Morgunblaðið - 22.12.2018, Page 35

Morgunblaðið - 22.12.2018, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. DESEMBER 2018 35 Við leitum að árangursdrifnum og lausnamiðuðum sérfræðingum til að taka þátt í áframhaldandi uppbyggingu á framúrskarandi stjórnkerfi hjá VÍS og stafrænni vegferð okkar. Við sækjumst eftir liðsmönnum með afburða færni í samskiptum og getu til að vinna sjálfstætt og af fagmennsku að krefjandi verkefnum. Eingöngu koma til greina einstaklingar með haldgóða reynslu á sínu sérsviði. Við bjóðum framúrskarandi starfsumhverfi, frábært samstarfsfólk og umhverfi þar sem einstaklingar geta náð árangri. VÍS | ÁRMÚLA 3 | 108 REYKJAVÍK | SÍMI 560 5000 | VIS.IS Í samræmi við jafnréttisstefnu VÍS hvetjum við konur jafnt sem karla til að sækja um starfið Markmið VÍS er að vera alltaf í fremstu röð tryggingafélaga á Íslandi og er ánægja starfsfólks og viðskiptavina lykilatriði í velgengni félagsins. Hjá okkur starfar framúrskarandi hópur einstaklinga sem saman mynda sterka og öfluga liðsheild. Umsóknarfrestur er til og með miðvikud. 2. janúar. Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir að sækja um störfin á heimasíðu Ráðum, www.radum.is. Umsókn um starfið þarf að fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Nánari upplýsingar veitir Agla Sigríður Björnsdóttir hjá Ráðum ráðningarstofu agla@radum.is Innri endurskoðandi Innri endurskoðun er eitt af fjórum lykilstarfssviðum í starfsemi vátryggingafélaga. Innri endurskoðandi er ráðinn af stjórn VÍS. Hann ber ábyrgð á að þróa og viðhalda virku gæðaeftirliti sem tekur til allra þátta starfsemi innri endurskoðunar. Meistarapróf á sviði viðskipta-, fjármála eða sambærilegum sviðum er skilyrði. Sérþekking á sviði innri endurskoðunar skilyrði. Löggilding og faggilding í endurskoðun kostur. Stjórnunarreynsla er kostur. Leiðtogahæfni, drifkraftur og samskiptafærni. Menntunar- og hæfnikröfur Veitir óháða og hlutlæga staðfestingu og ráðgjöf sem ætlað er að bæta reksturinn. Þróar og viðheldur virku gæðaeftirliti . Greinir og leggur mat á hvort eftirlitsferli/kerfi séu til staðar og séu viðeigandi og skilvirk. Ber kennsl á og metur mögulega áhættuþætti í starfseminni og fer fram á úrbætur. Helstu verkefni og ábyrgð: Lögfræðingur á skrifstofu forstjóra Starfið heyrir undir yfirlögfræðing á skrifstofu forstjóra. Hlutverk hans er m.a. að sinna starfi persónuverndarfulltrúa og hafa eftirlit með því að VÍS starfi í samræmi við lög og reglur á sviði persónuverndar. Þar að auki mun viðkomandi vinna náið með yfirlögfræðingi félagsins að verkefnum sem snúa að stjórnarháttum, regluvörslu og ráðgjöf til stjórnar og stjórnenda. Meistara- eða embættispróf í lögfræði skilyrði. Framúrskarandi samskiptahæfni. Þekking og skilningur á upplýsingatækni kostur. Færni til að miðla upplýsingum á einfaldan hátt. Reynsla af breytingastjórnun er æskileg. Menntunar- og hæfnikröfur Sinnir hlutverki persónuverndarfulltrúa og er tengiliður við Persónuvernd. Upplýsir um skyldur, veitir ráðgjöf og þjálfar stjórnendur og starfsfólk á sviði persónuverndar. Tekur á móti fyrirspurnum og beiðnum frá viðskiptavinum og starfsmönnum félagsins er varða persónuvernd. Sinnir ýmsum verkefnum á sviði regluvörslu samkvæmt lögum um vátrygginga- starfsemi og lögum um verðbréfaviðskipti. Önnur lögfræðileg ráðgjöf. Helstu verkefni og ábyrgð: Sérfræðingur í upplýsingaöryggis- og gæðamálum Sérfræðingur í upplýsingaöryggis- og gæðamálum heyrir undir yfirlögfræðing á skrifstofu forstjóra. Hlutverk hans er að bera ábyrgð á stjórnkerfi upplýsingaöryggis- og gæðamála og stýra umbótum og breytingum á því. Að auki heyrir gæðahandbók og umsjón skjalamála undir viðkomandi. Þekking og reynsla af upplýsingaöryggismálum skilyrði. Háskólamenntun sem nýtist í starfi. Framúrskarandi samskiptahæfni. Þekking og reynsla af skjalastjórnun. Menntunar- og hæfnikröfur Sinnir hlutverki upplýsingaöryggisstjóra. Er ábyrgur fyrir stjórnkerfi upplýsingaöryggis hjá VÍS. Upplýsir um skyldur, veitir ráðgjöf og þjálfar stjórnendur og starfsfólk á sviði öryggis- og gæðamála. Er ábyrgur og hefur umsjón með skjalastefnu, skjalastjórnun og þróun og innleiðingu rafræns skjalastjórnunarkerfis. Helstu verkefni og ábyrgð: Verkefnastjóri Við leitum að árangursdrifnum og lausnamiðuðum verkefnastjóra til að leiða verkefni í stafrænni vegferð okkar. Frumkvæði, drifkraftur, framúrskarandi samskiptahæfni og metnaður til að gera sífellt betur eru eiginleikar sem við sækjumst eftir inn í okkar hóp. MPM eða sambærileg menntun í verkefnastjórnun kostur. Reynsla af upplýsingatækniverkefnum kostur. Sjálfstæði í vinnubrögðum, lausnamiðuð nálgun og frumkvæði. Framúrskarandi samskiptahæfni. Færni til að miðla upplýsingum á einfaldan hátt. Sveigjanleiki og hæfni til að vinna vel undir álagi. Menntunar- og hæfnikröfur Leiða framsækin verkefni í stafrænni vegferð VÍS. Byggja upp og leiða framúrskarandi AGILE verkefnateymi. Ábyrgð á að verkefni séu innan tíma- og kostnaðaráætlana. Ábyrgð á upplýsingafundum með hagsmunaaðilum. Miðlun á framgangi og árangri verkefna. Helstu verkefni og ábyrgð: FLEIRI SIGURVEGARA

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.