Morgunblaðið - 22.12.2018, Page 21
FRÉTTIR 21Erlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. DESEMBER 2018
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
Jólagjöfin fæst hjá okkur
CLIZIA
Rafhlöðu lampi
hæð 25 cm
Verð 34.900,-
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Mikil röskun, sem varð á flugi frá
næststærsta flugvelli Lundúna
vegna flygilda, hefur kynt undir um-
ræðunni um hvernig vernda eigi flug-
vélar gegn drónum og koma í veg
fyrir að þeir valdi glundroða í flug-
samgöngum.
Drónar sem sáust oftar en 50 sinn-
um nálægt Gatwick-flugvelli urðu til
þess að aflýsa þurfti flugferðum um
120.000 farþega frá miðvikudags-
kvöldi og þar til í gær. Hermenn voru
kallaðir út til að aðstoða lögregluna
við að leita að drónunum og þeim
sem stjórnuðu þeim. Ekki var vitað í
gær hverjir drónaþrjótarnir voru en
lögreglan sagði að hún væri m.a. að
rannsaka þann möguleika að þeir
væru aðgerðasinnar úr röðum um-
hverfisverndarmanna, að sögn
fréttaveitunnar AFP.
Geta valdið meiri
skemmdum en fuglar
Drónum hefur fjölgað mjög víða
um heim á síðustu árum en ekki er
vitað til þess að þeir hafi valdið alvar-
legum flugslysum. Farþegaflugvél í
Kanada rakst á dróna í október á síð-
asta ári en hann olli aðeins lítils-
háttar skemmdum á væng og vélin
lenti heilu og höldnu.
Enn er lítið vitað um hversu mikil
hætta stafar af drónum í grennd við
flugvelli, að því er fram kemur á
fréttavef breska ríkisútvarpsins. Til-
raun sem gerð var í Dayton-háskóla í
Bandaríkjunum benti til þess að
dróni sem vegur eitt kílógramm gæti
valdið miklum skemmdum á farþega-
þotu sem er á meira en 380 km hraða
á klukkustund. Önnur tilraun sem
gerð var í samstarfi við flugmála-
yfirvöld í Bandaríkjunum bendir til
þess að drónar geti valdið meiri
skemmdum á flugvélum en fuglar og
rafhlöður flugtækjanna geti valdið
eldhættu ef þær festast í bolgrind
flugvélar. „Hættan sem stórum flug-
vélum stafar af drónum er lítil en þó
ekki hverfandi,“ hefur fréttavefur
BBC eftir Ravi Vaidyanathan, sér-
fræðingi í dróna- og þjarkatækni við
Imperial College í Lundúnum. Hann
segir þó að drónar geti farið í hreyfla
flugvéla og að tveggja kílógramma
dróni geti brotið framrúðu sumra
flugvéla.
Hátæknilausnir og ernir
Kannaðar hafa verið nokkrar leiðir
til að vernda flugvélar fyrir drónum.
Meðal annars er verið að þróa tækni
sem byggist á myndavélum, ratsjám
og búnaði sem nemur útvarpstíðni.
Hægt væri að beita þessari tækni til
að trufla merkjasendingar milli
dróna og stjórnanda hans og senda
flugtækið aftur á staðinn sem það
kom frá. Fyrirtækið Quantom Avi-
ation þróaði slíka tækni til að koma í
veg fyrir hugsanlegar árásir dróna á
ólympíuleikunum í Lundúnum árið
2012, að sögn BBC. Hermt er að
fyrirtæki í Kína hafi þróað tæki sem
geti grandað dróna með því að trufla
merkjasendingar til hans.
Lögreglan á Gatwick-flugvelli
sagði í gær að til greina kæmi að
reyna að skjóta dróna niður ef nauð-
syn krefði en talið var ólíklegt að
reynt yrði að granda þeim með
byssukúlum þar sem þær gætu lent á
fólki eða flugvélum.
Nokkur fyrirtæki hafa þróað
byssur sem hægt er að nota til að
skjóta neti og fallhlíf á dróna og ör-
yggisyfirvöld hafa tekið slík tæki í
notkun í Asíu-, Evrópu- og Norður-
Ameríkuríkjum. Fyrirtæki í Banda-
ríkjunum og Kína hafa einnig þróað
leysibyssur sem hægt er að nota til
að skjóta dróna niður nokkrum sek-
úndum eftir að þeir finnast. Boeing
hefur þróað tæki sem byggist á há-
orkugeislun og getur fundið dróna í
nokkurra kílómetra fjarlægð og gert
hann óvirkan, að sögn BBC.
