Morgunblaðið - 22.12.2018, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 22.12.2018, Blaðsíða 4
Aron Þórður Albertsson aronthordur@mbl.is „Þetta snýr annars vegar að því að sækja fólk til ábyrgðar pólitískt og hins vegar til ábyrgðar lagalega. Til að fólk taki pólitíska ábyrgð á gjörðum sínum þyrfti það í raun að segja af sér. Ég á hins vegar erfitt með að tjá mig um þetta ein- staka tilvik og þyrfti að skoða það betur,“ segir Eva Marín Hlyns- dóttir stjórnmálafræðingur um stöðu Dags B. Eggertssonar borg- arstjóra í kjölfar skýrslu innri endurskoðunar Reykjavíkurborgar sem gefin var út í fyrradag. Þar kemur fram að við endurgerð bragga og samliggjandi húsa við Nauthólsveg í Reykjavík hafi kostnaðareftirliti verið ábótavant og brotið í bága við lög, innkaupa- reglur, starfslýsingar og verkferla. Óljóst hvar ábyrgðin liggur Að sögn Evu er óljóst hvar ábyrgð Dags í málinu liggur. „Hann er bæði framkvæmdastjóri borgarinnar og kjörinn fulltrúi. Skilin þarna á milli eru mjög óljós. Spurningin er því í raun hvar ábyrgðin liggur, hvort það er sem kjörinn fulltrúi eða framkvæmda- stjóri Reykjavíkurborgar,“ segir hún. Að því er fram kemur í skýrsl- unni hefur raunkostnaður fram- kvæmdarinnar nú farið um 270% fram úr frumkostnaðaráætlun samkvæmt upphaflegum hug- myndum frá árinu 2015. Athygl- isvert er að líta til hugsanlegra ástæðna þess en í skýrslunni segir að það sé mat sumra að áætlanir séu vísvitandi hafðar í lægri kant- inum til að samþykki fáist fyrir verkefnum. Ekkert slíkt hefur þó komið í ljós varðandi framkvæmd- irnar á Nauthólsvegi. Spurð hvort slík vinnubrögð teljist eðlileg innan stjórnsýslu sveitarfélaga kveður Eva María nei við. Hún segir að almennt sé stjórnsýsla sveitarfélaga þó tals- vert lausari í reipunum en stjórn- sýsla ríkisins. „Stjórnsýsla á sveit- arstjórnarsigi er tiltölulega ung og því ekki sama fagþekking og form- festa og þekkist hjá ríkinu. Það á eftir að formgera stjórnsýslu sveitarfélaga betur því þetta kerfi býður upp á það að við getum lent í svona vanda. Þar á ég við það að oft á tíðum vantar upplýsingar um samskipti milli fólks þegar ákvarð- anir eru teknar,“ segir Eva Marín. Vísar hún í máli sínu til ágreinings sem upp kom milli skrifstofustjóra Reykjavíkurborgar og verkefna- stjóra skrifstofu eigna og at- vinnuþróunar hjá Reykjavíkur- borg. Starfsmönnunum ber ekki saman um samskipti sín á milli en skrifstofustjórinn telur upplýs- ingagjöf frá verkefnastjóranum í tengslum við verkefnið hafa verið ábótavant. Sveitarstjórnarlögin eru skýr Í upphaflegri frumkostnaðar- áætlun bragga frá árinu 2015 var ráðgert að kostnaður vegna end- urbóta myndi vera um 158 millj- ónir króna. Raunkostnaður end- urgerðarinnar var í byrjun desember um 425 milljónir króna, af því hefur enn ekki verið óskað eftir fjármagni fyrir um 73 millj- ónir króna af heildarútgjöldum. Aldís Hafsteinsdóttir, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, segir að lög um sveitarfélög séu afar skýr í þessum efnum. „Fjár- hagsáætlun er bindandi regla um allar fjárhagslegar ráðstafanir af hálfu sveitarfélaga og það er óheimilt að víkja frá fjárhagsáætl- un nema sveitarstjórn hafi áður samþykkt viðauka,“ segir Aldís. Vinnubrögð borgarstjórnar óeðlileg Morgunblaðið/Árni Sæberg Braggaskúr Kostnaður vegna framkvæmda fór langt fram úr kostnaðaráætlun með tilheyrandi fjölmiðlaathygli.  Stjórnmálafræðingur segir óljóst hvar ábyrgð borgarstjóra í „braggamálinu“ liggur  Til að axla pólitíska ábyrgð þyrfti hann að segja af sér  Skortur á skriflegum upplýsingum við ákvarðanatöku 4 Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. DESEMBER 2018 Kynntu þér jólatilb oðin se m eru í U rðarap óteki fram a ð jólum . Úrval tilbúin na gjafap akka. Vínlandsleið 16 Grafarholti urdarapotek.is Sími 577 1770 Jólin eru komin hjá okkur Veður víða um heim 21.12., kl. 18.00 Reykjavík 0 léttskýjað Hólar í Dýrafirði -4 léttskýjað Akureyri -1 skýjað Egilsstaðir 1 rigning Vatnsskarðshólar 3 léttskýjað Nuuk -2 