Morgunblaðið - 22.12.2018, Side 33

Morgunblaðið - 22.12.2018, Side 33
Krefjandi störf á heitu svæði HS Orka hefur verið leiðandi í framleiðslu endurnýjanlegrar orku í yfir 40 ár og ætlar sér enn stærri hluti í orkuframleiðslu á umhverfisvænan hátt samfélaginu til hagsbóta. Hjá fyrirtækinu starfar öflugur 60 manna hópur sérfræðinga með mikla reynslu og þekkingu á sínu sviði. Fyrirtækið á og rekur tvær jarðvarmavirkjanir, Orkuverið í Svartsengi og Reykjanesvirkjun, sem eru grundvöllur Auðlindagarðs þar sem markmiðið er að öllum straumum sé breytt í verðmætar auðlindir. Nýting jarðhita á Reykjanesi er áskorun fyrir metnaðarfullt fólk. STAÐARVERKFRÆÐINGUR Við leitum að öflugum staðarverkfræðingi til að leiða byggingu jarðvarmavirkjana á Reykjanesi. Í boði er áhugavert starf á krefjandi og skemmtilegum vinnustað. Starfið felur í sér: • Ábyrgð á nýframkvæmdum við jarðvarmavirkjanir. • Að leiða og sjá um verkskipulagningu, kostnaðaráætlanir og rýni útboðsgagna. • Að leiða og stýra framkvæmdum af hálfu verkkaupa. Jafnframt bera ábyrgð á framkvæmd verks, öryggis- og umhverfismálum, gæðaeftirliti, kostnaðareftirliti og breytingastjórnun. • Að undirbúa verkefni til reksturs. Menntunar- og hæfniskröfur • Menntun á sviði verkfræði, MPM gráða eða sambærileg menntun er kostur. • Yfirgripsmikil þekking á verklegum framkvæmdum. • Að minnsta kosti 10 ára reynsla af stórum framkvæmdum. • Þekking og reynsla af öryggis- og umhverfismálum. • Þekking á orkuiðnaði er kostur. • Afburða góð samskiptafærni, sjálfstæði í starfi, frumkvæði og metnaður til að ná árangri. Nánari upplýsingar veitir Þór Gíslason, thg@hsorka.is Við hvetjum þig til að sækja um á hsorka.is Störfin henta jafnt konum sem körlum. Umsóknarfrestur er til og með 28. desember 2018 JARÐFRÆÐINGUR Á AUÐLINDASVIÐI Við leitum að öflugum starfsmanni til að styrkja auðlindasvið okkar. Auðlindasviðið ber ábyrgð á nýtingu auðlinda sem fyrirtækinu hefur verið treyst fyrir. Starfið felur í sér: • Vinnslueftirlit. • Ráðgjöf við undirbúning og framkvæmd borframkvæmda. • Samskipti við ráðgjafa, verktaka og aðra jarðhitasérfræðinga innan- og utanlands. Við viljum gjarnan heyra í þér ef þú: • Hefur mikinn metnað, frumkvæði og getur unnið sjálfstætt. • Ert tilbúin(n) til að takast á við krefjandi verkefni. • Ert með jarðfræðimenntun. Nánari upplýsingar veitir Kristín Vala Matthíasdóttir, kvm@hsorka.is        atvinna@mbl.is • Sölufulltrúi • Richard Richardsson, richard@mbl.is, 569 1391 hagvangur.is Náðu meiri árangri í samningaviðræðum Námskeið í samningatækni

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.