Slík hátækni er þó ekki eina mögu-
lega svarið við hættunni sem stafar
af drónaþrjótum. Her Frakklands
hefur reynt að þjálfa erni í að grípa
dróna með klónum í von um að hægt
verði að nota þá til að verja mikil-
vægar byggingar. Sú aðferð var
reynd í Hollandi en hætt hefur verið
við að beita henni þar vegna þess að
hún þótti of dýr og ernirnir létu illa
að stjórn, að sögn AFP.
Drónaþrjótar gera stóran óskunda
Nokkur úrræði hafa verið reynd til að verjast árásum dróna, m.a. hátæknivopn og ernir sem
reyndust láta illa að stjórn Enn er lítið vitað um hættuna sem farþegaþotum getur stafað af drónum
AFP
Ollu glundroða Flugfarþegar bíða á Gatwick-flugvelli eftir að hundruðum flugferða var aflýst vegna dróna.
Illviðráðanlegur Örn veiðir dróna á æfingu á vegum franska hersins.
„Umhverfisstríðs-
mönnum“ kennt um
» Bresk dagblöð hafa furðað
sig á því að drónaþrjótur skuli
geta valdið því að loka þurfi
næststærsta flugvelli Bret-
lands. Blöðin segja drónana
hafa valdið glundroða í flug-
samgöngum landsins.
» „Hvernig GAT þessi depill á
himni eyðilagt jólin fyrir
350.000 manns?“ spurði Daily
Mail í flennifyrirsögn á forsíðu.
» The Sun og The Telegraph
sögðu að talið væri að
aðgerðasinnar úr röðum um-
hverfisverndarmanna, eða
„umhverfisstríðsmenn“, stæðu
á bak við drónaárásirnar.
Washington. AFP. | Þessi jól geta
margir Bandaríkjamenn átt von á
því að fá pakka sem gæti hjálpað
þeim að finna ættingja sem þeir
vissu ekki um eða landið sem for-
feður þeirra komu frá. Aðrir gætu
komist að því að maðurinn sem ól
þá upp er ekki faðir þeirra eins og
þeir héldu.
Mikil sala hefur verið á DNA-
rannsóknapökkum sem tólf fyrir-
tæki í Bandaríkjunum hafa selt fyr-
ir jólin. Í pökkunum er meðal ann-
ars plasthylki sem eigandinn getur
skyrpt í og sent í DNA-rannsókn.
Hann fær síðan aðgang að niður-
stöðum hennar á sérstakri vefsíðu
sem fyrirtækið setur upp. Þar er
yfirleitt heimskort sem sýnir hvað-
an forfeður viðkomandi viðskipta-
vinar fyrirtækisins komu.
Milljónir afkomenda innflytjenda
til Bandaríkjanna hafa notfært sér
þessa þjónustu í von um að fá upp-
lýsingar um uppruna sinn. „Niður-
stöðurnar komu vissulega á óvart,“
sagði Flora Bertrand, fertug kona
sem gaf eiginmanni sínum slíkan
pakka. Eiginmaður hennar býr í
Brooklyn í New York en er ættaður
frá Trínidad og Tóbagó, ríki í Vest-
ur-Indíum. Hann gat ekki rakið ætt-
ir sínar langt aftur vegna þess að
forfeður hans voru óskráðir þrælar
frá Afríku. „Það kom okkur mest á
óvart hversu mikill Evrópumaður
hann er,“ sagði Bertrand. „Hann er
18% breskur og eitt prósent írsk-
ur.“
Fyrirtækin hafa auglýst þjónust-
una með hjartnæmum frásögnum
af viðskiptavinum sem fundu ætt-
ingja sem þeir vissu ekki af. Á með-
al þeirra er 69 ára kona sem fann 88
ára gamla kynmóður sína sem hafði
alltaf haldið að dóttir sín hefði dáið
skömmu eftir fæðingu. Öðrum hef-
ur brugðið illilega þegar þeim hef-
ur verið sagt að faðir þeirra sé í
raun ekki blóðfaðir þeirra.
Finna rætur sín-
ar undir jólatré
DNA-rannsókn vinsæl jólagjöf vestra
AFP
Jólagjöfin í ár DNA-rannsóknapakk-
ar renna út eins og heitar lummur.