frá Austin sjálfum og er hann settur inn í skáldaðar aðstæður, en það er gert með leyfi hans. Austin er mikilvæg persóna og lendir tvíveg- is í hlutverki ástarguðs. „Allar þessar sögur eru í ein- hverjum skilningi ástarsögur en það má segja að allt í lífinu fjalli óbeint um ástina. Ég myndi segja að í báðum sögunum þar sem titil- persóna bókarinnar kemur fyrir lendi hann óvart í hlutverki Kúp- íds, ástarguðsins. Hann hjálpar óafvitandi til við að tendra aftur eld milli hjóna sem eru sundur og saman og í hinu tilvikinu verður hann til þess að dauðvona kona býður heim til sín örlagabyttunni sem hún er ástfangin af. Það sem tengir sögurnar fyrst og fremst er sýnin og tónninn í þeim en þær eru ekki og eiga ekki að vera á neinn hátt keimlíkar. Tengingarnar á milli þeirra eru það lauslegar að sögurnar gætu alveg eins verið án þeirra, það skiptir ekki öllu máli í samheng- inu. En á sama tíma eiga þær mjög vel saman.“ Ástarsambönd eru ekki til Í byrjun bókarinnar birtist les- endum orðsending frá heimspek- ingnum Lacan sem hljóðar svo: „Ástarsambönd eru ekki til.“ Þessi orð gripu Guðrúnu en hún skilur þau sem svo að enginn sé í raun og veru í sama ástarsambandi. „Það sem ég held að hann sé að „Innblástur er eitt af  Guðrún Eva Mínervudóttir einbeitir sér að smásögum  Segir smásagnaformið veita hvíld frá stóra plottinu Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Guðmundur Óskar ykkur gleðilegra jóla nefnist ný jólastuttskífa sem varð fyrir skömmu aðgengileg á streymis- veitunni Spotify og eins og nafnið gef- ur til kynna er maðurinn sem stendur að útgáfunni Guðmundur Óskar Guð- mundsson, bassaleikari og lagasmið- ur með meiru. Hefur skífan (ef skífu skyldi kalla þar sem útgáfan er á netinu) að geyma fjögur jólalög flutt af Ylju, Sölku Sól og Sólkerfinu, tríóinu Fjörkum og Valdi- mar Guðmundssyni. Valdimar syngur „Hvað hefur orð- ið um jólin?“, Salka og Sólkerfið flytja „Sérhver jól“, Tríóið Fjarkar flytur „Þú þarft ekki að vera jólasveinn“ og Ylja tekur fyrir hið sígræna „Have yourself a merry little Christmas“. Birkir Blær samdi textana Lögin eru öll tökulög og öll með ís- lenskum textum nema eitt. Valdimar syngur lag eftir Jimmy Webb sem kom út á jólaplötu Frank Sinatra 1968, Salka syngir „I’m in the mood for love“ og Tríóið Fjarkar flytur gamalt Inkspots jólalag sem heitir á frummálinu „You don’t have to be a Santa Clause“. Textann við lögin samdi Birkir Blær Ingólfsson. Guðmundur er spurður að því hvort flytjendur hafi sjálfir valið lögin sem eru á skífunni og svarar hann að þeir hafi gert það og hann tekið lögin upp, öll nema Sölku-lagið sem hafi verið umfangsmeira en hin, Hamm- ondorgel og fleira sem gert hafi að verkum að fara þurfti í hljóðverið Sýrland til að taka lagið upp. Aldrei tímanlega „Við fórum svo seint að hugsa um þetta að það varð enginn tími fyrir neitt nema svona smájólakort,“ segir Guðmundur, spurður að því hvort stuttskífan komi út víðar en á Spotify og í mögulega í öðru formi, þ.e. föstu. – Hvers vegna ákvaðstu að senda frá þér svona litla jólaplötu? „Ég var fyrir tilviljun beðinn um að pródúsera þessi fjögur lög á sama tíma,“ svarar Guðmundur, „og maður ætlar aldrei að læra það, ár eftir ár, að vera tímanlega. Það er alveg fá- ránlegt, sko!“ Guðmundur segir að honum finnist það tilheyra jólunum að senda eitt- hvað jólalegt frá sér út í kosmósið. Sú hefð hans eigi rætur að rekja til þess tíma er hann var í hljómsveitinni Hjaltalín. „Fyrsta Hjaltalín-lagið var jólalag sem kom út á safnplötunni Stúfur árið 2004. Síðan þá hef ég allt- af reynt að gera eitthvað, þótt það sé ekki meira en að brenna 30 diska og gefa í jólagjafir eða taka upp eitthvað smá. Einu sinni gerðum við Siggi bróðir [Sigurður Guðmundsson, söngvari og hljómborðsleikari] plötu sem hét Jól í skúrnum. Þá bjuggum við í bílskúr og tókum upp fimm, sex lög og brenndum á diska.“ Tilheyrir jólum að senda eitthvað jólalegt frá sér  Guðmundur Óskar öllum gleðilegra jóla á Spotify Tríó Örn Eldjárn, Valdimar Guðmundsson og Guðmundur Óskar. Myndlistarkonurnar Valgerður Ýr Magnúsdóttir og Berglind Erna Tryggvadóttir hlutu í gær styrki úr Styrktarsjóði Guðmundu Andrés- dóttur í Listasafni Íslands. Samkvæmt skipulagsskrá Styrkt- arsjóðs Guðmundu Andrésdóttur er markmið hans „að styrkja og hvetja unga og efnilega myndlistarmenn til náms.“ Stjórn sjóðsins veitti hvorri þeirra styrk að upphæð ein og hálf milljón króna. Stjórn sjóðsins skipa Aðalheiður Valgeirsdóttur, Harpa Þórsdóttur og Jóhann Torfason. Samkvæmt erfðaskrá Guðmundu Andrésdóttur listmálara var stofn- aður styrktarsjóður í hennar nafni sem er í vörslu Listasafns Íslands. Guðmunda (1922-2002) tilheyrði þeirri kynslóð listamanna sem á sjötta áratug síðustu aldar ruddi abstraktlistinni hér braut. Það var innan þessa tjáningarforms sem Guðmundu tókst að þróa mjög svo persónulega listsköpun, sem gerir framlag hennar til samtímalistar á Íslandi sterkt og áhrifamikið. Sam- kvæmt erfðaskrá sinni arfleiddi hún Listasafn Íslands, Listasafn Há- skóla Íslands og Listasafn Reykja- víkur að fjölda listaverka sinna. Morgunblaðið/Árni Sæberg Veglegir styrkir Berglind Erna og Jón Sölvi sem tók við fyrir Valgerði Ýr, sem er við nám í Noregi, við afhendingu styrkjanna í Listasafni Íslands. Tvær hlutu styrki úr sjóði Guðmundu

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.