Morgunblaðið - 22.12.2018, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 22.12.2018, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. DESEMBER 2018 Ný vefverslun: www.donna.is Erum nú á Facebook: donna ehf Sími 555 3100 www.donna.is „Veist þúað skilgreining á sótthitabreytist eftir aldri? Thermoscaneyrnahita- mælirinnminnveit það.“ Braun Thermoscan eyrnahitamælar fást í öllum lyfjaverslunum ThermoScan® 7 Sigríður Andersen dómsmála-ráðherra er tekin tali í nýjasta tölublaði Þjóðmála og þar er meðal annars rætt við hana um skipun í Landsrétt. Í því sambandi segir Sig- ríður: „Ég hef alltaf verið þeirrar skoð- unar að það sé óhugsandi niður- staða að andlits- lausar og ábyrgðarlausar stjórn- sýslunefndir hafi skipunarvaldið í eina grein ríkisvaldsins. Við viljum búa við lýðræði en ekki embættis- mannaræði hér á landi.“    Hún bætir við: „Í gegnum tíðinahefur oft komið upp sú um- ræða við skipanir dómara að ráð- herra hafi þar einhver annarleg sjónarmið að baki og í raun stjórn- málamenn allir ef því er að skipta. Eins og það sé enginn að vinna af heilindum sem er í stjórnmálum. Á sama tíma vita menn varla hverjir sitja í þessum stjórnsýslunefndum á hverjum tíma, hvaða hagsmuni þeir hafa eða tengsl sem gætu haft áhrif á störf þeirra.“    Óhætt er að taka undir þessi orðSigríðar. Og gott betur. Al- mennt er það ekki aðeins svo að menn viti „varla“ hverjir sitja í stjórnsýslunefndum, það er al- mennt alls ekki á nokkurs manns vitorði.    Þeir sem í slíkum nefndum vinnasinna störfum sínum í skjóli fyrir umræðu og ábyrgð. Ráð- herrar og þingmenn bera á hinn bóginn skýra ábyrgð, starfa undir vökulu auga fjölmiðla og almenn- ings og eru látnir fara ef almenn- ingi mislíkar.    Lýðræðið krefst þess að völdinséu hjá slíku fólki en ekki því ókjörna og andlitslausa. Sigríður Andersen Lýðræðisleg krafa STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Undanfarna mánuði hefur verið grafinn lagna- skurður á Landspítalalóðinni, frá aðalanddyri Barnaspítalans í vesturátt. Verkinu hafa fylgt miklar sprengingar sem valdið hafa ónæði, eins og starfsmenn Barnaspítalans og Kennarahússins lýstu í viðtölum hér í blaðinu í gær. Í nýjustu Framkvæmdafréttum Nýs Landspít- ala kemur fram að þessari vinnu ljúki um miðjan janúar næstkomandi og verður þá fyllt aftur í skurðinn.Vegna vinnu við skurðinn var gatnamót- um Laufásvegar og Gömlu Hringbrautar lokað tímabundið. Stefnt er að því að malbika og opna aftur upp Laufásveginn fyrir jólin, að því er fram kemur í Framkvæmdafréttum. Stefnt er að lokun Gömlu Hringbrautar 8. febr- úar sem hefur í för með sér breytingar á leiðakerfi Strætó bs. Upphaflega var stefnt að því að loka Gömlu Hringbraut 7. janúar en því hefur nú verið frestað um mánuð. Vinna er hafin við grunn meðferðarkjarna, sem verður stærsta bygging hins nýja spítala.Verktaki hefur hafið sprengivinnu neðan Gömlu Hring- brautar. sisi@mbl.is Lagnaskurði lokað í næsta mánuði  Lokun Gömlu Hring- brautar verður frestað Morgunblaðið/sisi Laufásvegur Gatnamótin eru lokuð tímabundið. Verksamningur milli Garðabæjar og Íslenskra aðalverktaka um hönnun og byggingu á nýju fjölnota íþrótta- húsi í Garðabæ var undirritaður í gær. Í tilkynningu er haft eftir Gunnari Einarssyni, bæjarstjóra, að um sé að ræða stærstu einstöku framkvæmdina í sögu bæjarins. Með tilkomu hússins muni öll aðstaða til líkams- og heilsuræktar gjörbreyt- ast til hins betra fyrir Garðbæinga á öllum aldri. Samningsfjárhæð er rúmir fjórir milljarðar. Undirritunin fór fram utandyra í Vetrarmýri á þeim stað þar sem húsið mun rísa. Gunnar undirritaði samninginn fyrir hönd Garðabæjar og Sigurður R. Ragnarsson forstjóri fyrir hönd Íslenskra aðalverktaka. Í lokuðu alútboði vegna hönnunar og byggingar á fjölnota íþróttahúsi í landi Vífilsstaða skoraði tilboð ÍAV hæst með tilliti til gæða og verðs, segir í tilkynningu. Húsið verður með rými fyrir knattspyrnuvöll í fullri stærð innan- húss auk upphitunaraðstöðu ásamt tilheyrandi stoðrýmum. Hönnunar- vinna verktaka hefst í janúar og gert er ráð fyrir verklokum í apríl 2021. Ljósmynd/Garðabær Samkomulag Skrifað var undir samninginn í fallegu vetrarveðri í gær. Stærsta einstaka framkvæmdin  Fjölnota íþróttahús rís í Garðabæ

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.