skýjað Þórshöfn 6 rigning Ósló -1 skýjað Kaupmannahöfn 4 rigning Stokkhólmur -2 alskýjað Helsinki -8 alskýjað Lúxemborg 11 skýjað Brussel 11 skýjað Dublin 9 skýjað Glasgow 7 skúrir London 10 léttskýjað París 14 skýjað Amsterdam 10 skýjað Hamborg 6 rigning Berlín 6 rigning Vín 0 þoka Moskva -8 snjóél Algarve 17 heiðskírt Madríd 8 þoka Barcelona 15 heiðskírt Mallorca 15 léttskýjað Róm 12 léttskýjað Aþena 12 léttskýjað Winnipeg -11 alskýjað Montreal 3 rigning New York 14 rigning Chicago 0 alskýjað Orlando 16 skúrir  22. desember Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 11:23 15:31 ÍSAFJÖRÐUR 12:10 14:53 SIGLUFJÖRÐUR 11:55 14:34 DJÚPIVOGUR 11:02 14:51 VEÐUR KL. 12 Í DAG Á sunnudag (Þorláksmessa) Vaxandi suðvestan átt og stöku él, en bjart fyrir austan. Hlýnar í veðri. Á mánudag (aðfangadagur jóla) Suðvestanhvass- viðri á N-verðu landinu, en hægara syðra. Hæg breytileg átt og skýjað með köflum eða bjartviðri. Skýjað vestantil á landinu í kvöld og stöku él. Hiti víða kringum frostmark en frost allt að 8 stig inn til landsins, einkum norðantil. Magnús Heimir Jónasson mhj@mbl.is Í skýrslu innri endurskoðunar Reykjavíkurborgar um kostnað vegna framkvæmda við braggann, sem kom út í fyrradag, kemur fram með afar skýrum og áberandi hætti að lög og reglur um skjalastjórn op- inberra stofnana voru þverbrotin. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Borgarskjalasafns Reykjavíkur. Upplýst er í skýrslunni að skjala- stjórn vegna verkefnisins var afar ófullnægjandi og að nánast engin skjöl né fundargerðir um verkefnið hafi fundist í skjalavörslukerfi borg- arinnar. Ítrekar Borgarskjalasafnið á vefsíðu sinni hversu gífurlega mikil- vægt það er að farið sé eftir þeim ferl- um og lögum sem varða skjalastjórn og skjalavistun. „Ekki einungis til að uppfylla lögbundna starfshætti og reglur heldur ekki síður til að tryggja rekjanleika mála og upplýsingar um ákvarðanir og úrvinnslu þeirra.“ Tölvupóstar óaðgengilegir Í skýrslunni er einnig bent á að tölvupóstar starfsmanna er tengjast verkefninu voru óaðgengilegir og að tölvupóstum einstakra aðila hafi þeg- ar verið eytt. Samkvæmt lögum um skjalastjórn er óheimilt að varðveita gögn í tölvupósthólfum og ber að færa tölvupósta er varða málsmeðferð hjá Reykjavíkurborg í skjalasafn. Það var ekki gert. Spurð hvort þetta teljist ekki alvar- legt þegar verið er að sýsla með jafn mikla fjármuni og fóru í framkvæmd- ir við braggann segir Svanhildur Bogadóttir, forstöðumaður Borgar- skjalasafns, afar mikilvægt að hægt sé að rekja mál. „Það er mikilvægt hvort sem verið er að sýsla með peninga eða ekki að hægt sé að rekja mál. Tölvupóstar eru í dag bara lykilatriði til þess að geta rakið það hvað gerðist, hver tók ákvarðanir, hvað var ákveðið að gera og hvað ekki og hver var upplýstur um hvað,“ segir hún. Í skýrslu Borgarskjalasafns Reykjavíkur frá árinu 2017 um skjalastjórn og skjalavörslu hjá Reykjavíkurborg kemur í ljós að vist- un tölvupósta er varða mál eða erindi í málasafn er afar ábótavant. Varðar allt að 3 ára fangelsi Svanhildur segir skjalamál al- mennt mjög góð í Ráðhúsinu en þetta gengur gegn skjalastefnu borgarinn- ar. „Það er ákveðin skjalastefna hjá borginni sem er samþykkt af borg- arráði og þar kemur skýrt fram að skráning, vistun og meðferð skjala þarf að vera í samræmi við lög og reglugerðir,“ segir Svanhildur. Spurð hvort það séu einhver viðurlög við þessu bendir hún á lög um opinber skjalasöfn. „Þar segir í 47. gr að það geti varðað allt að þriggja ára fangelsi að hafa ekki skráningu mála, flokkun og frágang skjala í samræmi við regl- ur.“ Lög og reglur um skjalastjórn þverbrotin  Nánast engin skjöl né fundargerðir um braggamálið fundust í skjalavörslukerfi  Viðurlög geta varðað fangelsi Morgunblaðið/Ómar Ráðhús Innri endurskoðun Reykjavíkurborgar komst ekki í alla tölvupósta í tengslum við framúrkeyrslu á framkvæmdum við braggann í Nauthólsvík. Bragginn í Nauthólsvík í Reykjavík

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.